Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.03.2020, Síða 4
Hrafnhildur á að baki langanferil í arkitektúr en húnlærði í Danmörku og
Bandaríkjunum og hefur nú búið og
starfað í London í sextán ár. Síðan
2009 er hún
stofnandi og
framkvæmda-
stjóri JCA-
arkitektastof-
unnar sem sér-
hæfir sig í
verkefnum
tengdum heil-
brigðisgeiranum.
Í gegnum árin
hefur hún unnið að hönnun stórra
spítala og heilbrigðisstofnana víða
um heim; í Skandinavíu, Bretlandi,
Sviss, Suður-Afríku og Palestínu svo
einhver dæmi séu tekin.
„Mig hafði alltaf dreymt um að
vinna að svona verkefnum. Þetta eru
svo heillandi viðfangsefni og snerta
á svo mörgum flötum; skipulags-
málum, borgarmálum og umhverfis-
málum, auk klínísks skipulags. Spít-
ali er bygging sem inniheldur í raun
allar tegundir húsnæðis. Auk klín-
ískra svæða eru skrifstofur, hótel-
þjónusta, kennslurými, veitinga-
staðir og margt fleira. Þetta er
míkróheimur,“ segir Hrafnhildur og
segist hafa með árunum öðlast dýr-
mæta reynslu á þessu krefjandi
sviði.
„Þetta er erfitt starf; það er ein-
faldara að hanna til dæmis íbúðar-
hús eða einn veitingastað sem tekur
ef til vill þrjá til tólf mánuði að rísa.
Þessi verkefni taka mörg ár,“ segir
Hrafnhildur.
„Hér í Bretlandi, í kjölfar fjár-
málakrísunnar, hefur verið tíu ára
stöðnun í uppbyggingu stórra
sjúkrahúsa þannig að við höfum
unnið mikið erlendis. En nú erum
við með nýjan forsætisráðherra sem
lofar yfir fjörutíu nýjum sjúkra-
húsum á næstu tuttugu árum. Von-
andi tekst að nýta þetta spennandi
tækifæri til að læra af reynslu síð-
ustu 25 ára og þróa næstu kynslóð
sjúkrahúsa og heilbrigðisbygginga
sem svara þeim áskorunum sem
heilbrigðiskerfi framtíðarinnar
standa frammi fyrir.“
Vond áhrif á heilsu og bata
Hvað eruð þið lengi að hanna einn
stóran spítala?
„Já, þetta er frábær spurning,“
segir Hrafnhildur og hlær.
Hún tekur sem dæmi að þau hafi
hannað 59.000 fermetra krabba-
meinssjúkrahús fyrir ríkisstjórn
Palestínu og voru beðin um að klára
verkefnið til útboðs á 12 mánuðum.
„Við bara hristum höfuðið og
sögðum að það væri ekki hægt, en
þetta var skilyrðið. Við getum í
sjálfu sér hannað sjúkrahús mjög
hratt en reynslan segir okkur að taf-
irnar eiga það til að vera á hlið kúnn-
ans sem oft er óreyndur í fram-
kvæmd svo stórra verkefna og gerir
sér ekki fulla grein fyrir ferlinu. Svo
spila fjármunir inn í. Þótt við séum í
grunninn arkitektar þá gerir löng
reynsla okkur kleift að aðstoða við-
skiptavini við verkefnisstjórn og
strategíska vinnu. Þannig að við er-
um líka ráðgjafar,“ segir hún.
Hrafnhildur segir að við hönnum
spítala þurfi að huga bæði að þörfum
starfsfólks, sjúklinga og aðstand-
enda. „Það hefur orðið breyting á
síðustu árum að nú er krafa að fólk
njóti friðhelgi einkalífsins og fái að
vera í sérherbergi. Það hefur verið
togstreita og er kannski enn hjá
starfsfólki vegna þess. Hjúkrunar-
fræðingum finnst þeir missa yfirsýn;
þetta breytir þeirra hlutverki. Þetta
verður meira eins og hótelþjónusta
og valdahlutfallið breytist. Sumir
hafa áhyggjur af því að þurfa að
ganga meira, en sjúkrahúsin stækka
ef allir fá sérherbergi. En það er
ljóst að ekki er hægt að setja marga
sjúklinga með mismunandi þarfir í
sama herbergi. Það er barn síns
tíma og hefur vond áhrif á heilsu
fólks og bataferlið.
Gott umhverfi er
ein auðveldasta
leiðin til að bæta
upplifun sjúk-
linga,“ segir
Hrafnhildur og
bætir við að eins
þurfi umhverfi
starfsfólksins að
vera gott og hæfa
starfseminni.
„Heilbrigðisstarfs-
fólk sættir sig oft
við aðstæður sem til dæmis starfs-
maður í banka myndi aldrei sætta
sig við,“ segir hún.
„Mér finnst ótrúlega leiðinlegt að
heyra hvernig aðstæðurnar eru
heima; þetta er óskiljanlegt. Land
eins og Ísland á vera leiðandi í ný-
sköpun og í því að hugsa hlutina út
frá heilsu. Góð heilsa er það sem
skiptir máli og ef á að fókusera á það
þarf að fara að horfa á hlutina öðrum
augum.“
Eins og heilsuþorp
Nú stendur yfir samkeppni um
hönnun á nýrri og betri Heilsustofn-
un NLFÍ í Hveragerði og situr
Hrafnhildur í dómnefnd ásamt fjór-
um öðrum. Skilafrestur er til 22.
apríl.
„Þetta er mjög spennandi verk-
efni. Stór hluti húsnæðisins er kom-
inn til ára sinna. Þarna er boðið upp
á heildræna nálgun í meðferð sjúk-
linga byggðri á hreyfingu, hvíld,
hollri næringu, tengslum við náttúr-
una og góðum mannlegum sam-
skiptum. Þessi staður breytir öllu
fyrir marga sjúklinga; sérstaklega
fyrir þá sem eru með vandskil-
greinda kvilla sem falla illa að sér-
fræðivæðingu heilbrigðiskerfisins,“
segir Hrafnhildur.
„Í framtíðinni verður þessa heild-
ræna nálgun að koma í auknum
mæli inn í heilbrigðiskerfið. En hér
höfum við stofnun sem hefur starfað
á þessum grundvelli í langan tíma og
þess vegna er svo gríðarlega spenn-
andi að sjá hvaða tillögur koma.
Þarna er raunverulegt tækifæri til
nýsköpunar með sjálfbærni og um-
hverfisvæna hönnun að leiðarljósi. Í
heimi þar sem loftslagsbreytingar
hafa verið skilgreindar sem stærsta
heilbrigðisógn mannskyns fá svona
verkefni nýja vídd,“ segir hún en
þess má geta að
Hrafnhildur hefur
verið ráðgjafi fyrir
Heilsustofnunina
við undirbúning
verklýsingarinnar.
Langaði þig
ekkert til að
teikna þetta sjálf?
„Jú! En maður
verður að velja
annað hvort og í
auknum mæli
finnst mér jafn
áhugavert að hjálpa viðskiptavinum
að byrja á réttum stað,“ segir Hrafn-
hildur og bendir á að keppendur geti
annaðhvort hannað alveg nýja
Heilsustofnun eða byggt við. Einnig
er fyrirhugað að byggja íbúðir fyrir
55 ára og eldri í kring þar sem íbú-
um verður boðið upp á að sækja sér
ýmsa þjónustu hjá Heilsustofnun.
„Þetta verður heilsuþorp. Þarna
er líka gert ráð fyrir heilsudvalar-
stað, en samt með þann möguleika
fyrir viðskiptavininn að nýta sér þá
sérfræðiþekkingu sem starfsfólk
Heilsustofnunar býr yfir. Þannig að
það verður tenging þar á milli. Svo
verður nýja tillagan að vera þannig
að byggingarframkvæmdir raski
ekki starfseminni. Sem er mjög
vandasamt, en dvalargestirnir þurfa
ró og næði, það er jú hluti meðferð-
arinnar,“ segir hún.
„Sjúklingar vilja flestir það sama.
Þeir vilja skjóta lækningu en þeir
vilja líka umhverfi sem veldur ekki
óþarfa skaða, kvíða, ringulreið, há-
vaða og svefnleysi eða skortir nauð-
synlega friðhelgi einkalífsins,“ segir
Hrafnhildur og segist bæði bjartsýn
og spennt fyrir framtíð Heilsustofn-
unarinnar í Hveragerði.
„Það eru allar forsendur fyrir því
að þetta muni lukkast mjög vel.“
Spítali er
míkróheimur
Hrafnhildur Ólafsdóttir arkitekt er með 20 ára
reynslu í hönnun og skipulagi spítala og heil-
brigðisstofnana. Hún situr nú í dómnefnd fyrir
samkeppni um nýja Heilsustofnun sem verður
einn dag að litlu heilsuþorpi í Hveragerði.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Hér má sjá Nelson Mandela-barnaspítalann í Jóhannesarborg sem arkitektastofa Hrafnhildar teiknaði.
Hrafnhildur
Ólafsdóttir
’ Sjúklingar viljaflestir það sama.Þeir vilja skjóta lækn-ingu en þeir vilja líka
umhverfi sem veldur
ekki óþarfa skaða,
kvíða, ringulreið, há-
vaða og svefnleysi eða
skortir nauðsynlega
friðhelgi einkalífsins.
HEIMURINN
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.3. 2020
á heimasíðu Hreyfils:
hreyfill.is
eða í App Store
og Google Play
SÆKTU APPIÐ
Sæktu appið frítt á AppStore
eða Google Play
Hreyfils appið
Pantaðu leigubíl á einfaldan
og þægilegan hátt
Þú pantar bíl1
3 og færð SMS skilaboðað bíllinn sé kominn.
2 fylgist með bílnum í appinu