Morgunblaðið - 13.02.2020, Page 59
DÆGRADVÖL 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2020
icewear.is
frí heimsending
ÚTIVIST
FYRIR ALLA
„JÆJA, KANNSKI VARSTU ÞAÐ EKKI Í
FYRSTU – EN ÉG ÞORI AÐ VEÐJA AÐ
NÚNA ERTU FEGINN AÐ ÉG NÁÐI Í ÞIG.”
„HVERS VEGNA ERTU KALLAÐUR
FÍLAMAÐURINN? MÉR VIRÐIST ÞÚ VERA
FULLKOMLEGA EÐLILEGUR.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að leita svara.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
AH, LÚR …
EÐA EINS OG
ÉG KALLA ÞAÐ …
AÐ SETJA
LÍFIÐ Á PÁSU
HVERS VEGNA SYNGUR ÞÚ VÖGGUVÍSU? ÉG ER AÐ TRYGGJA ÞAÐ AÐ VIÐ EIGUM STUND
SAMAN Í EINRÚMI!
BÍ, BÍ OG BLAKA,
ÁLFTIRNAR KVAKA,
ÉG LÆT SEM ÉG SOFI …
HANN ELSKAR MIG …
HANN ELSKAR MIG EKKI
… HANN ELSKAR MIG
Jón Páll
Haraldsson
Hjalti Sigurðsson
húsgagnasmiður áAkureyri,
f. á Merkigili í Eyjafirði
Anna Jónatansdóttir
húsfreyja áAkureyri, f. á
Uppsölum í Eyjafirði
Karl Hjaltason
húsgagnasmiður og
smíðakennari við
BarnaskólaAkureyrar
Haraldur Karlsson
símvirki á Patreksfirði og
stöðvarstjóri í Grindavík
Álfheiður Jónsdóttir
verslunarstj. í skóversluninni
Lyngdal og verkakona,
Íslandsmeistari í bruni 1946
Jón Samsonarson
bóndi á Rútsstöðum og
trésmiður áAkureyri, f. á
Hvanneyri við Siglufjörð
Valgerður Sigurðardóttir
húsfr. á Rútsstöðum í Eyjafirði og
klæðskeri áAkureyri, f. á Rútsstöðum
BogiAuðarson
eigandi Efnisveitunnar
Hugi Hreiðarsson
eigandi Efnisveitunnar
Auður Magndís
Auðardóttir
kennari við HÍ og
jafnréttisfrömuður
Sævar Jónsson
skipstjóri
Leiknir Jónsson
málari og
sundkappi
Rebekka Jónsdóttir
húsfreyja áAkureyri
Valgerður
Benediktsdóttir
fv. bankamaður á
Akureyri og í Rvík
Arnar Þorsteinsson
náms- og starfsráðgjafi
og skákmeistari
Guðrún Björk
Þorsteinsdóttir
hjúkrunarfræðingur
Harpa Sævarsdóttir
verslunarmaður og
varaformaður VR
Fylkir Sævarsson
rafvirki, sjósundkappi
og kajakmeistari í
Danmörku
Þórður Jónasson
skósmiður á Patreksfirði, f. á
Arnórsstöðum á Barðaströnd
Guðlaug Jónsdóttir
húsfreyja á
Patreksfirði, f. á Skarði
utan Ennis, Snæf.
Jón Þórðarson
skipstjóri og fiskmatsmaður
á Patreksfirði
Pálína Guðmundsdóttir
húsfreyja á Patreksfirði
Guðmundur Sumarliði
Guðmundsson
sjómaður og verkamaður
á Patreksfirði,
f. í Tungu í Tálknafirði
Ingibjörg G. Magnúsdóttir
húsfreyja á Patreksfirði,
f. á Hnjóti í Örlygshöfn
Úr frændgarði Jóns Páls Haraldssonar
Aldís Jónsdóttir
talsímavörður á
Patreksfirði og póstfulltrúi
Fram kom í spjalli á fésbók-arþræði um algjörlega óá-
hugaverðar fótboltaupplýsingar að
Graham nokkur Roberts hefði verið
rekinn sem landsliðsþjálfari Nepals
eftir 3-0 tapleik gegn Túrkmen-
istan. Bjarni Stefán Konráðsson
hlóð í vísu:
Vanti eitt á afrekslistann
er í boði fátt,
en tapa fyrir Túrkmenistan
telur frekar hátt
Sigmundur Benediktsson segir á
Leir á mánudag að stundum sé feg-
urðin mest þar sem við sjáum hana
ekki:
Frostið hart við foldu snart,
færði bjartar myndir.
Sólar artin saumar skart
sitt á hjartans lindir.
Og daginn áður hafði hann orð á
því að það væri „góður Leirdagur“:
Leirnum opnast ljórar,
léttir gefast sprettir.
Augnakonfekts agnir
ylja frjóum vilja.
Skopið létta skapar
skraut hjá bögunautum.
Glæðist bragsins gleði,
gaman höfum saman.
Á Boðnarmiði yrkir Pétur Stef-
ánsson:
Það að setja þjóð í hlekki
það ég aldrei styð.
Sumir vilja, aðrir ekki
í Evrópusambandið.
Hallmundur Guðmundsson yrkir
„Ekkivorljóð“:
Bág nú hef ég bak og þjó
og bölva tilverunni.
Ennþá má ég moka snjó
meður handskóflunni.
Jón S. Bergmann yrkir og kallar
Dagleið:
Dagur háum fjöllum frá
fegurð stráir heiminn
fagurgljáum flíkum á
fer um bláan geiminn.
Svífur gestur suðurátt
sólblik festir heiðum,
skartar best við himin hátt
hann á vesturleiðum.
Blítt af ysta bjargatind
blærinn kyssti daginn,
sem við nyrstu sjónarmynd
seig – og kyssti æginn.
Jón á Bægisá orti eftir barneign:
Lukkutjón þá að fer ört
ekki er hægt að flýja:
betur hefði Guð minn gjört
að gelda mig en vígja.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af fótbolta og
góðum Leirdegi