Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.03.2020, Síða 29
Iva flytur lagið
Oculis Videre.
Daði flytur lagið
Think about things.
1.3. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
KVÖL „Ég nýt þess ekki að sjá mig
sem eldri konu á tjaldinu. Það er
alltaf einkennilegt millibilsástand
frá því að geta leikið stúlku sem
veit ekki í hvaða átt líf hennar
stefnir yfir í það að leika móður
átján ára unglings. Aðlögunin tek-
ur einfaldlega tíma,“ segir írska
leikkonan, grínistinn og handrits-
höfundurinn Sharon Horgan í sam-
tali við blaðið The Guardian. Og
hvað ætli sú ágæta kona sé nú göm-
ul? Jú – haldið ykkur fast – hún er
49 ára. Hvorki meira né minna.
Nýtur þess ekki að sjá sig á tjaldinu
Írska leikkonan Sharon Horgan.
AFP
BÓKSALA 19.-25. FEBRÚAR
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Andlitslausa konan Jónína Leósdóttir
2 Brúin yfir Tangagötuna Eiríkur Örn Norðdahl
3 Ennþá ég Jojo Moyes
4 Fórnarlamb 2117 Jussi Adler-Olsen
5 Illvirki Emelie Schepp
6 Snerting hins illa Max Seeck
7 Kepler 6 – leyndarmálið Bjørn Sortland
8 Dularfulla símahvarfið Brynhildur Þórarinsdóttir
9 Svínshöfuð Bergþóra Snæbjörnsdóttir
10
Why We Sleep – The New
Science of Sleep and Dreams
Matthew Walker
1 Kepler 6 – leyndarmálið Bjørn Sortland
2 Dularfulla símahvarfið Brynhildur Þórarinsdóttir
3 Tinni – ferðin til tunglsins Hergé
4 Viggó 1 – mættur til leiks André Franquin
5
Sombína og Dularfulla
hvarfið
Barbara Cantini
6 Múmínálfarnir, safnbók 2 Tove Jansson
7
Tinni – Í myrkum
mánafjöllum
Hergé
8 Sombína – drepfyndin saga Barbara Cantini
9 Gréta og risarnir Zoë Tucker/Zoe Persico
10 Langelstur að eilífu Bergrún Íris Sævarsdóttir
Allar bækur
Barnabækur
Ég er svo ljómandi lánsöm að til-
heyra bókaáskorun nokkurra kapp-
samra kvenna og hefur hún stór-
aukið lestrarafköst mín, sem á
tímabili einskorðuðust við hinar
ýmsu akademísku kennisetningar í
bland við Bangsímon og Línu Lang-
sokk. Eftir að bókaáskorunin góða
kom til sögunnar hef ég í mun rík-
ari mæli notið lestrar ýmissa bóka
sem ég vel fyrir sjálfa mig óháð
fræðum eða áhugasviðum
barnanna minna og gef mér tíma
til að njóta.
Staflinn á nátt-
borðinu mínu hefur
samhliða þessu farið
ört vaxandi og kenn-
ir þar ýmissa grasa,
fræðibækur um nátt-
úrumeðferð í bland
við skáldsögur og
ljóð. Þar er núna að finna Uppvöxt
Litla trés eftir Forrest Carter sem
ég les reglulega eins og sæmir þeg-
ar um uppáhaldsbók er að ræða,
þar er á ferð hugljúf og tregabland-
in þroskasaga, nokkurs konar ind-
jánaútgáfa af
Brekkukotsannál.
Fjallabókin eftir Jón
Gauta Jónsson er
þarna líka en gott er
að blaða í henni
samhliða öðru. Hús-
ið okkar brennur eft-
ir Thunberg-
fjölskylduna reyndist
afar áhugaverð frá-
sögn af mannlegum
breyskleika og bar-
áttunni fyrir betri
heimi. Blóðhófnir
Gerðar Kristnýjar
leynist þar líka.
Hljóðbækurnar
nýti ég grimmt enda vissara að
missa ekki niður dampinn í bóka-
áskoruninni þó stundum sé mikið
að gera, þá er gott að geta smellt
hljóðbók í eyrun og
sinnt sínu. Bók-
mennta- og kart-
öflubökufélagið eftir
Mary Ann Shaffer og
Annie Barrows rann
ljúflega í skemmti-
legum flutningi
Kötlu Margrétar Þorgeirsdóttur og
reyndist fyrirtaks félagsskapur á
löngum göngum, Note to Self In-
spiring Words from Inspiring
People eftir Gayle King sannaði sig
sem afbragðsefni við lopapeysu-
prjón og bækur Brené Brown hafa
verið úrvalshvatning á hlaupum en
í skrifum hennar fer afar vel saman
kímnigáfa, einlægni og fágætt
innsæi í mannlegt eðli.
Nýverið nýttum
ég og einn sona
minna nánast hverja
lausa stund til að
hlusta á afar blæ-
brigðaríkan lestur
Jóhanns Sigurðar-
sonar á Harry Pott-
er og mátti vart á
milli sjá hvort naut þess betur.
HILDUR BERGSDÓTTIR ER AÐ LESA
Bókaáskorun
kappsamra kvenna
Hildur Bergs-
dóttir
er félags-
ráðgjafi.
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ■ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ■ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ■ alnabaer.is
Við erum sérhæfð í gluggatjöldum
alnabaer.is
TWIN LIGHT RÚLLUGARDÍNA
ICQC 2020-2022