Morgunblaðið - 13.02.2020, Blaðsíða 47
SKRIFSTOFUSTJÓRAR
á skrifstofu skóla-, íþrótta- og æskulýðsmála
á skrifstofu framhaldsskóla og -fræðslu
Skrifstofustjórar stýra starfsemi sinnar skrifstofu og annast
almennan rekstur. Þeir bera ábyrgð á því að skrifstofan sinni
stjórnsýslulegum skyldum sínum og að stefnumarkandi
ákvörðunum ráðherra sé hrint í framkvæmd.
Skrifstofustjórar eiga að draga fram það besta í starfsfólki
sinnar skrifstofu, setja því markmið og mæla árangur.
Skrifstofustjórar bera ábyrgð á því að rekstraráætlanir stofnana
ráðuneytisins séu gerðar og þeim sé fylgt í samræmi við fjárlög.
Skrifstofustjórar leiða samstarf við aðrar skrifstofur, önnur
ráðuneyti, hagaðila og aðra innlenda og erlenda aðila sem
koma að málefnum viðkomandi skrifstofu.
Við leitum að einstaklingum sem búa yfir:
• Stjórnunarreynslu og færni í því að skapa liðsheild á vinnustað.
• Þekkingu á sviði rekstrar og starfsmannastjórnunar.
• Reynslu af verkefnastjórnun og áætlanagerð.
• Þekkingu og reynslu á sviði opinberrar stjórnsýslu.
• Meistaragráðu á háskólastigi sem nýtist í starfi.
• Jákvæðu og lausnamiðuðu viðhorfi, þjónustulund og metnaði.
MANNAUÐSSTJÓRI
Starf mannauðsstjóra er nýtt í ráðuneytinu og því viljum við ráða
drífandi einstakling með skýra sýn, faglega þekkingu og reynslu.
Við gerum kröfu um:
• Getu, vilja og þor til ákvarðanatöku, frumkvæði og kraft til að
hrinda hugmyndum í framkvæmd.
• Reynslu af breytingastjórnun, mótun liðsheildar og góðrar
vinnustaðamenningar.
• Skapandi hugsun, greiningarfærni og yfirvegun.
• Leiðtogahæfileika og getu til að hvetja aðra til árangurs.
• Þjónustulund og framúrskarandi hæfni í samskiptum.
• Háskólapróf sem nýtist í starfi.
GÆÐASTJÓRI
Við leitum að jákvæðum einstaklingi sem vill gegna lykilhlutverki
í endurskoðun vinnulags, verkferla og gæðamála í ráðuneytinu.
Viðkomandi mun stýra þróun og viðhaldi á gæðakerfi ráðuneytisins.
Við leitum að fagmanni með:
• Reynslu af rekstri gæðastjórnunarkerfa, mótun verkferla
og innleiðingu.
• Sannfæringarkraft, áræðni og getu til að hrinda
hugmyndum í framkvæmd.
• Færni í samskiptum og uppbyggilegt viðmót.
• Hæfileika til að miðla þekkingu.
• Sjálfstæði í vinnubrögðum.
• Háskólapróf sem nýtist í starfi.
Sjá nánar á starfatorg.is.
Umsóknarfrestur er til 2. mars 2020.
Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf.
Nánari upplýsingar veitir Anna María Urbancic, rekstrarstjóri í
mennta- og menningarmálaráðuneytinu, í síma 545 9500.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2020 47