Morgunblaðið - 13.02.2020, Síða 20

Morgunblaðið - 13.02.2020, Síða 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2020 Hagar hf. birta lýsingar í tengslum við umsóknir um töku verðbréfa til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Auglýsing þessi er birt í tengslum við umsóknir um töku skuldabréfaflokka HAGA 181021 og HAGA 021029 til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. HAGA 181021 Höfuðstólsfjárhæð útgefinna skuldabréfa í flokknum nam kr. 2.500.000.000 og voru þau öll seld þann 15. október 2019 eftir að Hagar samþykktu tilboð hæfra fjárfesta í framhaldi að lokuðu útboði félagsins þann 30. september 2019 þar sem Hagar höfnuðu öllum tilboðum í óverðtryggðan flokk skuldabréfa. Skuldabréfin voru seld á genginu 1,0 og bera skuldabréfin fasta 4,65% óverðtryggða vexti. HAGA 021029 Upphafleg höfuðstólsfjárhæð skuldabréfa í flokknum nam kr. 5.500.000.000 og voru þau öll seld í lokuðu útboði þann 30. september 2019. Skuldabréfin voru gefin út og afhent þann 2. október 2019. Skuldabréfin voru seld á genginu 1,0 og bera skuldabréfin fasta 2,8% verð- tryggða vexti. Heildarheimild til útgáfu skuldabréfa í þessum flokki er kr. 15.000.000.000. Markmiðið með skráningu skuldabréfanna á Aðalmarkað Nasdaq Iceland hf. er að stuðla að auknum seljanleika og markaðshæfi skuldabréfanna, sem og að tryggja fjárfestum að starfs- hættir og upplýsingagjöf um fjárhagsstöðu útgefanda séu í samræmi við reglur fyrir útgef- endur fjármálagerninga, sem gefnar eru út af Nasdaq Iceland hf., eins og þær eru á hverjum tíma. Hagar hafa komið á fót tryggingafyrirkomulagi með útgáfu tryggingarbréfs, veðhafa- og veðgæslusamnings, umboðssamnings og samnings við staðfestingaraðila. Framangreindir samningar eru birtir á heimasíðu Haga, www.hagar.is/fjarfestaupplysingar/skuldabrefautbod/ og eru fjárfestar hvattir til þess að kynna sér efni skjalanna í heild sinni. Á grundvelli veðhafa- og veðgæslusamkomulags hafa Hagar lagt fram tryggingar til greiðslu skuldabréfanna sem eigendur skuldabréfanna á hverjum tíma gerast sjálfkrafa aðilar að. Tryggingar Haga eru tilgreindar í viðauka við veðhafa- og veðgæslusamkomulagið og tryggingarbréfi sem Hagar hafa gefið út. Lýsingarnar eru útbúnar með hliðsjón af þeim reglum Nasdaq Iceland hf. sem gilda um töku verðbréfa til viðskipta. Lýsingarnar eru gefnar út á íslensku og birtar af Högum þann 12. febrúar 2020. Hvor lýsing fyrir sig samanstendur af þremur skjölum, þ.e. verðbréfalýs- ingu, útgefandalýsingu og samantekt. Lýsingarnar hafa verið staðfestar af Fjármálaeftirlitinu og eru almenningi aðgengilegar á heimasíðu þess. Minnt er á að fjárfesting í skuldabréfum felur í sér áhættu og eru fjárfestar hvattir til þess að kynna sér lýsingarnar í heild sinni og er sérstaklega bent á kafla um áhættuþætti. Nánari upplýsingar Útgefandi lýsinga eru Hagar hf., kt. 670203-2120, Hagasmára 1, 201 Kópavogi. Nánari upplýsingar um Haga og skilmála skuldabréfanna má finna í lýsingum félagsins sem dagsettar eru 12. febrúar 2020 og er birt á www.hagar.is/fjarfestaupplysingar/skuldabrefautbod/ Þar má nálgast lýsingarnar næstu 12 mánuði. Stjórn Haga hf. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Helga Hansdóttir, yfirlæknir á hjúkrunarheimilunum Grund og Mörkinni, segir að það hafi gefist mjög vel að hafa lækna í fastri vinnu og tiltæka til að geta sinnt sem flestum tilfellum á hjúkrunarheim- ilunum sjálfum. Fyrir vikið þurfi sjaldnar að senda fólk þaðan á bráðamóttöku. Hún kveðst telja að væri sá háttur væri hafður á alls staðar myndi það létta mjög álagið á Landspítalanum. Talsvert hefur verið fjallað um álagið á bráðadeild Landspítalans að undanförnu. Dæmi eru um að eldra fólk og sjúklingar fylli þar ganga og komist ekki að á öðrum deildum því þar sé allt yfirfullt. Hættulegt að senda á spítala „Þeir hafa sagt mér það á bráða- móttökunni að þeir eru farnir að taka á móti fólki af hjúkrunarheim- ilunum sem er sent þangað óséð. Þá er læknir kannski upptekinn og hvað er þá gert? Þá er auðveldast að senda fólk í mat á bráðamóttökunni enda vill fólk ekki taka áhættu með líf,“ segir Helga. Misjafnt er hvernig fyrirkomulag er á hjúkrunarheimilum. Í Mörkinni hefur frá upphafi verið sú stefna að hafa lækni tiltækan og sú stefna var innleidd á Grund fyrir nokkrum árum. Læknar þar vinna hefð- bundna dagvinnu en eru svo á bak- vöktum. Kosturinn við þetta er að mati Helgu að viðkomandi læknar þekkja sjúkrasögu fólksins á hjúkr- unarheimilunum og hafa aðgang að öllum nauðsynlegum upplýsingum sem auðveldar mjög mat á hverju tilfelli fyrir sig. Oft nægir það að ræða við hjúkrunarfræðing í síma til að ákveða hvaða meðferð skuli beitt. „Hver dagur á spítala er mjög kostnaðarsamur auk þess að það getur verið beinlínis hættulegt fyrir gamla fólkið að liggja á bekk á bráðamóttökunni. Allt umstangið sem því fylgir, smithætta og fleira. Í einföldum veikindum er þetta fólk betur komið heima hjá sér.“ Kostnaður sem skilar sér Helga segir að þótt það kosti pen- inga að hafa lækna í fullri vinnu, öfugt við til dæmis tvo daga í viku eins og einhvers staðar tíðkast, skili sá kostnaður sér í sparnaði annars staðar í heilbrigðiskerfinu. „Það módel að hafa nægilegan mannskap til að læknar geti kynnst fólki sínu vel er grunnur að því að geta sinnt bráðum veikindum þann- ig að ekki þurfi að senda fólk á sjúkrahús. Þetta getur sparað fé fyrir kerfið í heild sinni.“ „Lítill áhugi“ stjórnvalda Helga segir að skoða þurfi þessi mál í víðara samhengi. Þegar sami aðili, ríkið, bæði setji kröfur fyrir heilbrigðiskerfið og borgi brúsann sé hætt við því að kröfurnar taki mið af því sem ódýrast er hverju sinni. „Mér finnst oft vera skortur á skilningi hjá stjórnvöldum. Þetta snýst ekki bara um fjármagn heldur líka að virða bæði líknar- og bráða- hlutverk. Mér finnst ég oft verða vör við að lítill áhugi sé á hjúkr- unarheimilunum. Það deyja margir þar en mér finnst ég þurfa að berj- ast fyrir að fá að meðhöndla þetta fólk eins og fólk. Og gera það jafn vel og ef það byggi úti í bæ.“ Vilja meðhöndla fólk á heimilunum  Yfirlæknir á Grund segir að kostnaður við lækna í fullu starfi skili sér í sparnaði annars staðar í heil- brigðiskerfinu  Sjúklingar sendir ógreindir á bráðamóttöku  Skortur á skilningi hjá stjórnvöldum Morgunblaðið/Eggert Yfirlæknir Helga Hansdóttir vill síður senda gamalt fólk á bráðamóttöku. Alexander Kristjánsson alexander@mbl.is Birni H. Halldórssyni hefur verið sagt upp störfum sem framkvæmda- stjóri Sorpu bs., með sex mánaða uppsagnarfresti í samræmi við ráðn- ingarsamning. Þetta var ákveðið á stjórnarfundi Sorpu í gær. Í tilkynningu frá stjórn félags- ins, sem er í eigu sveitarfélaganna sex á höfuðborg- arsvæðinu, segir að ákvörðunin eigi sér m.a. stoð í nýlegri skýrslu innri endurskoðunar Reykjavíkur- borgar um stjórnarhætti og áætlun- argerð vegna gas- og jarðgerðar- stöðvar þar sem gerðar voru alvarlegar athugasemdir við störf framkvæmdastjóra hvað varðar upp- lýsingagjöf og gerð kostnaðar- áætlunar. Skýrslan var unnin að beiðni Sorpu eftir að greint var frá því í haust að kostnaður við gas- og jarð- gerðarstöð Sorpu í Álfsnesi og tækjabúnaðar í stækkaða móttöku- stöð í Gufunesi hefði samanlagt farið 1,3 milljörðum króna fram úr áætlun. Björn hefur verið í leyfi frá störf- um undanfarinn mánuð eftir að stjórn Sorpu „afþakkaði vinnufram- lag hans“ á meðan skýrslan var til skoðunar innan stjórnar. „Að fengnum andmælum fram- kvæmdastjórans við efni skýrslunn- ar var ákveðið að veita honum áminningu í samræmi við ákvæði kjarasamnings og gefa honum kost á frekari skýringum og athuga- semdum. Að þeim fengnum og í ljósi annarra aðstæðna var tekin ákvörð- un um uppsögn,“ segir í tilkynningu frá stjórninni. „Ekkert út á störf mín að setja“ Í yfirlýsingu sem Björn sendi frá sér í gær segir hann niðurstöðu stjórnarinnar mikil vonbrigði enda sé ekkert út á störf hans að setja. „Uppsögninni virðist því einkum ætl- að að varpa athyglinni frá ábyrgð stjórnar á þeirri áætlanagerð Sorpu bs. sem er til umræðu,“ segir Björn. Þá segir hann að ákvörðun um byggingu gas- og jarðgerðarstöðvar- innar í Álfsnesi hafi verið tekin af stjórn Sorpu samkvæmt fyrirmæl- um frá eigendafundi. Eigendur og stjórn hafi útbúið kostnaðaráætlun út frá eigin forsendum og hann hvorki gert tillögu um þá áætlun né samþykkt hana. Það megi sjá í fundargerðum. Björn telur að stjórnarmenn og eigendur Sorpu bs. „hafi hér ætlað að skáka í því skjóli að framkvæmdum yrði lokið talsvert fyrir næstu sveitarstjórnarkosning- ar 2022. Kjósendur væru því ólíkleg- ir til að minnast málsins þegar þar að kemur.“ Björn segist enn fremur ekki kunna neinar skýringar á því „hversu illilega innri endurskoðandi hrapar að röngum niðurstöðum“, en þó sé ljóst að hann hafi bersýnilega verið vanhæfur til að framkvæma rannsóknina enda sitji móðurbróðir hans í stjórn Íslenska gámafélagsins. Dr. Helgi Þór Ingason, prófessor við verkfræðideild Háskólans í Reykjavík, hefur verið ráðinn tíma- bundið í starf framkvæmdastjóra. Helgi Þór er forstöðumaður MPM- meistaranáms í verkefnisstjórnun við HR og hafa rannsóknir hans og kennsla á háskólastigi einkum snúist um verkefna- og gæðastjórnun. Helgi Þór sinnti einnig stöðu for- stjóra Orkuveitu Reykjavíkur tíma- bundið árin 2010-2011. Framkvæmda- stjóra Sorpu sagt upp störfum  Segir uppsögninni ætlað að draga athygli frá ábyrgð stjórnar Sorpu Björn H. Guðfinnsson Morgunblaðið/Styrmir Kári Álfsnes Kostnaður við stöðina hef- ur farið 18% fram úr áætlunum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.