Morgunblaðið - 03.01.2020, Síða 34

Morgunblaðið - 03.01.2020, Síða 34
34 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2020 ICQC 2020-2022 kassagerd.is kassagerd@kassagerd.is Klettháls 1, 110 Reykjavík +354 545 2800 Vandaðar vörur þurfa hágæða umbúðir til að komast ferskar í hendur kröfuharðra kaupenda. Hver sem varan þín er þá höfum við umbúðirnar sem henta henni. Áralöng reynsla og sérþekking okkar tryggir að við finnum bestu lausnina sem hentar fyrir þinn rekstur, hratt og örugglega. Við bjóðum breitt úrval umbúða frá traustum og öflugum samstarfsaðilum. Þannig getum við tryggt þér lausnir sem auka árangur þinn í rekstri, í sátt við umhverfi og náttúru. Ef þú hefur spurningar varðandi umbúðir þá höfum við svörin. Hafðu samband eða kíktu í kaffi og leyfðu okkur að hjálpa þér að finna lausnirnar sem henta þínum þörfum. Spjöllum um umbúðir. UmBúÐiR eRu oKkAr fAg Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is LOKAKAFLINN Í SKYWALKER SÖGUNNI Út eru komin hjá Hinu íslenska bókmenntafélagi tvær nýjar bækur í útgáfunni Lærdómsrit; Fædros eftir Platon í þýðingu Eyjólfs Kjal- ars Emilssonar og Formáli að Fyr- irbærafræði andans eftir G.W.F. Hegel í þýðingu Skúla Pálssonar. Í tilkynningu segir um þá síðar- nefndu að Formáli að Fyrirbæra- fræði andans sé ekki langur texti, en sé þó í raun inngangur að lífs- starfi Hegels. Þar leggur hann drögin að sínu þekktasta verki, Fyrirbærafræði andans, en lýsir um leið grundvelli hugsunar sinnar sem blómstraði áfram í verkum á borð við Söguspeki hans, Réttar- heimspeki og Fagurfræði. For- málinn er fyrsta verk Hegels sem kemur út á íslensku. Hann er sannarlega ekki aðgengilegasti texti sem skrifaður hefur verið, en hann er góð byrjun fyrir þá sem vilja kynnast heimspeki Hegels. Fædros er meðal þekktustu verka Platons og kannski það verka hans sem í mestum hávegum er haft sem bókmenntaverk. Þetta er stutt samræða Sókratesar og Fæ- drosar og fjallar um efni sem skjóta upp kollinum í fleiri samræðum Platons: Ástina, mælskulist, þekk- ingu og röklist. Bókin kallast á við önnur verk Platons sem hafa komið út á íslensku, svo sem Samdrykkj- una. Þar er líka vikið að andúð Platons á hinu ritaða máli og hvernig samræðan er besta form sannleiksleitar. Fædros er sagt henta hentar öllum sem áhuga hafa á heimspekilegum efnum jafnt byrj- endum sem lengra komnum. Tvö ný Lærdómsrit komin út, lykilverk eftir Platon og Hegel Eftir margvíslegar tafir á byggingu nýrrar safnbyggingar í Kaíró yfir margra helstu forngripi egypsku þjóðarinnar stefna stjórnvöld að því að opna hið nýja og gríðarstóra þjóð- minjasafn landsins síðar á þessu ári. Dagstning hefur þó ekki verið gefin upp. Hið aldargamla Egypska safn við Tahrir-torg í Kaíró er alltof lítið og er einungis hægt að sýna þar, og við gamaldags aðstæður, lítið brot af þeim gersemum sem eru þar í geymslum. Fyrst var tilkynnt um hið nýja safn árið 1992. Er það nú risið skammt frá píramídunum í Gíza, var hannað af arkitektunum á írsk- þýsku stofunni Heneghan Peng, mun vera um 480 þúsund fermetrar í allt, og að sögn The Art Newspaper stærra en Vatíkanið í Róm. Í safninu verða sýndir um eitt hundrað þúsund forngripir, frá for- sögulegum tíma til grísk-rómverska tímabilsins. Fyrir miðju safneign- arinnar verða allir 5.400 glæsigrip- irnir sem komu úr gröf dreng- faraósins Tútankhamons og verður það í fyrsta sinn sem almenningi gefst kostur á að sjá þá alla á einum stað. Í temgslum við opnun safnsins verður frumflutt ný ópera eftir Zahi Hawass. Í nýja Egypska safninu verða auk sýningarsala verslanir, veitinga- staðir, ráðstefnumiðstöð og kvik- myndasalir. Búist er við um fimm milljónum gesta á ári. efi@mbl.is Verður stærra en allt Vatíkanið AFP Stórt Fyrir áramótin safnaðist fólk saman framan við nýja Egyptasafnið að skoða eftirmynd dauðagrímu Tútankhamons faraós sem mótuð hafði verið úr 7.260 kaffibollum. Safnið er 480 þúsund fermetrar að stærð.  Styttist í opnun nýs safns í Kaíró

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.