Morgunblaðið - 03.01.2020, Síða 27
MINNINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2020
✝ Unnur Kon-ráðsdóttir
fæddist á Ísafirði
21. febrúar 1930.
Hún lést á Land-
spítalanum 25.
desember
2019.Unnur var
dóttir hjónanna
Konráðs Jens-
sonar veitinga-
manns og Þor-
bjargar Svein-
björnsdóttur.
Unnur ólst upp á Ísafirði ein
af 8 systkinum, þau eru nú öll
látin nema yngsta systirin Edda
Konn.
Unnur giftist Eyjólfi Bjarna-
syni rafvirkjameistara og átti
með honum fimm börn: Birnu,
Þorbjörgu, Konráð, Herdísi og
Unnar.
Unnur og Eyjólfur slitu sam-
vistum 1972 en Unnur fann ást-
ina aftur hjá Ásmundi Pálssyni,
lögfræðingi og bridgemeistara,
og giftist honum 1984.
Unnur, Úffa, ólst upp á Ísa-
firði, næstyngst átta systkina
sem flest voru talsvert eldri og
nutu þær yngstu tvær þess á
margvíslegan háttAðeins 16 ára
varð hún Íslandsmeistari með
handboltafélaginu Vestra árið
1946 og árið eftir var henni boð-
ið sæti í fyrsta kvennalandsliði
Íslands en gat ekki þegið það
þar sem hún var komin með
Birnu undir belti.
Næstu árin fóru í barneignir
og uppeldi en 1963 fór hún til
Frakklands og lærði snyrtingar
og förðun og setti síðan upp á
Ísafirði fyrstu snyrtivöruversl-
unina utan höfuðborgarinnar og
hélt námskeið víða um land.
Unnur flutti með börnin til
Reykjavíkur 1965, hún vann um
tíma hjá systur sinni í Lóubúð en
réðst síðan sem verslunarstjóri
til Álafoss og stýrði þeirri versl-
un farsællega í mörg ár á mikl-
um umbrotatímum. Hún var
framkvæmdastjóri Belgjagerð-
arinnar um nokkurt skeið en
réðst síðan til Karnabæjar og
vann þar nokkur ár. Unnur naut
þess að ferðast og skoða heim-
inn, lærði hún því fararstjórn og
þegar færi gafst fór hún með
hópa víðsvegar um Ísland, Kan-
ada, Kanarí og víðar.
Hún réð sig síðan til Útvegs-
bankans og hélt sig komna í gott
skjól út starfsaldurinn.
Þegar Útvegsbankanum var
lokað missti hún vinnuna og við
tók erfiður tími.
Það var þó henni líkt að nýta
tímann sem gafst og hún hellti
sér í félagsmálin, var í forsvari
fyrir atvinnulausa og gerðist fé-
lagi í ITC Málfreyjufélaginu
Björkin og var orðin forseti þess
1993.
Hún var skólaritari síðustu
starfsárin og settist jafnframt í
Háskóla Íslands og hóf nám í
heimspeki.
Jarðarför Unnar fer fram frá
Háteigskirkju í dag, 3. janúar
2020, klukkan 11.
Birna, f. 15.12.
1947, hún dó 1990 og
lét þá eftir sig eigin-
mann, Eirík
Tryggvason, og þrjú
börn, Írisi, Tryggva
og Eyjólf Róbert.
Þorbjörg, f. 16.9.
1950, en lifði aðeins
fimm mánuði.
Konráð, f. 28. júní
1954, eiginkona
Helga Óladóttir, þau
eiga tvö börn, Óla og Unni.
Herdís, f. 4. ágúst 1957, eigin-
maður Ægir K. Bjarnason
rennismiður, þeirra synir eru
Elvar, Rúnar og Steinar.
Unnar, f. 7.12. 1958, eigin-
kona hans er Hildur Pálsdóttir
og eiga þau þrjú börn, Arnar,
Atla og Ásu. Alls átti Unnur 42
afkomendur þegar hún lést.
Elsku mamma mín.
Nú ertu farin, og andlát þitt var
svo friðsælt.
Undanfarin ár hafa verið svo
samtvinnuð þér að eftir situr mik-
ið tómarúm.
Við spjölluðum mikið saman og
þú naust þess að heyra hvað allir
væru að bralla og ljómaðir af sög-
um af barnabörnunum.
Já mamma, að eiga yfir 40 af-
komendur eins og þú sagðir hvílík
blessun.
Skildir svo vel að lifa ætti lífinu
og eins og þú sagðir: Hver nennir
að heimsækja dauðvona kerlingu
eins og mig?
Í æsku varst þú kletturinn
minn. Það var ekkert sem þú gast
ekki gert og setti ég þig á stall og
var svo stolt af ofurkonunni
mömmu minni, af dugnaði þínum
og áræði. Þú stóðst alltaf við bakið
á mér og okkur systkininum.
Missir Birnu beygði okkur öll
og var þér allt að óyfirstíganlegur
og ofurkonan varð bara mamma
mín.
Ferðabakteríuna erfði ég frá
þér, margar af mínum bestu
minningum eru frá ferðum okkur
saman. Þú varst börnum mínum
góð amma og sannur vinur.
Eftir mjög viðburðaríka ævi
sem verslunareigandi, snyrti-
fræðingur, verslunarstjóri, leið-
sögumaður, bankastarfsmaður,
skólaritari og háskólanámsmaður
varst þú líka mamma og amma.
Þegar árin færðust yfir breytt-
ist ég í klettinn þinn með dyggri
aðstoð barnabarnanna Írisar og
Rúnars.
Það var svo dásamlegt þegar
barnabörnin komu að kveðja þig
og stóðu í hring um rúmið þittog
þú opnaðir augun og leist yfir hóp-
inn þinn og sagðir: „Mikið eruð
þið öll falleg.“
Elsku mamma mín, vona að all-
ir sem eru farnir hafi tekið á móti
þér í Sumarlandinu.
Herdís (Didda), Ægir
Elvar, Rúnar, Steinar
og fjölskyldur.
Horfandi til baka þá minnist ég
þess svo sterkt hve stoltur ég var
af mömmu minni. Hún bar með
sér reisn bæði í framkomu og fasi,
einhvern óskilgreindan mikilleika
sem gerði að verkum að fólk leit-
aði til hennar um forystu. Ég man
stolt mitt af mömmu sem fjall-
konu, sem fyrirliða handboltaliðs-
ins, sem konunnar sem átti búð,
sem verslunarstjóra í Álafossi og
sem framkvæmdastjóra Belgja-
gerðarinnar.
Að mamma væri fararstjóri um
allan heim það var ekki til minnk-
unar. Ég var stoltur af henni þeg-
ar hún innritaðist í HÍ til að lesa
heimspeki. Hún hafði glæsilega
rithönd og var snilldarkokkur, ég
var líka stoltur af því. Það var gott
að leita til mömmu með hvað sem
var. Hún var svo greind og vel les-
inn að maður kom alltaf betur
settur frá henni.
Elsku mamma er farin, hvíld-
inni fegin eftir löng veikindi en við
hin söknum hennar en erum sátt.
Hún gaf okkur mikið og við vor-
um stolt af henni.
Konráð Eyjólfsson.
Elsku Úffa amma.
Þú hressa og skemmtilega
kona, sem áttir sögu fyrir öll
tækifæri. Ég mun sakna þess að
heyra þær ekki fleiri frá þér og
djúpu störunnar í augun á mér
þegar ég spurði þig spurninga
sem þú reyndir að sjá endurtekn-
ar í augum mér enda heyrðirðu
oftast ekki hvað ég sagði. Ég er
nokkuð viss um að ég hafi aldrei
verið jafn djúprödduð og kringum
þig þar sem ég reyndi að herma
eftir bassanum í röddinni á pabba
sem þú heyrðir svo miklu betur í.
Það var alltaf stutt í brosið hjá
þér og ég er þakklát fyrir að hafa
svo sterka og góða konu í mínu
lífi. Gleymi því til dæmis aldrei
þegar þú mættir með Rís-kubba
og kók heim því þú heyrðir frá
pabba að ég væri lasin. Ég viður-
kenni að ég reyndi oft að fá pabba
og mömmu til að láta þig vita þeg-
ar ég var veik eftir það. Gekk mis-
vel.
Ég er þakklát fyrir að vera
komin af þér þrátt fyrir að þú haf-
ir reglulega minnt mig á það
hversu leiðinlegt barn ég var
(mömmustelpa) enda varstu dug-
leg að láta mig vita á einn eða ann-
an hátt hversu ánægð þú værir
með mig eftir því sem ég varð
eldri.
Ég naut þess að eyða tíma með
þér en eins og er alltof algengt þá
hélt ég að ég hefði lengri tíma
með þér og var alltaf á leiðinni í
heimsókn. Það var þó blessunar-
lega ekki langt síðan síðast og þú
fékkst að fylgjast með gorminum
honum Frosta mínum, nýjasta af-
komandanum.
Kæra amma, það er sko ekki
leiðum að líkjast að vera nafna þín
en ég mun samt aldrei svara nafn-
inu Úffa, enda bara ein Úffa Kon.
Unnur Linda Konráðs-
dóttir, barnabarn.
Amma mín.
Þú kvaddir svo fallega á jóla-
dag, umvafin ást og kærleika.
Amma. Valkyrjan, ævintýra- og
fróðleiksþyrsta, sjálfstæða, fram-
sýna, frumlega, fagurkerinn,
stolta, þrjóska, beinskeytta glæsi-
lega Úffa amma.
Það eru eflaust ekki margir
sem áttu ömmu sem fór með í
rennibrautina í sundi eða hékk
með manni í læknum í Nauthóls-
vík.
Eða ömmu sem átti bíl sem var
algjör kaggi, Trabant sem sagði
nafnið sitt sjálfur.
Ömmu sem lá endalaust uppi í
rúmi á bolludaginn og þóttist sofa
svo við gætum komið og bollað
hana.
Ömmu sem hlustaði á Róbert
Arnfinnsson syngja með manni
Arídúarídúadei.
Ömmu sem spilaði á varirnar
og kinnar með fingrunum.
Amma gafst aldrei upp, trúði
endalaust á að maður gæti allt,
maður þyrfti bara að vera tilbúinn
að leggja á sig.
Það gerði hún, ef hún ætlaði
sér eitthvað. Þá gerði hún það.
Hún fann leið. Sjötug fór amma
í Háskólann að nema heimspeki.
Við rifjuðum upp nú fyrir
stuttu að á tímapunkti þegar
henni fannst hún ekki muna neitt
sem hún væri að læra og hefði
nefnt við rektor hvort hún ætti
ekki að hætta, hefði hann svarað:
„Á meðan þú hefur svona gaman
af þessu skaltu halda áfram,“ og
það gerði hún, þar blómstraði
hún.
Hún amma mín átti stundum
erfitt með að sýna mildi og hlýju,
en ef maður gaf henni það ekki
eftir og þétti faðmlagið þegar
henni fannst komið gott eða sagði
fallega hluti um hana og hrósaði
náði maður inn að kvikunni
hennar.
Hún var vön að vera sterk og
stundum hafði ég á tilfinningunni
að hún væri hrædd um að gefa
eftir því þá myndi hún bogna.
Allir bíltúrarnir, hlátursköstin,
kaffihúsaferðirnar, spjall yfir
rauðu, að setja í hárið hennar og
gera hana fína. Hún var alltaf
glæsileg og vel tilhöfð.
Hún þjálfaði sig í að ganga bein
í baki og þannig leið hún um. Há-
vaxin, teinrétt og fáguð með lakk-
aðar táneglur ... alltaf!
Við vorum búnar að skipu-
leggja að fagna saman því báðar
ættum við stórafmæli á nýju ári.
Það er reyndar merkilegt hve
háum aldri hún náði í ljósi þess að
frá því ég man eftir mér þá hélt
hún því fram að hún myndi deyja
64 ára. Gaf mér meira að segja al-
búm með myndum af mér rétt áð-
ur en hún náði þeim aldri, en bað
svo um það aftur nokkrum árum
seinna þegar ljóst var að hún var
ekkert á förum.
Amma var alltaf með bók,
hennar flótti og lækning var að
lesa, í lestrinum gleymdi hún sér.
Mér er minnisstæð ein ferð
okkar á bókamarkað, amma segir
mér á leiðinni sögu sem væri ein
af hennar uppáhalds. Ferðin sem
aldrei var farin en hún vissi ekki
hvort væri hægt að eignast þá bók
lengur. Í hillu lítil og rauð innan
um alla hina gömlu doðrantana
beið bókin okkar, svona var svo
margt hjá okkur.
Síðustu daga hennar var hún
dugleg við að segja okkur hvað
hún væri þakklát fyrir hvað hún
ætti yndislega afkomendur.
Hún sat í rúminu brosti og and-
varpaði: „Mikið er ég heppin –
mikið lifandis ósköp hvað ég er
heppin.“
Amma mín, eins ljúfsárt og það
er að kveðja, þá fer ekki sú sýn frá
mér að Ási, ástin þín, mamma og
pabbi hafi tekið þig í faðminn sinn
og þið liðið saman inn í sumar-
landið sameinuð á ný.
Guð geymi þig.
Þín
Íris.
Unnur
Konráðsdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar
og tengdafaðir
ANGANTÝR EINARSSON
fyrrverandi kennari og skólastjóri
lést á hjúkrunarheimilinu Hlíð þriðjudaginn
24. desember.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 6. janúar
klukkan 10.30.
Auður Ásgrímsdóttir
Halla Angantýsdóttir
Hlynur Angantýsson AlmaDís Kristinsdóttir
Ásgrímur Angantýsson
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda hlýju og
samúð við andlát og útför ástkærrar móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÞÓRU Þ. BJÖRNSDÓTTUR,
frá Hrísum,
Víðilundi 24, Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks lyflækningadeildar Sjúkrahússins
á Akureyri fyrir alúð og umhyggju.
Jón Ágúst Aðalsteinsson Halla Sveinsdóttir
Guðný Aðalsteinsdóttir Sigurður Þór Ákason
Sigrún Aðalsteinsdóttir Stefán Geir Pálsson
Stefán Aðalsteinsson Þuríður Túrit Þorláksdóttir
Halldór Aðalsteinsson Helga S. Steingrímsdóttir
Hlynur Aðalsteinsson Guðrún Þ. Ásmundsdóttir
ömmubörn og langömmubörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
BIRNA ÁGÚSTA BJÖRNSDÓTTIR,
lést fimmtudaginn 19. desember.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð og
hlýhug.
Guðrún Anna Antonsdóttir
Magnea S. Jónsdóttir Jónas G. Halldórsson
Hanna Þórunn Skúladóttir Kristján Þór Hallbjörnsson
Áróra Hrönn Skúladóttir Henrik Danielsen
barnabörn og barnabarnabörn
Þökkum innilega samúð og hlýhug við
andlát og útför okkar ástkæra
INGÓLFS HELGA ÞORLÁKSSONAR.
Fyrir hönd aðstandenda,
Viðar Ingólfsson
Guðbjörg Emma Ingólfsdóttir
Hjördís Björk Ásgeirsdóttir
✝ Gerða Jón-fríður Arthúrs-
dóttir Cougan
fæddist á Akranesi
26. september
1928. Hún lést á
hjúkrunarheimili í
Alabama í Banda-
ríkjunum 14. des-
ember 2019.
Gerða var dóttir
hjónanna Arthúrs
Eyjólfssonar og
Guðrúnar Jónsdóttur frá Akra-
nesi, hún átti fjögur alsystkini,
Maríus, f. 1924, Eyjólfur látinn,
Jóna Guðný látin og Fanney
Dagmar látin og tvo hálf-
bræður, Gísla og
Karl Diðrik, báðir
látnir.
Gerða lætur eftir
sig fjögur börn,
Karen Ann, f. 1953,
Arthur Glenn, f.
1954, Sharen Lee, f.
1957, og Karl Lee,
f. 1963. Barnabörn-
in eru fimm og
barnabarnabörnin
eru sex.
Gerða var jarðsett við hlið
eiginmanns síns, Harry Cougan,
í National Cemetery í Chatt-
anooga Tennessee 19. desember
2019.
Þegar ég var barn var alltaf
einhver ævintýraljómi yfir Gerðu
frænku minni sem bjó í fjarlægu
landi og var svo falleg og alltaf svo
flott klædd og fylgdist ég vel með
öllum fréttum sem bárust frá
henni og myndum en á þeim tíma
voru bara póstsendingar á milli,
bréf og spólur sem hún talaði inn
á.
Gerða giftist Jack Womack
sem var hermaður á Keflavíkur-
flugvelli og fluttist með honum til
Bandaríkjanna 1951 en Jack lést
við þjónustu í hernum og voru
börn þeirra þá mjög ung.
Síðar giftist Gerða Harry
Cougan, yndislegum manni sem
reyndist henni og börnum hennar
eins og besti eiginmaður og faðir
og átti ég eftir að kynnast honum
mjög vel og reyndust þau syni
mínum svo vel þegar hann fór
bara 17 ára gamall til náms í
Bandaríkjunum og get ég aldrei
fullþakkað þá aðstoð. Gerða og
Harry bjuggu lengst af í Chatt-
anooga og áttu þar glæsilegt
heimili og var alltaf gaman að
koma til þeirra og alltaf frábærar
móttökur.
Fyrir 4 árum þegar Gerða var
komin á heimili fyrir eldri borgara
í Atlanta eftir andlát Harrys og
bjó þar í skjóli Arthurs sonar síns
og konu hans Beverly, sem voru
henni svo góð og hugsuðu vel um
hana, átti ég því láni að fagna að fá
að dvelja hjá henni í fallegu litlu
íbúðinni hennar í vikutíma og
spjölluðum við um margt sem á
daga hennar hafði drifið um æv-
ina, flest gott, en fyrstu árin eftir
andlát Jacks, fyrri manns hennar,
hafa örugglega verið henni erfið,
hún með fjögur ung börn en hún
frænka mín dó ekki ráðalaus og
fór í flottar tískuverslanir og
bauðst til að taka að sér að laga
fatnað ef konur þurftu þess með
og þannig bjargaði hún sér enda
var hún alveg sérlega lagin og al-
ger listamaður. Hún saumaði
fatnað, prjónaði, saumaði út
myndir og púða og málaði á tré og
var heimili hennar fullt af alls
konar flottum munum eftir hana.
Ég á eftir að sakna þessa ís-
lenska víkings eins og börnin
hennar kölluðu hana oft og mun
geyma minningu hennar í huga
mér um ókomin ár.
Guð geymi þig, elsku frænka.
Guðrún Adda Maríusdóttir.
Gerða Jónfríður
Arthúrsdóttir
Cougan
Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með
minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal
senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið
sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið minning@mbl.is og láta
umsjónarmenn minningargreina vita.
Minningargreinar