Morgunblaðið - 13.02.2020, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 13.02.2020, Blaðsíða 72
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is laugardaga og sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-18:30 20-50% Sparadu- af borðstofu- húsgögnum 13. feb. – 2. mars 20-25% Sparadu- af öllum borðbúnaði TOKE BORÐSTOFUBORÐ borðplata úr vaxlökkuðum eikarspón. 3 plankar og fætur úr svartlökkuðu MDF. L 220 x B 95 cm. Áður 99.900 kr. Nú 79.900 kr. SPARAÐU 20.000 kr. Kvikmynd Rúnars Rúnarssonar, Bergmál, var sýnd í gærkvöldi á kvikmyndahátíð hins virta sam- tímalistasafns MoMA í New York. Bergmál hlaut aðalverðlaun á Loc- arno-kvikmyndahátíðinni í Sviss í haust. Nokkru síðar fékk myndin verðlaun fyrir bestu leikstjórn á kvikmyndahátíð í Valladolid á Spáni. Hin margverðlaunaða Bergmál sýnd í MoMa FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 44. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Í kvöld skýrist hvaða lið mætast í úr- slitum Geysisbikars kvenna í körfu- knattleik í Laugardalshöllinni á laugardaginn. Undanúrslitaleikirnir fara þar fram í dag og í kvöld. Nú háttar svo til að fjögur efstu liðin á Íslandsmótinu mætast í undan- úrslitum bikarkeppninnar en slík staða er fremur sjaldgæf. Tvö efstu liðin mætast í fyrri leik dagsins en það eru Valur og KR. »61 Toppliðin mætast í bikarslag í kvöld ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Mæðgur syngja ekki saman op- inberlega á hverjum degi og hvað þá í Söngvakeppni evrópskra sjón- varpsstöðva. „Það eru forréttindi að hafa mömmu mér við hlið á sviðinu,“ segir Nína Dagbjört Helgadóttir, sem syngur lagið „Ekkó“ eftir Þór- hall Halldórsson í undankeppninni á laugardag, en Rúna Stefánsdóttir, móðir hennar, er í bakraddahópn- um. Einar Bárðarson er höfundur ís- lenska textans. Esther Garðarsdóttir, móðir Rúnu, var þekkt söngkona, söng meðal annars með KK-sextettinum, Hljómsveit Árna Elfars og Hauki Morthens. „Ég ólst upp við að hlusta á tónlist en byrjaði samt sjálf seint að syngja opinberlega, kom, sá og sigraði í Landskeppni í karókí á Broadway um miðjan tíunda áratug- inn,“ segir Rúna. Í kjölfarið var hún valin í bakraddasveit Rocky Horror, sem Baltasar Kormákur setti upp, og ýmsar sýningar með Gunnari Þórðarsyni, m.a. ABBA, Príma- donnur og Laugardalskvöld á Gili með Ragga Bjarna. Laga- og texta- höfundurinn Einar Oddsson fékk hana til að syngja lögin á plötunni „Rúna“, sem kom út 2004. Hún var í bakraddasveit, þegar Selma Björns- dóttir söng „All Out of Luck“ í Ísrael 1999, söng lagið „Í villtan dans“ í Söngvakeppninni 2001 og „100%“ 2006. „Nú er ég því að syngja í fjórða skipti í keppninni og ekki verður annað sagt en að söngurinn sé bráð- smitandi í fjölskyldunni,“ segir hún. Tilviljun réði því að Rúna fór í bakraddasveit Nínu, en ein söng- konan verður ekki á landinu þegar undankeppnin fer fram. „Ég hljóp í skarðið fyrir Ágústu Ósk Óskars- dóttur og það er yndislegt að fá að syngja með Nínu.“ Tónlistin heillar Þó að Nína sé aðeins 19 ára hefur hún töluverða reynslu sem söng- kona. „Ég hef sungið síðan ég var krakki,“ segir hún. Þegar hún var 14 ára í Seljaskóla söng hún í Skrekk og ári seinna tók hún þátt í Jóla- stjörnunni og kom fram í sýningum Björgvins Halldórssonar, Jólagest- um Björgvins. „Þá fór boltinn að rúlla,“ segir hún. Hún byrjaði í Verzlunarskóla Íslands, tók þá þátt í söngkeppninni Vælinu og keppti í Hörpu. Hún fór síðan í Fjölbrauta- skólann í Garðabæ, sigraði í söngva- keppninni Jarminu, söng í Gettu betur fyrir hönd FG og var keppandi í söngvakeppni framhaldsskólanna. Í kjölfarið hafði Javi Valino sam- band við hana og hún söng lagið „Prove It“, sem þau sömdu saman og kom út í fyrrasumar. Í kjölfarið gerðu þau tónlistarmyndband sem hefur vakið mikla athygli. Nína útskrifaðist sem stúdent fyr- ir áramót og hefur sett stefnuna á háskólanám og frekara söngnám. „Ég ætla að halda áfram að semja og gefa út tónlist,“ segir hún. „Mig hef- ur lengi langað til þess að feta í fót- spor mömmu og þegar tækifærið kom greip ég það fegins hendi. Ég trúi því varla að ég sé að fara að syngja með mömmu og þó ég sé jarðbundin er ég mjög metnaðarfull, reyni að gera mitt besta með það að markmiði að fara alla leið.“ Morgunblaðið/Eggert Reyndar söngkonur Mæðgurnar Nína Helgadóttir og Rúna Stefánsdóttir vita hvað þær syngja. Mæðgur saman á sviði  Nína Dagbjört Helgadóttir og Rúna Stefánsdóttir í Eurovision Skáldin Kristín Svava Tómasdóttir, Ásta Fanney Sigurðardóttir, Þórdís Gísladóttir og Fríða Ísberg koma fram á ljóðakaffi Borgarbókasafnsins í Kringlunni í dag klukkan 17.30. Þar verður boðið upp á freyðivín og léttar veitingar en skáldin munu framreiða fyndin og freyðandi ljóð til að hressa upp á and- ann í febrúar- skammdeginu. Öll skáldin hafa sent frá sér ljóðabækur en Ásta sendi frá sér fyrstu ljóðabók sína nú fyrir jól, bókina Eilífðarnón. Framreiða freyðandi ljóð á Borgarbókasafni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.