Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.03.2020, Qupperneq 16

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.03.2020, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.3. 2020 K órónuvírusinn kemur víða við. Og umræðan um veikina sem hann veldur fer líka út og suður. Sumir tala um svarta dauða í sömu andrá. Þar er þá heldur betur vel í lagt. Sóttkví í hálfa öld En af því tilefni taldi einhver þó þar sem svarti dauði væri nefndur að sá ódámur gæti hins vegar bent til þess að vopn einangrunar sem mest er brúkað í baráttunni við vírusinn núna sé ólíklegt til að duga. Svarti dauði hrelldi Evrópumenn um miðja 14. öld en þar sem við vorum svo órafjarri lagði hann ekki til Íslendinga fyrr en hálfri öld síðar og varð hrylli- lega vel ágengt, hvað sem svo langri einangrun leið. Vera má að sagnfræði og læknavísindi kunni ein- falda skýringu á þessu dæmi. Nú er látið eins og 14 dagar í sóttkví muni duga til þess sem hálf öld gerði ekki þá. Þessi texti ber með sér að hann er óraleið frá vís- indalegum vangaveltum en margar spurningar utan þeirra vakna þegar svo mjög er spilað á óvissu og ótta sem misöruggar og ófullnægjandi upplýsingar kveikja. Og svo hitt En þeir eru líka til sem sletta í góm og spyrja hvaða læti þetta séu eiginlega. Þetta sé ekki annað en skít- ur í bollabroti. Okkar heimshluti fái árlega sína flensu og hver einasta þeirra komi frá Kína. Milljónir manna sýkist um allan heim og deyi í tugþúsundatali, líka þeir sem fái „flensusprautu“. Það er sagt misjafnt eftir árum hversu forvörnin gegn flensunni lukkast en fullyrt er að jafnvel þegar hún hittir ekki í miðju marksins þá dragi hún veru- lega úr virkni pestarinnar. Og eins og gildir um kórónuveiruna er jafnan hamrað á því að aldraðir og þeir sem eru með minnkandi mótstöðu af öðrum ástæðum séu nánast þeir einu sem séu í raunverulegri hættu. Í fréttum heyrðist þeirri tölu slegið fram að um 200 þúsund manns dæju árlega af völdum venjulegr- ar flensu en þó væri ekki auðvelt að greina hvort al- menn vosbúð, ellimæði eða flensan réði mestu um þau úrslit. Manni er spurn hvort rétt sé að hver ein- asta hefðbundin flensa komi frá Kína og þá af hverju og hvort kórónuhvellurinn sé bara bónus þetta árið. Ná þeir honum loksins? Í Bandaríkjunum binda mestu áhugamenn um að koma Donald Trump fyrir pólitískt kattarnef nú vonir við það að kórónuveirunni takist það sem FBI, CIA og hinar átján leyniþjónustur réðu ekki við. Það er reyndar þekkt að óvænt fjöldamorð í skól- um eða matvörumörkuðum og stórbrotnar afleið- ingar ofsaveðra eins og stormurinn Katrina eru dæmi um, geti veikt sitjandi forseta illa. Ekki er þá verið að gera því skóna að viðkomandi beri beina ábyrgð á ódæðunum eða veðurofsanum. Það er fremur hitt að hann eða stjórnvöld sem undir hann heyra hafi brugðist klaufalega við. Katrina, sem fór mikinn í Louisiana og einkum þá New Orleans, þótti veikja stöðu Bush yngri stórlega. Ekki er svo sem vitað hvað Bush forseti hefði getað gert öðru- vísi því að svona stormar gera minna með Hvíta húsið en aðrir vindverkir og upphlaup þar vestra. En hamast var á því að Bush hefði dregið úr hömlu að láta forsetavélina fljúga með sig og frétta- mannastóðið yfir flóðasvæðið, þótt allir viti að sá sýndargerningur hefði engu breytt. Þá var forset- inn seinheppinn þegar að hann hitti yfirmann hinna opinberu almannavarna landsins og þakkaði honum fyrir frábær viðbrögð þegar að öll spjót stóðu á stofnuninni sem þótti bregðast allt of seint og illa við. Með því tók forsetinn allan aumingjadóminn í eigið fang. Bush hafði réttilega bent á það að hefði forseta- vélin sveimað yfir flóðasvæðinu og svo lent fjarri at- burðunum og þaðan hefði þyrluger farið með fylgd- arliði og öryggisgæslu og hundrað fréttamönnum frá tuttugu sjónvarpsstöðvum í jafnmörgum þyrlum þá hefði það þýtt að þúsundir lögreglu- og björg- unarmanna hefðu þurft að hverfa frá brýnustu verkum til að snúast í kringum forseta Bandaríkj- anna og það sem honum fylgir. Allt var þetta rétt hjá Bush en fjölmiðlar voru samdóma um að þetta væru gagnslitlar „afsakanir“ af hans hálfu. Svo fór að stormurinn Katrina reyndist sá sem valdið hefur mestu fjárhagstjóni og var talið að það hefði ekki verið minna en 125 milljarðar dollara. Til samanburðar er Bloomberg, sem vill verða forseta- frambjóðandi demókrata, talinn einn og sjálfur eiga 60 milljarða bandaríkjadala í handraðanum! Gerir veiran útslagið? Af framangreindum ástæðum er sagt að demókratar bindi vonir við kórónuvírusinn. Þeir telja að Trump hafi gefið höggstað á sér með staðhæfingum um að ólíklegt sé kórónuvírusinn verði að bandarísku stór- máli. Forsetinn er sagður reyna með slíku tali að tala hlutabréfamarkaðinn upp á ný svo að hin sterka ímynd hans og fjármálastyrksins sem hann hafi fengið lof fyrir veikist ekki. Færi svo að útbreiðsla veikinnar yrði hraðari og meiri en ráðgjafar forsetans ætla nú gætu andstæð- ingarnir auðveldlega sett þær fréttaskýringar á flug að vegna óraunsæis forsetans hefði ekki verið gripið til nauðsynlegra aðgerða og þess vegna allt farið svo illa. En Trump hefur reyndar vara á sér og veit að hans gömlu flokksbræður í Demókrataflokknum telja allt hey í harðindum og munu jafnvel nýta kín- verska hitasótt ef annað bregst. Hann tilkynnti því á blaðamannafundi sínum að kórónuvírusinn hefði nú verið færður með sérstöku forsetabréfi undir stjórn og ábyrgð Pence varaforseta. Málið hefði því verið fært á hæsta punkt stjórnkerfisins og því fáránlegt að halda því fram að Hvíta húsið tæki ekki málið föstum tökum. Og ekki getur Pence varaforseti kvartað því að Mætti ég fá meira að heyra, sagði veira ’En hvaða erindi á Sjálfstæðisflokkurinn íþetta verk sem á ekki aðra rót en í súrr-andi hatri þessara hjúa? Eina skýringin semfæst út úr stjórnkerfinu er sú að það verði að auðvelda embættismönnum, sem nú ráða hvarvetna ferðinni, að afsala fullveldi lands- ins í hlutum, „þegar það er nauðsynlegt“. Reykjavíkurbréf28.02.20

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.