Morgunblaðið - 05.03.2020, Blaðsíða 58
58 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MARS 2020
50 ára Sóley er
Ísfirðingur, fædd þar
og uppalin. Hún er
þroskaþjálfi að mennt
frá Þroskaþjálfaskóla
Íslands og er þroska-
þjálfi í Grunnskólanum
á Ísafirði. Sóley situr í
stjórn CCU-samtakanna.
Maki: Gylfi Þór Gíslason, f. 1963,
lögreglumaður á Ísafirði.
Börn: Veturliði Snær Gylfason, f. 1998,
og Margrét Inga Gylfadóttir, f. 2001.
Foreldrar: Veturliði G. Veturliðason, f.
1944, d. 2002, verkstjóri hjá Ríkis-
skipum og Samskipum, og Sveinfríður
Hávarðardóttir, f. 1946, fyrrverandi
skrifstofumaður. Hún er búsett á
Ísafirði.
Sóley
Veturliðadóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú sérð hvernig þú getur auðveld-
lega öðlast meiri áhrif í vissum aðstæður.
Nú er ekki rétti tíminn til þess að sýna
festu. Vertu þolinmóður.
20. apríl - 20. maí
Naut Erfiðir einstaklingar og stormasöm
sambönd eru tækifæri til þroska. Margir
vilja leggja stein í götu þína, en til allrar
hamingju þarftu ekki að yfirbuga þá til þess
að ná árangri.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það gengur ekki í sambandi við
annan aðila að annar hafi allt eftir sínu
höfði án tillits til hins. Breytingarnar bíða
handan hornsins og það skiptir öllu máli að
standa sig.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú verður hugsanlega beðinn um
að taka á þig aukna ábyrgð. Láttu ekki aðra
stjórna ferðinni heldur fylgdu eigin sann-
færingu.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú ert að brjótast í þeim málum sem
þér finnast þér ofvaxin. Hafðu allan fyr-
irvara á því fólki sem talar í hálfum setn-
ingum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það getur verið gott að fá aðra í lið
með sér þegar verkefnin gerast flókin.
Mundu að hlutirnir gerast ekki sjálfkrafa og
þú þarft að hafa fyrir þeim.
23. sept. - 22. okt.
Vog Hafðu augun opin fyrir tækifærum og
nýttu þér þá fyrirgreiðslu sem þér býðst. Þú
getur lært ýmislegt af öðrum í dag.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það getur haft ófyrirsjánlegar
afleiðingar að stökkva án þess að hafa at-
hugað málavexti. Haltu þig á jörðinni.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Sambönd eru ekki svo flókin
þegar þú veltir þeim fyrir þér. Veltu vanda-
málunum fyrir þér og flýttu þér hægt í leit
að lausn þeirra.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Samskipti við vini þína kunna að
verða sérkennileg í dag. Skipuleggðu starf
þitt svo þér verði sem mest úr verki.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það skiptir öllu máli að halda ró
sinni þegar á móti blæs. Ekki krefjast of
mikils eða búast við of miklu.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Vitsmunalegur þroski er augljóslega
verðugt verkefni, en þroski sálarinnar er
mikilvægari. Leggðu þig fram um að bæta
samskipti því maður er manns gaman.
„Hafðu engar áhyggjur, við reddum
þessu,“ sagði Arngrímur. Ég fór inn í
landhelgi Búlgaríu í flugstjórafötum
Arngríms og þar með var málinu
reddað, vegabréfaeftirlit var ekki
eins strangt og það er í dag.“
á Suðurnesjum og höfuðborgarsvæð-
inu. „Nú hafa elskulegu börnin mín
tekið við fyrirtækinu og gera enn
betur en ég gerði.“
Mikil ævintýri voru í kringum flug-
ið á sínum tíma. „Við komum með
allskonar nýjar hugmyndir í bæði
morgunmat og eins í aðalréttum,
einnig fórum við starfsmenn Glóð-
arinnar í flug og fylgdum þar með
matnum eftir alla leið. Með flugfélag-
inu Atlanta fórum við m.a. til Kúbu,
Bahama-eyja og fleiri staða og þjón-
uðum um borð og sáum til þess að allt
gengi vel fyrir sig.
Mér er minnisstæð sérstaklega ein
ferð en hún var leiguflug með Íslend-
inga til Búlgaríu á sínum tíma. Ég
var búinn að koma fyrir öllum matn-
um um borð í flugvél Atlanta Boeing
747 og var í þann mund að klára og
vélin að fara þegar Arngrímur Jó-
hannsson vinur minn sagði við mig að
ég yrði að koma með, það voru 60
mínútur í brottför, ég rauk heim,
gerði mig kláran og var mættur á
réttum tíma. En um leið og við vorum
komin í 30 þúsund fetin, mundi ég
eftir vegabréfinu, rauk fram í flug-
stjórnarklefann til Arngríms og sagði
honum farir mínar ekki sléttar.
A
xel Jónsson er fæddur 5.
mars 1950 í Hafnarfirði.
Hann ólst upp í hjá
ömmu sinni Þorbjörgu
Einarsdóttur og afa sín-
um Axel Jónssyni, en þau létust 1960
og 1961. Uppeldissystir hans var
Þorgerður Þórhallsdóttir en hún lést
einnig, aðeins 14 ára að aldri, 1960.
Eftir það var hann til skiptis hjá móð-
ur sinni og stjúpföður sínum og föður
sínum og stjúpmóður þangað til hann
fór til náms í matreiðslu hjá Loftleið-
um hf. á Keflavíkurflugvelli 1968.
Axel gekk í Grunnskóla Sand-
gerðis og fór síðan í Flensborgar-
skóla í Hafnarfirði og lauk gagn-
fræðaskólaprófi 1967. Hann
útskrifaðist frá Hótel- og veitinga-
skóla Íslands og lauk námi í mat-
reiðslu 1.12. 1972.
Axel starfaði á Hótel Sögu til 1.6.
1973 og hóf störf sem bryti við Hér-
aðsskólann að Laugarvatni og starf-
aði þar til haustið 1978 og stofnaði þá
Veisluþjónustuna ehf. í Keflavík.
Axel opnaði veitingastaðinn Glóðina
21.4. 1983 og seinna pitsustaðinn
Langbest ásamt því að reka veislu-
þjónustu samhliða, sá m.a. um flug-
mat fyrir flugfélagið Arnarflug og
flugfélagið Atlanta. „Árið 1999 stofna
ég svo Matarlyst-Atlanta ásamt mat-
reiðslumönnunum Magnúsi Þóris-
syni og Rúnari Smárasyni sem
seinna varð að Skólamat ehf. sem ég
rek enn í dag.
Ég hef frá degi eitt í matreiðslu
hlakkað til næsta dags, að fá að elda
góðan mat og þjóna fólki og ávallt
haft að leiðarljósi að gera betur í dag
en í gær. Það voru ekki margir sem
höfðu trú á að veisluþjónusta myndi
ganga í Keflavík á sínum tíma, en
hafi maður trú á einhverju þá er það
hægt. Sagan endurtók sig við stofnun
Skólamatar seinna, þar þurfti maður
aðeins að treysta á sjálfan sig með
því að vera samviskusamur, heið-
arlegur og hafa óbilandi trú á verk-
efninu.“
Með það að leiðarljósi hefur fyrir-
tækið Skólamatur orðið það sem það
er í dag, framleiðir 12.000 þúsund
skólamáltíðir, hátt í 5 þúsund síðdeg-
is nesti ásamt ýmissi annarri þjón-
ustu við tæpa 50 grunn- og leikskóla
Axel var valinn Suðurnesjamaður
ársins árið 2010 af Víkurfréttum og
var fánahyllir Reykjanesbæjar 17.
júní 2017.
„Áhugamál mín eru í dag golf og
ferðalög, bæði innanlands og erlend-
is. En ég byrjaði í golfi árið 2014 eftir
að ég fann að ég var að verða fyrir í
fyrirtækinu og það var gaman að
vinna en það er enn skemmtilegra að
spila golf, og það er framtíðin mín.“
Einnig er Axel í Lions klúbbi Kefla-
víkur og í Oddfellow stúkunni Jóni
forseta í Keflavík.
Fjölskylda
Eiginkona Axels er Þórunn M.
Halldórsdóttir, f. 24.9. 1950, snyrti-
fræðingur og húsmóðir. Foreldrar
hennar voru hjónin Halldór Frið-
riksson húsamálari, f. í Aðalvík 6.5.
1918, d. 16.12. 2009, og Sigríður Vil-
helmsdóttir húsmóðir, f. í Skagafirði
23.8. 1923, d. 7.12. 2016.
Börn Axels og Þórunnar eru 1) Jón
Axelsson, f. 22.7. 1972, fram-
kvæmdastjóri, búsettur í Reykja-
nesbæ. Maki hans er Júlía Jóns-
dóttir, 26.4. 1979; 2) Fanný Sigríður
Axelsdóttir, f. 7.12. 1978, mannauðs-
og samskiptastjóri, búsett í Reykja-
Axel Jónsson veitingamaður – 70 ára
Fjölskyldan Fanný, Þórunn, Axel og Jón við móttöku fyrirmyndarfyrirtækis.
Að elda góðan mat og þjóna fólki
Veitingamaðurinn Axel í stór-
eldhúsi sínu á Iðavöllum 1.
40 ára Kristín er úr
Mosfellsbænum en
býr í Reykjavík. Hún er
MSc. í umhverfis- og
byggingaverkfræði frá
Háskóla Íslands og
vinnur við hljóðráðgjöf
hjá EFLU verkfræði-
stofu.
Maki: Árni Theodór Long, f. 1985, brugg-
meistari hjá Borg brugghúsi.
Börn: Alexander Árni Long, f. 2006, og
Tinna Long, f. 2010.
Foreldrar: Auður Eiríksdóttir, f. 1950, líf-
eindafræðingur og vann hjá Krabba-
meinsfélagi Íslands, og Ómar Runólfs-
son, f. 1947, vann lengst af á
Rannsóknarstofu HÍ á Keldum. Þau eru
búsett á Laugabóli 2 í Mosfellsdal.
Kristín
Ómarsdóttir
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is