Morgunblaðið - 31.03.2020, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MARS 2020
Glerborg
Mörkinni 4
108 Reykjavík
565 0000
glerborg@glerborg.is
www.glerborg.is
2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG
FÁÐU TILBOÐ
ÞÉR AÐ
KOSTNAÐAR-
LAUSU
Ertu að byggja eða þarf að
endurnýja gamla glerið?
Það skiptir miklu máli að velja einangrunargler sem
reynist vel við íslenskar aðstæður.
Fáið tilboð hjá Glerborg í Mörkinni 4 eða
á heimasíðunni okkar WWW.GLERBORG.IS
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Rúmlega 36.000 manns hafa nú látist
af völdum kórónuveirunnar og hafa
bæði Moskva, höfuðborg Rússlands,
og Lagos, höfuðborg Nígeríu, nú
bæst í hóp stórborga heimsins þar
sem útgöngubann hefur tekið gildi.
Hægt hefur aðeins á fjölgun nýrra
tilfella á Ítalíu og á Spáni, en rúm-
lega 400.000 af þeim rúmlega
766.000 tilfellum sem greinst hafa
eru í ríkjum Evrópu.
Donald Trump Bandaríkjaforseti
og Vladimír Pútín forseti Rússlands
töluðu saman í síma í gær og ræddu
um nánara samstarf í baráttu
ríkjanna gegn kórónuveirunni. Þá
ræddu forsetarnir einnig þá stöðu
sem komin væri upp með sífallandi
heimsmarkaðsverði á hráolíu, sem er
ein helsta útflutningsvara Rússa.
Óvissa um lengd aðgerða
Pútín hvatti samlanda sína í gær
til þess að virða útgöngubannið sem
hófst í gær, en öllum búðum og versl-
unum í Moskvu sem ekki þykja bráð-
nauðsynlegar hefur verið lokað. Þar
á meðal eru bæði veitinga- og kaffi-
hús.
Bannið nær að þessu sinni bara til
Moskvu og nærliggjandi svæða, en
gert er ráð fyrir að það verði fljót-
lega víkkað út til annarra héraða
Rússlands. Pútín tilkynnti í síðustu
viku að allir dagar í þessari viku yrðu
almennir frídagar í Rússlandi og
hvatti fólk til þess að halda sig
heima. Rúmlega 1.800 tilfelli hafa nú
greinst í Rússlandi, og hefur þeim
fjölgað mjög síðustu daga.
Muhammadu Buhari, forseti Níg-
eríu, fyrirskipaði sömuleiðis út-
göngubann í Lagos, stærstu borg
landsins, sem og í höfuðborginni
Abuja, og á það að vera í gildi næstu
tvær vikurnar. 20 milljónir manns
búa í Lagos, en einungis hafa verið
staðfest rúmlega hundrað tilfelli í
landinu. Óttast er hins vegar að far-
aldurinn muni valda miklum usla í
ríkjum Afríku.
Á Ítalíu var tilkynnt um 812
dauðsföll á undanförnum sólarhring
og hafa nú 11.591 dáið af völdum
veirunnar þar í landi. Ítalía varð í
gær annað ríkið á eftir Bandaríkj-
unum til þess að tilkynna um fleiri en
100.000 tilfelli.
Stjórnvöld á Ítalíu ákváðu í gær að
framlengja útgöngubann sitt fram til
páskasunnudags, 12. apríl næstkom-
andi, og vöruðu við því að það gæti
varað í nokkra mánuði enn. Þá fram-
lengdu stjórnvöld í Bandaríkjunum
fyrirmæli sín um 2 metra bil á milli
manna fram til loka apríl.
Sjúkraskipið lagst að bryggju
Sjúkraskip bandaríska sjóhersins,
USNS Comfort, lagðist í gær að
bryggju í New York-höfn. Skipið er
með 1.000 sjúkrarúmum og 12
skurðstofum, auk þess sem í áhöfn
þess eru 1.200 læknar og hjúkrunar-
fræðingar. Bill de Blasio, borgar-
stjóri New York-borgar, fagnaði
komu skipsins, en það mun sinna
fólki sem þarf á gjörgæslu að halda,
en er ekki smitað af kórónuveirunni,
og létta þannig á sjúkrahúsum borg-
arinnar, sem er nú einn helsti mið-
punktur faraldursins.
Meira en 150.000 manns hafa nú
smitast af veirunni í Bandaríkjunum,
þar af eru 66.000 sjúklingar í New
York-borg. 790 dauðsföll hafa verið
skráð í borginni, en óttast er að rétt
tala sé mun hærri.
Útgöngubann í Moskvu
Rúmlega 36.000 manns hafa látist af völdum kórónuveirunnar Meira en
100.000 tilfelli á Ítalíu Sjúkraskipið USNS Comfort komið til New York-borgar
Kórónuveiran
» Samkvæmt tölum Johns
Hopkins-háskólans voru
766.336 tilfelli staðfest kl. 19 í
gærkvöld. 36.873 höfðu þá lát-
ist af völdum veirunnar.
» Í Bandaríkjunum voru
153.246 tilfelli skráð og 2.828
dauðsföll.
» Á Ítalíu voru skráð 101.739
tilfelli og 11.591 dauðsfall.
» 160.001 hefur náð sér.
AFP
Einn yfir Rauðatorg Tómlegt var um að lítast á Rauða torginu í Moskvu eftir að útgöngubann gekk þar í gildi í gær.
Benjamín Net-
anyahu, forsætis-
ráðherra Ísraels,
var settur í
sóttkví í gær eft-
ir að einn af að-
stoðarmönnum
hans greindist
með kórónuveir-
una. Talsmenn
Netanyahu lögðu
áherslu á að
sóttkvíin væri eingöngu var-
úðarráðstöfun, þar sem hann hefði
ekki verið nýlega í návígi við hinn
veika. Um kvöldmatarleytið kom í
ljós að Netanyahu væri ekki veikur.
Netanyahu er nú að reyna að
mynda þjóðstjórn í Ísrael vegna
kórónuveirunnar. Yfirvofandi
dómsmál á hendur honum hefur
flækt stjórnarmyndunarviðræður,
en nær öruggt er talið að Net-
anyahu og Benny Gantz, leiðtogi
bláhvíta bandalagsins, muni ná
saman um stjórn á næstu dögum.
Netanyahu í sóttkví
vegna ótta um smit
Benjamín
Netanyahu
ÍSRAEL
Samfélagsmiðill-
inn Twitter
ákvað í fyrrinótt
að fjarlægja tvö
„tíst“ sem Jair
Bolsonaro, forseti
Brasilíu, hafði
sett á miðilinn,
þar sem hann dró
í efa notagildi
þess að beita
sóttkví í barátt-
unni gegn kórónuveirunni.
Bolsonaro hafði birt fjögur mynd-
bönd af sér þar sem hann gekk um
götur Brasilíuborgar og virti ekki
tilmæli eigin ríkisstjórnar um fjar-
lægð milli fólks og hvatti hann gang-
andi vegfarendur til þess að halda
efnahag landsins gangandi. Tvö af
myndböndunum voru fjarlægð.
Í yfirlýsingu frá Twitter segir að
miðillinn hafi nýlega hert reglur sín-
ar um birtingu efnis sem gangi gegn
opinberum ráðleggingum og gæti
stuðlað að útbreiðslu kórónuveir-
unnar.
Twitter fjarlægir
veirutíst Bolsonaro
Jair
Bolsonaro
BRASILÍA
isútvarpið NRK í síðustu viku. Hann
bætti við að eyjan væri ekki heppi-
legur staður til að verða alvarlega
veikur, þar sem 500 kílómetrar væru
að næsta sjúkrahúsi. Að auki veltur
það á aðstæðum til lendingar og veð-
urfari hvort hægt sé að fara með
þyrlu eða skipi til eyjunnar.
Gert er ráð fyrir að komið verði
með vistir handa mönnunum í vor, og
verða þær skildar eftir á ströndinni
til þess að koma í veg fyrir smit.
Níu Norðmenn eru í einangrun á
Bjarnarey, lítilli eyju í Barentshafi
skammt sunnan Svalbarða, fram á
sumar. Þessi einangrun er þó ekki
vegna kórónuveirunnar, heldur
vinna mennirnir á veðurathugunar-
stöðinni þar, og hafa þeir ekki verið
samvistum við aðra menn síðan í jan-
úar. „Ef kórónuveiran kemur hing-
að, þá smitumst við líklega allir,“
sagði Ragnar Sønstebø, yfirmaður
stöðvarinnar, í viðtali við norska rík-
Níu nær lokaðir af
frá umheiminum
Hafa ekki séð annan mann frá janúar
Ljósmynd/Wikipedia
Bjarnarey Engin föst búseta er á eynni, sem er um 1.700 km frá Íslandi.