Morgunblaðið - 03.01.2020, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 03.01.2020, Blaðsíða 31
DÆGRADVÖL 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2020 Vandaðir vinnuhanskar í öll verk greinar, taka þátt í mótmælum og jafnvel vera á framboðslista Íslands- hreyfingarinnar með Ómari Ragnarssyni. Sá hópur sem er sama sinnis hefur sem betur fer stækkað mikið með árunum.“ Fjölskylda Eiginmaður Öldu er Jón Özur Snorrason, f. 24.9. 1961, framhalds- skólakennari við FSu á Selfossi. For- eldrar hans: Snorri Jónsson, f. 15.5. 1928, d. 30.6. 2016, kennari við Flens- borgarskóla í Hafnarfirði, og Guðrún Gísladóttir, f. 3.6. 1929, húsmóðir í Hafnarfirði. Börn Öldu og Jóns eru: 1) Völ- undur Jónsson, stjúpsonur Öldu, f. 6.4. 1984, greinandi hjá Bókun í Reykjavík. Sambýliskona: Hildur Steinþórsdóttir arkitekt; 2) Nökkvi Alexander Rounak Jónsson, f. 3.12. 1997, laganemi við HA. Sambýliskona Ester Lý Pauladóttir; 3) Vala Guð- laug Dolan Jónsdóttir, f. 25.7. 2001, nemandi við FSu á Selfossi. Systir Öldu sammæðra er Anna Halla Hallsdóttir, f. 15.8. 1964, köku- meistari hjá Skyrgerðinni í Hvera- gerði. Alda á einnig þrjár systur sam- feðra sem faðir hennar átti frá fyrra hjónabandi. Foreldrar Öldu: Hjónin Sigurður Jón Ólafsson, f. 7.2. 1919, d. 5.10. 1960, bæjarverkfræðingur í Hafnar- firði, og Guðlaug Berglind Björns- dóttir, f. 21.2. 1937, stofnaði og rak Hannyrðabúðina í Hafnarfirði frá 1968 til 2012, síðast í Hveragerði þar sem hún býr núna. Stjúpfaðir Öldu var Hallur Ólafsson, f. 3.10. 1931, d. 5.12. 2008, sjómaður og síðar múrari. Alda Sigurðardóttir Sigurður Jón Ólafsson bæjarverkfræðingur í Hafnarfi rði Jón Boði Björnsson matreiðslumeistari í Garðabæ Hafdís Jónsdóttir framkvæmdastjóri World Class Birgir Björnsson handboltakappi í Hafnarfi rði og landsliðsþjálfari Ólöf Sigurjónsdóttir kennari í ReykjavíkHallgrímur Helgason tónskáld Sigurður Ó. Helgason stjórnarformaður Flugleiða Sigurjón Jónsson smiður á Vatnsleysuströnd Sesselja Ólafsdóttir ljósmóðir á Vatnsleysuströnd Jóna Guðlaug Sigurjónsdóttir kennari í Danmörku Ólafur Þorsteinsson bæjarverkfræðingur í Rvík Þórunn Ólafsdóttir húsfreyja á Eyrarbakka Þorsteinn Þorgilsson verslunarmaður á Eyrarbakka Ásta Ólafsdóttir kaupmaður í Rvík, átti verslunina CHIC á Vesturgötu Guðlaug Jónsdóttir húsfreyja í Sandgerði Jón Magnússon útvegsbóndi í Sandgerði Guðbjörg Jónsdóttir kaupmaður og húsfreyja í Hafnarfi rði Benjamín H.J. Eiríksson hagfræðingur Björn Eiríksson bifreiðarstjóri í Hafnarfi rði Sólveig Guðfi nna Benjamínsdóttir húsfreyja á Vatnsleysuströnd Eiríkur Jónsson útvegsbóndi á Vatnsleysuströnd Úr frændgarði Öldu Sigurðardóttur Guðlaug Berglind Björnsdóttir fyrrverandi kaupmaður, búsett í Hveragerði „MÁ BJÓÐA ÞÉR EITTHVAÐ – VATNSSKÁL, NAGBEIN?” „HERRA SKIPSTJÓRI, VILTU KAFFIÐ ÞITT NÚNA? VIÐ VORUM AÐ SIGLA Á ÍSJAKA.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... stundum skoðanaágreiningur. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann „TIL HVERS?” ÉG BYRJA DAGINN GJARNAN MEÐ LATNINGARRÆÐU JÆJA, FÉLAGAR, ÉG ÞARF AÐ LEITA AÐ VOPNUM Á YKKUR! ÞVÍ MIÐUR, ÞÚ MÁTT EKKI FARA INN VOPNLAUS ! VÍKINGAKRÁR ERU BESTAR! HVAÐ MEÐ ÚTILEGU? ALDREI! Guðmundur Arnfinnsson skrifarí Boðnarmjöð: „Jólasveinar og Alþingisjólasveinar“: Er sveinkarnir flykkjast til fjalla, fráleitt við syrgjum þá kalla, en verri bjálfar og vandræðakálfar þyrpast á þingsins palla. Helgi Zimsen yrkir og kallar „Áttíðarlimru“: Mörvar sig Örvar og mörvar, mætti’ann hvar sem að smjör var. Hann át á sig gat og svo gat á það gat. – Svá gírugur seggurinn gjör var. Sigurlín Hermannsdóttir svaraði: Helgi nú yrkir um hátíð sem heldur sko betur er áttíð og menn sem þá éta meira en þeir geta. sú fréttin er tæplega fátíð. Magnús Halldórsson gefur „Stöðuyfirlit“: Á svellum er skúringin skínandi, skörpum í vindinum hvínandi. Varla er frítt við að sé hlýtt og vetrarlegt útlit því dvínandi. eða (virðist því óþarfur vínandi). Bjarni Gunnlaugur Bjarnason veltir fyrir sér „Framhaldslífi?“ Ekki’ of kalt, ekki’ of heitt ég ætla það því okkar bíður ekki neitt í öðrum stað! Ármann Þorgrímsson segist ekki fara til Reykjavíkur – ef hann kemst hjá því! Og lái honum hver sem vill!: Ótilneyddur aldrei þangað fer ökusiðir þeirra blöskra mér snarvitlaus í umferð þeirra er allir virðast þurfa að flýta sér. Sigmundur Benediktsson skrif- aði á Leirinn á föstudag í jólaviku. – „Þar fauk nú jólaskapið!“ sagði hann: Slíkt er nærri mér um megn myrkvuð hímir sólin meðan bæði rok og regn rífa niður jólin. Jón Gissurarson svaraði og sagði: „Samkvæmt veðurspánni eru mikl- ar líkur á því að þessi hláka verði aðeins spillibloti“: Sjáum ekki sólarhadd sindur eða glæður. setur allt í svell og gadd sá er öllu ræður. „Feigs vök“. Þessi staka Indriða á Fjalli er örlögþrungin: Eina þá er aldrei frýs úti á heljarvegi kringda römmum álnar-ís á sér vök hinn feigi. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af jólasveinum og áttíð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.