Morgunblaðið - 05.03.2020, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 05.03.2020, Blaðsíða 32
32 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MARS 2020 Allir vöðvar eru sérvaldir úr fitusprengdum Írskum nautgripum sem eingöngu hafa verið fóðraðir á grasi. Kjötið er hægmeyrnað í 21 til 28 daga. Nautakjötið frá John Stone er marg verðlaunað hefur meðal annars hlotið gullverðlaun í World Steak Challenge 2017-2018-2019! Bókaðu borð á matakjallarinn.is eða í síma 558-0000. JOHN STONE STEIKARDAGAR ÁMATARKJALLARANUM 4. - 15. MARS VIÐTAL Guðrún Hálfdánardóttir guna@mbl.is Raddir kvenna af erlendum uppruna þurfa að heyrast og til þess þurfa þær að fá rými segir Ruth Adjaho Samuelsson. Á alþjóðlegum bar- áttudegi kvenna, 8. mars, munu þessar raddir fá sitt rými á viðburði tileinkuðum konum af erlendum uppruna sem eru búsettar á Íslandi. Hugmyndin að atburðinum kvikn- aði hjá Ruth í stjórnendaþjálfunar- námi hennar hjá Success Resource UK. „Í fyrstu átti viðburðurinn að vera hluti af náminu en þegar dag- skráin fór að mótast var mér sagt að þetta ætti erindi við miklu fleiri en eru í náminu. Þarna verða bæði fyr- irlestrar og eins pallborðsumræður þar sem gestir í sal geta lagt fram spurningar,“ segir Ruth. Elisabete Fortes er ein þeirra kvenna sem ætlar að segja sögu sína á málþinginu. Elisabete er frá Portú- gal og ólst þar upp við erfiðar að- stæður. Hún flutti hingað ásamt syni sínum árið 2007 en hafði komið hing- að nokkrum sinnum áður. Að sögn Elisabete fékk hún mikla og góða að- stoð við að byggja sig upp hér á landi en líðan hennar var mjög slæm á þessum tíma. Hún hefur meðal ann- ars unnið fyrir ferðaþjónustu, sem leigubílstjóri á Íslandi, fyrst kvenna af erlendum uppruna, og ýmislegt annað frá því hún flutti hingað ásamt þáverandi sambýlismanni sínum fyr- ir 13 árum. Í dag er hún sjálfstætt starfandi tveggja barna móðir og amma. Sveigjanlegt en um leið flókið Ruth hefur búið hér á landi frá árinu 2009 og starfar á Landspít- alanum. Hún hefur tekið mikinn þátt í starfi Eflingar og ASÍ undanfarin ár og segir að þrátt fyrir að hún sé dugleg að fylgjast með réttindum sínum og taka þátt í félagsstarfi sé það alls ekki þannig með margar þeirra kvenna sem hingað flytja. „Ísland er land tækifæranna,“ segir Ruth og bendir á að sé viljinn fyrir hendi séu fólki allir vegir færir hér á landi. Þjóðfélagið sé sveigj- anlegt en eðlilega geti það stundum verið flókið fyrir aðra en innfædda líkt og annars staðar í heiminum. Til þess að ræða þessa hluti og fleiri verða þær Sveinbjörg Smára- dóttir, MA-nemi í félags- og mann- vísindum við Háskólann á Akureyri, Sanna Magdalena Mörtudóttir borg- arfulltrúi og Drífa Snædal, forseti ASÍ, í pallborði á viðburðinum sem verður haldinn á Hótel Kríunesi í Kópavogi. Auk þeirra mun Edythe Mang- indin, ljósmóðir og hjúkrunarfræð- ingur, taka þátt í pallborðinu. Edythe er fædd og uppalin í Banda- ríkjunum en foreldrar hennar eru upprunalega frá Filippseyjum. Hún flutti til Íslands árið 2009. Meist- araverkefni hennar frá Háskóla Ís- lands fjallaði um tungumálaörð- ugleika, menningarmun og skort á úrræðum sem koma í veg fyrir örugga og fullnægjandi barneign- arþjónustu kvenna af erlendum upp- runa og leiða til ójafnaðar innan heil- brigðiskerfisins. Sibeso Imbula Tímóteusardóttir mun einnig taka þátt en hún hefur búið á Íslandi frá árinu 2005 og er með BA-próf frá Háskóla Íslands og er í MA-námi á sviði fötlunarfræða. Í MA-verkefninu fjallar hún um reynslu fagfólks af því að starfa með fötluðum börnum sem hafa flúið hing- að til lands með fjölskyldum sínum. Sibeso starfar á velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Sonja Kovacević, austurrísk sviðslistakona, mun stýra pallborðsumræðunum en hún býr og starfar á Íslandi. Auk þeirra munu fleiri konur taka þátt í umræðum og flytja erindi á málþinginu á sunnu- dag. Ruth segir að málaflokkar sem konur af erlendum uppruna geta lent í vandræðum með hér á landi tengist oft börnum og barneignum. Konur sem eiga börn með þroskaraskanir sem og þegar konur eru þungaðar og vita ekki hvert þær eiga að leita og fá upplýsingar. Að sögn Ruth hafa konur leitað til hennar vegna ýmiss konar mála. Til að mynda varðandi launamál og rétt- indi í atvinnulífinu. „Ein þeirra sagði mér frá brotum sem hún varð fyrir á vinnustað. Ég sagði henni að hafa samband við Efl- ingu en hún sagði að það gæti hún ekki því ef það myndi fréttast yrði hún rekin úr starfi. Þannig að hún veit ekkert um réttindi sín og vinnuveit- endur hennar geta gert hvað sem er þar sem þessi kona þorir ekki að segja neitt af ótta við að missa vinnuna og verða launalaus. Þetta er sorglegt og þetta á ekki að vera svona,“ segir Ruth. Þetta er í samræmi við það sem hef- ur komið fram í nokkrum skýrslum sem hafa verið unnar undanfarin misseri um stöðu fólks af erlendum uppruna á íslenskum vinnumarkaði. Húfa og hijab Að sögn Ruth er meiri möguleiki að konur með sögur eins og þessar séu tilbúnar að segja frá finni þær stuðn- ing meðal annarra kvenna. Meðal ann- ars frá konum sem eru aðfluttar og verða fyrir brotum á íslenskum vinnu- markaði. Önnur kona sem Ruth ræddi við fékk enga vinnu á meðan hún var með höfuðslæðu (hijab) en þegar hún mætti í viðtal með íslenska húfu á höfðinu var hún ráðin á staðnum. Ruth segir dæmi um að fólk sem er lit- að á hörund sé kallað helvítis negrar og annað slíkt, bæði af fullorðnum og börnum. Mikilvægt sé að fræða fólk og upplýsa um fjölbreytileika lands- manna enda hafi fólki af erlendum uppruna fjölgað mjög á Íslandi und- anfarin ár. Elisabete segir að ekki megi gleyma þeim aðstæðum og einangrun sem Ís- lendingar bjuggu við um aldir og eðli- lega taki tíma að venjast því að fólk af öðrum uppruna búi hér. Íslendingar hafi búið við erfiðar og krefjandi að- stæður þar sem allir þurftu að leggja hönd á plóginn við framfærslu fjöl- skyldunnar. Þetta getur valdið því að eldri kynslóðir þekki einfaldlega ekki fólk af öðrum kynþáttum og viti því ekki hvernig eigi að útskýra og svara spurningum forvitinna barna sem spyrja um hvers vegna þessi eða hinn sé svartur eða brúnn. Þær segjast báðar hafa ákveðnar áhyggjur af stöðu blandaðra Íslend- inga og hvernig þeim gengur að sam- sama sig, bæði Íslandi sem og landinu sem hitt foreldri þeirra er frá. Staða þessa hóps Íslendinga af erlendum uppruna sé oft erfið og um leið falinn vandi. Ruth hvetur allar konur til þess að koma og taka þátt í málþinginu sem er eins og áður sagði haldið á alþjóð- legum baráttudegi kvenna. Að fagna með konum á Íslandi og efla konur af erlendum uppruna á Íslandi til að láta í sér heyra. Að gera þær sýnilegri en þær eru í íslensku samfélagi. Í skýrslunni Staða kvenna af er- lendum uppruna - Hvar kreppir að? sem var unnin af Háskóla Íslands er fjallað ítarlega um stöðu og aðstæður kvenna af erlendum uppruna hér á landi. Þar kemur fram að líta þurfi til margra þátta þegar hugað er að því hvar kreppir að varðandi stöðu kvenna af erlendum uppruna á Ís- landi. Þær mæta ákveðnum hindr- unum þegar þær reyna að verða virk- ir þátttakendur í íslensku samfélagi, m.a. varðandi það að læra íslensku og að fá menntun sína metna. Ólíkir hóp- ar kvenna af erlendum uppruna verða fyrir fordómum og þær verða margar hverjar fyrir mismunun á ýmsum sviðum, svo sem á vinnu- og á húsnæðismarkaði. Rannsóknir sýna að konur og karl- ar af erlendum uppruna hafa áhuga á að tilheyra íslensku samfélagi og að taka virkan þátt í því. Hins vegar hafa konur af erlendum uppruna oft lítinn aðgang að íslensku samfélagi og að erfitt hefur verið fyrir þær að kynnast innlendu fólki. Rannsóknir sýna að þetta er mikilvægur þáttur í því að geta orðið hluti af samfélaginu og í almennri vellíðan. Ákveðnir hópar kvenna af erlend- um uppruna hafa til dæmis oft ekki haft tengslanet sem hefðu getað nýst þeim til að bæta stöðu sína á vinnu- markaði og getað verið mikilvæg fyrri almenna valdeflingu og aðra þátttöku í íslensku samfélagi. Á Facebook-síðunni Iceland Fest 2020 er hægt að lesa nánar um dag- skrá málþingsins. Skortir aðgang að samfélaginu  Ólíkir hópar kvenna af erlendum uppruna verða fyrir fordómum  Einhverjar verða fyrir mis- munun á ýmsum sviðum  Fjallað um stöðu þeirra á málþingi á alþjóðlegum baráttudegi kvenna Morgunblaðið/Eggert Réttindabarátta Ruth Adjaho Samuelsson og Elisabete Fortes eru meðal þátttakenda á málþingi sem haldið verður á alþjóðlegum baráttudegi kvenna þar sem rætt verður um stöðu kvenna af erlendum uppruna á Íslandi. Meðal þess sem verður rætt á málþinginu eru réttindi kvenna á Íslandi og hvort konur af er- lendum uppruna viti af rétt- indum sínum. Eins hvort þær fái þá aðstoð sem þær eiga rétt á þegar miklar breytingar eiga sér stað í lífi þeirra. Hvað með jafnrétti í menntamálum og er tekið tillit til fólks af ólíkum uppruna? Eru réttindi kvenna af erlendum uppruna á vinnumarkaði þau sömu og innfæddar konur njóta á Ís- landi? Vinnudagur kvenna af er- endum uppruna er lengri en gengur og gerist meðal kvenna á Íslandi. Auk þess er vinnutími þeirra óreglulegri sem getur hamlað þátttöku í margs konar viðburðum, ís- lenskunámi og aðgangi að ís- lensku málsamfélagi. Þekkja þær réttindi sín? BARÁTTUDAGUR KVENNA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.