Morgunblaðið - 08.01.2020, Page 8

Morgunblaðið - 08.01.2020, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 2020 Glerborg Mörkinni 4 108 Reykjavík 565 0000 glerborg@glerborg.is www.glerborg.is 2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG FÁÐU TILBOÐ ÞÉR AÐ KOSTNAÐAR- LAUSU Ertu að byggja eða þarf að endurnýja gamla glerið? Það skiptir miklu máli að velja einangrunargler sem reynist vel við íslenskar aðstæður. Fáið tilboð hjá Glerborg í Mörkinni 4 eða á heimasíðunni okkar WWW.GLERBORG.IS Þá er jólatíð úti. Þeirra kafla-skipta sér stað innanhúss og utan.    Á síðari árum hefur fólk leyftútiljósum og skreytingum að létta skammdegið dálítið lengur en áður og fer vel á því. Innan dyra eru ytri tákn jólanna oftast fjarlægð í kjölfar þrettándans. Þeir sem hafa haft „lifandi“ tré taka þau þá niður.    Þau sveitarfélög sem hafa þjón-ustuhlutverkið í öndvegi, enda aðalhlutverk sveitarfélaga, safna trjám frá íbúum á aug- lýstum tíma og farga þeim. Sá háttur var áður hafður á í Reykjavík.    Því hefur verið hætt, enda hafayfirvöld í Reykjavík hin síð- ari ár fjarlægst þjónustuhlutverk sitt með hverju ári sem líður og virðast hafa á því illan bifur.    Á sama tíma og þetta sveitarfé-lag telur bæði fyrir ofan og neðan sína virðingu að auðvelda borgurunum lífið að þessu leyti eykst vilji þess til að heimta skatta og gjöld af þeim.    Allt stafar þetta frá þeirrimeinloku borgarstjórans og liðsins í kringum hann að borgar- búar séu til fyrir hann, en ekki öfugt og að honum skuli þjón- ustan beinast.    Þennan þráláta misskilninghans þyrfti að leiðrétta við fyrsta tækifæri. Trénað hugarfar STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Frestur til að setja fram kröfu í tryggingarfé ferðaskrifstofunnar Farvel ehf. er til 8. mars næstkom- andi. Ferðamálastofa tilkynnti 20. desember að hún hefði fellt niður ferðaskrifstofuleyfi Farvel þar sem fyrirtækið uppfyllti ekki lengur skil- yrði laga um pakkaferðir og sam- tengda ferðatilhögun um skil gagna og hafði ekki sinnt ákvörðun Ferða- málastofu um hækkun tryggingar- fjárhæðar. Farvel ehf. hætti í kjöl- farið starfsemi. Ákvörðunin hafði áhrif á ferðalög á annað hundrað viðskiptavina ferðaskrifstofunnar. Fyrir liggur að þar sem Farvel skilaði ekki inn hækkaðri tryggingu, í samræmi við vaxandi umsvif fyrir- tækisins, mun tryggingarfé fyrir- tækisins ekki duga til að endur- greiða áætlaðar kröfur þeirra sem hafa greitt fyrir eða inn á pakka- ferðir á vegum fyrirtækisins. Á vef Ferðamálastofu kemur fram að kröfu í tryggingarfé skuli senda inn í gegnum þjónustugátt á vefnum. Skrá þarf sig inn með ís- lykli eða rafrænum skilríkjum. Með kröfunni þarf að senda gögn sem sýna fram á kaup pakkaferðar þ.e.a.s. kvittanir fyrir greiðslu, far- seðla, pakkaferðasamninginn eða hvers kyns ferðagögn. Fyrst þegar kröfulýsingarfresturinn er liðinn er hægt að taka afstöðu til allra krafna. Kröfufrestur vegna Farvel til 8. mars  Enn óljóst hvað fæst úr tryggingarsjóði vegna starfsloka ferðaskrifstofunnar Morgunblaðið/Ómar Farvel Balí var einn áfangastaða. Alls voru 231.145 manns skráðir í þjóðkirkjuna 1. janúar síðastliðinn skv. skráningu Þjóðskrár Íslands. Frétt um þetta var birt á vef henn- ar á mánudaginn. Næstfjölmenn- asta trúfélagið hér á landi er kaþ- ólska kirkjan með 14.634 einstak- linga og Fríkirkjan í Reykjavík með 10.006 meðlimi. Í desembermánuði fjölgaði mest í kaþólsku kirkjunni eða um 80 manns. Í Ásatrúarfélaginu fjölgaði um 39 manns. Mest fækkun var í lífsskoðunarfélaginu Zuism eða um 43 manns. Alls voru 26.116 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunar- félaga 1. janúar sl. og fjölgaði þeim um 93 frá 1. desember sl. Á vef Þjóðskrár eru birtar samanburðartölur um fjölda í trú- og lífsskoðunarfélögum frá 1. des- ember 2018 og 1. desember 2019. Samkvæmt þeim hefur fækkað um 0,7% í þjóðkirkjunni á tímabilinu. Fjölgun hefur m.a. orðið í eftirtöld- um trú- og lífsskoðunarfélögum: Kaþólsku kirkjunni um 4,4%, Ása- trúarfélaginu 6,7%, Siðmennt 23,3%, rússnesku rétttrúnaðar- kirkjunni um 7,2% og í Félagi múslíma á Íslandi um 16,1% og Stofnun múslíma á Íslandi um 31,4%. 26 þúsund manns utan trúfélaga  Kaþólska kirkjan næstfjölmennust Morgunblaðið/Ómar Trúfélög Enn fækkar þeim sem skráðir eru í íslensku þjóðkirkjuna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.