Morgunblaðið - 13.02.2020, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2020
Blanda ketóna og beta-
hýdroxýbútýrat (BHB), sam-
sett til að vinna með ketósa-
mataræði og hreyfingu.
Minni
sykur-
löngun
Café
AUSTURSTRÆTI • SKÓLAVÖRÐUSTÍG • LAUGAVEGI
AKUREYRI • VESTMANNAEYJUM
Komdu í kaffi
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Eftir að Guðmundur Andri Ástráðsson
taldi rétt sinn til réttlátrar máls-
meðferðar hafa verið brotinn í Lands-
réttarmálinu hafa verið kveðnir upp
tveir dómar yfir honum vegna sam-
bærilegra sakarefna.
Eins og rakið er á grafinu hér til hlið-
ar varða dómarnir annars vegar brot á
tímabilinu 9. júní 2017 til 13. apríl 2018
og hins vegar brot á tímabilinu 26.
október til 1. nóvember 2017. Fíkniefni
koma gjarnan við sögu en Guðmundur
Andri var með dómi 9. desember 2005
sviptur ökurétti ævilangt fyrir ölvunar-
og hraðakstur. Hefur ævilöng ökurétt-
arsvipting verið nokkrum sinnum
áréttuð í dómum yfir Guðmundi Andra
en hann hefur 15 sinnum verið dæmdur
fyrir refsiverða háttsemi og nær saka-
ferillinn aftur til ársins 2005, er hann
var um tvítugt.
Til upprifjunar hófst Landsréttar-
málið með dómi Héraðsdóms Reykja-
ness 23. mars 2017. Guðmundur Andri
játaði í því máli „skýlaust“ að hafa ekið
undir áhrifum fíkniefna en akstrinum
lauk með árekstri. Landsréttur stað-
festi dóminn í mars 2018 og svo Hæsti-
réttur með dómi 24. maí 2018 í máli
númer 10/2018.
Dómarinn væri löglega skipaður
Jafnframt því að staðfesta fyrri dóm
komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu
að Arnfríður Einarsdóttir, einn þriggja
dómara þegar málið var rekið fyrir
Landsrétti, hefði verið löglega skipuð.
Var hún einn fjögurra dómara sem Sig-
ríður Á. Andersen, þáverandi dóms-
málaráðherra, færði ofar á hæfnislista
er hún gerði tillögu að dómaraefnum
fyrir Landsrétti. Sagði hún af sér ráð-
herraembætti eftir að undirréttur
Mannréttindadómstóls Evrópu (MDE)
komst að þeirri niðurstöðu að brotið
hefði verið á rétti Guðmundar Andra til
réttlátrar málsmeðferðar fyrir Lands-
rétti. Var það rökstutt með því að við
skipan Arnfríðar hefði verið gengið
gegn lögum um dómstóla.
Málið var flutt fyrir yfirrétti MDE í
síðustu viku en ekki liggur fyrir
hvenær dómur fellur.
Ítrekuð brot
Eftir að Guðmundur Andri taldi á
rétti sínum brotið hefur hann tvívegis
fengið dóm fyrir refsiverða háttsemi
sem tengist fíkniefnaneyslu.
Fyrri dómurinn var kveðinn upp
fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur 7.
nóvember 2018. Ákæruliðirnir voru
fimm. Í fyrsta lagi fyrir akstur á Breið-
holtsbraut undir áhrifum fíkniefna,
sem fundust í blóði. Í öðru lagi fyrir of
hraðan akstur suður Hvalfjarðargöng.
Í þriðja lagi fyrir akstur undir áhrifum
fjögurra fíkniefna, sem fundust í blóði,
og áfengis í Kópavogi. Í fjórða lagi
fyrir akstur við Stekkjarbakka í
Reykjavík sviptur ökurétti. Í fimmta
lagi fyrir að hafa ekið sviptur ökurétti
við Fiskislóð í Reykjavík. Sem áður
segir hafði hann verið sviptur ökurétti
ævilangt í desembermánuði 2005.
Síðari dómurinn var kveðinn upp
fyrir Héraðsdómi Suðurlands 21.
nóvember sl. Annars vegar var hann
ákærður fyrir að hafa ekið bifreið á
Stokkseyri sviptur ökurétti og „óhæf-
ur til að stjórna bifreiðinni örugglega
vegna áhrifa kókaíns“. Hins vegar var
hann ákærður fyrir brot á vopnalögum
með því að hafa haglabyssu á dvalar-
stað sínum án skotvopnaleyfis og undir
áhrifum amfetamíns, kókaíns, me-
tamfetamíns, alprazólams, klóna-
zepams og nítrazepams. Jafnframt var
hann ákærður fyrir sama brot á þáver-
andi heimili sínu í Kópavogi en hagla-
byssan var þá annarrar gerðar.
Reyndist byssan vera hluti af þýfi.
Fram kemur í dómnum að þegar
aksturinn á Stokkseyri var stöðvaður
hinn 26. október 2017 hafi þrennt verið
í bílnum. Einn farþeganna hafi verið
látinn þegar dómur féll.
Hefur fengið fimmtán dóma
Það var 15. dómurinn sem Guð-
mundur Andri fékk vegna refsiverðar
háttsemi en mörg brotin vörðuðu akst-
ur undir áhrifum ávana- og fíkniefna.
Dómarinn fjallaði í dómsorðum um
tímasetningar í Landsréttarmálinu.
Jafnframt var vikið að ákvæðum
hegningarlaga þegar sakborningur
hefur framið fleiri en eitt brot:
„Brot ákærða nú eru framin 26.
október 2017, 29. október 2017 og 1.
nóvember 2017. Þrátt fyrir að þau hafi
öll verið framin fyrir dómsuppsögur í
Landsrétti og Hæstarétti dagana 23.
mars 2018 og 24. maí 2018 þá voru þau
öll framin eftir uppsögu dóms í héraði
hinn 23. mars 2017 og kemur því ekki
til álita að beita 78. gr. almennra
hegningarlaga nr. 19/1940 vegna
þeirra dóma, sbr. dóm Landsréttar 8.
nóvember 2019, en hér ber að geta
þess að bæði í Landsrétti og Hæsta-
rétti var staðfest niðurstaða héraðs-
dóms 23. mars 2017 um sakfellingu og
ákvörðun viðurlaga. Brot ákærða nú
eru hins vegar öll framin fyrir upp-
sögu dóms í Landsrétti 8. nóvember
2019 sem staðfesti dóm héraðsdóms
frá 7. nóvember 2018 og ber að beita
78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/
1940 vegna þeirrar refsingar.
Það athugast að sú umfjöllun sem
dómur Hæstaréttar frá 24. maí 2018
hefur fengið í dómi Mannréttinda-
dómstóls Evrópu getur ekki haft áhrif
á þetta, enda hefur dómur Hæsta-
réttar Íslands ekki verið endur-
upptekinn og er því gildur að lögum.
Við ákvörðun refsingar ber jafnframt
að hafa hliðsjón af 77. gr. almennra
hegningarlaga nr. 19/1940,“ sagði
meðal annars í dómi Héraðsdóms Suð-
urlands í nóvember síðastliðnum.
Varða 77. gr. og 78. gr. almennra
hegningarlaga útfærslu refsingar ef
sakborningur verður uppvís að því að
hafa framið fleiri en eitt brot.
Dómur
MDE hefur
ekki áhrif
Héraðsdómur Suðurlands dæmdi að
dómur MDE í Landsréttarmálinu hefði
ekki áhrif á dóm Hæstaréttar í málinu
Ljósmynd/MDE
Í Strassborg Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson flytur málið fyrir yfirrétti MDE 5. febrúar sl. 17 dómarar dæma málið.
Jón Steinar
Gunnlaugs-
son, fv. hæsta-
réttardómari,
kveðst sam-
mála dómi
Héraðsdóms
Suðurlands.
Nánar tiltekið
hvað varðar
áhrif dóms
undirréttar MDE á dóm Hæsta-
réttar í Landsréttarmálinu.
Dómur undirréttar og væntan-
legur dómur yfirréttar breyti
engu um íslenskan rétt.
Þeir geti því ekki orðið að
skilyrði fyrir endurupptöku.
„Maðurinn getur beðið um
endurupptöku á málinu en að
mínum dómi er enginn grund-
völlur fyrir því. Það veitir ekki
skilyrði til endurupptöku þótt
dómstóllinn ytra hafi komist að
niðurstöðu,“ segir Jón Steinar.
Dæmi séu um að aðildarríki
MDE hafi sett sérstök lög um að
dómar MDE sem ganga gegn
viðkomandi ríki geti veitt heim-
ild til endurupptöku. Það hafi
ekki verið gert á Íslandi.
ÁLIT FV. DÓMARA
Jón Steinar
Gunnlaugsson
Hefur engin
réttaráhrif
Guðmundur Andri Ástráðsson – dómar eftir Landsréttardóm*
Héraðsdómur Reykjavíkur, dómur 7.11. 2018
Ákæruliðir
I Akstur undir áhrifum fíkniefna 9.6. 2017
undir áhrifum fíkniefna sviptur ökurétti
II Fyrir of hraðan akstur sviptur ökurétti
13.6. 2017
III Fyrir akstur sviptur ökurétti 8.9. 2017
undir áhrifum fíkniefna
IV Fyrir akstur sviptur ökurétti 15.1. 2018
V Fyrir akstur sviptur ökurétti 13.4. 2018
Niðurstaða
dómsins
Sakfellt fyrir alla ákæruliði – játning lá fyrir.
9. mánaða fangelsi, óskilorðsbundið.
Héraðsdómur Suðurlands, dómur 21.11. 2019
Ákæruliðir
I Akstur undir áhrifum kókaíns 26.10. 2017
sviptur ökurétti
II
Fyrir brot á vopnalögum – vörslu hagla-
byssu án leyfis undir áhrifum fíkniefna
29.10. 2017
III
Fyrir brot á vopnalögum – vörslu hagla-
byssu á heimili sínu 1.11. 2017 sem reyndist
vera þýfi
Niðurstaða
dómsins
Sakfellt fyrir alla ákæruliði – játning lá fyrir vegna
liða II og III. 8. mán. fangelsi, óskilorðsbundið.
*Dómur í máli S-49/2017 féll 23.3. 2017. Dómar Landsréttar og Hæstaréttar í málinu féllu í mars og apríl 2018. Landsréttarmálið varðar umræddan dóm Landsréttar 24.3. 2018.
Dómur undirréttar MDE féll 12.3. 2019. Heimildir: Dómar í málum S-188 2019 og S-550 2018.