Morgunblaðið - 31.03.2020, Síða 11
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Mikill snjór er um þessar mundir á hálend-
inu og góðar aðstæður vélsleðaferða um fjöll
og dali. Margir hafa verið á faraldsfæti og í
sleðaferðum á sunnanverðu landinu leggja
margir upp frá Lyngdalsheiði og var sú
raunin um helgina. Leið manna liggur þá
gjarnan að Þingvalla- og Laugardalsfjöllum,
að Hlöðufelli og jafnvel inn á Langjökul.
Hvítar hjarnbreiður gera landið allt að einni
braut og leiðin er greið.
Snjóbíll og vélsleðar
„Þetta var dýrðarinnar dagur. Hugurinn
hreinsast á fjöllum og veitir ekki af í ástandi
eins og nú er,“ segir Helgi J. Jóhannsson á
Selfossi sem var í fjallaferð síðastliðinn laug-
ardag með sonum sínum tveimur; Jóhanni
Valgeir og Oddi Heiðari. Farkostir þeirra
voru tveir vélsleðar og lítill snjóbíll af gerð-
inni Snow Track/Master, árgerð 1975. Sá
farkostur var lengi í eigu Landssímans á Eg-
ilsstöðum og seinna björgunarsveita.
„Snjóbíllinn er öflugt tæki, sem kemst um
25 kílómetra á klukkustund. Hélt því í við
breiðdekkjaða jeppa sem oft lentu í fyr-
irstöðum í lausamjöllinni og driftum. Um
helgina var mikill fjöldi fólks á fjöllum, svo
sem við Skjaldbreið og Hrafnabjörgin, og
vonandi fáum við fleiri svona frábæra daga á
næstunni,“ sagði Helgi.
Margir voru á vélsleðum á Mosfellsheið-
inni um helgina. „Ég hef helst af því áhyggj-
ur núna að snjóinn sé allan að taka upp. Von-
andi helst þetta þó eitthvað lengur og
veðurspáin gefur okkur tilefni til þess að
ætla að svo verði. Mér finnast alveg einstök
lífsgæði felast í sleðasportinu,“ sagði Þor-
steinn Halldórsson úr Reykjavík sem með
félögum sínum var á sleða við Skálafell á
laugardaginn.
Snjór með meira móti
„Snjóalög á hálendinu eru nú með meira
móti, þá ekki síst á landinu norðanverðu,“
segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur.
Á sunnanverðu landinu hafi taki snjó sem er
neðan við 300 metra hæðarlínuna tekið upp
nokkuð hratt síðustu daga. Frá miðri líðandi
viku sé spáð frosti víða um landið og snjór
muni því haldast áfram – og norðanlands og
á Vestfjörðum muni bæta í.
Hugurinn hreinsast á fjöllum
Vetrarsportið er í al-
gleymingi Á snjóbíl
og sleða um Þingvalla-
og Laugardalsfjöllin
Hvítar breiður á
hálendi haldast áfram
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Fararskjótar Tveir vélsleðar
og snjóbíllinn sem er
af gerðinni Snow Track/
Master og er árgerð 1975.
Feðgar Oddur Heiðar, til vinstri, og Jóhann Valgeir og Helgi Jóhannsson faðir þeirra fyrir miðju.
Fjallamaður Þorsteinn Halldórsson var á
Mosfellsheiði með nokkrum félögum sínum.
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MARS 2020
SAMNINGAR VIÐ
ÖLL TRYGGINGAFÉLÖG
• Fagleg þjónusta
• Vönduð vinnubrögð
• Frítt tjónamat
Hvaleyrabraut 2, 220 Hafnarfirði | Sími: 547 0330 | hsretting@hsretting.is | hsretting.is
HSRETTING.IS
547 0330
LÁTTU OKKUR
UM MÁLIÐ
• BÍLARÉTTINGAR
• PLASTVIÐGERÐIR
• SPRAUTUN
Hægt er að bóka tjónaskoðun hjá okkur á netinu
Óskar Einarsson, Hrönn Svans-
dóttir og Fanney Tryggvadóttir
hafa undanfarin tvö fimmtudags-
kvöld staðið fyrir tónleikunum
„Hittumst heima“ á Facebook.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía
stendur fyrir tónleikunum en þar
er einnig boðið upp á „andlega nær-
ingu“ eins og það er orðað í frétta-
tilkynningu.
Síðasta fimmtudagskvöld mætti
Páll Rósinkranz sem gestur en kl.
21 nk. fimmtudagskvöld, 2. apríl,
mætir Greta Salóme.
Að sögn Óskars Einarssonar hafa
heimsóknir á síðuna verið um 10
þúsund talsins sem sýnir vel þörfina
sem fólk hefur fyrir afþreyingu
heima í stofu í miðjum kórónu-
veirufaraldri.
Tónleikar Óskar Einarsson fær til sín
gesti heima í stofu á fimmtudagskvöldum.
Hittumst heima á
fimmtudagskvöldum
Hjónin Inga
Björt H. Odd-
steinsdóttir og
Brandur Jón
Guðjónsson á
Selfossi sendu
Stöndum saman
þessa mynd af
kertalukt sem
þau setja út á
hverju kvöldi kl
19. Gera þau
þetta í þakklætisskyni fyrir alla þá
„sem standa vaktina fyrir okkur
hin sem getum verið heima, og eig-
um að vera heima.“ Þau segja ekk-
ert að því að fara út á stétt og
klappa en kertaljósin logi lengur
fram eftir hverju kvöldi.
Kerti á hverju kvöldi
í þakklætisskyni
Lukt hjá Ingu og
Brandi á Selfossi.
Hugarafl stendur fyrir beinu sam-
tali við þjóðina á Facebook-síðu
sinni á föstudögum milli kl. 11 og
12. Yfir þúsund manns hafa skoðað
streymið, segir Auður Axelsdóttir
hjá Hugarafli. Næsta föstudag mun
Bragi Reynir Sæmundsson, sál-
fræðingur Hugarafls, sjá um sam-
talið. Ætlunin með þessu er að bæta
geðheilsu landans nú um stundir.
Hugarafl streymir á
föstudögum kl. 11-12