Morgunblaðið - 05.03.2020, Side 52
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MARS 2020
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Komið og skoðið úrvalið
Klassísk gæða
hönnun á
góðu verði
Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is
Tímapantanir í síma 533 1320
Við tökumvel ámóti ykkur í Vegmúla2
Kíktu á hudfegrun.is fyrir nánari upplýsingar.
Meðferðirnar hjá okkur eru framkvæmdar
af sérþjálfuðumhjúkrunarfræðingum.
Laserlyfting er ný byltingarkennd
tækni ímeðferð á línum,
hrukkumog slappri húð.
Laserlyfting
Náttúruleg andlitslyfting
Er ástand húðarinnar verra en
aldurinn gefur til kynna?
Marta María
mm@mbl.is
Þegar Unnur Valdís er spurð að því
hvers vegna flothettan hafi orðið til
segist hún hafa haft löngun til að
vinna með það sem henni var kært,
það er að segja baðmenningu og
vatnsauðlegð þjóðarinnar. Hún vildi
líka skapa upplifanir og færa fólki ró
og jafnvægi. Hún segist þó ekki hafa
vitað mikið um flot þegar hún fór af
stað með hönnunina á flothettunni.
„Ég vissi ekkert um flot, þannig
lagað. Vissi bara að það var ein-
staklega gott og róandi að fá frí frá
togi þyngdaraflsins og vera umvafin
vatninu.“
Var ekkert erfitt að koma flot-
hettunni á markað á sínum tíma?
„Jú, svo sannarlega var það
áskorun að fá fólk til að setja á sig
þetta skrýtna höfuðfat. Til þess að
fá fólk til að koma og prófa var
nauðsyn að efna til hóptíma og
þannig varð Samflot til. Það er
skemmst frá því að segja að fólk
komst fljótt á bragðið með þessa
einföldu en áhrifaríku slökun og
Flothettan og hennar boðskapur
breiddist hratt og örugglega út.“
Hvernig hefur flotið þróast á
þessum tíma?
„Í dag eru skipulögð Samflot í
boði út um allt land og eru mjög vel
sótt. Ætli það sé ekki 300-400
manns sem koma saman í hverri
viku til að fljóta. Fljótandi slök-
unartímar eru líka byrjaðir að líta
dagsins ljós í öðrum löndum eins og
Svíþjóð, Danmörku og Ástralíu.“
Nú hefur Unnur Valdís þróað
nokkuð sem kallast Flotþerapía. En
hver er munurinn á Samfloti og
Flotþerapíu?
„Ólíkt Samflotunum sem eru
nokkuð sjálfbær og eingöngu hugs-
uð sem slökunarstund í vatni, þá
hefur orðið til út frá löngun um að
vinna með flotið á dýpri hátt nokkuð
sem við köllum Flotþerapíu. Í Flot-
þerapíu er boðið upp á öruggt og
kyrrlátt umhverfi og þátttakendur
fá mjúka meðhöndlun á meðan flotið
er. Þak er á þátttökufjölda og tím-
inn gengur út á að skapa aðstæður,
fyrir þann sem þiggur, að gefa al-
gjörlega eftir - sleppa takinu og
svífa inn í djúpa slökun.“
Hvaða áhrif hefur Flotþerapía á
fólk?
„Í Flotþerapíunni erum við að
vinna með heilbrigt orkuflæði lík-
amans með því að skapa rými til að
losa um allar stíflur sem hafa orsak-
ast af spennu eða ójafnvægi. Í kyrrð
og eftirgjöf örvum við náttúrulegan
hæfileika líkamans til að heila sig,
öðlumst kærkomna hvíld og endur-
næringu.“
Hvað er það stórkostlegasta sem
þú sjálf hefur upplifað í gegnum
flotið?
„Það er ekki óalgengt að ég heyri
í eða fái bréf frá fólki sem er að upp-
lifa langþráða og kærkomna hvíld.
Bættur svefn er það sem er oftast
talað um. Einnig getur það gerst í
þessu kyrrðarástandi að það fljóti
upp í vitundina lausn á einhverjum
vandamálum sem fólk hefur verið að
kljást við, það er máttur kyrrð-
arinnar og að leyfa sér að fara inn í
ástand aðgerðarleysis sem veitir
okkur stundum aðgang að svörum
sem eru okkur ekki sýnileg í amsti
dagsins, en búa svo sannarlega í vit-
undinni.“
Á flotið ekki mikið inni?
„Ó, jú! Nú er flotið ekki bara
„fönky“ og skemmtileg slökun og af-
þreying. Nú eru fagaðilar byrjaðir
að vinna meira með flotið og taka
það á dýpra stig og þá oft út frá
þörfum sérhópa. Flotið er frábær
leið til að dýpka og vinna með núvit-
und og hugleiðslu, einnig hefur það
reynst þeim sem glíma við verki
mjög vel. Kroppurinn kann vel að
meta að svífa um í þyngdarleysinu
og þiggja spennulosandi meðhöndl-
un í mýkt vatnsins.“
Hvernig verður 2020 hjá þér?
„Ég sé fram á mjög skemmtilegt
og annasamt ár í að miðla boðskap
vatnsslökunar. Í mars bjóðum við
upp á námskeið í Flotþerapíu, þar
sem við tökum á móti fólki hvaðan-
æva að úr heiminum sem vill læra
að halda utan um vatnsslökunar-
tíma. Þar köfum djúpt inn í vísindi
og heilsufarslegan ávinning vatns-
slökunar. Við höldum áfram að
bjóða upp á Flotþerapíutímana okk-
ar í Mörkinni í Reykjavík, þar sem
fólk getur komið og þegið með-
höndlun á meðan flotið er. Sérstök
Bumbuflot, eða Flotþerapía fyrir
barnshafandi, verða 1-2 x í mánuði.
Við ætlum líka að vera dugleg að
bjóða upp á allskyns heilsubætandi
skemmtilegheit í vatninu í formi við-
burða. Allt þetta er auglýst og
kynnt vel á Facebooksíðu Flot-
hettu.“
Kyrrðarástand
sem fleytir
okkur lengra
Unnur Valdís Kristjánsdóttir hannaði flothettuna
árið 2013. Síðan þá hefur flot-menningin verið að
aukast hérlendis og sækist ákveðinn hópur í að
fljóta í sundlaugum landsins. Það nýjasta er Flot-
þerapía sem er svo miklu meira en bara samflot.
Einstök upplifun Flotþerapía framkallar mjög mikla slökun.
Konan á bak við flothettuna
Unnur Valdís Kristjánsdóttir
hannaði Flothettuna 2013.
Síðan þá hefur flotmenning
vaxið ískyggilega.