Morgunblaðið - 05.03.2020, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 05.03.2020, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MARS 2020 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Bónda í Svarfaðardal hefur af hálfu Matvælastofnunar verið gert að slátra bleikjum í tjörn við bæ sinn ellegar greiða stofnuninni tæplega hálfa milljón í leyfisgjöld. Hjá stofnuninni er litið svo á að sérstakt rekstr- arleyfi þurfi fyr- ir eldi þessu, en bóndinn lítur öðruvísi á málið og telur farið of- fari gegn sér. Bjarni Ósk- arsson á Völlum í Svarfaðardal, bóndinn sem hér um ræðir, sendi alþingismönnum á dögunum bréf þar sem hann vekur athygli á málinu sem hann kallar stofnanaofbeldi. Væntir viðbragða „Þetta eru nokkrir bleikju- sporðar sem ég þarf að drepa ef ég borga Matvælastofnun ekki hálfa milljón króna. Mér finnst nauðsynlegt að bændur og land- eigendur átti sig á staðreyndum; að þú megir ekki eiga nokkra fiska í eigin tjörn, á þinni jörð öðruvísi en að greiða ríkinu hundruð þúsunda króna. Hvað verður næst? Þurfum við bráðum að borga fyrir að drekka vatn úr bæjarlæknum eða virkja hann?“ segir Bjarni sem væntir viðbragða fulltrúa á löggjafasamkomunni. Að undanförnu hefur Bjarni átt í bréfaskriftum við Mast vegna þessa máls og hefur frest til 10. mars til að tilkynna hvenær tjörn- in verði tæmd, en hún er þessa dagana gaddfreðin og snjór yfir öllu. „Staða mín sé annars þröng, því ef ekkert er gert mæti eft- irlitsmenn á staðinn með lög- regluvaldi og fara í aðgerðir á minn kostnað,“ segir Bjarni sem á Völlum rekur sælkeraverslun með ýmsum heimaunnum afurðum. Í bréfi Bjarna til alþingismanna segir hann svo litið á að bleikj- urnar verði hættulausar ef hann greiðir fyrrgreinda upphæð. Sér þyki þó nær að þetta gjald sé 10 þúsund krónur ef eitthvað. Frá- leitt sé að sama gjaldskrá gildi um eldi í atvinnuskyni eða smá- ræði þar sem bændur ali fáeina fiska sér og barnabörnunum til ánægju og búbótar, eins og hann kemst að orði. Gengið á rétt „Það skal tekið fram að þessi fiskur er eingöngu nýttur af okk- ur og ekki seldur. Það er engin hætta á að hann sleppi eða valdi nokkrum tjóni, þetta er íslensk fjallableikja sem var hér fyrir landnám. Hann er í okkar tjörn á okkar landi í okkar vatni,“ segir Bjarni í bréfi sínu hvar hann eggjar Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbún- aðarráðherra, lögeggjan til að gera breytingar. „Mér finnst vera gengið á minn rétt sem landeiganda, eignarrétt minn og atvinnufrelsi. Það er mikið talað um nýsköpun og sjálf- bærni í búskap og höfum við ein- mitt verið ein af þeim sem höfum verið dugleg að gera ýmislegt nýtt og spennandi á okkar jörð. Það sér það hver heilvita maður að það verður lítil framþróun eða nýliðun til sveita ef þessar stofn- anir drepa allt í fæðingu,“ segir Bjarni enn fremur í bréfi sínu. Telur Matvælastofnun fara offari  Bónda í Svarfaðardal settir kostir  Slátri bleikjum í tjörn eða borgi há leyfisgjöld  Stofnana- ofbeldi og lögregluvald  Frumkvæði drepið og gjaldskráin er sögð fráleit  Bæjarlækurinn næst Svarfaðardalur Í tjörninni sem hér sést eru bleikjurnar aldar og er framleiðslan aðeins til gamans og heimabrúks. Bjarni Óskarsson Sundaborg 7-9 | 104Reykjavík | Sími 511 4747 | www.northwear.is Starfsmannafatnaður Einkennisfatnaður M yn d: Kr is tm an n M ag nú ss on Rannsóknastofa byggingariðnaðarins, Rb við Nýsköpunarmiðstöð Íslands heldur málþingið RAKASKEMMDIR OG MYGLA Í HÚSUM Mánudaginn 9. mars á Grand Hótel Reykjavík kl. 13:00-17:00 Dr. Björn Marteinsson, arkitekt, verkfræðingur og dósent við HÍ verður með fyrirlestur, en ráðstefnan er haldin honum til heiðurs. Dr. Lars Erik Harderup Director of Moisture Research Center, Lund University, er aðal- ræðumaður. Dr. Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir, sveppasérfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands. Dr. Ævar Harðarson, arkitekt Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur Fyrirlesarar verðam.a.: Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, iðnaðarráðherra Sjö stutt ávörp til heiðurs Dr. Björns Marteinssonar og umræður um framtíðar- áskoranir byggingarrannsókna Dr. Ólafur H.Wallevik Forstöðumaður Rb Prófessor við HR Málþingið er í samvinnu við samtökin Betri byggingar Aðgangur ókeypis á meðan húsrúm leyfir Skráning á www.nmi.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.