Morgunblaðið - 03.01.2020, Síða 30
30 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2020
Opnaðu
fyrir hönnun á heimilið
Randi hurðarhúnarnir eru
margverðlaunaðir fyrir ný-
sköpun, stílhreina hönnun
og gæði. Hönnunin byggir
á gömlum grunni, en Randi
var stofnað í Danmörku árið
1878. Fjölmargar þekktar
hönnunarstofur hafa komið
að hönnun hurðarhúnanna,
meðal annars AART
designers, Friis & Moltke
og C.F. Møller.
Randi Komé
Svartur
Hönnuður: C.F. Möller
Randi Komé
Kopar
Hönnuður: C.F. Möller
SKÚTUVOGI 1C | 104 REYKJAVÍK | SÍMI 550 8500 | WWW.VV.IS
50 ára Kristrún er frá
Ósabakka á Skeiðum
en býr á Selfossi. Hún
er leikskólakennari að
mennt og er með
meistaragráðu í stjórn-
un menntastofnana frá
HÍ. Kristrún er
leikskólastjóri í Hulduheimum á Selfossi.
Maki: Óskar Ingi Böðvarsson, f. 1968,
rafvirki hjá Landsvirkjun.
Synir: Kári Már, f. 1996, og Hafliði Már, f.
2002.
Foreldrar: Hafliði Sveinsson, f. 1944, og
Ragnhildur Helgadóttir, f. 1944, sauð-
fjárbændur á Ósabakka.
Kristrún Hafliðadóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Haltu ró þinni. Ef eitthvað renn-
ur þér úr greipum máttu vera viss um
að annað og nýtt kemur í staðinn.
20. apríl - 20. maí
Naut Eitthvað sem þú ert að spá í er
sennilega ekki mjög góð hugmynd. Hvít
lygi er saklaus lygi ekki satt? Þú vildir
allavega vel!
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú tekur álagið af samband-
inu með því að láta ekki litla galla fara í
taugarnar á þér og fyrirgefa þá stóru.
Ekki hafna hjálp sem þér er boðin.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Farðu þér hægt, þegar við
ókunnan er að eiga, sérstaklega ef ekki
er á hreinu, hvað fyrir honum vakir.
Góðir grannar koma á óvart.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Gættu orða þinna í samskiptum
við samstarfsmenn þína í dag. Fyrsta
skrefið í ræktinni getur tekið á, ekki ör-
vænta.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Vertu óhrædd/ur við að sýna
öðrum væntumþykju. Þú færir út kví-
arnar á árinu. Lausn flókins vandamáls
reynist auðveldari en þú áttir von á.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú hefðir gott af því að fara í stutt
ferðalag í dag. Varastu að grípa til
hvítrar lygi. Ekki kaupa köttinn í sekkn-
um.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Reyndu að sýna börnunum
í kringum þig þolinmæði í dag. Þér líður
eins og ofurhetju í augnablikinu, þú
veist af hverju.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Vertu ekki að hneykslast á
eyðslu annarra ef þú þarft ekki að bera
ábyrgðina. Hugsaðu áður en þú talar.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Nú mega peningarnir byrja
að koma í kassann. Vertu víðsýn/n og
gefðu skoðunum annarra gaum og
reyndu svo að finna viðunandi mála-
miðlun.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Styrkur þinn er sköp-
unarmátturinn. Farðu þínar eigin götur,
álit annarra skiptir engu því hver er
sinnar gæfu smiður.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Settu þig alltaf í fyrsta sæti, þú
ert nefnilega aðalmanneskjan í þínu lífi.
Haltu þínu striki.
bjargaði reyndar lífi mínu því þar
uppgötvaðist alvarlegur hjartagalli
sem var lagaður. Lokaverkefnið sem
við unnum nokkur saman var fyrsta
rannsóknin á kulnun í starfi sem gerð
hefur verið hér á landi. Heitið kom frá
móður eins úr hópnum.“ Alda starfaði
síðan við hjúkrun, mest í heilsugæslu,
til ársins 2002.
Alda nam við Myndlista- og hand-
íðaskóla Íslands 1989-1993 í fjöl-
tæknideild og var virkur myndlistar-
maður í mörg ár og hlaut tvívegis
starfslaun. Hún hélt nokkrar einka-
sýningar hérlendis og erlendis og tók
þátt í fjölda samsýninga og sýningar-
stjórn á nokkrum viðburðum.
Árin 1993-1995 vann Alda við
Heilsugæslustöðina á Laugarvatni og
bjó þar og 1996-1997 kenndi hún í
Reykholti í Borgarfirði síðasta árið
sem þar var rekinn skóli. Árið 1997
flutti Alda á Selfoss þar sem hún hef-
ur búið síðan.
Alda stofnaði ásamt Jóni eigin-
manni sínum Alvarlega félagið árið
2001, en það heldur utan um texta-
vinnu og verkstæði fyrir m.a. fram-
leiðslu á íslenskri útsaumsvöru og
búningagerð sem hófst löngu fyrr og
sem síðar opnaði dyrnar sem Alvöru-
búðin. Hún stofnaði árið 2009 Gull-
kistuna, miðstöð sköpunar á Laugar-
vatni, ásamt Kristveigu Halldórs-
dóttur. „Gullkistan er heimili og
vinnustofa fyrir listamenn í öllum
greinum, m.a. myndlist, ljósmyndun,
og kærleika í heiminum því menn-
irnir eiga miklu fleira sameiginlegt en
það sem gerir þá ólíka og fjölbreyti-
leikinn er fallegur og mikilvægur.“
Alda hefur enda verið dugleg að
ferðast í gegnum tíðina. „Ég fór til
Nýja-Sjálands 1981 og dvaldi þar í
þrjá mánuði á blómabúgarði og fór
beint þaðan til Texas þar sem ég vann
við að kaupa dekk af íbúum í hjól-
hýsahverfum í kringum Dallas í fjóra
mánuði. Ég fór tvisvar um Evrópu
með Interrail, annað skiptið með
mömmu minni og 1984-1985 bjó ég í
París ásamt þáverandi sambýlis-
manni, Friðriki Diego, og var eitt ár í
námi í tískuteikningu.“
Alda gekk í Lækjarskóla og Víði-
staðaskóla og varð stúdent frá Flens-
borg. Hún lauk námi í hjúkrunar-
fræði 1984. „Það var fjölbreytt og
gott nám í góðum félagsskap. Það
A
lda Sigurðardóttir er
fædd 3. janúar 1960 í
Reykjavík en ólst upp í
Hafnarfirði. „Ég bjó í
vesturbænum þar sem
allt moraði í krökkum og amma og afi
á Sjónarhóli og stórfjölskyldan um-
vafði okkur. Það var skemmtilegt og
gott líf við fjöru og hraun. Foreldrar
mínir elskuðu landið og við fórum
mikið í útilegur og á skíði. Hallur
pabbi var sjálfmenntaður vísinda-
maður og hafði yndi af að grúska í
ættfræði og steinum sem hann lagði
mikið á sig að finna og skrá. Mamma
er mikill litameistari og flink í fingr-
unum með allt sem hún kemur
nálægt.
Þegar Golfklúbburinn Keilir var
stofnaður 1967 fór mamma að sjá um
kaffisöluna eftir vinnu í Boðabúð og í
kjölfarið fór ég að sveifla golfkylfu.
Það var mitt lán, fjársjóður sem ég á í
rassvasanum og hef notið með hléum
síðan. Skemmtilegasta afrekið á þeim
vettvangi er auðvitað þegar ég varð
Íslandsmeistari í telpnaflokki, þá 12
ára, en það mun vera fyrsti Íslands-
meistaratitill klúbbsins. Ég er núver-
andi klúbbmeistari kvenna á Selfossi
og hef náð þeim titli nokkrum sinnum
síðustu árin þegar ungu stelpurnar
eru að sinna golfinu á öðrum vett-
vangi.“
Alda var í sveit hjá Ragnari Stef-
ánssyni og Laufeyju Lárusdóttur í
fjögur sumur í Skaftafelli í Öræfum
þegar þar var ennþá búskapur og
vann á þáverandi bensínstöð þegar
hringvegurinn var opnaður 1974. Hún
vann í fiski í Vestmannaeyjum og á
Höfn í Hornafirði og við afgreiðslu í
Hannyrðabúðinni í Hafnarfirði með
skóla.
Alda var skiptinemi með AFS 1978-
1979 í Texas og heldur góðu sambandi
við fjölskylduna þar. „Í sumar tók ég
á móti hópi fólks sem allt var skipti-
nemar þar á sama tíma. Það var topp-
ur. Hef verið virk í starfsemi AFS á
Íslandi af og til sem stuðningsaðili
fyrir skiptinema og tvisvar hýst nema
í eitt ár. Starfsemi AFS og önnur
skyld verkefni sem hreyfa ungt fólk
til í heiminum skiptir miklu máli til að
auka skilning og umburðarlyndi milli
menningarheima. Það stuðlar að friði
hönnun, kvikmyndagerð, tónsmíðum
og ritlist. Fyrir ári tókum við Jón al-
farið við rekstrinum. Þar hafa yfir 500
listamenn dvalið á þessum tíma alls
staðar að úr heiminum. Auk þess hef-
ur þar farið fram margvísleg önnur
menningartengd starfsemi, sýningar,
námskeið, móttaka skólahópa frá
Bandaríkjunum og margt fleira.
Árið 2012 tók Alda við rekstri
Hannyrðabúðarinnar ásamt Þóru
Þórarinsdóttur. „Við rekum hana á
Selfossi og þjónum hannyrðafólki um
allt land og víðar. Við vinnum þar
jöfnum höndum að prjónahönnun auk
þess að leiðbeina um ýmsar hann-
yrðir.“
Alda hefur alltaf verið virk í ýmsu
félagsstarfi frá barnaskóla. Hún var
lengi virk í Leikfélagi Hafnarfjarðar
og var þar í stjórn. „Ég stofnaði ung-
lingadeild sem var öflug í mörg ár.“
Alda hefur staðið fyrir ýmsum list-
tengdum viðburðum svo sem listahá-
tíð á Laugarvatni ásamt Kristveigu
Halldórsdóttur árin 1995 og 2005 sem
var á vegum Gullkistunnar, einnig 20
ára afmælissýningu Gullkistunnar í
Listasafni Árnesinga í Hveragerði
2015. Hún rak alþjóðlega sýningar-
staðinn GUK í sjö ár ásamt Steinunni
Helgu Sigurðardóttur og Hlyni Halls-
syni. Hún skipulagði enn fremur sýn-
inguna Ferjustaður á Selfossi árið
2009. Alda hefur tekið þátt í starfsemi
Ullarvinnslunnar í Þingborg og var
um tíma í stjórn unglingadeildar Golf-
klúbbs Selfoss. „Ég lagði mig fram
um að auka áhuga barna og unglinga
á golfi á Suðurlandi.“ Hún var m.a. í
stjórn Nýlistasafnsins, Listasafns Ár-
nesinga og Félags kvenna í atvinnulíf-
inu á Suðurlandi.
„Ég hef yndi af því sem er fallegt í
náttúrunni, í því sem menn gera vel
og í fólki, sama hvaðan það kemur eða
hvernig það skilgreinir sig. Ég hef
sterka réttlætiskennd og hef and-
styggð á því þegar vald er misnotað
með einhverjum hætti, af einstak-
lingum eða stofnunum.
Fátt hryggir mig meira en fólk sem
ekki skilur virði ósnortinnar náttúru.
Hef nokkrum sinni reynt að beita mér
af veikum mætti með ýmsu móti,
gegn þeim öflum sem fara fram í að
eyðileggja ómetanlegar perlur, skrifa
Alda Sigurðardóttir athafnaskáld– 60 ára
Í Ölpunum Alda ásamt fjölskyldu sinni í afmælisferðinni.
Fjölbreytileikinn er fallegur
Afmælisbarnið Alda Sigurðardóttir.
Matthías
Johannessen,
ljóðskáld og
rithöfundur,
er níræður í
dag. Hann var
ritstjóri
Morgunblaðsins 1959-2000, en hann
kom fyrst til starfa á blaðinu árið 1951.
Eiginkona Matthíasar var Hanna
Johannessen, f. 1929, d. 2009. Synir
þeirra eru Haraldur og Ingólfur, barna-
börnin eru fjögur og barnabarnabörnin
eru orðin sex talsins.
Árnað heilla
90 ára
Blaðamaðurinn Matthías les frétta-
skeyti frá Reuters árið 1953.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
40 ára Sunna er Reyk-
víkingur, ólst upp í
Vesturbænum en býr í
Seljahverfinu. Hún er
með BA-próf í stjórn-
málafræði, diplómu í
spænsku og er í BS-
námi í tölvunarfræði
við HR. Sunna er hugbúnaðarsérfræð-
ingur hjá Korta.
Maki: Óli Njáll Ingólfsson, f. 1980, fram-
haldsskólakennari í Versló.
Börn: Valur, f. 2005, Helga, f. 2009, og
Lilja og María, f. 2011.
Foreldrar: Mímir Arnórsson, f. 1948, lyfja-
fræðingur, og Lovísa Kristjánsdóttir, f.
1950, kennari. Þau eru búsett í Reykjavík.
Sunna Mímisdóttir
Til hamingju með daginn