Morgunblaðið - 05.03.2020, Síða 42
42 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MARS 2020
Látum ekki gerræði borgaryfirvalda eyðileggja hann með víðtækum götulokunum
allt árið hvernig sem viðrar, gegn vilja afgerandi meirihluta rekstraraðila og íbúa.
Við viljum vera í miðbænum og halda áfram að þjónusta ykkur.
Án verslunar er ekkert mannlíf.
Við treystum á ykkar stuðning í baráttunni.
Aðgerðarhópurinn Björgum miðbænum.
BORGARBÚAR
Við eigum aðeins
einn Laugaveg og einn miðbæ
Opnum Laugaveginn og Skólavörðustíginn
Dómsmálaráðherra gefur út leyfi
til reksturs svokallaðra sérstakra
happdrættisvéla undir handarjaðri
Háskóla Íslands, sjá: Lög um
Happdrætti Háskóla Íslands nr. 13/
1973. Þessar sérstöku happdrætt-
isvélar eru samtengdar og hefur
þessi starfsemi fengið nöfnin Gull-
náman og Gullregn hjá Happdrætti
Háskóla Íslands. Útreiknað vinn-
ingshlutfall happdrættisvélanna
skal að lágmarki vera 89% sam-
kvæmt lögunum.
Dómsmálaráðherra gefur líka út
leyfi til reksturs söfnunarkassa
sem Íslandsspil sf. rekur, sjá: Lög
um söfnunarkassa nr. 73/1994. Ís-
landsspil er sameignarfélag í eigu
Rauða krossins á Íslandi, Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar og
Samtaka áhugafólks um áfengis- og
vímuefnavandann, SÁÁ. Rauði
krossinn er stærsti eigandi Íslands-
spila með 64% eignarhlut, Slysa-
varnafélagið Landsbjörg 26,5% og
SÁÁ 9,5%. Íslandsspil hafa það
eina hlutverk að reka spilakassa
fyrir hönd eigenda sinna. Vinnings-
hlutfall söfnunarkassanna skal vera
að lágmarki 89% af verðmæti inn-
borgaðra leikja samkvæmt lög-
unum.
Mjög áhugaverðar upplýsingar
um fjárhæðir vinninga, rekstrar-
kostnað, raunverulegt vinningshlut-
fall og fleira er að finna í svari
dómsmálaráðherra við fyrirspurn
Björns Levís Gunnarssonar þing-
manns Pírata í júní 2019.
Árið 2018 settu Íslendingar 12,3
milljarða í spilakassa – fyrir utan
vinninga sem ekki voru greiddir út
heldur lagðir aftur undir. Tæpa 8
milljarða í sérstakar happdrættis-
vélar Happdrættis Háskóla Íslands
og tæpa 4,3 milljarða í söfnunar-
kassa hjá Íslandsspilum. Greiddir
voru út 5,6 milljarðar af vinningum
úr sérstöku happdrættisvélunum
en 2,9 milljarðar úr söfnunarköss-
unum. Það þýðir að vinningahlutfall
hjá báðum fyrirtækjunum var um
70%.
Fyrir sama ár greiddu leyfis-
hafar leigu fyrir þessar vélar til er-
lendra fyrirtækja sem eiga vél-
arnar eða keyptu vélarnar af þeim
og nam sá kostnaður 675 millj-
ónum. Happdrætti Háskóla Íslands
greiddi 515 milljónir og Íslandsspil
160 milljónir. Jafnframt greiddu
Happdrætti Háskólans og Íslands-
spil umboðslaun til rekstraraðila,
Happdrættið 590 milljónir og Ís-
landsspil 255 milljónir.
Hreinar tekjur til Háskóla Ís-
lands af rekstri spilakassa voru 1,1
milljarður og hreinar tekjur Ís-
landsspila til eigenda sinna voru
800 milljónir sem skiptast miðað
við eignarhlut. Rauði krossinn á Ís-
landi fékk 510 milljónir, Slysa-
varnafélagið Landsbjörg 210 millj-
ónir og Samtök áhugafólks um
áfengis- og vímuefnavandann tæpar
80 milljónir. Hreinar tekjur eig-
enda af spilakössunum voru því
1.900 milljónir.
En það sem vekur athygli er að
heildarkostnaðurinn við öflun þess-
ara tekna var um 1.520 milljónir og
þar af fara 675 milljónir til fyrir-
tækja erlendis.
Á bak við þessar tölur er raun-
verulegt fólk. Fólk eins og við og
þú, fólk sem á fjölskyldur, börn,
vini og vinnufélaga sem verða fyrir
skaða þegar ástvinur missir stjórn
á „frjálsum framlögum“ sínum til
góðgerðarmála.
Í ljósi þesarar samantektar vilj-
um við spyrja dómsmálaráðherra
nokkurra spurninga.
1. Söfnunarkassar og sérstakar
happdrættisvélar eru í raun ekkert
annað en spilakassar eða „slot
machines“. Er dómsmálaráðherra
meðvituð um að sömu spilakassar
eru notaðir í spilavítum erlendis?
2. Er dómsmálaráðherra ljóst að
vinningshlutfall er 70% en ekki
89% eins og lög gera ráð fyrir?
3. Gerir dómsmálaráðherra sér
grein fyrir að bróðurparturinn af
veltu spilakassa er að koma frá
spilafíklum sem ekki eru að leggja
fram frjáls framlög?
4. Finnst dómsmálaráðherra eðli-
legt að svo stór hluti tekna Happ-
drættis Háskóla Íslands og Ís-
landsspila sé í raun að renna til
fyrirtækja sem leyfin ná ekki til,
söluturna, veitingastaða, vínveit-
ingahúsa og erlendra spilakassa-
framleiðenda?
5. Er mögulegt að fjáröflun með
rekstri spilakassa sé tímaskekkja
miðað við þær upplýsingar sem
liggja fyrir um skaðsemi þeirra og
skaðleg áhrif á einstaklinga og
samfélagið í heild?
6. Hversu lengi ætlar dóms-
málaráðherra að láta þetta við-
gangast?
Eitt að lokum. Eins og allir vita
eru spilakassar í dag markaðssettir
sem skemmtilegir leikir og fjáröfl-
unarleið þar sem fólki gefst tæki-
færi til að styrkja góð málefni.
Kæra Áslaug, hvenær fórst þú síð-
ast í spilakassa til að styrkja gott
málefni?
F.h. Samtaka áhugafólks um
spilafíkn.
Eftir Ölmu Hafsteins, Kristján
Jónasson og Örn Sverrisson »Hvað á þetta að
viðgangast lengi,
dómsmálaráðherra?
Alma Hafsteins
Höfundar eru í Samtökum
áhugafólks um spilafíkn og
skrifa fyrir þeirra hönd.
alma@spilavandi.is
Opið bréf til dómsmálaráðherra um spilakassa
Kristján Jónasson Örn Sverrisson
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Spilakassar „Bróðurparturinn af veltu spilakassa kemur frá spilafíklum.“