Morgunblaðið - 05.03.2020, Page 56

Morgunblaðið - 05.03.2020, Page 56
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MARS 2020 50-80% AFSLÁTTUR EMMA Dúnjakki Áður kr. 15.990.- 50% kr. 7.995.- kr. 7.995.- 50% ERIKDúnjakkiÁður kr. 15.990.- Frí heimsending á icewear.is FÁKAFEN 9 LAUGAVEGUR 91 OUTLET TILBOÐ GILDA EINUNGIS Í ICEWEAR, FÁKAFENI 9, ICEWEAR MAGASÍN, LAUGAVEGI 91 OG Í VEFVERSLUN ICEWEAR.IS Birt með fyrirvara um prentvillur. Vörur geta verið uppseldar. Már Gunnarsson, tónlistarmaður og afreksmaður í sundi, heimsótti hljóðverið hjá Sigga og Loga í Síð- degisþættinum á K100 í vikunni og ræddi um lífið og tónlistina. Barst talið að Ísold, systur Más sem tók þátt í undanúrslitum Söngvakeppninnar fyrir Eurovisi- on sl. laugardag. Aðspurður sagði Már sig dreyma um að taka þátt í Eurovision en hann hefur sjálfur sent um tíu lög í keppnina og hefur reynt að taka þátt síðan hann var í tíunda bekk. Mikið er um að vera í lífi Más um þessar mundir en hann heldur stórtónleika ásamt stórri hljóm- sveit 13. mars næstkomandi og verða þeir haldnir í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ. Hefur sent tíu lög í Söngva- keppnina Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Afreksmaður Már Gunnarsson er einstaklega hæfileikaríkur ungur maður sem hefur ekki látið blinduna stoppa sig í að skara fram úr á ýmsum sviðum. Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is „Ég vissi ekkert hvað maður ætti að gera þannig að ég æfði mig bara aftur og aftur. Ég var bara að vaska upp diska og vélin var tvær mínútur. Ég gat þá gert tvær vélar og gert settið mitt þá,“ sagði Greip- ur Hjaltason, Íslandsmeistari í uppistandi, en hann mætti í hljóð- verið til Sigga Gunnars og Loga Bergmanns í Síðdegisþættinum í vikunni. Greipur vann Íslandsmeist- aratitilinn fyrir viku og hlaut 500 þúsund krónur í verðlaun á mótinu en Siggi og Logi spiluðu brot úr keppninni í þættinum. „Ég kýldi önd í punginn, innan gæsalappa,“ sagði Greipur meðal annars á mótinu og uppskar mikinn hlátur. Spurði hann einnig áhorfendur mótsins: „Hvað þarf marga fem- ínista til að skipta um dekk?“ „Einn. Karlmenn geta líka verið femínistar.“ Sagði Greipur að furðugóð stemning hefði verið á mótinu en á bilinu fimm til sex hundruð manns fylgdust með keppninni. Fer með hlustendur í ferðalag Greipur er enginn nýgræðingur í „íþróttinni“ en hann byrjaði að koma fram á „opnum mæk“- kvöldum á ýmsum börum fyrir um fimm árum. „Það var ekkert fyndið sem ég sagði en þetta var bara svo vel „smo- oth-að““, sagði Greipur. „Ég var ekkert stressaður eða neitt. Það hlógu allir bara. Ef þú ert ekkert stressaður og veist nákvæm- lega hvað þú ert að fara að segja á hverri sekúndu þá hrífst fólkið með þér. Það er ekkert endilega að hlæja að bröndurunum. Það bara fer með þér í eitthvert ferðalag.“ Líkt við Mitch Hedberg Greipur er þekktur fyrir fimm- aurabrandara sína og svokallaða „One-liners“ og sagði að honum hefði oft verið líkt við uppistand- arann Mitch Hedberg sem væri með svipaðan stíl. Greipur sagðist skrifa niður marga gullmola úr hinu starfinu sínu, en ásamt því að starfa sem uppistandari starfar hann á frí- stundaheimili með sex til sjö ára börnum. „Um daginn sagði einn í öðrum bekk, 7 ára, við vin sinn: „Veistu hvað sexy lady“ þýðir?“ Vinur hans segir: „Nei?“ „Það þýðir sexí kona,“ sagði Greipur og hló sínum smitandi hlátri. „Ég skrifa niður alla vitleysuna sem þau segja. Það er alltof fyndið,“ bætti hann við. Ljósmynd/K100 Fyndinn Greipur Hjaltason er þekktur fyrir fimmaurabrandara sína en hann vann titilinn Íslandsmeistari í uppistandi fyrir viku. Ekkert fyndið sem ég sagði Greipur Hjaltason mætti í hljóðverið í Síðdegisþætt- inum á K100 í vikunni en hann vann titilinn Íslands- meistari í uppistandi og hlaut 500.000 krónur í verð- laun á Íslandsmóti í uppistandi fyrir viku. „Hugmyndin með því að stofna og opna Bergið var að hafa einhvern stað sem væri þröskuldarlaus staður fyrir ungt fólk til að fá aðgengi að stuðningi og ráðgjöf og einhvers- konar aðstoð við að finna út hvað það er sem á bjátar,“ sagði Sigurþóra Bergsdóttir, stofn- andi Bergsins, Headspace en hún heimsótti morgunþáttinn Ísland vaknar í vikunni. Berg- ið sem er stuðnings- og ráðgjafarsetur fyrir ungt fólk upp að 25 ára aldri var stofnað í ágúst sl. „Unga fólkið okkar er verulega hæfi- leikaríkt og klárt og þegar þau upplifa að þau fái valdið og stjórnina þá geta þau svo ótrú- lega mikið, svo lengi sem þau finna stuðning- inn.“ Geta svo mikið ef þau fá valdið Ljósmynd/K100 Bergið Sigurþóra Bergsdóttir, stofnandi Bergsins, heimsótti morgunþáttinn Ísland vaknar í vikunni og ræddi um starfsemina.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.