Morgunblaðið - 13.02.2020, Blaðsíða 66
66 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2020
VIÐTAL
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Ég sakna Íslands mikið og yndis-
legu, hressu Nasa-stemningarinnar
sem myndaðist á síðustu tónleikum
okkar í Reykjavík,“ segir tónlistar-
konan Heiða Björg Jóhannsdóttir
Balu sem, ásamt hljómsveit sinni,
Heiða Björg & the Kaos frá Frakk-
landi heldur tónleika í Gamla bíói
annað kvöld kl. 20, sem er Valent-
ínusardagurinn 14. febrúar, undir
yfirskriftinni Sound of Sharing.
Heiða stofnaði undir því heiti við-
burð í Marokkó fyrir nokkrum ár-
um en þar í landi bjó hún á árunum
2015 til 19.
„Hugmyndin er einfaldlega sú að
sameina falleg hjörtu sem þrá að
kynnast einhverju nýju, opna sig og
gefa af sér á einhvern hátt. Á tón-
leikum okkar blöndum við saman
ólíkum tónlistarstílum með það að
markmiði að skapa yndislega fal-
lega og hressa stemningu sem býð-
ur áhorfendum í tónlistarferðalag
um heiminn,“ segir Heiða, sem
hlakkar mikið til að spila og syngja
aftur fyrir Íslendinga.
Heiða hóf tónlistarnám þegar
hún var sex ára, en frá 14 ára aldri
var aðalkennari hennar Sigurður
Ingvi Snorrason. „Bakgrunnur
minn er í klassískri tónlist, þó mér
hafi alltaf fundist mjög gaman að
spila eftir eyranu,“ segir Heiða og
rifjar upp að Guðni Franzson klar-
ínettuleikari og hljómsveit hans
Rússíbanar hafi veitt sér mikinn
innblástur þegar hún var yngri. Á
menntaskólaárunum spilaði Heiða
með Gretu Salóme í sveitinni
Sababa, en að stúdentsprófi loknu
lá leið hennar til Parísar í nám.
„Upphaflega ætlaði ég að læra arki-
tektúr, en fann fljótt að ég yrði að
hlýða kallinu og fara í tónlistina,“
segir Heiða. Hún lagði stund á
framhaldsnám í klarínettuleik við
Conservatoire Régional d’Aubervil-
liers-La Courneuve undir leiðsögn
Valérie Guéroult, músíkþerapista-
nám í CIM Centre International de
Musicotherapie, klezmertónlist hjá
klezmermeistaranum David Krak-
auer, söng- og klarínettuleik í djass-
skólanum Arpej og nam kvik-
myndatónsmíðar við Conservatoire
de Levallois.
Árið 2007 stofnaði Heiða hljóm-
sveitina Klezmer Kaos í París en
breytti nafninu í Heiða Björg & the
Kaos árið 2014 þar sem „sköpunar-
gleði kallaði á að ég tjáði mig með
fleiri stílum en einvörðungu klez-
mertónlistinni“ eins og Heiða orðar
það og rifjar upp að smám saman
hafi röddin bæst við sem hljóðfæri
hennar samhliða klarínettinu auk
þess sem hún hafi í auknum mæli
farið að semja eigin tónlist.
Íslendingar svo opnir
„Þetta er í sjöunda sinn sem ég
kem til Íslands með hljómsveitina
mína. Á árunum 2008 til 2010 héld-
um við þrenna tónleika á Nasa fyrir
fullu húsi og fengum góðar við-
tökur. „Það var gaman að upplifa
hversu opnir og áhugasamir Íslend-
ingar eru fyrir nýrri og fjörugri
tónlist sem er auðvitað mjög hvetj-
andi,“ segir Heiða og tekur fram að
hún hafi síðustu ár hins vegar ekki
treyst sér til að fjármagna tónleika-
ferð hljómsveitarinnar til Íslands
þar sem flugmiðar séu þrefalt dýr-
ari en síðast.
Að sögn Heiðu hefur hljómsveitin
reglulega spilað víðs vegar um
Evrópu síðustu 12 árin. „Við kom-
um meðal annars fram á alþjóðlegri
þjóðlagakeppni í Amsterdam árið
2008 þar sem við komumst í fimm
hljómsveita úrslit af 25 hljóm-
sveitum. Við settum upp sýningu
sem nefnist Eyjafjallajökuls-
goskarlinn mikli í Theâtre de Rute-
beuf í Frakklandi árið 2012. Við
vorum valin sem aðalhljómsveitin
fyrir tónlistarhátíðina Babel Sound
í Ungverjalandi 2018 og spiluðum á
Babel Night í Barselóna 2019.“
Slys sem vatt upp á sig
Spurð hvernig hún fjármagni
ferðina núna segir hún sögu að
segja frá því. „Til að gera tónleika-
ferðina núna að veruleika nýti ég
launin sem ég fékk fyrir vinnu mína
að kvikmyndinni Woman eftir
franska kvikmyndagerðarmanninn
Yann Arthus-Bertrand sem fjallar
um líf og stöðu kvenna alls staðar
að úr heiminum, en myndin verður
frumsýnd í Frakklandi næsta mán-
uði,“ segir Heiða og bendir á að
Bertrand hafi einnig gert heim-
ildarmyndirnar Home og Human.
„Þessi vinna er ein sú magnað-
asta sem ég hef nokkurn tímann
upplifað,“ segir Heiða og rifjar upp
að ástæðu þess að hún fékk vinnuna
megi rekja til lagsins „Human“ en í
tónlistarmyndbandinu við lagið fékk
hún að nota loftmyndir Arthus-
Bertrand. „Ég naut þeirra einstöku
forréttinda að fá að grafa í gull-
námu hans, ef svo má að orði kom-
ast, og velja úr loftmyndum hans til
að nota í myndbandið „Human“. Ég
er aðeins ein þriggja sem notið hafa
þess heiðurs,“ segir Heiða og bend-
ir á að hinir tveir séu Paul McCart-
ney og Calogero, sem er þekktur
franskur söngvari.
„Ég hefði samt aldrei ákveðið að
spila lagið „Human“ á tónleikum,
sem leiddi til þess að ég kynntist
Yann Arthus-Bertrand, ef ég hefði
ekki kynnst Kawtar í Marokkó,“
segir Heiða og rifjar upp að hún
hafi tekið hina tvítugu Kawtar upp
á sína arma í kjölfar átakanlegra at-
burða. „Kawtar henti sér út úr bíl á
80 km hraða til að komast hjá því
að vera nauðgað. Við það braut hún
nánast hvert bein í líkamanum,“
segir Heiða og rifjar upp að ekkert
sjúkrahús hafi viljað taka við Kawt-
ar til aðhlynningar þar sem hún var
bláfátæk og of slösuð. „Hún var því
send heim til að deyja,“ segir
Heiða, sem ákvað að gera sitt til að
safna fjármagni fyrir hana svo hún
kæmist inn á einkasjúkrahús. „Það
gekk eftir og í dag er Kawtar nán-
ast alheilbrigð,“ segir Heiða og tek-
ur fram að þessi reynsla hafa mótað
sig og hvatt til að halda áfram að
láta gott af sér leiða, en allur ágóði
af tónleikunum í Gamla bíói rennur
til styrktar skólagöngu tveggja
ungra dætra fyrrverandi ökumanns
fjölskyldu Heiðu í Marokkó.
Það er alltaf von
„Reynslan mín hefur kennt mér
að það er alltaf von og ég vil leggja
mitt lóð á vogarskálarnar til að gera
heiminn að betri stað,“ segir Heiða
sem frá 2014 hefur einnig starfað
sem músíkþerapisti, fyrst á barna-
spítala í París og síðan í Marokkó.
„Starfið fólst meðal annars í að
styrkja og róa sjúklingana, fyrir og
eftir uppskurð, ásamt því að sjá um
aðstandendurna á meðan á aðgerð-
unum stóð,“ segir Heiða. Eftir fimm
ára búsetu í Marokkó þar sem
Heiða sinnti ýmsum sjálfboða-
störfum og vann að mannúðar-
málum með tónlistarstarfi sínu
ákvað hún, þegar fjölskyldan flutti
aftur til Parísar, að tengja tónlistar-
sköpun sína alfarið mannúðar- og
umhverfismálum.
Þess má að lokum geta að Heiða
Björg & the Kaos skipa auk Heiðu
þau Alexis Nersessian á píanó,
Charles Rappoport á fiðlu, Nicolas
Gardel á gítar, Simon Valmort á
trommur og Sylvain Plommet á
kontrabassa og rafmagnsbassa.
Hljómsveitin Archibald hitar upp,
en hana skipa Roxane Terramorsi
söngkona og Nicolas Gardel á gítar.
Miðar eru seldir á tix.is og á
Facebook-viðburði sem nefnist
„Sound of Sharing – Gamla bíó –
Reykjavík“. Þar má einnig finna
upplýsingar um ýmsa afslætti sem
miðahafar geta nýtt sér á veitinga-
stöðum borgarinnar á morgun. „Við
lofum ógleymanlegu kvöldi!“
Ljósmynd/Georgy Pichery
Ljósmynd/Lamia Lahbabi
Ást Heiða Björg Balu trúir að við getum öll látið gott af okkur leiða.
„Vil leggja mitt lóð á vogarskálarnar“
Tónlistarkonan Heiða Björg Jóhannsdóttir Balu kemur ásamt hljómsveit sinni fram í Gamla bíói
annað kvöld kl. 20 „Ég sakna Íslands mikið,“ segir Heiða Björg sem lofar ógleymanlegu kvöldi
Stemning Heiða Björg Balu mundar
klarínettið á sviðinu með hljómsveit sinni.