Morgunblaðið - 13.02.2020, Page 64

Morgunblaðið - 13.02.2020, Page 64
64 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2020 Jóhanna og tekur fram að það hafi líka verið lærdómsríkt að þróa nýtt leikhúsform sem veitir áhorfendum tækifæri til að hafa áhrif á fram- vindu verksins. „Vegna þess hversu möguleik- arnir í verkinu eru margir þá er ég enn að ruglast á æfingum,“ segir Lára Jóhanna og viðurkennir að erf- iðara sé að muna leiktextann og framvinduna þegar hún er ekki eins frá æfingu til æfingar. „Það er eins og heilinn visti hlutina ekki jafnvel þegar maður veit að viðkomandi sena verður bara leikin í 9. hvert sinn,“ segir Lára Jóhanna og játar að hún eigi sér uppáhaldsleið í gegn- um sýninguna. „Sumar leiðir eru þannig að ég hef enn ekki komist í gegnum þær án þess að springa út hlátri, sem helgast af því að mót- leikararnir mínir eru frábærlega skemmtilegir,“ segir Lára Jóhanna og vísar þar til Ebbu Katrínar Finnsdóttur, Hilmis Jenssonar, Írisar Tönju Flygenring og Snorra Engilbertssonar sem leika með henni í sýningunni. „Það getur verið mjög taugatrekkjandi að fara í rann- sóknarleiðangur á borð við þá sem farnir hafa verið í þessum tveimur sýningum og því er mikilvægt að hafa hóp sem er svolítið æðrulaus því þá gerast bara ótrúlegir hlutir. Það hefur reynst okkur vel að vera opin fyrir nýjungum og láta bara vaða í tilraunum okkar.“ Í ljósi þess að Ævar hefur sent frá sér nokkurn fjölda Þín eigin bóka liggur beint við að spyrja Láru Jóhönnu hvort hún sjái fyrir sér að Þitt eigið leikrit sýningarnar verði jafnvel enn fleiri í framtíðinni. „Já, algjörlega. Það að fá að hafa áhrif á framvindu leiksýningar með fjar- stýringunum er ótrúlega spennandi og valdeflandi fyrir áhorfendur. Mér fyndist líka synd að geta ekki nýtt áfram þessa tækni sem búið er að þróa,“ segir Lára Jóhanna og bendir á að Þitt eigið leikrit sýningarnar tvær séu jafnólíkar og Þín eigin bækurnar. „Nálgunin milli sýning- anna tveggja er mjög ólík auk þess sem þær eru fyrir ólíkan aldurhóp,“ segir Lára Jóhanna og bendir á að Þitt eigið leikrit II – Tímaferðalag sé fyrir börn níu ára og eldri, en Þitt eigið leikrit I – Goðsaga hafi verið fyrir yngri börn. Nokkurs konar frammíkall „Reyndar vona ég að Þitt eigið leikrit II verði jafnmikil fjölskyldu- sýning og Í hjarta Hróa hattar. Mér fyndist líka synd ef leikhúsið héldi ekki áfram með þetta form. Börn sem spila tölvuleiki eru orðin vön því að fá að hafa áhrif á það sem er að gerast,“ segir Lára Jóhanna og tek- ur undir að með kosningakerfi sýn- inganna sé að hluta verið að kynna áhorfendum hvernig lýðræðið virki þar sem meirihlutinn ráði framvind- unni. „Sýningarnar bjóða upp á að áhorfendur séu virkari þátttakendur sem kallast á við leikhús fyrri tíma. Með pelsunum og fínu fötunum hef- ur kannski skapast of kurteis stemn- ing í leikhúsinu. Kannski er ekkert eðlilegt fyrir hundrað manna hóp að sitja saman algjörlega hljóð og pas- síf,“ segir Lára Jóhanna og bendir á að sjá megi notkun fjarstýringanna sem nokkurs konar frammíkall. „Það er ótrúlega þakklát fyrir okkur leikarana að fá svona áþreifanleg viðbrögð, því angist leikarans snýr oft að því að vita ekkert hvað áhorf- endum finnst.“ Ábyrgð að skapa fyrir börn Þitt eigið leikrit II – Tímaferðalag er þriðja barnasýningin sem Lára Jóhanna leikur í, en hún fór með hlutverk Dórótheu í Galdrakarlinum í Oz í Borgarleikhúsinu 2011. „Mér finnst felast mikil ábyrgð í því að gera barnasýningu. Það að mæta í leikhúsið, leggja frá sér símana og gefa tvo tíma af lífi sínu til að horfa á leiksýningu verður minna og minna sjálfsagt. Ef maður býr til leiðinlega barnasýningu þá vilja krakkarnir kannski ekki fara aftur í leikhús þar sem búið er að drepa áhuga þeirra. Ekkert drepur leikhúsið jafnmikið og leiðinlegt leikhús. Ég upplifi það því sem samfélagslega skyldu að búa til góða barnasýningu, enda brenn ég fyrir að halda leikhúsinu lifandi.“ Kraumandi húmor Aðspurð segist Lára Jóhanna ekki hafa farið að lesa Þínar eigin bækur Ævars af krafti fyrr en eftir að hún fór að vinna að Þínu eigin leikriti I, enda hafi dóttir hennar verið í yngsta lagi til að njóta bókanna með henni. „Við Ævar vorum bekkjar- systkini í Leiklistarskólanum þannig að ég hef lengi fylgst með honum. Hann hefur verið að skrifa og gera geggjaða hluti,“ segir Lára Jóhanna og bætir við að hún hafi verið dugleg að gefa börnum í fjölskyldunni bæk- ur hans í jólagjöf. „Dóttir mín er núna orðin sjö ára þannig að hún er orðin nógu gömul til að njóta Þinna eigin bókanna. Ég er því að kynnast bókunum hans í gegnum hana,“ segir Lára Jóhanna og bætir við að kraumandi húmorinn í bókum Ævars og það hvernig hann tali til lesenda á jafningjagrunni eigi þátt í að gera bækurnar jafn góðar og raun ber vitni. „Ég upplifi í öllum textum hans að hann sé alltaf bros- andi út í annað,“ segir Lára Jóhanna og tekur fram að Ævar eigi mikið hrós skilið fyrir vinnu sína í að efla læsi barna og ungmenna. „Hann hef- ur talað um mikilvægi þess að börn fái að lesa það sem þau hafa áhuga á að lesa. Að lesa snýst ekki um að lesa eitthvað merkilegt, fínt og flott heldur snýst það bara um að hafa að- gang að einhverjum töfraheimi. Áhuginn þarf að stýra, sem er í takt við notkunina á fjarstýringum til að stýra framvindunni.“ Vitum aldrei hvaða ferðalag bíður okkar Innt eftir því hvort einver leið hafi aldrei verið leikin í fyrra svarar Lára Jóhanna því játandi „Við fött- uðum það á miðju sýningartímabili að sumt var aldrei valið. Ef valið stendur á milli þess að vera áfram á sama stað eða fara þá völdu áhorf- endur alltaf að fara, enda erum við í eðli okkar forvitin og langar að sjá eitthvað nýtt. Svo lentum við líka í því að eitthvað var valið sem hafði ekki verið valið mjög lengi og þá vor- um við frekar ryðguð og þurftum að redda okkur,“ segir Lára Jóhanna og tekur undir það að góð hlustun og spuni hjálpi mikið í sýningunni. „Reynslan í fyrra hjálpar okkur núna, ekki síst þegar kemur að því að vera sífellt á tánum og viðhalda leikgleðinni. Ég held að það komi að hluta til líka vegna þess að við vitum ekki hvað er að fara að gerast. Við vitum aldrei hvaða ferðalag bíður okkar í hverri sýningu,“ segir Lára Jóhanna og bætir við. „Það er mjög gaman að mæta í vinnuna og vita ekki hvaða sýningu maður er að fara að leika. Það skapar ákveðið raf- magn og töfra og samhliða ákveðið kæruleysi því það er ekki hægt að undirbúa sig í þaula. Þess vegna þarf maður bara að vera opinn og taka því sem kemur og vera í samtalinu með áhorfendum og mótleikurum.“ Margir leikarar lesa handritið yfir fyrir sýningu til að undirbúa sig og rifja upp textann. Spurð hvort hún geri það fyrir Þitt eigið leikrit svarar Lára Jóhanna því neitandi. „Ég þurfti einmitt að finna mér rútínu í fyrra til að undirbúa mig fyrir sýn- ingar og komst að þeirri niðurstöðu að ákveðið kæruleysi sé best. Auð- vitað kann ég allt sem skiptir máli, enda erum við búin að æfa vel. Ég get ekki lesið mig í gegnum alla val- möguleikana sem í boði eru,“ segir Lára Jóhanna og tekur fram að hún lesi ekki alltaf handrit fyrir sýn- ingar. „Ef það er langt á milli sýn- inga þá fer ég alltaf yfir leikritið í heild sinni í huganum. Ef sýningar eru nægilega þéttar finnst mér það frekar skapa óöryggi að lesa textann alltaf yfir fyrir hverja sýningu. Mér finnst betra bara að treysta.“ Ljósmynd/Ásta Jónína Arnardóttir Ferðalag Lára Jóhanna Jónsdóttir, sem leikur Önnu, og Ebba Katrín Finnsdóttir ræða málin í sýningunni. „Mér finnst betra bara að treysta“  Lára Jóhanna Jónsdóttir segir gaman að mæta í vinnuna og vita ekki hvaða sýningu á að fara að leika  Hún leikur í Þínu eigin leikriti II – Tímaferðalagi sem frumsýnt er í Kúlunni á morgun VIÐTAL Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Verkið fjallar um Önnu sem ferðast um í tíma og rúmi til að reyna að bjarga mömmu sinni sem liggur veik á spítala. Hún vill ferðast aftur í tím- ann til að reyna að vara mömmu sína við og fram í tímann til að reyna að finna lækningu,“ segir Lára Jóhanna Jónsdóttir sem leikur Önnu í Þínu eigin leikriti II – Tímaferða- lagi eftir Ævar Þór Benediktsson sem Þjóðleikhúsið frumsýnir í Kúl- unni á morgun í leikstjórn Stefáns Halls Stefánssonar. Verkið er í anda Þinna eigin bóka Ævars og því geta áhorfendur reglulega kosið um framvindu verksins með sérhönn- uðum fjarstýringum sem tengdar eru við hvert einasta sæti í salnum og þannig haft bein áhrif á örlög per- sóna verksins. „Áhorfendur fá tæki- færi til að kjósa mun oftar en í fyrra,“ segir Lára Jóhanna sem lék einnig í Þínu eigin leikrit I – Goð- sögu eftir Ævar sem Þjóðleikhúsið sýndi í fyrra við góðar viðtökur. Listrænir stjórnendur eru í mörg- um tilvikum þeir sömu og í fyrra. Högni Sigurþórsson hannar leik- myndina, Ásdís Guðný Guðmunds- dóttir búninga, Magnús Arnar Sig- urðarson lýsinguna, Kristinn Gauti Einarsson hljóðmyndina, Anna Hall- dórsdóttir semur tónlistina, Her- mann Karl sér um kosningakerfið og sértækar tæknilausnir, Valdís Kar- en Smáradóttir útbýr leikgervin og Ásta Jónína Arnardóttir annast myndbandshönnun. Áhrifarík sjónræn umgjörð „Þó hin sjónræna umgjörð sé líkt og í fyrra býsna áhrifarík, þá er samt minni áhersla á flóknar tækni- legar lausnir og meiri fókus settur á leikhúslausnir í nýju sýningunni með tilheyrandi leikgleði. Galdrarn- ir felast meira í orku og samspili en í fyrra og svo eru reyndar alveg geggjaðar tæknilausnir sem gera sýninguna ennþá betri,“ segir Lára Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is Tímapantanir í síma 533 1320 Við tökumvel ámóti ykkur í Vegmúla2 Kíktu á hudfegrun.is fyrir nánari upplýsingar. Meðferðirnar hjá okkur eru framkvæmdar af sérþjálfuðumhjúkrunarfræðingum. Dermapen Microneedling Byltingarkenndmeðferð sem gerir ysta lag húðar fallegra. Vinnur á húðsliti og örum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.