Morgunblaðið - 13.02.2020, Síða 56

Morgunblaðið - 13.02.2020, Síða 56
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2020 Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík Portofino&CinqueTerre Fararstjórn: Guðrún Sigurðardóttir 23. - 30.maí Trítlað í Ramsau Fararstjórn: Sigrún Valbergsdóttir 30.maí - 6. júní Útivist í Toskana Fararstjórn: Kjartan Steindórsson 30.maí - 6. júní Þriggja landa útivist Fararstjórn: SteinunnH. Hannesdóttir 11. - 18. júní Vesen áGrænlandi Fararstjórn: Einar Skúlason 16. - 20. júní Gengið íPýreneafjöllunum Fararstjórn: Auður Kjartansdóttir 10. - 19. september Sp ör eh f. Fjölbreyttar útivistarferðir við allra hæfi! Þaðer ógleymanleg upplifun að næra líkamaog sálá erlendri grundu í spennandi umhverfi Siggi Gunnars og Logi Bergmann hittu Rún og Trausta í beinni af hótelinu Castle Harbour á Tenerife í Síðdegis- þættinum í gær og ræddu við þau um lífið og tilveruna á Tenerife. „Þetta átti upphaflega bara að vera eitt ár sem við ætl- uðum að búa hérna en þetta vatt upp á sig,“ sagði Rún í samtali við Síðdegisþáttinn. „Við komumst að því að þetta er yndislegur staður að vera á.“ Hjónin hafa ferðast mikið og starfað víða á Kanarí- eyjunum en eru bæði þeirrar skoðunar að Tenerife sé þeirra uppáhaldseyja í eyjaklasanum. Sögðu þau eyjuna vera afar fjölbreytta, hún hefði upp á að bjóða frábært veður, góða hreyfingu, góðan mat, yndislega menningu og hlýtt og gestrisið fólk. Rut sagðist þó alltaf líta á sig sem Íslending þrátt fyrir að hafa búið lengi erlendis og viðurkenndi að hún sakn- aði heimahaganna reglulega. Sögðu Rut og Trausti að einstaklega gott væri að ala upp börn á Tenerife, en hjónin búa með tveimur dætrum sínum úti. Sögðu þau mikið framboð vera á tómstundum á eyjunni og að skólakerfið væri gott þó að það væri nokkuð strangara en kerfið heima. Aðspurð sögðust þau stundum finna fyrir öfund Ís- lendinga sem þyrftu að búa við veðráttuna á klakanum. Sumir veltu því þó fyrir sér hvort þau söknuðu ekki kuldans. „Það kemur oft upp spurningin: Færðu aldrei nóg af þessu? En raunverulega veit ég ekki hvernig ég get fengið leið á góðu veðri,“ sagði Trausti. „Það erfiðasta er að sakna fólksins og fjölskyldunnar. Sem betur fer eru vinir og vandamenn duglegir að koma. Það eru gæðastundirnar,“ sagði hann. Rut segir að eitt það besta við að búa á Tenerife sé skortur á skordýrum. Það eru svo fáar pöddur. Allavega ekki pöddur sem þarf að óttast,“ sagði Rut og bætti við hversu þakklát hún væri yfir því hversu fáar moskító- flugur væru á eyjunni. „Ef þetta væri eins og víða í Evr- ópu gæti ég ekki búið hér,“ sagði hún. Fá aldrei leið á góða veðrinu Hjónin Rún Kormáksdóttir og Trausti Hafsteinsson hafa búið og starfað á Tenerife sl. 12 ár. Hjónin starfa nú sem fararstjórar fyrir Heimsferðir á eyjunni en þau tóku vel á móti Loga Bergmanni og Sigga Gunnars í sólinni í gær. Hjón Rut og Trausti ætluðu bara að búa í eitt ár á Tene- rife en lengdu dvölina eftir að hafa heillast af eyjunni. Morgunblaðið/K100 Sólríkt Fallegt útsýni var af svölunum á hótelinu Castle Harbour þar sem Logi og Siggi gista næstu daga. Íva hefur verið blind frá fæðingu en hefur aldrei látið það stoppa sig í tónlistarástríðunni. Henni hefur verið spáð afar góðu gengi í Söngva- keppninni og hefur fengið góðar við- tökur á tónlistarveitum. Íva hefur verið mikill tónlistarunnandi alla sína ævi og æfir nú klassískan söng í Rotterdam, einmitt þar sem Euro- vision-söngvakeppnin verður haldin í maí næstkomandi. Í samtali við Síðdegisþáttinn í gær sagði Íva lag hennar sem hún samdi ásamt vini sínum Richard Cameron sagt út frá sjónarhorni sjáanda sem væri að tjá hlustendum að framtíðin væri ekki björt fyrr en kærleikurinn og ástin réðu ferðinni. Hún sagðist ekki hafa verið að hugsa um Eurovision þegar hún samdi lagið en að hana hefði þó allt- af langað að taka þátt í Söngva- keppninni og því hefði verið tilvalið að senda lagið í keppnina. „Ég hef verið að fylgjast með þessari keppni næstum þráhyggju- kennt frá því ég var lítið barn,“ sagði Íva, sem segist alltaf hafa velt því fyrir sér hvernig væri að standa á stóra sviðinu í Eurovision. „Þannig að þetta hefur alltaf verið draumur.“ Eurovision alltaf draumurinn Íva Marín Adrichem flytur lagið Oculis Videre í Söngva- keppninni í ár en hún mun stíga á svið í undanúrslitum keppninnar laugardaginn 15. febrúar. Söngkona Íva mun flytja lagið Oculis Videre í Söngvakeppninni á laugardaginn kemur og freista þess að komast áfram í lokakeppnina.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.