Morgunblaðið - 03.01.2020, Side 32

Morgunblaðið - 03.01.2020, Side 32
32 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2020 England Liverpool – Sheffield United................... 2:0 Staðan: Liverpool 20 19 1 0 49:14 58 Leicester 21 14 3 4 46:19 45 Manch.City 21 14 2 5 56:24 44 Chelsea 21 11 3 7 36:29 36 Manch.Utd 21 8 7 6 32:25 31 Tottenham 21 8 6 7 36:30 30 Wolves 21 7 9 5 30:27 30 Sheffield Utd 21 7 8 6 23:21 29 Crystal Palace 21 7 7 7 19:23 28 Arsenal 21 6 9 6 28:30 27 Everton 21 7 4 10 24:32 25 Southampton 21 7 4 10 25:38 25 Newcastle 21 7 4 10 20:33 25 Brighton 21 6 6 9 25:29 24 Burnley 21 7 3 11 24:34 24 West Ham 20 6 4 10 25:32 22 Aston Villa 21 6 3 12 27:37 21 Bournemouth 21 5 5 11 20:32 20 Watford 21 4 7 10 17:34 19 Norwich 21 3 5 13 22:41 14 B-deild: Derby County – Barnsley........................ 2:1 Swansea City – Charlton Athletic ...........1:0 Staðan: Leeds 26 15 7 4 43:21 52 WBA 26 14 10 2 48:28 52 Brentford 26 13 4 9 41:20 43 Nottingham F. 25 12 7 6 34:25 43 Fulham 26 12 6 8 40:30 42 Swansea 26 11 8 7 32:30 41 Millwall 26 10 10 6 34:32 40 Sheffield Wed. 26 11 6 9 37:26 39 Hull 26 11 6 9 40:34 39 Preston 26 11 6 9 36:32 39 Bristol City 26 10 8 8 39:40 38 Cardiff 26 9 10 7 38:40 37 Blackburn 26 10 6 10 34:34 36 Reading 25 10 5 10 33:28 35 QPR 26 10 5 11 44:48 35 Middlesbrough 26 8 9 9 26:32 33 Derby 26 8 9 9 26:34 33 Birmingham 26 8 5 13 31:43 29 Charlton 26 7 7 12 34:37 28 Huddersfield 26 7 7 12 30:42 28 Stoke 26 7 3 16 33:42 24 Wigan 26 5 8 13 24:39 23 Barnsley 26 4 9 13 33:49 21 Luton 26 6 3 17 32:56 21 Katar Al-Ahli Doha – Al-Arabi ......................... 0:3  Aron Einar Gunnarsson lék fyrstu 80 mínúturnar fyrir Al-Arabi. Heimir Hall- grímsson þjálfar liðið. KNATTSPYRNA Danmörk Esbjerg – Odense................................. 25:27  Rut Jónsdóttir var ekki í leikmannahópi Esbjerg. Svíþjóð Skuru – Skövde.................................... 35:25  Eva Björk Davíðsdóttir skoraði 2 mörk fyrir Skuru.  Liverpool er með þrettán stiga for- skot á toppi ensku úrvalsdeildar- innar í knattspyrnu, en liðið vann afar sannfærandi 2:0-sigur gegn Sheffield United á Anfield í Liver- pool í gær. Það voru þeir Mohamed Salah og Sadio Mané sem skoruðu mörk Liverpool í leiknum en þau komu hvort í sínum hálfleiknum. Liverpool er með 58 stig í efsta sæti deildarinnar og á leik til góða á Leicester, sem er í öðru sætinu með 45 stig. Þá var þetta fimmti leikur Liverpool-liðsins í röð í deildinni þar sem það heldur marki sínu hreinu, en liðið virðist bæta sig með hverjum leik, þrátt fyrir að vera ósigrað í deildinni á leiktíð- inni. Leikurinn í gær markaði einnig ákveðin tímamót fyrir Jürgen Klopp og lærisveina hans. Síðasti tapleikur Liverpool í ensku úrvals- deildinni var gegn Manchester City 3. janúar síðastliðinn, á Etihad- vellinum í Manchester. Á síðastliðnu ári hefur Liverpool unnið 34 leiki í ensku úrvalsdeild- inni og gert fimm jafntefli en það síðasta kom gegn Manchester United á Old Trafford í október á síðasta ári. Það virðist því fátt stöðva Liverpool, sem er á hraðri leið með að vinna fyrsta Englands- meistaratitil sinn í þrjátíu ár. bjarnih@mbl.is Ekkert stöðvar Liverpool AFP Fögnuður Sadio Mané og Roberto Firmino bregða á leik í gær eftir að sá fyrrnefndi skoraði annað mark Liverpool. Sverrir Ingi Ingason, landsliðs- maður í knattspyrnu, er í liði um- ferðinnar í grísku úrvalsdeildinni en lið hans PAOK vann stórsigur í síðustu umferð. Netmiðillinn Íslendingavaktin greindi frá þessu í gær. PAOK vann Atromitos 5:1 í 16. umferð og skor- aði miðvörðurinn tvö mörk fyrir PAOK en leikurinn fór fram á Þor- láksmessu. PAOK er á toppnum í Grikklandi með tveggja stiga forskot á Olym- piakos og hefur Sverrir leikið afar vel síðustu vikur og mánuði. Sverri gengur vel í Grikklandi Morgunblaðið/Eggert Grikkland Sverrir Ingi Ingason fær góða dóma hjá PAOK. Aron Einar Gunnarsson, landsliðs- fyrirliði í knattspyrnu, var í byrj- unarliði Al-Arabi þegar liðið heim- sótti Al Ahli í efstu deild Katar í gær. Leiknum lauk með 3:0-sigri Al-Arabi en Aron Einar fór af leik- velli á 80. mínútu. Þetta var fyrsti sigur Al-Arabi í deildinni síðan 4. október þegar lið- ið vann Al Khor, 3:1, en Aron meiddist í þeim leik og var leikur- inn í gær hans fyrsti síðan hann gekkst undir aðgerð á ökkla um miðjan október. Al-Arabi fór með sigrinum upp í fjórða sæti. Aron Einar sneri aftur á völlinn Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Katar Aron Einar Gunnarsson er orðinn leikfær á ný. Tvö af sigursælustu karlaliðum landsins í körfuknattleik, Keflavík og Njarðvík, hafa bætt við sig er- lendum leikmönnum í upphafi árs. Keflavík hefur leikið vel í vetur og er liðið í 2. sæti Dominos- deildarinnar. Liðið verður væntan- lega enn sterkara eftir áramót en Callum Lawson hefur bæst við leikmannahópinn. Á Karfan.is kemur fram að Lawson sé Breti en hafi leikið fyrri hluta tímabils- ins í Svíþjóð með Umeå. Lawson er um tveir metrar á hæð og á að baki leiki með U20 ára landsliði Breta. Nýja árið byrjar með látum hjá Keflvíkingum en þeirra fyrsti leik- ur 2020 verður gegn toppliðinu Tindastóli á mánudaginn. Njarðvíkingar fá til sín Tevin Falzon en hann er landsliðsmaður frá Möltu. Hann lék síðast í Bret- landi en var áður í háskólabolt- anum í Bandaríkjunum og var þar samherji Marios Matasovic, leik- manns Njarðvíkur. Matasovic ætti því að geta dregið upp nokk- uð nákvæma mynd af leikmann- inum. Njarðvík er í 4. sæti eftir gott gengi í lok síðasta árs en liðið á heimaleik gegn ÍR á sunnudaginn. Grannarnir sóttu hvor- ir tveggja nýja menn Í viðtalinu við Bjarka Má hér til hliðar er minnst á Ólympíuleikana í Tókýó sem fram fara á þessu ári. Karlalands- liðið í handknattleik getur enn komist inn í undankeppnina fyrir Ólympíu- leikana 2020. Fer hún fram 17.-19. apríl og eru tvö sæti laus fyrir Evrópuþjóðir. Þar eru fjórar þjóðir saman í riðli en fyrir- komulagið þekkja Íslendingar frá árinu 2008. Pólland og Ísland komust þá til Peking eftir undankeppni í Póllandi en Svíþjóð og Argentína sátu eftir. Danir eru komnir inn á leikana sem heimsmeistarar. Noregur, Frakkland, Þýskaland, Svíþjóð, Króatía og Spánn eru þegar komin í undankeppnina vegna árangurs síns á HM 2019. Á EM í þessum mánuði þarf Ísland þá ekki að spá í hvort þessar þjóðir verði fyrir of- an hvað Ólympíuleikana varðar. Segja má að Ísland sé að berjast um tvö sæti í undankeppninni við lið eins og Rúss- land, N-Makedóníu, Ungverjaland, Tékkland, Serbíu og Slóveníu svo ein- hver séu nefnd. Í undankeppninni verða þrír riðlar. Einn er þegar skipaður Noregi, Spáni, Síle og Suður-Kóreu. Í hina tvo er bú- ið að raða Frakklandi og Króatíu í annan og Þýskalandi og Svíþjóð í hinn. Þar eiga eftir að bætast við sín Evrópuþjóðin hvor og sín Afríku- þjóðin hvor. Takist Íslandi að komast inn í und- ankeppnina með góðum árangri á EM bíður Íslands þar af leiðandi að mæta annaðhvort Frökkum og Króötum eða Þjóðverjum og Svíum, auk Afr- íkuþjóðar. kris@mbl.is Tvö sæti í undankeppni Ólympíuleikanna í boði Morgunblaðið/RAX Ásvellir Frá æfingu landsliðsins í Hafnarfirði í gærmorgun. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Íslands- meistari í golfi úr Keili, þarf ekki fara á fyrra stig úrtökumótanna fyrir Evr- ópumótaröðina í golfi. Guðrún fer því beint á lokaúrtökumótið (vegna ár- angurs síns í LET Acess-mótaröðinni á síðasta ári) en það fer fram seinna í mánuðinum og hefst 22. janúar. Verður leikið á La Manga á Spáni. Guðrún segist á facebooksíðu sinni munu halda til Spánar á laugardag- inn til að undirbúa sig. 25 sæti á Evr- ópumótaröðinni á þessu ári eru í boði á úrtökumótinu. Kylfingarnir í næstu sætum fyrir aftan gætu svo fengið takmarkaðan keppnisrétt. Úrtökumót fram undan Morgunblaðið/Arnþór Birkisson La Manga Guðrún Brá Björgvins- dóttir er á leið í úrtökumót. Arnór Sigurðsson, landsliðsmaður í knattspyrnu og leikmaður rúss- neska liðsins CSKA Moskvu, er á meðal fimmtíu efnilegustu knatt- spyrnumanna Evrópu samkvæmt heimasíðu evrópska knattspyrnu- sambandsins, UEFA. Aðeins leik- menn sem eru 21 árs eða yngri kom- ast á listann, en Arnór er tvítugur og verður 21 árs 15. maí næstkomandi. „Yngsti Íslendingurinn til þess að spila í Meistaradeildinni og þá skor- aði hann fyrsta landsliðsmark sitt í október,“ segir í umsögn UEFA.com um Skagamanninn, sem kom til CSKA árið 2018. Arnór þykir mikið efni Morgunblaðið/Hari Rússland Arnór hefur vakið mikla athygli hjá CSKA Moskvu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.