Morgunblaðið - 31.03.2020, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MARS 2020
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
Helgi Bjarnason
Freyr Bjarnason
Alexander Kristjánsson
Mesta áskorunin hjá heilbrigðisyf-
irvöldum nú felst í því hvenær og
hvernig skuli aflétta samkomu-
banni og öðrum hömlum sem settar
hafa verið á í samfélaginu vegna
kórónusmitsfaraldursins. Þórólfur
Guðnason sóttvarnarlæknir sagði á
upplýsingafundi almannavarna í
gær að aflétta þurfi aðgerðunum
hægt, annars sé hætta á að farald-
urinn blossi upp aftur.
Núverandi aðgerðir standa fram
yfir páska og yfirvöld hafa sagt
fólki að búa sig undir að þær verði
framlengdar. Nú er verið að skoða
næstu skref í því efni og verður til-
kynnt í lok þessarar viku eða í byrj-
un þeirrar næstu hvað tekur við.
Meira álag á spítalana
Ný spá sem vísindamenn Há-
skóla Íslands, embættis landlæknis
og Landspítalans birtu í gær bendir
til að mun fleiri muni veikjast alvar-
lega en fyrra spálíkan gerði ráð fyr-
ir. Er reiknað með að 120 manns
þurfi innlagnar á spítala en geti
orðið hátt í 200 samkvæmt svart-
sýnni spá. Þegar mesta álagið verð-
ur á heilbrigðiskerfið, fyrir miðjan
apríl, geti 60 sjúklingar þurft að
liggja á spítala á sama tíma og upp í
allt að 100. Á þeim tíma gætu 10
sjúklingar legið á gjörgæslu á sama
tíma eða allt upp í 18.
Þróunin til þessa í fjölda
greindra með kórónusmit er í sam-
ræmi við spálíkanið en álagið á
gjörgæslu er í samræmi við svart-
sýnustu spár. Nú liggja 30 sjúkling-
ar á Landspítalanum af veikindum
vegna kórónusmits. Tíu þeirra eru
á gjörgæslu, þar af sjö í öndunar-
vél.
Fara sjaldnar í búðir
Páll Matthíasson, forstjóri Land-
spítalans, upplýsti í gær að nú væru
18 rúm á gjörgæslu í Fossvogi, öll
helguð kórónuveikinni, en venju-
lega eru þar 6 gjörgæslurými.
Fram kom hjá Páli að sex sjúkling-
ar á Landakoti eru sýktir. Ekki hef-
ur tekist að rekja hvernig smitið
barst inn á deildina. Gerðar hafa
verið ráðstafanir með einangrun og
sóttkví og sérstaklega viðkvæmir
sjúklingar færðir annað. Þórólfur
Guðnason sagði að þótt reynt væri
að draga úr hættu á að veiran bær-
ist inn á hjúkrunarheimli með heim-
sóknarbönnum og öðrum aðgerðum
gæti það alltaf gerst.
Stutt er í páska sem er venjulega
mikil ferðahelgi. Læknarnir á fund-
inum hvöttu fólk eindregið til að
fylgja reglum um sóttkví og sam-
komubann. Mikilvægt sé að gæta
sín næstu vikur og mánuði.
Víðir Reynisson yfirlögreglu-
þjónn hvatti fólk til að fara ekki í
langferðir um páskana og reyna að
halda sig heima. Hann sagði að
verslunarfólk hefði áhyggjur af
álagi um páskana og hvatti hann
fólk til að fara tímanlega í búðir.
Betra væri að kaupa mikið inn og
fara sjaldnar í verslanir en áður.
Fjöldi eftir landshlutum
Óstaðsett 26 1.873
Útlönd 0 0
Austurland 5 200
Höfuðborgarsvæði 882 4.623
Suðurnes 47 408
Norðurland vestra 22 396
Norðurland eystra 31 402
Suðurland 110 813
Vestfirðir 4 200
Vesturland 19 321
Smit
Sóttkví
Uppruni smits
Innanlands Erlendis
Óþekktur
16.484 sýni hafa verið tekin
157 einstaklingar hafa náð bata
5.427 hafa lokið sóttkví
30 eru á sjúkrahúsi
2 einstaklingar eru látnir
10 á gjör-gæslu
945 manns eru í einangrun
Fjöldi staðfestra smita frá 28. febrúar
Upplýsingar eru fengnar af
covid.is og landspitali.is
1.086 smit voru staðfest
í gær kl. 13.00
9.236 manns eru í sóttkví
1.000
800
600
400
200
1.086
28. 29. 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. 11. 12. 13. 14. 15. 16. 17. 18. 19. 20. 21. 22. 23. 24. 25. 26. 27. 28. 29.
64%
10%
27%
Aðgerðum verður aflétt hægt
Tilkynnt verður um næstu skref í samkomubanni fljótlega Ný spá vísindamanna gerir ráð fyrir
meira álagi á gjörgæslu en áður var búist við Nú eru 30 sjúklingar á spítala, þar af 10 á gjörgæslu
Ljósmynd/Lögreglan
Fulltrúar dagsins Kristín S. Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands, veitti upplýsingar í gær ásamt
Páli Matthíassyni, forstjóra Landspítalans, Ölmu D. Möller, Þórólfi Guðnasyni og Víði Reynissyni.
Rauði kross Íslands hefur aukið
fræðslu og stuðning við jað-
arsetta hópa. Kristín S. Hjálm-
týsdóttir framkvæmdastjóri
nefnir skjólstæðinga Frú Ragn-
heiðar og Fröken Ragnheiðar á
Akureyri, Konukots og Vinjar
auk fræðslu og samtala við
flóttafólk. Kristín tók þátt í
upplýsingafundi Almannavarna.
Hún nefnir einnig að heim-
ilislausir séu berskjaldaður hóp-
ur við þessar aðstæður sem og
fólk sem notar vímuefni í æð.
Reynt sé að veita þessum hóp-
um fræðslu um það hvernig þeir
geta varið sig.
Einn hópurinn enn sem Rauði
krossinn hugar sérstaklega að
er fangar og fólk sem nýlokið
hefur afplánum. Loks er haldið
uppi sambandi við fólk sem býr
eitt og hefur lítið tengslanet þar
sem það býr.
Fjöldi símtala í hjálparsímann
1717 hefur fjór- eða fimmfaldast
að undanförnu. Aukningin er
ekki síst vegna þess að hann
tekur yfirfall af heilsugæslu-
símanum 1700.
Styðja jaðar-
setta hópa
RAUÐI KROSS ÍSLANDS
Konum sem gengnar eru 36 vikur eða
meira er ráðlagt að halda sig heima.
Þetta ítrekaði Alma D. Möller land-
læknir á upplýsingafundi almanna-
varna í gær.
Konur sem fara í sjálfskipaða
sóttkví af þessum ástæðum fram að
fæðingu þurfa að fara í ólaunað frí úr
vinnu eða raska fæðingarorlofi. Páll
Matthíasson, forstjóri Landspítalans,
sagði að í félagsmálaráðuneytinu
væri verið að skoða reglur um fæð-
ingarorlof í þessu sambandi.
Til að vernda starfsemina
Meðgöngu- og sængurlegudeild
Landspítala var lokað í fyrradag fyrir
gestakomum nýbakaðra ferða sem
annarra vegna þess að faðir sem þar
var með konu sinni og barni greindist
með kórónuveiruna. Fimm starfs-
menn spítalans voru í kjölfarið sendir
í sóttkví. „Við teljum að til þess að
vernda þessa mikilvægu starfsemi
sem er ekki mjög mannmörg sé mjög
mikilvægt að þrengja að heimsóknum
eins og við höfum gert,“ sagði Páll.
Alma sagði að ráðleggingar til
þungaðra kvenna byggðust á erlend-
um leiðbeiningum. Ekkert benti til
þess að konur á meðgöngu smituðust
frekar eða yrðu veikari en aðrir. Þór-
ólfur Guðnason sóttvarnalæknir
ítrekaði að þessi þessi ráðstöfun væri
einkum gerð til að tryggja að konur
bæru ekki með sér smit þegar þær
kæmu inn á fæðingardeild í fyllingu
tímans.
Páll sagði aðspurður að til tals
hefði komið að banna feðrum að vera
viðstaddir fæðingu barna sinna. Nið-
urstaðan hefði verið sú að stíga ekki
það skref en tók fram að mál tengd
veirunni væru endurskoðuð daglega
með hliðsjón af öryggi sjúklinga.
Komið hefur fram áður að konur
eru beðnar að koma einar í fóstur-
skoðun og aðrar slíkar heimsóknir.
Skoða breytingar
á fæðingarorlofi
Þungaðar konur haldi sig heima
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fæðingardeild Pabbarnir fá áfram
að vera við fæðingu barna sinna.
KÓRÓNUVEIRUFARALDUR