Morgunblaðið - 03.01.2020, Síða 20

Morgunblaðið - 03.01.2020, Síða 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2020 IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Bílar á lager Sími 4 80 80 80 2019 Ford F-350 Lariat Sport Litur: Magnetic/ Svartur að innan. 6,7L Diesel ,450 Hö, 925 ft of torque Lariat með Sport pakka, Ultimate pakka , up- phituð/loftkæld sæti, heithúðaðan pall, fjarstart og trappa í hlera, Driver alert og distronic, Bang Olufssen hljómkerfi, 360 myndavél. VERÐ 10.129.000 m.vsk 2019 Ram Limited 3500 35” Nýtt útlit 2019! Litur: Granite Crystal Nýr 6,7L Cummins Turbo Diesel, 400 hö, togar 1000 pund! Aisin sjálfskipting, upphi- tanleg og loftkæld sæti, hiti í stýri, sóllúga, nýr towing technology pakki. 35” dekk. VERÐ 11.395.000 m.vsk 2019 Ford F-150 Lariat Sport Litur: Svartur, svartur að innan. FX4 offroad-pakki, Sport-pakki,Bakkmyn- davél, Bang & Olufsen hátalarakerfi, hiti í öllum sætum, hiti í stýri, fjarstart, o. fl. 3,5 L Ecoboost (V6), 10-gíra, 375 hestöfl 470 lb-ft of torque VERÐ 12.770.000 m.vsk 2019 Ford F-150 Lariat Litur: Platinumhvítur, svartur að innan. FX4 offroad-pakki, Bakkmyndavél, Bang & Olufsen hátalarakerfi, hiti í öllum sætum, hiti í stýri, fjarstart, o. fl. 3,5 L Ecoboost (V6), 10-gíra, 375 hestöfl 470 lb-ft of torque VERÐ 12.770.000 m.vsk Aðalstræti 2 | s. 558 0000 Lifandi píanó tónlist öll kvöld vikunnar www.matarkjallarinn.is VERÐUR Væri skynsamlegt fyrir þessa fámennu þjóð að einfalda og breyta stjórnskipulagi sínu og þar með virkni kerfisins fremur en að takast látlaust á um innhald þess? Mætti með einföldun skipu- lags koma í veg fyrir meintan „dauða lýðræðis og upp- risu kerfisins“ svo vitnað sé í pistil Þorsteins Pálssonar frá 11. nóvem- ber sl. á sjónvarpsstöðinni Hring- braut? Pistillinn hefst á tilvitnun í ræðu formanns stjórnmálaflokks af fulltrúaráðsfundi: „Vandinn sem við stöndum nú frammi fyrir hér á landi og víðar er að lýðræðið er hætt að virka sem skyldi. Kerfið ræður.“ Þorsteinn hrekur sjö dæmi sem formaðurinn nefnir um slíka þróun. Dæmi sem öll snúa að inni- haldi kerfisins og virkni en ekki skipulagi þess. Getur verið að þrátt fyrir að Þorsteinn skjóti dæmi for- mannsins í kaf hvað kerfisræði varðar sé engu að síður hægt að einfalda og bæta almannaþjón- ustuna á Íslandi með einföldun, skipulagsbreytingum og bættri virkni? Getum við sammælst um að það gætu falist mikil tækifæri í að ein- falda stjórnkerfi fyrir 358.000 manns? Markmiðið er þríþætt: Í fyrsta lagi að bæta þjónustu við íbúa og færa hana nær þeim. Í annan stað að nýta betur þá tæpu 1.300 milljarða króna af almannafé sem við greiðum árlega til sam- neyslunnar og að síðustu að jafna, einfalda og styrkja stjórnkerfi framkvæmdavaldsins. Framtíðar- sýnin er að hér yrði fjölskipað stjórnvald með níu ráðuneytum á fyrsta stjórnsýslustiginu. Á seinna stiginu, nú þegar öll „jarðarbönd“ trosna og þjónusta á tímum fjórðu iðnbyltingarinnar færist í rafrænt form sem er án allra sveitarfélaga- marka, væri skynsamlegt að átta til tólf sterk sveitarfélög tækju við málaflokkum á borð við málefni aldraðra, hjúkrunarheimili, heilsugæslu og fram- haldsskóla frá ríkinu. Slík einföldun og til- færsla verkefna þýddi ekki einungis að ofan- greindri framtíðarsýn yrði náð heldur byði þetta einnig upp á meiriháttar hagræð- ingartækifæri hvað varðar endurskoðun á stofnanakerfi ríkisins. Stofnunum yrði breytt, þeim fækk- að og þær styrktar. Einfaldara Ís- land. Undanfarna mánuði hefur verið töluvert rætt um einföldun, umbæt- ur og breytingar á almannaþjónust- unni og ýmsir aðilar hafa bent á þörfina á að einfalda og bæta stjórnkerfi okkar. Líklegt er að málið verði á stefnuskrá einhverra pólitískra flokka fyrir næstu kosn- ingar. Tveir flokkar hafa þegar lagt af stað og óskað eftir reynslusögum notenda úr kerfinu, vonandi í þeim tilgangi að auðvelda flokkunum grunnvinnu fyrir tillögur að kerf- isbreytingum. Án efa er það gagn- legt að leita eftir reynslu notenda af almannaþjónustunni en í mínum huga liggur vandi kerfisins í tveim- ur meginþáttum sem erfitt er að ímynda sér að slíkar sögur nái utan um, þ.e. menningu og skipulagi kerfisins sjálfs. Samkvæmt kenn- ingum í stjórnunarfræðum „borð- ar“ menning kerfisins viðleitni til stefnubreytinga og með sama hætti mætti halda því fram að skipulag kerfisins hefði yfirhöndina þegar kemur að virkni þess. Með stjórnsýsluúttektum, vinnu- stofum og stefnumótun er enda- laust hægt að vinna með menningu skipulagsheilda innan almannaþjón- ustunnar en ég er þeirrar skoðunar að heillavænlegast sé að breyta hvoru tveggja samhliða; skipulagi kerfisins og innleiða menningar- breytingu. Mörgum finnst skyn- samlegast að horfa fyrst til grunn- skipulags þess valds (þjónustu- umboðs) sem liggur á sviði framkvæmdavaldsins. Mér virðist vandi stjórnarflokka hverju sinni, þegar kemur að um- bótum á stjórnkerfinu, ekki vera skortur á vilja eða umboði heldur frekar sá að eftir 6-8 mánaða stjórnarsetu hafi viljinn og fyrir- heitin vatnast út. VAR Stjórnarráðið er samheiti yfir ráðuneytin. Árið 2011 var lögum um Stjórnarráð Ísland breytt. Áður en til breytinganna kom hafði nefnd skipuð af forsætisráðherra sent frá sér skýrsluna „Samhent stjórnsýsla“ og lagt til ýmsar breytingar. Kristín Ólafsdóttir kemst að þeirri niðurstöðu í rann- sókn sinni frá 2016 að heildarend- urskoðun laga um Stjórnarráð Ís- lands hefði ekki orðið nema vegna efnahagshrunsins haustið 2008: „Hrunið var ástæða þess að gengið var til kosninga á þessum tíma, sem annars hefði ekki verið. Hrun- ið var ástæðan fyrir að þessir flokkar fengu meirihluta á Alþingi. Hrunið sýndi að kerfið hafði ekki séð í hvað stefndi og var vanhæft að taka á ástandinu sem skapaðist í kjölfarið og því þurfti að breyta kerfinu.“ Tillögur nefndarinnar áttu vissar rætur í stefnustraumi sem nefndur er samhæfð stjórnsýsla, á ensku ýmist „joined-up government“ eða „whole-of-government“. Slíkur straumur og vinnulag grundvallast á þátttöku fleiri aðila sem koma bæði innan og utan kerfisins. Í Eftir Héðin Unnsteinsson » Þessi sílóstrúktúr Stjórnarráðsins litar annað skipulag og virkni kerfisins. Skipulagið gegnsýrir tæplega 20.000 starfsmenn sem starfa í okkar þjónustu hjá ríkinu og jafnvel að hluta þeirra 22.000 sem sinna okkar málum á sveitarstjórnarstiginu. Héðinn Unnsteinsson Mynd/Rán Flygenring Aukin „lárétt“ samhæfing „lóðréttu sílóanna“ er leiðin til að takast á við „láréttar“ áskoranir framtíðarinnar. Einfaldara Ísland ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS ÞARFTU AÐ LÁTA GERA VIÐ?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.