Morgunblaðið - 08.01.2020, Side 26

Morgunblaðið - 08.01.2020, Side 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 2020 England Deildabikar, undanúrslit, fyrri leikur: Manch. Utd – Manch. City ...................... 1:3 Grikkland Bikarkeppnin, 16-liða, fyrri leikur: OFI Krít – PAOK ..................................... 0:3  Sverrir Ingi Ingason lék fyrstu 72 mín- úturnar með PAOK.  Vináttulandsleikur karla Svíþjóð – Egyptaland.......................... 27:24  Kristján Andrésson þjálfar lið Svíþjóðar.   Svíþjóð Borås – Umeå....................................... 89:76  Elvar Már Friðriksson skoraði 25 stig, tók þrjú fráköst og gaf átta stoðsendingar fyrir Borås. NBA-deildin Philadelphia – Oklahoma City......... 120:113 Charlotte – Indiana .......................... 104:115 Washington – Boston ........................... 99:94 Orlando – Brooklyn............................ 101:89 Atlanta – Denver .............................. 115:123 New Orleans – Utah......................... 126:128 San Antonio – Milwaukee ................ 126:104 Dallas – Chicago ............................... 118:110 Sacramento – Golden State ............... 111:98 Staðan í Austurdeild: Milwaukee 32/6, Boston 25/9, Miami 26/10, Toronto 24/12, Philadelphia 24/14, Indiana 23/14, Orlando 17/20, Brooklyn 16/19, Charlotte 15/24, Chicago 13/24, Detroit 13/ 24, Washington 12/24, Cleveland 10/26, New York 10/26, Atlanta 8/29. Staðan í Vesturdeild: LA Lakers 29/7, Denver 25/11, Houston 24/ 11, LA Clippers 26/12, Utah 24/12, Dallas 23/13, Oklahoma City 20/16, San Antonio 15/20, Memphis 15/22, Portland 15/22, Minnesota 14/21, Phoenix 14/22, Sacra- mento 14/23, New Orleans 12/25, Golden State 9/29.   Ellefu nýliðar eru í 26 manna lands- liðshópi Kanada í knattspyrnu sem var valinn fyrir þrjá vináttulands- leiki í janúarmánuði, tvo gegn Barbados og þann þriðja gegn Ís- landi á miðvikudaginn í næstu viku. Allir leikirnir fara fram í Irvine í Kaliforníu en þar dvelur kanadíska liðið í tólf daga vegna leikjanna en fyrri leikurinn við Barbados fór fram í nótt og sá seinni verður á föstudagskvöldið. Fáir af fastamönnum Kanada eru í hópnum en reyndastir eru fram- herjinn Tosaint Ricketts sem hefur skorað 16 mörk í 59 landsleikjum, miðjumaðurinn Samuel Piette sem hefur leikið 46 landsleiki og miðju- maðurinn Jonathan Osario sem hefur leikið með Toronto. Þeir spila allir með kanadískum fé- lagsliðum í bandarísku MLS- deildinni. Tveir í hópnum eru samherjar ís- lenskra leikmanna, Manjrekar James frá Midtjylland í Danmörku, sem hefur leikið 16 landsleiki, og Sam Adekugbe frá Vålerenga í Noregi sem hefur leikið 9 lands- leiki. Mikael Anderson frá Midtjyll- and og Samúel Kári Friðjónsson frá Vålerenga (lánsmaður hjá Viking Stavanger) eru í íslenska hópnum. Ísland verður með svipað lið í leiknum við Kanada, fáa reynda menn og sjö nýliða. vs@mbl.is Ellefu nýlið- ar í hópi Kanada KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin: Borgarnes: Skallagrímur – Haukar ... 19.15 Mustad-höll: Grindavík – Valur .......... 19.15 Stykkishólmur: Snæfell – Breiðablik . 19.15 DHL-höllin: KR – Keflavík ................. 19.15 KNATTSPYRNA Norðurlandsmót kv., Kjarnafæðismótið: Boginn: Tindastóll – Þór/KA............... 18.45 Í KVÖLD! Manchester City er í afar vænlegri stöðu eftir þægilegan 3:1-sigur gegn Manchester United í fyrri leik lið- anna í undanúrslitum enska deilda- bikarsins í knattspyrnu á Old Traf- ford í Manchester í gær. Miðverðir United, þeir Victor Lindelöf og Phil Jones, litu vægast sagt illa út allan leikinn en leikmenn City gerðu oft á tíðum lítið úr þeim. Bernardo Silva og Riyad Mahrez skoruðu mörk City í fyrri hálfleik og þá varð Andreas Pereira fyrir því óláni að skora sjálfsmark eftir lag- legan undirbúning Kevin De Bruyne og staðan því 3:0 í hálfleik. City-menn slökuðu aðeins á bensíngjöfinni í seinni hálfleik og United komst betur inn í leikinn. Marcus Rashford lagaði stöðuna fyrir United með marki af stuttu færi á 70. mínútu. Síðari leikur liðanna fer fram á heimavelli City, Etihad-vellinum, hinn 29. janúar. bjarnih@mbl.is United sá ekki til sólar AFP Sannfærandi Leikmenn City fagna öruggum og þægilegum sigri gegn Manchester United á Old Trafford í gær. Elvar Már Friðriksson fór á kostum fyrir Borås þegar liðið vann þrett- án stiga heimasigur gegn Umeå í efstu deild Svíþjóðar í körfuknatt- leik í gær. Leiknum lauk með 89:76- sigri Borås en Elvar gerði sér lítið fyrir og var stigahæsti maður vall- arins með 25 stig. Þá gaf Íslending- urinn átta stoðsendingar og tók þrjú fráköst á þeim rúma hálftíma sem hann lék. Borås fer með sigr- inum upp í efsta sæti deildarinnar í 34 stig og hefur nú tveggja stiga forskot á Koping Stars sem á leik til góða á Borås. bjarnih@mbl.is Stigahæstur í mikilvægum sigri Ljósmynd/@BorasBasket Lykill Elvar Már Friðriksson hefur spilað frábærlega á tímabilinu. Dilja Ýr Zomers er gengin til liðs við Íslandsmeistara Vals í knatt- spyrnu en þetta kom fram á Face- book-síðu félagsins í gær. Diljá skrifar undir tveggja ára samning við Íslandsmeistarana en hún kem- ur til félagsins frá Stjörnunni. Diljá er fædd árið 2001 en hún er uppalin hjá FH í Hafnarfirði. Hún á að baki 39 leiki í efstu deild fyrir FH og Stjörnuna þar sem hún hefur skorað tvö mörk. Þá á Diljá að baki fimm landsleiki fyrir U17 ára lands- lið Íslands þar sem hún hefur skor- að eitt mark. bjarnih@mbl.is Liðsstyrkur til meistaranna Morgunblaðið/Árni Sæberg Efnileg Diljá Ýr Zomers hefur leik- ið með FH og Stjörnunni á ferlinum. „Ég er satt best að segja búinn að vera spenntur frá því að nítján manna hópurinn var tilkynntur,“ sagði Janus Daði Smárason, leik- stjórnandi íslenska karlalandsliðsins í handknattleik, í samtali við Morg- unblaðið á blaðamannafundi HSÍ í gær. „Ég missti af lestinni fyrir ári þannig að fyrir mig persónulega þá er ég búinn að bíða lengi eftir þessu og ég er fullur eftirvæntingar. Ég er spenntur að fara út enda eitt af því skemmtilegasta sem maður gerir að taka þátt í svona verkefnum með landsliðinu. Ég reikna fastlega með því að ég muni fá mín tækfæri til þess að hjálpa liðinu. Ég hef verið í góðum takti með félagsliði mínu Aal- borg og vonandi get ég tekið það með mér inn í þetta verkefni og hjálpað landsliðinu. Það er ofarlega í mínum huga að vera stór partur af íslenska landsliðinu og vonandi get ég verið besta útgáfan af sjálfum mér á þessu móti.“ Markmiðin fyrir EM eru skýr hjá íslenska liðinu. „Við viljum allir kom- ast upp úr riðlinum og ég hef fulla trú á því að það takist.“ bjarnih@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Magnúss Leikstjórnandi Janus Daði Smárason gæti fengið stórt hlutverk á EM. Vill gera sig gildandi í íslenska landsliðinu „Ég er bæði fullur eftirvæntingar og tilhlökkunar fyrir næstu dögum. Ég hef góða tilfinningu fyrir þessu og ég hlakka til að takast á við þetta krefjandi verkefni með þess- um leikmannahópi,“ sagði Guð- mundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari karla í handknatt- leik, þegar Morgunblaðið ræddi við hann á fundinum í gær. Aron Pálmarsson, Bjarki Már El- ísson og Elvar Örn Jónsson hafa all- ir verið að glíma við meiðsli en Guð- mundur er bjartsýnn á að þeir verði allir klárir í fyrsta leik í Malmö. „Ég er nokkuð bjartsýnn á að Elvar verði klár í fyrsta leik. Hann er byrjaður að hlaupa og taka varn- arskref á æfingum en hann er vissulega í kapphlaupi við tímann. Þetta var slæm tognun sem hann lenti í en samt sem áður ekki það slæm að menn eru frekar bjartsýn- ir, bæði læknar og sjúkraþjálfarar. Bjarki Már lítur vel út og hann var með á æfingu í dag. Hann er líka undir stífri meðhöndlun sjúkra- þjálfara, tvisvar á dag, og ég er líka bjartsýnn á að hann verði klár í fyrsta leik. Þá tók Aron virkan þátt í æfingu liðsins í dag og það er nán- ast hægt að útskrifa hann af sjúkra- listanum.“ Guðmundur segir erfitt að átta sig á íslenska liðinu, meðal annars vegna reynsluleysis, en fyrsta markmið fyrir Evrópumótið sé skýrt. „Það eitt að komast upp úr þess- um riðli er ákveðið afrek. Við erum í ákveðnum uppbyggingarfasa með liðið og andstæðingar okkar í riðla- keppninni eru afar sterkir. Það eru ákveðnir óvissuþættir í kringum okkar lið og við getum átt bæði frá- bæra leiki og dottið svo alveg niður og átt slæma leiki líka. Það er þess vegna erfitt að átta sig á stöðu liðs- ins í dag en við erum að byggja okkur upp, hægt og rólega. Okkar fyrsta markmið er að komast upp úr riðlinum en það þarf mjög margt að ganga upp svo að það takist,“ sagði Guðmundur ennfremur í gær. bjarnih@mbl.is Aron Pálmarsson nánast útskrifaður af sjúkralistanum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Spenntur Guðmundur Guðmunds- son er fullur tilhlökkunar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.