Morgunblaðið - 13.02.2020, Page 58

Morgunblaðið - 13.02.2020, Page 58
58 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2020 40 ára Ína er Siglfirð- ingur en býr á Akra- nesi. Hún er menntað- ur grunnskólakennari frá Háskóla Íslands en vinnur sem bókari hjá Raftíðni. Maki: Guðjón Marinó Ólafsson, f. 1981, vinnur hjá Skaginn 3X. Börn: Sveinn Ingi, f. 2007, Katrín Hug- ljúf, f. 2008, Kristín Ósk, f. 2011, Ragn- hildur Lóa, f. 2013, og Pálína Margrét, f. 2013. Foreldrar: Stefán Guðni Aðalsteinsson, f. 1953, smiður og búfræðingur, vann síðast hjá Fossberg, og Aðalbjörg Sig- tryggsdóttir, f. 1959, klíníkdama á tann- læknastofu. Þau eru búsett á Siglufirði. Ína Sif Stefánsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Metnaður þinn er gríðarlegur. Þú ættir að einbeita þér að því að mennta þig næstu árin. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú átt að skoða allar hliðar mála vandlega áður en þú stekkur á réttu lausnina. Kannski þarftu að skipta um umhverfi til þess að fá betri yfirsýn yfir líf þitt. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Ef þú þarft að ganga frá trygg- ingamálum er þetta besti tíminn til þess. Þér finnst erfitt að halda uppi aga heima en ekki gefast upp. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þetta er fullkominn tími til að henda öllum leiðbeiningum og sjá hvað gerist þegar leikið er af fingrum fram. Mundu að sjaldan veldur einn þá tveir deila. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Gamall vinur birtist óvænt. Ef þér tekst að komast í gegnum daginn án þess að efast um þig ertu á beinu brautinni. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Viðhorfið sem þú temur sér ræður úrslitum um það, hvort dagurinn verður eftirminnilegur eða ekki. Gefðu gaum að heilsu þinni. 23. sept. - 22. okt.  Vog Rómantíkin liggur í loftinu og þú ert tilbúin/n í slaginn. Góður vinur þarf á öxl að halda. Farðu varlega í því að knýja fram breytingar í vinnunni. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það sem þú gerir í vinnunni í dag getur aukið tekjur þínar og bætt framtíð þína. Sinntu verkefnum sem krefj- ast einbeitingar og nákvæmni. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Kynntu þér mál áður en þú opnar munninn um menn og málefni, ef þú vilt að einhver taki mark á þér. Þú ættir að skella þér í nám. 22. des. - 19. janúar Steingeit Notaðu leiki til þess að rífa nið- ur veggi milli fólks. Farðu þér samt hægt. Ástamálin blómstra. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú hefur þörf fyrir að stjórna öðrum og ert góður leiðtogi frá náttúr- unnar hendi. Leggðu þig alla/n fram í því að verða góð/ur í áhugamáli þínu. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þótt einhver hrósi þér er ekki þar með sagt að viðkomandi kunni að meta allt sem þú gerir. Gamall draumur rætist. aratitil í grindahlaupi frá því að ég var unglingur en á framhaldsskóla- árunum tók karfan við. Ég lék í úr- valsdeild með Grindavík og var í ung- lingalandsliðinu. Þá lék ég einn stjörnuleik og fékk að æfa með karla- landsliðinu um tíma. Um tvítugt tók landshornaflakkið við og slæmt oln- bogabrot þýddi að allir draumar um körfubolta og kringlukast voru end- anlega lagðir til hliðar. En þarna var útivistin hvort sem er að verða mitt helsta áhugamál og hefur verið síðan. Ferðalög og fjallgöngur eru í miklu uppáhaldi. Sem barn ferðaðist ég mik- ið með foreldrum mínum og lærði af þeim um land og þjóð. Stundum með Álfheiði ömmu minni sem er mér enn mikil fyrirmynd og vinur, 99 ára, en hún er ein mesta fjallageit fyrri tíma.“ hvatti hún Jónas manninn sinn til að ráða mig sem leiðsögumann í sigl- ingum um Ísafjarðardjúp og inn í Vig- ur. Leiðsögnin varð sumarstarf hjá mér næsta áratuginn. Þetta voru fyrstu fullorðinshlutverkin sem ég tókst á við og þau veittu mér góða hvatningu fyrir framhaldið. Þakklát- astur er ég þó fyrir að eiga frábært samstarfsfólk í gegnum tíðina. Íþróttir og útivist Jón Páll fékk snemma dellu fyrir nær öllum íþróttum sem hann komst í tæri við. „Leiknir móðurbróðir minn var mér mikil fyrirmynd enda ólymp- íufari og Íslandsmeistari í sundi. Körfuboltinn og frjálsíþróttirnar urðu mest áberandi hjá mér og mér gekk býsna vel. Ég á t.d. einn Íslandsmeist- J ón Páll Haraldsson er fædd- ur 13. febrúar 1970 á Pat- reksfirði og ólst þar upp hjá foreldrum sínum. „Ég var líka mikið hjá Nonna afa og Pöllu ömmu sem bjuggu í næstu götu. Eftir fermingu langaði mig að prófa heimavist og var einn vetur í Héraðs- skólanum á Laugarvatni, sællar minn- ingar. Á meðan bjuggu foreldrar mín- ir í Grindavík.“ Þar lauk Jón Páll grunnskóla og lauk síðan stúdents- prófi frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja í Keflavík. „Við lok stúdentsprófs fékk ég þá hugdettu að flytja aftur vestur á firði og vera í eitt ár og réð mig sem leið- beinanda við Grunnskólann á Ísafirði. Ég hafði aldrei ætlað mér að verða kennari en þessi ákvörðun átti eftir að verða örlagarík. Fyrir vestan var ég tvo vetur við kennslu og þar kolféll ég fyrir kennarastarfinu og samveru með unglingum.“ Eftir það tóku við þrjú námsár við Kennaraháskólann en síðan hélt Jón Páll aftur út á land, kenndi eitt ár á Eskifirði og svo tvö til viðbótar í Borg- arnesi. „Þá var mikil uppsveifla í tölvubransanum og ég sneri mér al- farið að tölvukennslu, bæði á símennt- unarnámskeiðum og í frum- greinadeildinni á Bifröst. Það var mjög áhugavert að kenna öðrum ald- urshópum en smátt og smátt fann ég að grunnskólinn og unglingar toguðu í mig – líklega fannst mér það að mennta unglinga vera mikilvægasta starfið sem ég gæti unnið. Um alda- mótin lá því leiðin í aftur í grunnskól- ann, nú í stjórnunarhlutverk. Á þess- um tíma kynntist ég Sif og flutti inn til hennar, Darra og Önnu Beth í Reykjavík.“ Jón Páll vann 3 ár í Borgaskóla en hefur nú unnið 15 ár í Laugalækj- arskóla, fyrst sem aðstoðarskólastjóri en síðustu ár sem skólastjóri. Sam- hliða hefur Jón Páll lokið meist- aranámi í stjórnun menntastofnana og verið virkur í félagsmálum skóla- stjórnenda. „Mig langar sérstaklega að þakka Björgu Baldursdóttur, skólastjóra við Grunnskólann á Ísa- firði, fyrir að vera örlagavaldur í mínu lífi. Hún hafði trú á mér til kennslu þegar ég var tvítugur og í framhaldinu Um tíma hljóp Jón Páll langhlaup og var einn þeirra sem stofnuðu til Vesturgötuhlaupsins sem er enn hlaupið árlega. Æskan og uppeldið „Ég hef oft velt því fyrir mér hvers vegna kennarastarfið höfðaði svona mikið til mín strax í upphafi. Ég held að þar hafi mikla þýðingu hve margir fullorðnir veittu mér jákvæða athygli sem barni og ungum manni, gæðafólk sem vildi mér vel og gerði sitt allra besta til að veita mér leiðsögn – líka þegar ég fór offari með einhverjum hætti. Þannig átti ég dásamlega æsku á heildina litið, trygga vini og mér gekk vel í námi og leik. Í skólastarfinu vonast ég til að hafa jákvæð áhrif á unglingana sem ég kynnist. Svo vill maður vera gott foreldri en það geng- ur upp og ofan,“ segir Jón Páll að lok- um og kímir. Fjölskylda Eiginkona Jóns Páls er Sif Ein- arsdóttir, f. 12.2. 1966, prófessor við HÍ. Þau eru búsett í Vesturbænum í Reykjavík. Foreldrar Sifjar eru Hjón- in Aðalheiður Guðmundsdóttir, f. 23.6. 1936 fv. forstöðukona, og Einar Flekkdal Frímannsson, f. 10.11. 1932, fv. tryggingafulltrúi. Þau eru búsett í Kópavogi. Börn Jóns Páls og Sifjar eru Darri Skúlason, f. 24.11. 1988, kvikmynda- fræðingur; Arna Beth Saulsdóttir, f. 25.3. 1997, myndlistarmaður, og Aldís Jónsdóttir, f. 28.7. 2005, öll búsett í Reykjavík. Systir Jóns Páls er Álfheiður Har- aldsdóttir, f. 25.4. 1976, hjúkr- unarfræðingur, ver doktorsritgerð sína í lýðheilsuvísindum við HÍ á næstu dögum. Búsett í Portland, Maine í BNA. Gift Jóhanni Páli Ingi- marssyni skurðlækni, dætur þeirra eru Freyja Bjarnveig, f. 14.5. 2008 og Bríet Björk, f. 22.3. 2013. Foreldrar Jóns Páls: Hjónin Aldís Jónsdóttir, f. 31.10. 1946, fv. tal- símavörður hjá Pósti og síma á Pat- reksfirði og síðar póstfulltrúi í Grinda- vík, búsett í Reykjavík, og Haraldur Karlsson, f. 22.12. 1945, d. 29.1. 2016, símvirki hjá Pósti og síma á Patreks- firði og síðar stöðvarstjóri í Grindavík. Jón Páll Haraldsson, skólastjóri Laugalækjarskóla – 50 ára Brúðkaup Fjölskyldan fjölbreytta formlega skjalfest árið 2012. Kolféll fyrir kennarastarfinu Ættarmót Systkinin, börnin og móðir Jóns Páls hjá Álfheiði ömmu í fyrra. 30 ára Jenný Ósk ólst upp í Þorlákshöfn og býr í Árbænum. Hún er með M.ed-gráðu í íþrótta- og heilsufræði frá Háskóla Íslands. Jenný er íþrótta- og sundkennari í Háa- leitisskóla. Einnig vinnur hún sem þjálfari hjá Reebok Fitness. Systkini: Sigrún Herdís Þórðardóttir, f. 1974, Sigurbjörn Ingvi Þórðarson, f. 1976, Anna Soffía Þórðardóttir, f. 1979, Guðni Þór Þórðarson, f. 1983, og Sæ- mundur Þór Þórðarson, f. 1997. Foreldrar: Þórður G. Sigurvinsson, f. 1953, vélfræðingur, og Hildur Þ. Sæ- mundsdóttir, f. 1958, skólaliði í Norð- lingaskóla. Þau eru búsett í Árbæ. Jenný Ósk Þórðardóttir Til hamingju með daginn Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is ALVÖRU VERKFÆRI 145 EITTRAFHLÖÐUKERFI YFIR VERKFÆRI VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • DALSBRAUT 1, AKUREYRI • S: 560 8888 • vfs.is vfs.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.