Morgunblaðið - 03.01.2020, Síða 36
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2020
ESTRO Model 3042
L 164 cm Leður ct. 15 Verð 365.000,-
L 198 cm Leður ct. 15 Verð 385.000,-
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70
hitataekni.is
Sjálfvirk, raka-og hitastýring, fer sjálfkrafa í gang þegar
ljós eru kveikt eða við hreyfingu í rými.
Klimat K7 er fjölnota vifta, þróuð
og framleidd í Svíþjóð.
– sjö viftur í einni
Ein sú hljóðlátasta á markaðinum (17-25 dB)
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Alþjóðlega listahátíðin Ferskir vindar
verður sett í sjötta sinn í Suðurnesja-
bæ, Garði og Sandgerði á morgun,
laugardag. Hátíðin verður sett kl. 14
á Sunnubraut 4 í Garði, ofan við Kjör-
búðina, og mun Eliza Reid forsetafrú
opna hana með
ávarpi. Einnig
munu Magnús
Stefánsson bæjar-
stjóri og Paul Gra-
ham, sendiherra
Frakklands, taka
til máls.
Hátíðin Ferskir
vindar er haldin
annað hvert ár og
var stofnað til
hennar af Mireyu Samper sem hefur
verið listrænn stjórnandi frá upphafi.
Hún segir að nú hafi 45 listamenn, og
þar af um fjörutíu erlendir, unnið
baki brotnu að fjölbreytilegum verk-
um í Suðurnesjabæ undanfarnar
vikur.
„Fyrstu listamennirnir mættu 13.
desember og svo allir hinir á næstu
tveimur dögum,“ segir Mireya og
viðurkennir fúslega að álagið hafi
verið mikið þessar vikur. „Og þessi
tími er líka erfiður hvað það varðar að
það er erfitt um jólin að nálgast ýmis-
konar efni sem listamennirnir þurfa,
það eru allir í fríi alls staðar. Þetta
hefur verið flókið.“
Alltaf á veiðum
Þetta er sjötta hátíðin og Mireya
segir alltaf hafa verið unnið út frá
svipuðum ramma en hóparnir séu
alltaf ólíkir hinum fyrri. Bæði hvað
varðar verkin sem sköpuð eru og
hvernig þeir vinna. „Orkan í hóp-
unum er aldrei tvisvar eins, hver hóp-
ur skapar sína stemningu.“
En hvernig finnur hún og velur
þátttakendur?
„Ég er alltaf á veiðum fyrir hátíð-
ina. Ég vinn sjálf og sýni víða um lönd
og ef ég sé verk eftir listamann sem
mér þykir áhugaverður geri ég mér
far um að ná af honum tali og helst
koma á vinnustofu hans að skoða.
Stundum stinga listamenn sem
hafa tekið þátt í hátíðinni upp á öðr-
um, einhverjir hafa kynnst henni á
vefsíðunni eða Facebook og senda
ósk um að taka þátt, og ég læt þá sem
mér þykja koma til greina senda mér
myndir af verkum sem þeir hafa gert.
Eftirspurnin er í raun svo mikil að ég
er þegar búin að velja alla listamenn-
ina fyrir næstu hátíð, eftir tvö ár!“
Mireya segir þetta allt mjög ólíka
listamenn og hún sækist eftir því.
„Þess vegna vil ég ekki fá hópa held-
ur ólíka einstaklinga. Sumir eru mjög
þekktir, aðrir ungir, en þegar allt
þetta fólk kemur saman gerast mjög
skemmtilegir hlutir. Þá eru allir jafn-
ir, hjálpast að, læra af öðrum og svo
myndast alltaf mjög áhugaverð sam-
vinna milli fólks.“
Mireya segir að gestir sem sæki
hátíðina næstu tvær helgar muni sjá
mjög áhugaverða samtímamyndlist,
„í tvívídd og þrívídd, úti- og inni-
listaverk. Það verða dansatriði, tón-
list, gjörningar, animeraðar kvik-
myndir og líka myndbandsverk sem
fólk getur virkjað með QR-kóðum í
símunum sínum. Fjölbreytileikinn er
mjög mikill,“ segir hún.
Áður var hátíðin í Garði en nú hef-
ur hann sameinast Sandgerði undir
heitinu Suðurnesjabær og munu
gestir sjá verk á einum 16 stöðum í
hinu sameinaða sveitarfélagi. Boðið
verður upp á rútuferðir milli
sýningarstaðanna nú um helgina og
þá næstu undir leiðsögn Mireyu og
munu listamennirnir kynna verk sín,
hver á sínum stað. Hefst rútuferðin
kl. 14 alla dagana á sama stað,
Sunnubraut 4 í Garði, við Kjörbúðina.
„Það er full dagskrá þessa daga, frá
kl. 14 til 19 um kvöldið, og alltaf nýir
performansar, ekkert endurtekið,“
lofar Mireya.
Hlaut Eyrarrósina síðast
Mireya segir það einkenni á Fersk-
um vindum að allir vinni listmenn-
irnir sérstaklega verk á staðnum.
Þess vegna vill hún ekki að lista-
mennirnir sendi sér fyrirfram til-
lögur að verkum að vinna, heldur vill
hún að þeir mæti á staðinn, kynnist
aðstæðum og vinni út frá þeim. En
hvernig gengur að koma á fimmta
tug listamanna fyrir í Sandgerðisbæ
þessar vikur?
„Það er alltaf hausverkur, rétt eins
og fjármögnunin,“ svarar hún glettn-
islega. Segir það hafa verið auðveld-
ara á fyrstu hátíðunum þegar ein-
hverjar íbúðir voru á lausu í Garði en
nú sé erfiðara að fá húsnæði. „Sam-
komuhúsið er miðstöðin, þar borðum
við saman og vinnum, en nú leigjum
við gistiheimilið sem er hérna í Garði
og að auki nokkrar íbúðir og herbergi
í heimahúsum.“
Sveitarfélagið er bakhjarl Ferskra
vinda og geta listamennirnir til að
mynda nýtt sér áhaldahúsið og sam-
komuhúsið en á móti fær sveitar-
félagið eitt listaverk eftir alla lista-
menn sem taka þátt. Þá er Upp-
byggingarsjóður Suðurnesja mikil-
vægur styrktaraðili, auk þess sem
fyrirtæki og einstaklingar styðja há-
tíðina. Hátíðin hefur vakið verðskuld-
aða og vaxandi athygli og hlaut
Eyrarrósina sem besta menningar-
verkefnið á landsbyggðinni síðast
þegar hún var haldin, sem Mireya er
stolt af og þakklát fyrir.
Góð innrás í bæinn
Þegar spurt er hvað hátíð sem
þessi geri fyrir Suðurnesjabæ segir
Mireya hana gera mjög mikið. Þetta
sé eins og góð innrás í bæinn. „Allt
fyllist hér af skrýtnu listafólki sem
gengur hvert sem það fer og skapar
ólíka og áhugaverða hluti. Það hleyp-
ir gífurlegu lífi í sveitarfélagið en mér
finnst skipta mestu máli, á þessum
níu árum, að sjá hvað það hefur góð
áhrif á krakkana hér. Þeir sækja í að
sjá hvað við erum að gera og eru for-
vitnir um þetta skapandi starf. Svo
skiljum við þar fyrir utan eftir fullt af
verðmætum verkum sem breyta
ásýnd sveitafélagsins og hafa þar að
auki áhrif á ferðamennsku hér því
fullt af fólki kemur hingað til að sjá
samtímalistina.“
Splunkuný listaverk um allan bæ
Alþjóðlega listahátíðin Ferskir vindar verður sett í sjötta sinn í Suðurnesjabæ á morgun 45 lista-
menn, langflestir erlendir, hafa á síðustu vikum skapað ný og afar fjölbreytileg verk á staðnum
Ljósmynd/Sophie Bey
Fjölbreytileg Tveir listamannanna sem taka þátt í Ferskum vindum í ár, Bandaríkjamennirnir Kainoa Gruspe og
Amber Khan, vinna að verkum sem verða frumsýnd á morgun. Um fjörutíu erlendir listamenn taka núna þátt.
Ljósmynd/Sophie Bey
Útlistaverk Verkin á Ferskum vindum eru sett upp á einum sextán stöðum í
Suðurnesjabæ. Hér vinnur Chema Chino frá Mexíkó að einu þeirra.
Mireya Samper