Morgunblaðið - 13.02.2020, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2020
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Þá hefurbandarískiDemókrata-
flokkurinn loks lok-
ið forvali sínu í
tveimur fylkjum
landsins. Þó verður
að hafa fyrirvara á
því hvort enn sjái fyrir enda
fyrra prófkjörsins sem var í
Iowa, eins og venja stendur til.
Flokkurinn fékk tölvusnill-
inga úr Sílíkondalnum til að
færa forvalið inn í nútímann,
sem varð til þess að vika dugði
ekki í talninguna. Tveir fram-
bjóðenda í forvalinu hafa nú
kært útkomuna, þar sem þeir
hafi rökstuddan grun um að
ekki sé allt með felldu. Þetta
voru frambjóðendurnir sem
komu best frá baráttunni og
munaði litlu á, þeir Pete Buttig-
ieg og Bernie Sanders og var
Buttigieg sagður sigurvegari.
Þessir tveir urðu svo efstir í
næsta forvali demókrata, í New
Hampshire, en þar var Sanders
hins vegar með smáforskot á
Buttigieg. Það er svo hliðarsaga
að ýmsir þeirra sem þurfa að
fjalla um þann síðarnefnda eiga
í bögglingi með réttan framburð
á nafni smábæjarstjórans, sem
vill verða forseti. Þannig hefur
Trump forseti átt í basli með að
koma nafni frambjóðandans
rétt út úr sér.
Sumir andstæðingar forset-
ans benda þó á að Trump hafi
tilhneigingu til að uppnefna og
afbaka nöfn andstæðinganna
eða að klessa viðhengi við nöfn
þeirra. (Sbr. Lyin’ Ted, flokks-
bróður hans.) En hvað sem því
líður átti Trump í raunveru-
legum vanda með Buttigieg í
byrjun. En svo hjó hann eftir
því að fólkinu á fjöldafundunum
þótti til um vandræðaganginn,
og tók þess vegna að japla á
ýmsum útgáfum nafnsins.
George Bush, fyrirrennari
hans, var eins og Bush eldri
kurteis og ólíkur Trump að
þessu leyti. Bush yngri átti í
stökustu vandræðum með að
bera fram nafn þáverandi for-
seta Írans, Mahmoud Ahmad-
inejad. Það rættist ekki úr
þessu fyrr en ráðgjafar forset-
ans kenndu honum að bera
nafnið fram svona: A-mad-in-
deed. Eftir það klikkaði forset-
inn aldrei á því.
En stóru tíðindin út úr forval-
inu í þessum fylkjum snúast
ekki um sigurvegarana heldur
um Joe Biden, fyrrverandi
varaforseta. Biden áréttaði síð-
ast að morgni seinna forvalsins
að hann hefði frá upphafi verið í
afgerandi forystu í prófkjörum
demókrata þegar mælt væri á
landsvísu. Það má til sanns veg-
ar færa. En landskannanir hafa
minna en ekkert að segja um
stöðuna í einstökum fylkjum.
Mæling í 50 fylkj-
um, þegar kosn-
ingabarátta hefur
aðeins farið fram í
sárafáum þeirra, er
næsta marklaus.
Hún mælir einkum
hvaða frambjóð-
anda aðspurðir kannist helst
við. Þetta sannaðist heldur bet-
ur í forvalinu nú. Biden lenti í 5.
sæti í báðum fylkjum og náði
ekki 10 prósenta fylgi.
Það var sláandi að flestum
fréttaskýrendum bar saman um
að það hefði verið ákæran gegn
Trump til embættismissis (e.
impeachment), sem gerði for-
setanum lítið til, sem hefði
gengið frá Joe Biden. Hann,
bræður hans og synir hefðu ver-
ið afhjúpaðir sem spilltir stjórn-
málamenn sem hefðu sankað að
sér óverðskulduðu fé í krafti
valdastöðu hans. Demókrötum
hefði orðið ljóst á umræðum í
Öldungadeild þingsins að Biden
myndi ekki lifa framboðsraun-
irnar af og því væri best að ýta
honum út af borðinu við fyrsta
tækifæri. Og það var svo
sannarlega gert þótt Biden hafi
enn ekki tilkynnt uppgjöf sína
opinberlega.
Og þá draga enn önnur
skringilegheit að sér athyglina í
kjölfarið. Ætla mætti að hrak-
farir Bidens myndu helst kæta
þá Sanders og Buttigieg.
Flestir fréttaskýrendur horfa
þó annað. Á Michael Bloom-
berg, sem verður 78 ára á morg-
un. Hann hefur fram til þessa
ekki haldið neina fundi með
kjósendum, sem hinir frambjóð-
endurnir hafa hamast við í
næstum ár. Bloomberg tók ekki
þátt í kappræðum við aðra
frambjóðendur á meðan þeir
voru á þriðja tug. Reglur um
frambjóðendur sögðu að þeir
yrðu að hafa fjárhagslegan
stuðning frá lágmarksfjölda
kjósenda til að fá að taka þátt í
kappræðunum. Sumir voru úti-
lokaðir þess vegna. En nú hefur
Bloomberg verið heimilað að
taka þátt í næstu kappræðu.
Ekki vegna þess að einhver
hópur flokkssystkina hafi gauk-
að að honum eins og 10 doll-
urum hver. Það dettur engum
demókrata í hug. Bloomberg
mun eiga 61,5 milljarða banda-
rískra dala (Sjöþúsundsjö-
hundruðáttatíuogsex milljarða
íslenskra króna). Bloomberg er
sagður 30 sinnum ríkari en
Trump. Bloomberg hefur þegar
eytt ógrynni fjár í að auglýsa
framboð sitt og er rétt að byrja.
Hann felur það ekki að mark-
miðið er að kaupa sér lyklana að
Hvíta húsinu. Hann segist
munu henda í það þeim pen-
ingum sem þurfi. Hans reynsla
virðist að allt sé falt. Spurningin
snúist um verð.
Staðan í framboðs-
málum vestra hefur
breyst en óljóst er
hvort það er allt til
batnaðar}
Margt er skrítið og
víðar en í kýrhausnum
E
r furða þótt maður velti fyrir
sér og það í fullri alvöru hvað
sé raunverulega á ferðinni í
Wuhan-héraði í Kína? Er ein-
hver sem raunverulega veit
það fyrir utan kínversk stjórnvöld?
Við vitum að nokkur stærstu flugfélög í
heim hafa hætt að fljúga til Kína. Rússar
hafa lokað gríðarlöngum landamærum sín-
um að Kína. Bretar lýsa yfir lýðheilsuvá.
Bandaríkin banna komu kínverskra ferða-
manna. Veiran hefur nú greinst í 28 lönd-
um. Sérfræðingar segja að þessi veira sé
a.m.k. tíu sinnum öflugri en aðrar inflúensu-
veirur.
Íslensk stjórnvöld gera að mínu mati allt
of lítið til að minnka hættuna á að pestin berist hingað
til lands. Þau hafa heimilað 109 milljónir króna á
aukafjárlögum til forvarna vegna þess voða sem nú
steðjar að okkur. Sóttvarnalæknir segir ekki spurn-
ingu um hvort heldur hvenær veiran berst hingað til
lands. Veiran fer hratt yfir og óttast er að hún valdi
heimsfaraldri. Ríkisstjórnin bíður þess nánast með
hendur í skauti sem verða vill.
Af hverju er ekki gripið til varna? Hvers vegna í
ósköpunum lokum við ekki algerlega á flæði ferða-
manna frá viðurkenndum sýktum svæðum? Miðað við
alvarleika málsins er það með hreinum ólíkindum að
einhverjir skuli hafa þörf fyrir að gera þá tortryggi-
lega sem vilja bregðast við þessar vá af þeirri stað-
festu sem felst í að gera allt sem hægt er
til að koma í veg fyrir að veiran berist
hingað til lands. Persónulega myndi ég tala
á nákvæmlega sama máta hvaðan sem
þessi veira væri uppruninn. Þetta er alvar-
legur faraldur sem mikil hætta er á að
verði heimsfaraldur.
Við erum eyland norður í höfum. Okkur
er í lófa lagið að koma í veg fyrir að sótt-
varnalæknir hafi rétt fyrir sér að veiran
berist hingað. Við höfum nú val milli þess
að þola tímabundin óþægindi og áföll vegna
raskana á ferðum fólk til landsins okkar,
eða að þjóðfélagið hér nánast lamist ef
veiran berst hingað og breiðist út.
Hér er mikil alvara á ferðum. Dánartíðni
þessa faraldurs er miklu mun hærri en okkur er talin
trú um. Af þeim sem hafa gengið í gegnum þessa
hryllilegu veirusýkingu hafa ríflega 30% dáið. Fátækt
fólk og aldrað stendur sérlega höllum fæti andspænis
þessari sótt. Við vitum ekkert um þær tugþúsundir
sem nú eru þegar viðurkennt smitaðar og eru að berj-
ast fyrir lífinu. Við vitum í raun ekkert fyrr en farald-
urinn er genginn yfir.
Grípum til varna. Helgasta skylda stjórnvalda allra
landa er að vernda líf og limi eigin borgara. Stjórn-
völd sem ekki eru fær um slíkt eru ekki starfi sínu
vaxin. Ætlar ríkisstjórnin að sitja hjá?
Inga Sæland
Pistill
Dauðans alvara steðjar að
Höfundur er alþingismaður og formaður Flokks fólksins.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Við erum ekki með sterkainnviði hér og sækjummikið þjónustu til Ísafjarð-ar, meðal annars heilbrigð-
isþjónustu, og félagsþjónustan kem-
ur þaðan. Margir sækja vinnu til
Ísafjarðar og nágrannasveitarfélaga.
Það er því bagalegt þegar vegurinn
er lokaður og það setur allar áætlanir
fólks úr skorðum,“ segir Bragi Þór
Thoroddsen, sveitarstjóri í Súðavík.
Veginum á milli Ísafjarðar og
Súðavíkur, hefur verið lokað vegna
veðurs og færðar 15 sinnum það sem
af er vetri. Þar af var lokað allan sól-
arhringinn eða hluta dags í átta daga
í röð í óveðrinu fyrir miðjan janúar.
Eru þetta mun lengri tími en verið
hefur undanfarna vetur, eins og sést
á meðfylgjandi grafi. Geir Sigurðs-
son, verkefnastjóri hjá Vegagerðinni
á Ísafirði, segir að ekki hafi fallið
mörg snjóflóð á Kirkjubóls- og Súða-
víkurhlíð í vetur. Veginum hafi oft
verið lokað í öryggisskyni vegna veð-
urs og hættu, meðal annars stundum
á nóttunni, án þess að flóð hafi fallið.
Bátur í sjúkraflutningi
Bragi segir að við þetta bætist
að veðrið hafi verið slæmt í vetur og
vegurinn um Ísafjarðardjúp verið
mikið lokaður. Súðvíkingar hafi því
verið innilokaðir dögum saman.
Nefnir hann sem dæmi að á mánu-
dag hafi þurft að kalla út björg-
unarbátinn Gísla Jóns til að sækja
sjúkling sem fékk botnlangakast í
Súðavík og flytja á sjúkrahúsið á Ísa-
firði. Veður var slæmt og Gísli Jóns
lítill bátur en hann er gott sjóskip og
gekk ferðin vel. Bragi segir ekki erf-
itt að ímynda sér líðan fólks þegar
senda þarf sjúklinga sjóleiðina við
þessar aðstæður. Segist hann vita
fleiri dæmi um að fólk hafi nauðsyn-
lega þurft að komast til læknis, þegar
hlíðin var lokuð. Hann nefnir einnig
að eldri borgarar treysti á þjónustu
frá Ísafirði og þurfi þá einhverjir aðr-
ir að annast þá.
„Það er ekki skemmtilegt fyrir
fólk að aka þessa leið þegar það get-
ur átt von á snjóflóði eða grjóti, hvað
þá að senda börnin sín í íþróttir eða
aðrar tómstundir,“ segir Bragi.
Málið er miklu stærra en snýr
eingöngu að Súðavík, að mati Braga.
Ísafjörður, sem er stóri þéttbýlis-
kjarninn á Vestfjörðum, fær öll að-
föng landleiðina og þegar mikið er
lokað getur það valdið vöruskorti.
Spurður um lausn á vandanum
segir Bragi að hún geti falist í jarð-
göngum úr Skutulsfirði í Álftafjörð,
svokölluðum Álftafjarðargöngum
sem lengi hefur verið beðið eftir.
Göngin hafa verið til skoðunar hjá
stjórnvöldum en eru ekki inni á sam-
gönguáætlun.
Jarðgöng ekki á dagskrá
Gísli Eiríksson, forstöðumaður
hjá Vegagerðinni, bendir á að
Fjarðarheiðargöng séu næst í röð-
inni á eftir Dýrafjarðargöngum og
engin önnur jarðgöng séu á áætlun.
Hann bendir á að aðalsjóflóðasvæðið
sé á um tveggja kílómetra kafla.
Telur hann sjálfsagt að athuga hvort
hægt sé að leysa öryggismálin á veg-
inum með vegskálum þar sem
stærstu snjóflóðin falla og breikka
rásir og setja stálþil þar sem minni
flóðin koma. Slíkar framkvæmdir
myndi væntanlega ekki kosta nema
fjórðung af því sem jarðgöng kosta.
Bragi Þór segir að vissulega
kosti jarðgöng mikið en það kosti líka
mikið að reka veginn eins og hann er
núna. Varðandi umbætur á veginum
sem Vegagerðin hefur unnið að, með-
al annars með því að breikka rásir og
setja upp stálþil til að taka minni
flóðin, segir Bragi að það sé allt til
bóta. Minnir hins vegar á að áður hafi
verið merktar 22 snjóflóðarásir á
þessum vegi og enn séu 22 rásir
merktar auk mikils grjóthruns sum-
ar og vetur.
Setur allar áætlanir
fólks úr skorðum
Álftafjarðargöng
» Áætlað er að göngin verði
6 km löng. Kostnaður var áætl-
aður 8 milljarðar fyrir fjórum
árum.
» Göngin leiða veginn
framhjá snjóflóða- og grjót-
hrunsköflum á Súðavíkur- og
Kirkjubólshlíð.
Lokanir vegarins um Súðavíkurhlíð
Veturinn 2015-16 til 2019-20*
2015-16 2016-17 2017-18 2018-19 2019-20
198
15
2
12
2
8
19
139
15
106
Fjöldi lokana Lokað í klst. alls*Það sem af er vetrar 2019-20, eða til 11. febrúar 2020
M
YN
D/
R
A
X Lokanir veturinn
2019-20
Desember 2019
10. des. 5,5 klst.
11. des. 13 klst.
Janúar 2020
8. jan. 8,3 klst.
9. jan. 24 klst.
10. jan. 11,4 klst.
11. jan. 12,6 klst.
12. jan. 7,3 klst.
13. jan. 24 klst.
14. jan. 24 klst.
15. jan. 17,1 klst.
19. jan. 9,4 klst.
23. jan. 12 klst.
24. jan. 6,2 klst.
Febrúar 2020
10. feb. 16 klst.
11. feb. 7,7 klst.
198 klst. alls