Morgunblaðið - 05.03.2020, Side 68

Morgunblaðið - 05.03.2020, Side 68
68 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MARS 2020 V E R S L U N S N O R R A B R A U T 5 6 · 1 0 5 R E Y K J A V Í K · F E L D U R . I S Ásýningunni Ljósvaki sýnasamstarfskonurnar SirraSigrún Sigurðardóttir ogSelma Hreggviðsdóttir í annað sinn verk úr listrannsóknar- verkefni þeirra um íslenska silfur- bergið. Sýningarstaðurinn BERG Contemporary er alþjóðlegt faglegt sölugallerí sem kynnir og selur list þrettán listamanna. BERG býður svo annað slagið öðrum listamönn- um að sýna og er sýning Sirru og Selmu hluti af því framtaki. Sýningin samanstendur af nokkr- um þáttum. Mest áberandi eru inn- rammaðar ljósmyndir af silfur- bergskristöllum sem listamennirnir gerðu. Samtals eru fimm stærri og níu minni gráir málmrammar með myndum sem eru allar mjög svip- aðar eða jafnvel næstum eins. Silfurbergskristallinn svífur í miðjum rammanum og lítill eða vart merkjanlegur munur er á stærð kristalla á milli ramma. Allir eru þeir óreglulegir að lögun en byggðir upp úr sömu mynstureiningum. Myndirnar eru frekar flatar með svartan bakgrunn þannig að enginn skuggi myndast. Ein mynd sker sig úr og á henni má líta nær full- komlega pússaða silfurbergskúlu. Þegar gengið er inn í innra rými kemur í ljós að myndin sýnir mjög stækkaða mynd af raunverulegri kúlu sem er þar staðsett undir gler- þaki á svörtum bakgrunni á hvítum stöpli og er ekki nema um 3 sentí- metrar að ummáli. Samkvæmt sýn- ingartexta er kúlan fengin að láni frá Náttúrufræðistofnun Íslands og er mikið undrahandverk. Allir krist- allarnir eru ræktaðir af listamönn- unum sjálfum nema þessi kúla og kristall á mynd við hlið hennar. Kúlan er reyndar eina silfurbergið sem er á sýningunni. Annað silfur- berg er einungis sýnt á ljós- myndum. Aðrar ljósmyndir á sýningunni eru plexiglersprentanir af völdum myndum úr safni bandaríska vís- indamannsins Frank K. Mazdab sem rannsakað hefur mismunandi bergtegundir með því að nota skautað ljós sem aðferð. Þær eru paraðar saman, dökk mynd og hvít, og sýnir hvað gerist sjónrænt en þekkingin á því að skauta ljós er sprottin út frá rannsóknum á einstökum eiginleikum silfur- bergskristalla. Hið sjónræna verður eins og kort sem sérfræðingar geta lesið í. Sjónræn tilraun Þrjú vídeóverk eru sýnd á stórum flatskjáum á gólfinu. Litasamsetn- ing vídeóanna er sama og sýning- arinnar í heild þar sem grátónar, hvítt og svart eru ríkjandi og engir aðrir litir fá að brjótast fram nema þeir sem skautun ljóss framkallar. Vídeóið í fremsta sal sýnir silfur- bergsglitur í verki Guðmundar frá Miðdal og Guðjóns Samúelssonar í þakhvelfingu anddyris aðalbygg- ingar Háskóla Íslands. Vídeóverkin tvö í innri sal sýna það sem virðist við fyrstu sýn vera nákvæm þrívíddarendurgerð af salnum en við nánari athugun kemur í ljós munur. Mest áberandi er að búið er að skipta út borgarlandslaginu sem er útsýni frá gluggum salarins fyrir útsýni frá námunni á Helgustöðum þaðan sem silfurbergið var numið fyrr á öldum. Vídeóin kallast á og eru sjónræn tilraun listamannanna sjálfra á staðnum og undirstrika notkun silfurbergs í sjónrænum til- raunum vísindamanna fyrr á öldum en í sýningartexta kemur fram að listrannsóknin er unnin í samstarfi við Leó Kristjánsson jarðeðlisfræð- ing og sérfræðing í hlutverki hins íslenska silfurbergs í þróun vísinda og tækni í heiminum. Vídeóin sýna einmitt hið sérstaka tvöfalda ljós- brot íslenska silfurbergsins sem leiddi til ýmissa uppgötvana. Óneitanlega kemur upp í huga gagnrýnið listrannsóknarverk Otob- ang Nkanga um glitursteinefnið mica sem flutt var í stórum stíl frá heimahögum hennar í Namibíu til Evrópu þar sem það var notað til að grípa sólaljósið og endurvarpa birtu guðs af kirkjuturnum álfunnar. Í allri framsetningu og útfærslu í verkum Otobang hefur listrannsókn hennar verið staðsett í stærra sam- tali eftirnýlendufræðanna um hrá- efnisnám, dreifingu og notkun og var það sýnt á söfnum víða um lönd og kom Otobang rækilega á kortið. Nú síðast vann hún til verðlauna á Feneyjatvíæringnum fyrir frumlega greiningu á nýlenduvegferð Murano Feneyjaglersins og þýðingu þess í samtímanum. Upphafning og hrifning Allt sem er til sýnis á Ljósvaka er mjög faglega unnið. Prentað er á efni sem tryggja að ljósmyndirnar endast og þrívíddartæknin í vídeó- unum er tiltölulega nýleg. Það er áhrifamikið og traustvekjandi líkt og orðið vísindi og vekur upp hug- hrif nýsköpunar og andar jafnvel ferskleika. Það er gott að hafa í huga að þetta er ekki innsetning á safni heldur erum við að gægjast inn í listmarkaðinn og hann hefur sína eigin rökvísi og viðmið. Það vantar að staðsetja listrannsóknina og verkin í hinu stóra samtali sem drífur samtímalistumræðuna áfram, líkt og gert var í útfærslu verka og í greiningartexta á verkum Otobang. Texti Ljósvaka einkennist af upp- hafningu og hrifningu á hinum ein- stöku eiginleikum hins séríslenska silfurbergs sem leiddi til uppfinn- inga og vísindaframfara og hversu merkilegt listamönnunum finnst framlag Íslands vera til menningar- sögunnar vegna þessa. Minnst er örstutt á að það hafi verið fyrir til- verknað danskra kaupmanna á 17. öld að silfurbergskristallar hafi komist í hendur á evrópskum vís- indamönnum á sínum tíma en ekki útskýrt frekar. Ekki er farið út í það að greina samfélagslega eða pólitíska merkingu silfurbergsnáms, dreifingar og notkunar eða setja í samhengi við nýlendutíma almennt og staðsetningu íslensku nýlend- unnar í þeirri keðju. Ekki er heldur leitast við að tengja verkið samtím- anum og varpa nýju ljósi á hann á gagn-rýninn hátt. Vísindaframfarir eru ekki til í tómarúmi hlutleysis, hvorki þá né í samtíma. Það er efni hér á ferð sem gefur tilefni til að staðsetja verk Selmu og Sirru í gagn-rýnu samtali alþjóðlegu lista- senunnar. Það kæmi ekki á óvart ef í næsta verki eða framsetningu á verkum úr listrannsókninni yrði tekið stærra skref í þá átt. Fagmennska „Allt sem er til sýnis á Ljósvaka er mjög faglega unnið. Prentað er á efni sem tryggja að ljósmyndirnar endast og þrívíddartæknin í vídeóunum er tiltölulega nýleg.“ BERG Contemporary Ljósvaki – Selma Hreggviðsdóttir og Sirra Sigrún Sigurðardóttir bbbmn Höfundar sýningartexta: Kristján Leósson og Kristína Aðalsteinsdóttir. BERG Contemporary, Klapparstíg 16. Sýningin stendur til 21. mars 2020. Opið þriðjudaga til fimmtudaga 11-17 og laugardaga 13-17. HULDA RÓS GUÐNADÓTTIR MYNDLIST Morgunblaðið/Árni Sæberg Ljósmyndir „Silfurbergskristallinn svífur í miðjum rammanum og lítill eða vart merkjanlegur munur er á stærð kristalla á milli ramma,“ skrifar rýnir. Einstök „Ein mynd sker sig úr og á henni má líta nær fullkomlega pússaða silfurbergskúlu.“ Allt er ljóst!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.