Morgunblaðið - 03.01.2020, Qupperneq 40
Stórsveit Reykjavíkur fagnar nýju
ári með árlegum sveiflualdartón-
leikum í Eldborg, Hörpu, á sunnu-
daginn, 6. janúar, kl. 20.
Gestasöngvarar verða Jóhanna
Vigdís Arnardóttir, Katrín Halldóra
Sigurðardóttir, Jógvan Hansen og
Friðrik Ómar Hjörleifsson. Stjórn-
andi og kynnir verður Sigurður
Flosason.
Nýju ári fagnað með
sveiflualdartónleikum
FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 3. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Liverpool er með þrettán stiga for-
skot á toppi ensku úrvalsdeildar-
innar í knattspyrnu eftir öruggan
2:0-sigur gegn Sheffield United á
Anfield í Liverpool í gær. Liverpool
er með 58 stig og á leik til góða á
Leicester City, sem er í öðru sætinu
með 45 stig. Englandsmeistararnir
Manchester City koma þar á eftir
með 44 stig í þriðja sætinu.
Þrettán stiga forskot á
toppi deildarinnar
ÍÞRÓTTIR MENNING
Bjarki Már Elísson, landsliðsmaður
í handbolta, er næstmarkahæsti
leikmaður þýsku 1. deildarinnar og
kemur því sjóðheitur inn í Evrópu-
mótið sem hefst 9. janúar næst-
komandi.
Bjarki skipti yfir til Lemgo
fyrir leiktíðina og hefur
hann raðað inn mörkunum á
tímabilinu. Hann segir ís-
lenska liðið ætla sér langt á
Evrópumótinu og dreymir
Bjarka um að spila á Ól-
ympíuleikunum í
Tókýó í sumar.
Til þess að það
gerist þarf flest að
ganga upp hjá ís-
lenska liðinu, sem
er í riðli með afar
sterkum liðum.
Mætir sjóðheitur á
Evrópumótið á nýju ári
Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499
Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is
DÚNDUR
ÚTSALA!
ALLT Á
50%
AFSLÆTTI
Slá
kr. 2.500
Töskur
kr. 2.495
hennar sé um 250 hektarar og þar
af séu um 150 hektarar uppfylling.
„Fyllingarnar hafa breytt mikið
ásýnd Reykjavíkur á þessum
svæðum, bæði við Gömlu höfnina
og í Sundahöfn, þar sem fram-
kvæmdir við hafnargerð og upp-
byggingu hófust 1967. Þetta eru
lykilsvæði hafnarstarfsemi hér og
fyrir almenna vöruflutninga til
landsins.“
Þó að margt hafi verið vel gert
segir Jón að höfn og þróun hennar
þurfi að hafa 50 til 60 ára sýn, en
þar sé pottur brotinn. Aðalskipu-
lag sé yfirleitt 20 til 30 ára sýn og
svæðisskipulag höfuðborgar-
svæðisins um 30 ára sýn. „Nú er
svo komið að engin stór þróunar-
svæði fyrir höfnina eru í Reykja-
vík inn í framtíðina. Slík svæði
þurfa að vera fyrir hendi til þess
að mæta vaxandi og nýrri hafn-
sækinni atvinnustarfsemi.“ Hann
bætir við að margt í slíkri starf-
semi tengist því sem er til staðar.
„Lykilþráður í umhverfisumræðu
er að því lengra sem þarf að flytja
hluti um landveg því meiri kostn-
aður og umhverfisvandamál.“
Hann bendir jafnframt á að vöru-
flutningar á sjó séu mikilvægir og
verði það áfram um ókomna fram-
tíð. „Sjóflutningum fylgja rýmis-
þarfir á landi,“ áréttar hann og
segir að hart hafi verið sótt að
þróunarkostum hafnarstarfsemi í
Reykjavík og þrengt að mögu-
leikum til frekari þróunar, þegar
horft sé til lengri framtíðar.
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Fjórir starfsmenn Faxaflóahafna
með samtals um 107,5 ára starfs-
aldur létu af störfum um áramót-
in. Þar á meðal var Jón Þorvalds-
son aðstoðarhafnarstjóri, sem
vann hjá fyrirtækinu í tæp 47 ár.
„Tíminn líður hratt og ég þarf
ekki að kvarta,“ segir hann. „Ég
hef verið viðloðandi rekstur hafn-
ar og hafnarstjórnar á þessum
tíma, sem spannar 12 kjörtímabil,
hitt á þeirri vegferð marga og við-
kynningin hefur verið ánægjuleg
upp til hópa.“
Reykjavíkurhöfn var byggð
1913-1917 og þegar Jón hóf þar
störf sumarið 1973 kynntist hann
mönnum sem höfðu starfað hjá
höfninni í marga áratugi og miðl-
uðu af reynslu sinni.
„Ég hitti meðal annars Pál Ás-
mundsson, gamla eimreiðarstjór-
ann, sem mundi hvern einasta
hlut, þótt hann væri orðinn 85 ára
gamall.“ Hann leggur áherslu á að
gamlir starfsmenn hafi gjarnan
lagt leið sína á skrifstofuna þótt
þeir væru löngu hættir störfum.
„Þetta fólk hafði brennandi áhuga
á höfninni og hafnarmálum og
vildi fylgjast með því sem var að
gerast.“
Reykjavíkurhöfn mikilvæg
Þegar Jón lauk tæknifræðinámi
við Tækniskólann auglýsti höfnin
lausa stöðu fyrir ungan tækni-
mann. Hann sótti um og var ráð-
inn. Hann bendir á að þá hafi
höfnin verið umsvifamikil í land-
gerð, -þróun og -fyllingum.
„Fyrstu verkin mín voru að teikna
mæliblöð fyrir Holtagarða, þar
sem Sambandið var að fara að
hefja byggingarframkvæmdir á
nýju og stóru vöruhúsi, og fyrir
frystihús Ísbjarnarins á Norður-
garðinum.“ Í þessu sambandi
nefnir hann að á þessum tíma hafi
verið fjögur frystihús í Reykjavík
en nú sé aðeins eitt eftir.
Uppbygging hafnarinnar hefur
verið mikil. Jón segir að land
Hefur fylgt Sunda-
höfn eftir frá byrjun
Jón Þorvaldsson segir borgaryfirvöld ekki hugsa til framtíðar
Ljósmynd/Faxaflóahafnir
Kveðjustund Gísli Gíslason hafnarstjóri og Jón Þorvaldsson.