Morgunblaðið - 13.02.2020, Page 38

Morgunblaðið - 13.02.2020, Page 38
Sameinuð í fjölbreytileika Íbúum af erlendum uppruna hefur fjölgað mikið hér á landi und- anfarin ár og hefur þátttaka þeirra á vinnumarkaði verið lykilþáttur í að skapa hagvöxt síðustu ára. Næstum fjórði hver starfsmaður á Íslandi er erlendur og er at- vinnuþátttaka þeirra mjög há, eða 94%, samanborið við 77% hjá inn- fæddum.1) Reynslan frá tíma fjármálakrepp- unnar er að flestir innflytjendur ílengjast hér þótt atvinnuástand versni um hríð, enda eru laun á Ís- landi mun hærri en í heimalöndum þeirra og atvinnuleysi lítið til lengri tíma litið. Meðallaun á Íslandi eru t.d. fimm til sex sinnum hærri en í Póllandi og kaupmáttur þeirra rúm- lega tvöfalt meiri, þegar tekið er til- lit til verðlags.2) Innflytjendur und- anfarinna ára koma einkum frá A-Evrópu og eru Pólverjar lang- flestir. Erlendir starfsmenn senda stór- an hluta ráðstöfunartekna sinna til heimalandanna. Árið 2019 fluttu þeir um 35 milljarða króna úr landi eða sem svaraði tæplega 900 þús- und krónum á hvern starfandi er- lendan ríkisborgara. Það samsvarar 73 þúsund krónum í hverjum mán- uði. Til samanburðar sendu erlendir starfsmenn 4 milljarða króna til heimalanda sinna árið 2014, sem samsvarar 18 þúsund krónum á mánuði á hvern starfandi erlendan ríkisborgara það ár. Þessar tölur bera bæði vitni um mikla sparnað- arhneigð erlendra starfsmanna og kaupmáttaraukningu launa þeirra á tímabilinu.3) Vinnuaflsfrekur hagvöxtur Hagvöxtur undanfarins áratugar var knúinn af þjónustugreinum, einkum ferðaþjónustu, og krafðist mikillar fjölgunar starfsmanna. Í heild jókst lands- framleiðsla um 34% milli 2010 og 2019 og á sama tíma fjölgaði starfsfólki á vinnu- markaði um 24%. Ár- legur hagvöxtur á þessu tímabili var að meðaltali 3,4%, meðal- fjölgun starfsmanna 2,4% og framleiðni vinnuafls, þ.e. árlegur hagvöxtur á hvern starfsmann, jókst því að meðaltali um 0,9%. Framleiðniaukning liðins áratugar var því töluvert minni en síðustu áratugi. Á þessu ári og næstu tveimur er spáð 6% raunvexti landsframleiðslu og 5% íbúafjölgun, þannig að lands- framleiðsla á mann aukist að jafnaði um minna en 1% á ári. Það er hæg- ur vöxtur framleiðni sögulega séð í ljósi þess að hún hefur aukist um 1,5-2% að jafnaði yfir lengri tíma. Kaupmáttur launa getur til langs tíma ekki aukist umfram framleiðni- vöxt hagkerfisins og við blasir að lítið svigrúm er fyrir kjarabætur á næstu árum, þ.e. aukinn kaupmátt launa. Innfæddum fjölgar hægt en aðfluttum fjölgar Íslenskum ríkisborgurum á vinnualdri fjölgar hægt og enn hæg- ar framvegis. Árgangarnir sem koma inn á vinnumarkaðinn eru litlu stærri en þeir sem hverfa brott vegna aldurs. Hver árgangur næstu tíu ár telur að jafnaði um 5.000 manns en þeir sem falla brott vegna aldurs eru um 4.500. Að auki hefur flutningsjöfnuður íslenskra ríkis- borgara verið neikvæður undan- farna áratugi og gerir mannfjölda- spá Hagstofunnar ráð fyrir því að svo verði áfram. Íslenskum ríkis- borgurum sem starfa á Íslandi mun því ekki fjölga sem neinu nemur á næstu árum sem er ekki nýtt. Ís- lenskum ríkisborgurum á vinnualdri fjölgaði aðeins um 200 á ári að jafn- aði síðustu fimm ár og um 350 á ári síðustu tíu ár. Lágspá mannfjölda- spár Hagstofunnar, sem gerir m.a. ráð fyrir litlum hagvexti á næstu ár- um, miðar við að aðfluttir umfram brottflutta verði að jafnaði 500 ár- lega og því fjölgi erlendum rík- isborgurum áfram. Meiri atvinnuþátttaka erlendra ríkisborgara Í upphafi aldarinnar, þann 1. jan- úar 2001, bjuggu innan við 9.000 er- lendir ríkisborgarar á landinu. Það samsvaraði 3% íbúafjöldans. Þann 1. janúar 2020 má ætla að erlendir ríkisborgarar hafi verið rúmlega 49 þúsund eða 14% íbúa. Fjöldi er- lendra ríkisborgara á Íslandi hefur því næstum sexfaldast á tæpum tveimur áratugum.4) Erlendir ríkisborgarar sem flytj- ast til Íslands koma langflestir í at- vinnuleit. Undanfarin ár hafa um 90% þeirra sem til landsins koma verið á aldrinum 20-59 ára. Árið 2019 voru erlendir ríkisborgarar einn af hverjum fimm íbúum á vinnualdri en árið 2005 voru þeir einn af hverjum tuttugu. Hlutdeild erlendra ríkisborgara á þessu aldursbili hefur þannig fjórfaldast á einum og hálfum áratug. Atvinnuþátttaka erlendra ríkis- borgara á vinnumarkaði er hærri en íslenskra, eða 94% á aldursbilinu 20-59 ára, samanborið við 79% hjá íslenskum. Árið 2019 voru erlendir ríkisborgarar 23% af heildar- vinnumarkaði á aldrinum 20-59 ára, samanborið 7% árið 2005. Hraðari fjölgun erlendra ríkisborgara en í Svíþjóð Á undanförnum árum hefur Sví- þjóð tekið á móti hlutfallslega mörgum flóttamönnum, einkum í tengslum við átökin í Sýrlandi. Einnig hafa Svíar vakið athygli fyr- ir skýra stefnumörkun í innflytj- endamálum og hvernig staðið hefur verið að aðlögun nýrra íbúa að sænsku samfélagi. Hlutfall erlendra ríkisborgara af íbúafjölda í Svíþjóð hækkaði úr 9% í 11% en á Íslandi úr 7% í 14% frá 2014 til 2019. Hlutfall erlendra ríkisborgara hækkaði þannig um tvær prósentur í Svíþjóð en sjö pró- sentur á Íslandi. Þessar tölur sýna að viðfangsefni Íslands við aðlögun innflytjenda er margfalt stærra en Svíþjóðar. Munurinn er enn meira sláandi þegar fjöldi á vinnualdri er borinn saman. Erlendir ríkisborgarar í Sví- þjóð á aldrinum 20-59 ára eru 12% íbúa en 20% á Íslandi. Munurinn á atvinnuþátttöku erlendra ríkisborg- ara milli landanna er einnig mjög mikill þar sem hún er um 50% í Sví- þjóð en yfir 90% á Íslandi. Hlut- deild starfandi erlendra ríkisborg- ara á aldrinum 20-59 ára á vinnu- markaði er aðeins 8% í Svíþjóð en 23% á Íslandi. Hlutdeild erlendra ríkisborgara á vinnumarkaði er því næstum þrefalt hærri á Íslandi en í Svíþjóð. Fleiri á atvinnuleysisskrá Nú þegar harðnar á dalnum vex atvinnuleysi hraðar meðal erlendra ríkisborgara en íslenskra. Í árslok síðasta árs voru erlendir ríkisborg- arar 40% atvinnulausra en voru 20% fyrir fjórum árum.5) Hlutdeild útlendinga á atvinnuleysisskrá hef- ur vaxið jafnt og þétt samhliða fjölgun þeirra á vinnumarkaðnum. Þróunin er áhyggjuefni og kallar á viðbrögð stjórnvalda til að snúa henni við. Ef illa fer gæti stór hluti þessa hóps fallið brott af vinnu- markaði og þurft á framfærslu- aðstoð frá öðrum stuðningskerfum að halda, s.s. félagsaðstoð sveitar- félaga eða örorkulífeyri. Rétt er að taka fram að hlutfallslega færri er- lendir ríkisborgarar njóta nú slíkrar aðstoðar en íslenskir. Erlendu starfsfólki gæti fjölgað um 14-32 þúsund til ársins 2030 Hækkandi meðalaldri þjóðar- Eftir Hannes G. Sigurðsson » Breytingin á íbúa- samsetningu lands- ins síðustu ár á sér ekki hliðstæðu í sögunni. Er- lendir ríkisborgarar eru 14% íbúa á Íslandi og þeim mun enn fjölga á næstu árum. Rík þörf hefur verið fyrir erlenda starfsmenn á íslenskum vinnumarkaði á síðustu árum og ekkert bendir til annars en að svo verði áfram. Hannes G. Sigurðsson Hagvöxtur, fjölgun starfa og framleiðni Heimild: Hagstofa Íslands, áætlun SA um starfandi á 4. ársfj. 2019 1% 2% 3% 4% 5% 6% 7% 0% -1% 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2011-2019 0,9% 3,4% 2,5% VLF Starfandi VLF/starfandi 1,2% -0,6% 0,7% 1,8% 3,0% 4,8% 4,6% 4,4% 1,8% 4,7% 6,6% 4,7% 3,0% 2,3% 2,1% 1,7%1,8% 1,3%1,1% 0,8% 1,9% -0,5% 2,4% 4,1% -0,3% 1,7% -0,2% Mynd 2 Erlendir ríkisborgarar í hlutfalli við íbúafjölda á Íslandi 15% 20% 10% 5% 0% 2000 2010 2019 Mynd 1 Heimild: Hagstofa Íslands, áætlun fyrir 2019 Aðrir erlendir ríkisborgarar Aðrir A-evrópskir ríkisborgarar Pólskir ríkisborgarar 38 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2020 1. bolla 2.690,- | 3. bolla 3.190,- | 6 bolla 4.990,- Rainbow MOKKAKÖNNUR SMÁRALIND – KRINGLAN – DÚKA.IS Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Viðskipti

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.