Morgunblaðið - 08.01.2020, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 08.01.2020, Blaðsíða 32
Serbneski píanóleikarinn Dragana Teparic heldur einleikstónleika í Hljóðbergi í menningarhúsinu Hannesarholti í kvöld kl. 20. Teparic hefur haldið tónleika víða um lönd og hefur hlotið fjölda við- urkenninga fyrir kröftugan og til- finningaríkan leik sinn. Á efnis- skránni eru verk eftir Scarlatti, Tsjaíkovskíj, Ivan Jevtic og Liszt. Serbneskur einleikari í Hannesarholti í kvöld MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 8. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Manchester City vann 3:1-sigur gegn nágrönnum sínum í Man- chester United í fyrri leik liðanna í undanúrslitum enska deildabikars- ins í knattspyrnu á Old Trafford í Manchester í gær. City var miklu sterkari aðilinn í leiknum en síðari leikur liðanna fer fram 29. janúar á heimavelli City, Etihad-vellinum. City á titil að verja í keppninni. »26 Meistararnir í vænlegri stöðu eftir góðan sigur ÍÞRÓTTIR MENNING Guðmundur Þórður Guðmundsson, þjálfari karlalandsliðs Íslands í handknattleik, tilkynnti í gær hvaða sautján leikmenn færu til Svíþjóðar á morgun en Ísland mætir Dan- mörku í fyrsta leik Evrópukeppn- innar í Malmö á laugardaginn. Sex- tán þeirra verða í hópnum þegar flautað verður til leiks en tveir leik- menn úr nítján manna æf- ingahópi urðu eftir, þeir Ágúst Elí Björg- vinsson og Daní- el Þór Inga- son. »27 Guðmundur með 17 menn til Danmerkur Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Þórdís Filipsdóttir starfaði sem þjálfari á líkamsræktarstöðvum í Reykjavík í 12 ár. Fyrir um 13 árum byrjaði hún að kynna sér stoðir kín- verskrar læknis- og heilsufræði og stofnaði síðan æfingamiðstöðina Tvo heima með Filip Woolford, föður sínum, 2016. „Síðan höfum við kennt Qi-gong og Tai-chi æfingar og ég kjarnþjálfun að auki alla daga,“ seg- ir hún. Það að vera þjálfari á líkams- ræktarstöðvum fullnægði ekki þörf- um Þórdísar. „Mér fannst ekki nóg að hjálpa fólki með vöðvauppbygg- ingu og útlitið og mér fór að leiðast. Ég fór því til Bandaríkjanna til þess að læra kínversku heilsufræðin, fór síðan í grunnnám í kínverskum lækningum hérna heima og bæti reglulega við þekkinguna í Kína og víðar. Við stofnuðum fyrirtækið til þess að geta boðið upp á þessar hreyfingar, hugleiðslu og ein- staklingsbundna þjálfun.“ Sumaræfingar á Klambratúni Heimspekin og fræðin á bak við Qi-gong og hvað æfingarnar hafa upp á að bjóða er ástríða hjá Þór- dísi. Frá stofnun fyrirtækisins hefur hún í samstarfi við Aflinn, áhuga- mannafélag um Qi-gong undir for- ystu Björns Bjarnason- ar, og Reykjavíkurborg boðið upp á fríar æfing- ar tvisvar í viku á Klambratúni á sumrin. „Tím- arnir hafa verið mjög vinsælir og yfir 100 manns mætt reglu- lega,“ segir hún. „Þó þessar æf- ingar séu um 6.000 ára gamlar eru þær nýjar af nálinni fyrir almenning hér á landi.“ Þórdís segir að æfingarnar fari mjög vel í fólk. „Qi-gong er hug- leiðsla með líkamanum og hug- leiðsla skapar ró.“ Hún bætir við að hreyfingarnar séu flæðandi, liða- mótin spennulaus og æfingarnar oftast gerðar í standandi stöðu. „Þær snúast um samhæfingu, eru oftast jafnar, rétt eins og hreyfingar á kafi í vatni. Með þessari hreyfi- tækni öðlast einstaklingurinn kyrrð og ró.“ Þórdís hefur farið með fámenna hópa, hámark sjö manns í einu, í námsferðir í akademíu í Kína á vor- in, þar sem þátttakendur hafa verið í mánuð og lært Qi-gong, Tai-Chi og Kung Fu, en fjórða ferðin verður í maí. „Það jafnast ekkert á við að kynna sér þessa líkamslist í upp- runalandinu,“ segir hún. Með tímanum hefur Þórdís öðlast mikla þekkingu á fræðunum. Auk þess segist hún hafa lært betur að þekkja eigin líkama. „Ég glímdi við stress og krónískan kvíða og sennilega var það helsta ástæða þess að ég heillaðist af Qi-gong og Tai-chi. Ég „var“ með brjósklos en finn ekki fyrir því. Astmi og hjart- sláttaróregla hafa líka háð mér en æfingarnar hafa haldið einkenn- unum niðri. Með öðrum orðum finn ég hvorki fyrir brjósklosinu, ast- manum né hjartsláttaróreglunni sem þýðir að ekkert er að mér.“ Tveir heimar eru í Suðurhlíð 35, skammt frá Suðurhlíðarskóla, og þar eru skipulagðar æfingar á vet- urna. „Fólk kemur til mín með alls kyns vandamál, bæði andleg og lík- amleg, og ég nota kínversku fræðin sem grunn til að meta hvað ég get gert fyrir manneskjuna. Í þessum austrænu fræðum er horft á ein- staklinginn en ekki meðaltal fjöldans, nálgun þjálfunarinnar er einstaklingsbundin.“ Ný námskeið byrjuðu um helgina og nk. laugardag, 11. janúar, verður opið hús klukkan 13-15 hjá Tveimur heimum, en upplýsingar um starf- semina má finna á heimasíðu fyrir- tækisins (2heimar.is). Kyrrð og ró með Qi-gong og Tai-chi Líkamsrækt Þórdís Filips- dóttir teygir sig eins og fugl.  Þórdís Filipsdóttir ýtir undir kínverska líkamslist hérlendis Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sumaræfingar Qi-gong fyrir alla á Klambratúni í sumar sem leið. Ljósmynd/Svenni Speight TRATTO model 2811 L 207 cm Áklæði ct. 70 Verð 335.000,- L 207 cm Leður ct. 10 Verð 439.000,- Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla DUCA model 2959 L 215 cm Áklæði ct. 83 Verð 395.000,- L 215 cm Leður ct. 25 Verð 585.000,- ESTRO model 3042 L 198 cm Áklæði ct. 70 Verð 269.000,- L 198 cm Leður ct. 15 Verð 385.000,- KIPLING model 3088 L 214 cm Áklæði ct. 70 Verð 345.000,- L 180cm Áklæði ct. 70 Verð 325.000,- JEREMY model 2987 L 202 cm Áklæði ct. 86 Verð 495.000,- L 202 cm Leður ct. 30 Verð 669.000,-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.