Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.03.2020, Side 28
Mér líst mjög vel á keppninaí ár, ekki síst úrslitin umhelgina. Við erum öll pínu
„þunn“ ennþá eftir sigur Hatara í
fyrra. Það var svo rosaleg keyrsla
og athygli úti í Ísrael, auk þess sem
við komumst loksins upp úr riðlinum
og enduðum í tí-
unda sæti. Þess
vegna voru mikl-
ar væntingar í ár
og keppnin og
RÚV hafa staðið
undir þeim.“
Þetta segir
Laufey Helga
Guðmundsdóttir,
lögfræðingur og
stjórnarkona í
Félagi áhuga-
fólks um Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva, FÁSES, en úrslit
Söngvakeppninnar 2020 fara sem
kunnugt er fram í Laugardalshöll-
inni í kvöld, laugardagskvöld.
Að áliti Laufeyjar gengu undan-
úrslitin vel fyrir sig og segir hún
skipulagið á keppninni gott. Snjallt
hafi verið að fá Kristjönu Stef-
ánsdóttur inn sem raddþjálfara og
Lee Proud til að sjá um hreyfingar
keppenda. „Það er löngu uppselt á
úrslitin. Það segir okkur að það er
mikil eftirvænting í loftinu og þetta
laugardagskvöld á eftir að verða
geggjað.“
Flestir hölluðust að sigri Hatara
sem vann að lokum yfirburðasigur í
símakosningunni í fyrra. Að sögn
Laufeyjar er spennan mun meiri að
þessu sinni. „Atriðin eru miklu jafn-
ari í ár, sérstaklega þau þrjú sem ég
reikna með að komi til með að berj-
ast um sigurinn.“
Hvaða atriði eru það?
„Iva, Daði og Dimma. Fylgjendur
Dimmu eru margir og þeir koma til
með að kjósa sína menn eins og eng-
inn sé morgundagurinn. Iva hefur
komið mjög sterk til leiks með dul-
úðlegum blæ og náð vel til Eurovisi-
on-aðdáenda erlendis. Svo eru það
Daði og Gagnamagnið með sitt ham-
ingjusama popp og það er gaman að
sjá að þau fela ekkert að það er kúl
að vera lúði. Daði hefur svolítið verið
að taka sitt flug að undanförnu og
margir eru að deila laginu erlendis.
Vonandi koma allir keppendur svo
með sprengjur í úrslitunum en hefð
er fyrir því að spara sig fyrir loka-
kvöldið. Ég get varla beðið.“
Hafa engu að tapa
Það er mat Laufeyjar að Nína ann-
ars vegar og Ísold og Helga hins
vegar eigi minni möguleika á sigri
en þær hafi á hinn bóginn staðið sig
gríðarlega vel. „Það er erfitt að
koma nýjar inn í þessa keppni, eins
og þær eru að gera, en þær hafa
komið skemmtilega á óvart og hafa
engu að tapa á laugardagskvöldið.“
Og hvaða lag vinnur?
„Ég hef auðvitað mína skoðun á
því en sem stjórnarkona í FÁSES
verð ég að vera svolítið leiðinleg og
dipló og hafa það fyrir mig. Alla
vega svona opinberlega,“ svarar
Laufey hlæjandi.
Jæja, við verðum að una því.
Daði var nálægt því að vinna
keppnina fyrir þremur árum en
Laufey segir það ekki hjálpa honum
neitt að þessu sinni; þjóðin skuldi
honum ekki neitt. Frekar en öðrum.
„Við eigum bara að kjósa það lag
sem okkur þykir best og hugsa
hvorki um fortíðina né framtíðina.
Það er nútíðin sem ræður. Kjósum
bara í drasl og gleymum alls ekki að
greiða atkvæði. Það þýðir ekkert að
barma sér á sunnudaginn þegar allt
er afstaðið og lagið okkar komst
ekki áfram.“
Laufey er hæstánægð með kynn-
ana í ár; þau Björgu Magnúsdóttur,
Benedikt Valsson og Fannar Sveins-
son. „Ég átta mig ekki á gagnrýn-
inni á þau; þau hafa verið stórkost-
leg og fengið mig til að hlæja eins og
vitlausa kerlingu. Þetta hefur stund-
um verið stirt gegnum tíðina en nú
eru kynnarnir sannarlega komnir út
úr skelinni. Atriðið með ríkisstjórn-
inni var frábært, eins atriðið með
Jóhannesi Hauki, svo dæmi séu tek-
in.“
Beðin að horfa til Eurovision-
keppninnar sjálfrar þá segir Laufey
erfitt að meta möguleika Íslands.
„Það eru ekki mörg lög komin fram
en þetta hallar í þá átt að mikið
verði af ballöðum. Litháen sendir að
vísu hresst rokk/dans/indí-lag sem
er strax orðið sigurstranglegt. Við
sjáum hvað setur.“
Mikið um dýrðir
Félagar í FÁSES gera sér að sjálf-
sögðu dagamun í tilefni af Söngva-
keppninni. Húllumhæið byrjaði í
gærkvöldi með karókí og fyrir há-
degið í dag, laugardag, verður hlaðið
í Eurovision-zumba. Upphitun fyrir
keppnina hefst á Ölveri klukkan 17
og þaðan verður gengið fylktu liði í
Laugardalshöllina. Að keppni lok-
inni verður síðan Júró-klúbburinn
opnaður í Iðnó, þar sem dans verður
stiginn fram á rauðanótt. Fram
koma góðir gestir, norska tríóið
KEiiNO og íslensku Eurovision-
stjörnurnar Hera Björk og Regína
Ósk, auk leynigesta. Nánar um það
á fases.is.
Hugsum hvorki um
fortíð né framtíð
Úrslit Söngvakeppninnar 2020 fara fram í Laugardalshöll í kvöld, laugardags-
kvöld. Laufey Helga Guðmundsdóttir Eurovisionsérfræðingur á von á jafnri
keppni þar sem Daði, Iva og Dimma komi til með að kljást um gullið.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Dimma flytur lagið
Almyrkvi.
Laufey Helga
Guðmundsdóttir
Eurovisonsér-
fræðingur.
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.3. 2020
LESBÓK
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Vandaðar íslenskar innréttingar
GÆFA Bandaríska söngkonan JoJo kveðst í samtali við
miðilinn Uproxx vera stálheppin að vera á lífi en hún
sökkti sér í fen fíkniefna fyrir nokkrum árum til að vera
„sæt“ og „einhvers virði“. „Það komu kvöld þar sem ég
rúllaði út af klúbbum og öll ljós voru slökkt. Ég var
ótrúlega kærulaus, gat ekki staðið meira á sama. Ég
varð að vera í vímu til að líða vel og var komin alla leið
fram á brúnina, stóð þar á táberginu. Ég ætti að vera
dáin,“ segir hin 29 ára JoJo í viðtalinu en hún var aðeins
þrettán ára þegar hún sló í gegn. Í dag hefur hún snúið
við blaðinu. „Pabbi var fíkill og ég gat ekki hugsað mér
að enda eins og hann; að sofna bara eitt kvöldið og
vakna aldrei aftur,“ bætir JoJo við en von er á nýrri
plötu frá henni í vor, Good to Know.
Ætti að vera dáin
JoJo hefur
snúið við
blaðinu.
AFP
VIRÐING Einvalalið tónlistarmanna kom
fram á tónleikum til heiðurs Peter Green,
sem var einn af stofnendum Fleetwood Mac, í
London Palladium í vikunni. Má þar nefna
Kirk Hammett, Billy Gibbons, Steven Tyler,
Bill Wyman og David Gilmour, auk Christine
McVie og Mick Fleetwood úr Fleetwood Mac
en sá síðastnefndi skipulagði viðburðinn.
Fram hefur komið að Hammett og Green
vinna nú saman að tónlistarverkefni og bók
og kvaðst Metallica-maðurinn vera mjög
stoltur af því að hafa fengið tækifæri til að
heiðra vin sinn í félagsskap slíkra goðsagna.
„Ég er algjörlega í skýjunum,“ sagði hann.
Goðsagnir heiðra Peter gamla Green
Kirk Hammett kom fram á tónleikunum.
AFP
Gamli leðurbarkinn Paul Di’Anno.
Sáttur við brott-
reksturinn
ÆÐRULEYSI Gamla brýnið Paul
Di’Anno kveðst í samtali við málm-
ritið Metal Hammer ekki bera
neinn kala til Steve Harris og fé-
laga í Iron Maiden fyrir að hafa
sparkað sér á sínum tíma en hann
söng inn á tvær fyrstu plötur málm-
goðanna í blábyrjun níunda áratug-
arins. Di’Anno þótti frekur til sop-
ans á þessum árum og þar sem Iron
Maiden brann af metnaði var hann
látinn víkja fyrir Íslandsvininum
knáa Bruce Dickinson. „Ég gat ekki
gefið Iron Maiden 100% lengur og
það var hvorki sanngjarnt gagn-
vart bandinu, aðdáendunum né mér
sjálfum,“ segir Di’Anno. Hann tek-
ur þó fram að hann sé mjög stoltur
af plötunum tveimur enda hafi þær
haft djúpstæð áhrif á yngri bönd,
eins og Metallica, Sepultura og
Pantera. „Þeir sögðu mér að þessar
plötur hefðu dregið þá að tónlist.“