Morgunblaðið - 31.03.2020, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MARS 2020
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga www.alno.is
lengur. Á þriðja ársfjórðungi í fyrra
námu gjaldeyristekjur í ferðaþjón-
ustu samtals um 169 milljörðum kr.
Neysla erlendra ferðamanna hér á
landi nam um 120 milljörðum kr. á
sama tímabili og tekjur íslenskra
flugfélaga af fargjaldatekjum greidd-
um í erlendri mynt um 49 milljörðum
króna. Tekjurnar á fjórða fjórðungi í
fyrra námu samtals um 88,6 milljörð-
um króna.
Til að setja þessa þróun í samhengi
segir Jón Bjarki að skellurinn af
hvarfi síldarinnar á seinni hluta sjö-
unda áratugarins hafi numið 8-9% af
landsframleiðslu í töpuðum útflutn-
ingstekjum, sem myndi samsvara um
250 milljörðum miðað við landsfram-
leiðslu síðasta árs. „Þá varð hins veg-
ar sáralítill samdráttur í innflutningi
á móti,“ segir Jón.
Vilborg Helga Júlíusdóttir, hag-
fræðingur Samtaka ferðaþjónustunn-
ar, segir aðspurð að áðurnefnd tala,
um 250 milljarðar, sé ekki fjarri lagi.
Samkvæmt hennar áætlun gæti
neysla elendra ferðamanna hér á
landi frá miðjum mars til ágústloka
hafa verið um 208 milljarðar eða um
17% af heildargjaldeyristekjum þjóð-
arinnar. Fjölbreytt neyslu innanlands
hafi verið um 125 milljarðar og far-
gjaldatekjur um 83 milljarðar.
Til samanburðar hafi neysla Ís-
lendinga á ferðalögum erlendis í fyrra
numið um 179 milljörðum kr. Jafn-
framt hafi Íslendingar keypt flugmiða
með erlendum flugfélögum fyrir um
15 milljarða. „Nú þegar ferðabann er
víðs vegar um heiminn er tækifæri
fyrir Íslendinga að ferðast um eigið
land í sumar. Það dregur úr því þunga
höggi sem ferðaþjónustan verður fyr-
ir vegna kórónuveirufaraldursins.“
Útlitið bjart í ársbyrjun
Þá bendir Vilborg á að ferðaárið
2020 hafi litið vel út í byrjun árs. Við-
mælendur hennar í ferðaþjónustu
hafi verið jákvæðir en nú horfi menn
fram á óvissutíma. Það sé jafnframt
mikilvægt að hafa í huga að þetta sé
tímabundið ástand. Þrátt fyrir
þrönga stöðu muni ferðaþjónustan
eins og aðrar atvinnugreinar rísa
undir þessari áskorun.
Skarphéðinn Steinarsson ferða-
málastjóri segir Ferðamálastofu
vinna að útreikningum á áætluðu tapi
ferðaþjónustunnar. Það sé gert út frá
mismunandi sviðsmyndum um fjölda
ferðamanna fram í tímann. Ljóst sé
að höggið verði þyngst yfir sumarið.
Meðal annars komi þá verðmætustu
ferðamennirnir. Þá dvelji þeir lengst
og fari víðast.
„Við erum að reyna að ná utan um
þetta til að sjá hver þróunin geti orðið
í ferðaþjónustunni. Við horfum fram á
algjört tekjuhrun. Það voru engar
tekjur síðari hlutann í mars, engar
tekjur í apríl og mjög óverulegar
tekjur í maí,“ segir Skarphéðinn.
Óvissa sé um framhaldið. Nú síðast
hafi EasyJet greint frá því að flugflot-
anum yrði lagt út maí.
Óvíst um framhaldið
„Það veit enginn hvernig ferða-
þjónustan fer af stað aftur. Hver
verða áhrifin á ferðahegðun? Mun
fólki líða vel með að ferðast til ann-
arra landa í júní eða júlí?“ spyr
Skarphéðinn. Önnur lönd leggi nú
mikla áherslu á ferðalög innanlands í
sumar. Ísland sé hins vegar í þeirri
stöðu að hafa fleiri erlenda ferðamenn
á hvern íbúa en flestar þjóðir. Á hin-
um Norðurlöndunum sé innanlands-
markaðurinn um 50% af ferðaþjón-
ustunni en innan við tíundi hluti á
Íslandi. „Ef það verður 50% sam-
dráttur þarf að fá Íslendinga til að
ferðast fimm sinnum meira en áður
og það er auðvitað útilokað,“ segir
Skarphéðinn. Vísar hann þá til hlut-
falls gistinátta.
Tekjutapið 260 milljarðar
Áætlað tekjutap ferðaþjónustunnar*
Tekjutap í milljörðum kr. frá 15. mars til 31. ágúst eftir ársfjórðungum
259 milljarðar kr. er áætlað heildartekjutap ferðaþjónustunnar á 1.-3. ársfjórðungi
2020 miðað við árið 2019
Tekjur árið 2019** Áætlaðar tekjur 2020***
2019 2020 2019 2020 2019 2020
1. ársfj. (janúar-mars) 2. ársfj. (apríl-júní) 3. ársfj. (júlí-september)
*Tekjur af erlendum ferðamönnum á Íslandi og tekjur íslenskra fl ugfélaga af því að fl ytja erlenda farþegar hvort
sem það er til og frá Íslandi eða annars staðar. **Heimild: Hagstofa Íslands. ***Áætlun Íslandsbanka.
93
ma.kr
119
ma.kr
169
ma.kr
76
ma.kr
Áætlað
tekjutap
-17 Áætlað
tekjutap
-119
46
ma.kr
Áætlað
tekjutap
-123
Tekjufall í ferðaþjónustu frá miðjum mars og út ágúst yrði þjóðarbúinu dýrt
Samsvarar 700 þúsund á hvern landsmann Á móti sparast útgjöld erlendis
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Samkvæmt tölum Hagstofunnar voru
tekjurnar af erlendum ferðamönnum
um 380 milljarðar fyrstu þrjá árs-
fjórðungana í fyrra. Ber þá að hafa í
huga að flugfélagið WOW air var
starfandi til 28. mars.
Sé þessum tekjum deilt niður á
fjölda daga í mánuði má gera ráð fyrir
að tekjur íslenskrar ferðaþjónustu
hafi verið um 250 milljarðar frá 15.
mars til 31. ágúst í fyrra. Er nú útlit
fyrir tekjufall þetta tímabil.
Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræð-
ingur Íslandsbanka, áætlar aðspurð-
ur að tekjutapið geti numið um 260
milljörðum á ársfjórðungunum þrem-
ur miðað við framangreindar forsend-
ur og m.t.t. innbyrðis dreifingar á
fjölda ferðamanna innan hvers árs-
fjórðungs. Þótt séu enn líkur á að ein-
hver hluti háannatímans skili sér í
greininni.
Á móti sparist innflutt kaup á að-
föngum vegna ferðaþjónustu. Ætla
megi að þau geti numið að minnsta
kosti 20-25% af heildartekjum af er-
lendum ferðamönnum. Samkvæmt
því sparast í það minnsta ríflega 60
milljarðar í gjaldeyriskaup.
Það vegur á móti gjaldeyristapinu.
Minni neysla Íslendinga
Enn fremur muni neysla íslenskra
ferðamanna erlendis dragast gríðar-
lega saman sem og innflutningur
vegna neyslu almennt. Þá kunni fjár-
festingar innanlands að skreppa tals-
vert saman.
Ríkissjóður hefur miklar skatt-
tekjur af ferðaþjónustu. Þar á meðal
eru skatttekjur af innflutningi fyrir-
tækja í ferðaþjónustu á ýmsum
vörum. Virðisaukaskattur af neyslu
erlendra ferðamanna hér á landi er
jafnframt verulegur og það gildir líka
um tekjuskatt af launum. Telur Jón
Bjarki einsýnt að þær skatttekjur
hlaupi á tugum milljarða.
Ríkið færi minni skatttekjur
Við þetta bætist að fjárfesting í
ferðaþjónustu verður að líkindum
minni en ella. Með því verður ríkis-
sjóður einnig af skatttekjum.
Áhrifin á ferðaþjónustuna verða
meiri eftir því sem röskunin varir
Morgunblaðið/RAX
Reynisfjara Gríðarlegt tekjufall hefur orðið í ferðaþjónustu í ár.
31. mars 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 139.5 140.16 139.83
Sterlingspund 171.08 171.92 171.5
Kanadadalur 99.13 99.71 99.42
Dönsk króna 20.577 20.697 20.637
Norsk króna 13.275 13.353 13.314
Sænsk króna 13.976 14.058 14.017
Svissn. franki 144.93 145.73 145.33
Japanskt jen 1.2824 1.29 1.2862
SDR 190.55 191.69 191.12
Evra 153.57 154.43 154.0
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 181.0626
Hrávöruverð
Gull 1621.2 ($/únsa)
Ál 1506.0 ($/tonn) LME
Hráolía 26.68 ($/fatið) Brent
● Kvika banki hækkaði um 3,54% í við-
skiptum í Kauphöll í gær. Þá hækkuðu
bréf Eimskipafélagsins um 2,13%. Ice-
landair hækkaði um 1,93%. TM lækkaði
um 5,0% og Eik fasteignafélag um
2,99%. Þá lækkaði Arion banki um
2,61% í viðskiptunum. Úrvalsvísitalan
lækkaði um 0,83% í viðskiptum gær-
dagsins. Hún hefur nú lækkað um
18,45% frá áramótum.
Kvika hækkaði mest en
TM lækkaði mest allra
Hagnaður Íslandshótela nam rúm-
um 1,1 milljarði króna á árinu 2019
samkvæmt nýbirtum ársreikningi.
Dróst hagnaðurinn saman um
22,5% frá fyrra ári. Drógust
rekstrartekjur saman um 585 millj-
ónir. Rekstrarkostnaður dróst
saman yfir sama tímabil um 519
milljónir. Rekstrarkostnaðurinn
lækkaði einkum vegna innleiðingar
IFRS 16 endurskoðunarstaðalsins
en með henni er greidd húsaleiga
færð til lækkunar á leiguskuld og
sem vaxtagjöld í stað gjaldfærslu
áður.
Fjármagnskostnaður jókst þess
vegna mikið og námu hrein fjár-
magnsgjöld 1.125 milljónum, sam-
anborið við 841 milljón árið 2018.
Eignirnar rúmir 50 milljarðar
Eignir Íslandshótela námu 50,4
milljörðum í árslok 2019, sam-
anborið við 39,6 milljarða í árslok
2018. Munar þar mestu um virð-
isbreytingu fasteigna og lóða sem
nam 3,9 milljörðum og því að nú
eru leigueignir bókfærðar bók-
færðar á tæpa 7,3 milljarða en
leiguskuldbindingar Íslandshótela
námu rúmum 7,4 milljörðum um
nýliðin áramót.
Skuldir félagsins jukust um tæpa
8,5 milljarða á árinu 2019. Vegur
þar bókfærð leiguskuldbinding
mestu eða 7,1 milljarði, tekju-
skattsskuldbinding hækkar um 600
milljónir og langtímalán vaxa um
tæpar 400 milljónir. Eigið fé Ís-
landshótela stóð í 19,1 milljarði
árslok og hafði vaxið um 2,3 millj-
arða frá fyrra ári. Eiginfjárhlutfall
reiknast 38% og hafði lækkað um
4,5 prósentur frá fyrra ári.
Með lánalínu við bankann
Í skýrslu stjórnar sem fylgir árs-
reikningi segir að stjórnin fylgist
nú náið með þróun mála vegna
verulegra áhrifa á ferðaþjónustuna
og að unnið sé að mótvæg-
isaðgerðum í rekstri félagsins. Fé-
lagið nýti úrræði ríkisstjórn-
arinnar, hafi tryggt sér lánalínu frá
viðskiptabanka sínum og stjórnin
segir félagið vel í stakk búið til að
takast á við óvissuna. ses@mbl.is
Hagnað-
urinn 1,1
milljarður
Íslandshótel vel
búin undir áfallið