Morgunblaðið - 31.03.2020, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MARS 2020
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Korpúlfar Allt félagssstarf á vegum Korpúlfa fellur niður vegna
Kórónaveirufaraldurs nema gönguhópar Korpúlfa, gengið er frá kl.
10:00 mánudaga, frá Borgum, Grafarvogskirkju og í Egilshöll.
Á miðvikudögum og föstudögum kl. 10:00 frá Borgum og inni í
Egilshöll. Hvetjum alla til að halda áfram heilsueflingu og passa upp
á hvert annað með því að hringja hvert í annað og fylgjast vel með á
samfélagsmiðlum takkNorðurbrún 1 Félagsstarfið liggur niðri vegna
COVID-19 smits.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er lokað um óákveðin tíma
vegna Covid-19 smits innanlands
Seltjarnarnes Allt félags og tómstundastarf liggur niðri. Hvetjum
alla til að passa upp á að: hreyfa sig eftir getu, passa upp á næringu
og vökva. Hafa má samband við okkur í gegnum fb. síðuna eldri
borgarar á seltjarnarnesi. Einnig má hringja í Kristínu i síma 8939800.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Iðnaðarmenn
Málarar.
Tökum að okkur alla almenna
málningarvinnu, mjög sangjarnir
í verðum.
Upplýsingar í síma 782-4540 eða
loggildurmalari@gmail.com
Þjónusta
Málningarþjónusta
Upplýsingar í síma 782 6034.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Bílar
Nýr Ford Transit Ambiente L3H2.
Nýja lagið. Til afhendingar strax.
Ódýrasti bíllinn í umboðinu er á
6.290.000,- Þessi er á gömlu gengi á
aðeins 4.947.000,-
Án VSK á 3.970.000,-
www.sparibill.is
Hátúni 6 A – sími 577 3344.
Opið kl. 12–18 virka daga.
Húsviðhald
Tek að mér
ýmiskonar
húsaviðhald
Sótthreinsa húsnæði,
hreinsa þakrennur ofl. ofl.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is
✝ HafsteinnKjartansson
fæddist 19. júní
1968 á Sjúkrahúsi
Akureyrar. Hann
lést á Tenerife 6.
febrúar 2020.
Foreldrar Haf-
steins eru Antonía
Björg Steingríms-
dóttir húsmóðir, f.
15. júlí 1941, og
Kjartan Árni Eiðs-
son skipstjóri, f. 19. ágúst
1938, d. 30. september 1988.
Systkini Hafsteins eru Hall-
grímur Eggert Vébjörnsson
Hilmar Kjartansson læknir,
f. 30. mars 1971. Eiginkona
hans er Svava Kristinsdóttir
heilbrigðisverkfræðingur, f.
26. nóvember 1974. Börn
þeirra eru Birna Líf, Árni
Kristinn, Sólný Inga og Elvar
Steinn.
Valdimar Kjartansson sjó-
maður, f. 28. janúar 1976. Sam-
býliskona hans er Inga Tirone
sjúkraþjálfari, f. 8. apríl 1977.
Dætur þeirra eru Eva María og
Helena Anja.
Ósk Kjartansdóttir hjúkrun-
arfræðingur, f. 3. maí 1983.
Eiginmaður hennar er Ragnar
Th. Atlason bakari, f. 1. nóv-
ember 1978. Börn þeirra eru
Ísak Andri, Arna Sóley og Sara
Margrét.
Útför Hafsteins fór fram frá
Grindavíkurkirkju 26. febrúar
2020.
bílstjóri, f. 18. maí
1963. Sambýlis-
kona Eggerts er
Judith Anna Haas
kennari, f. 7. febr-
úar 1969. Dóttir
Eggerts er Ant-
onía Eggertsdóttir
Maul.
Steingrímur
Eiður Kjartansson
sjómaður, f. 30.
maí 1967. Eigin-
kona hans er Grachille A. Bali-
god, vaktstjóri í Bláa lóninu.
Börn þeirra eru Angela Björg,
Kjartan Árni og Æsa María.
Habbi bróðir er fyrstur okkar
systkina til að sigla inn í nýja til-
vist og víddir sem eru okkur jarð-
arbörnum hulin.Við hugsum með
okkur og vonum innilega að hann
sigli nú á einhverju himinfleyinu
með föður okkar, Kjartani Árna
Eiðssyni, sem einnig lést langt
fyrir aldur fram. Hafsteinn bróð-
ir, eða Habbi eins og hann var
alla jafna kallaður, var strax í
æsku afskaplega orkumikill og
lifandi einstaklingur svo sumum
þótti nóg um á köflum. Og þá ekki
síst okkar ástkæru foreldrum.
Hann hefði trúlega fengið ein-
hverjar greiningar nútildags en á
þeim tíma kallaðist þetta bara að
vera orkumikið barn, óþekktar-
ormur eða eitthvað álíka. Eftir að
hafa slitið barnskónum á Akur-
eyri flutti fjölskyldan til Grinda-
víkur, þar sem Habbi kláraði
grunnskólann og fór síðan að
stunda sjóinn með föður okkar.
Habbi var umtalaður verkmaður
og dugnaðarforkur hvar sem
hann var í plássi. Ófáir skips-
félagar og vinir hans hafa sagt að
fáir hafi verið jafn duglegir í
vinnu og hann og það eltist aldrei
af honum. Ávallt var hann dug-
legur í vinnu hvar sem hann var,
hvort sem það var til sjós eða
seinna meira í garðaþjónustu og
öðrum störfum.
Habbi varð fíkninni snemma
að bráð og átti hún eftir að taka
mörg ár af lífi Habba. En eitt-
hvað í hans innri manni gerði það
að verkum að hann játaði sig
aldrei sigraðan. Hann tók á sig
brotsjói og áföll trekk í trekk en
fór ávallt aftur í meðferð eftir
meðferð og sótti AA-fundi þar
sem margt gott fólk hjálpaði hon-
um og leiðbeindi og styrkti hann í
því að vinna bug á fíkninni. Einn-
ig átti hann alltaf athvarf hjá
móður okkar, sem hann gat ávallt
leitað til og fengið góðan stuðn-
ing, ást og umhyggju. Þrátt fyrir
að mörgu leyti erfitt lífshlaup var
Habbi bróðir alltaf jákvæður,
glaðlegur og góður maður. Aldrei
reyndist hann okkur systkinum
illa þegar á bjátaði og ávallt var
hann ástríkur, glaðlegur og góð-
ur vinur þegar hann var edrú.
Þegar við hugsum til baka er
okkur kannski enn betur ljóst en
áður hvaða mannkosti Habbi
hafði. Hjartahlýr, gjafmildur,
barngóður, glaðlyndur, galsa-
samur, einlægur og kærleiksrík-
ur. Jafnframt höfum við fengið að
heyra margar fallegar sögur frá
félögum úr AA samtökunum um
óþrjótandi hjálpsemi Habba til að
hjálpa öðrum við að vinna sig úr
fíkninni og ná tökum á lífi sínu.
Hann vann í því að vera með sum-
armót fyrir AA-félaga. Fór á
meðferðarheimili, fangelsi og víð-
ar til að tala um reynslu sína. En
að sjálfsögðu fékk hann líka hjálp
frá mörgum góðum AA-félögum
og fyrir það viljum við systkinin
þakka. AA samtökin voru einnig
hans fjölskylda og allt það góða
fólk sem hann þekkti þar. Habbi
bróðir var að mörgu leyti skýja-
glópur. Hann gekk með háleitar
vonir og óskir í brjósti. Og satt
best að segja hafði hann einurð
og dug til að láta sumar þeirra
rætast. Það lá honum þungt á
hjarta að gera upp við fortíðina
og misgjörðirnar, hverjar sem
þær voru. Hann gekk fram í því
að hreinsa upp gamlar syndir og
skuldir gagnvart samfélaginu og
samferðafólki sínu og var komin
með hreint mannorð þegar hann
lést. Það var honum mjög um-
hugað og mikilvægt.
Habbi kunni vel við sig í sól og
hita og var búinn að fara ófáar
ferðir til Tenerife, Kanarí og
hvað allar þessar suðrænu eyjar
heita og ósjaldan bauð hann móð-
ur sinni með sem hann elskaði og
virti umfram allt annað og vildi
þakka henni þá ástúð og stuðning
sem hann fékk alltaf hjá henni á
erfiðum tímum.
Habbi bróðir var búinn að vera
edrú í ein sjö ár núna undir það
síðasta og eðlilega afskaplega
glaður og ánægður með það og þá
ekki síður við hin í fjölskyldunni
og allir hans AA-vinir. Við vorum
mjög stolt af honum. Hann varð
bráðkvaddur á Tenerife í sól og
hita umvafinn góðum vinum og
félögum. Við systkinin erum ekk-
ert endilega öll forlagatrúar en
eitthvað segir okkur að Habbi
hafi fundið eitthvað á sér varð-
andi það að hann væri að fara.
Ólíkt honum var hann búinn að
hringja í okkur öll 2-3 dögum fyr-
ir andlátið og gefa sér góðan tíma
til að tala við okkur um lífið og til-
veruna og hvað allt væri nú gott
og ljúft. Hver veit? Það er svo
margt sem við skiljum ekki. En
eitt er víst, að leiðir okkar liggja
saman aftur seinna meir og þá
fáum við vonandi að sigla á því
sama himinfleyi sem Habbi bróð-
ir og faðir okkar Kjartan Árni
gera. Þegar börn okkar systkina
voru spurð hver væri þeirra
sterkasta minning um Habba
svöruðu þau öll eins: Alltaf bros-
andi, hávær, glaðvær, gjafmildur
og gaf okkur hlý tröllaknús. Sá
sem skapar sér slík eftirmæli og
slíka minningu er maður með
hjarta úr gulli.
Við skulum sól
sömu báðir
hinsta sinnit
við haf líta.
Létt man þá leið
þeim ljósi móti
vini studdur
af veröld flýr.
(Jónas Hallgrímsson)
Við elskum þig ávallt, þín
systkini og móðir,
Hallgrímur, Steingrímur,
Hilmar, Valdimar og Ósk.
Miðvikudaginn 26. febrúar síð-
astliðinn var borinn til grafar frá
Grindavíkurkirkju kær vinur,
Hafsteinn Kjartansson, kallaður
Habbi.
Habba kynntist ég fyrst fyrir
um sjö árum þegar hann var enn
eina ferðina að endurreisa sjálfan
sig úr þeirri öskustó sem sumir
samferðamanna okkar enda í,
gangi þeir of hratt inn um gleð-
innar dyr. Þetta var ekki hans
fyrsta endurreisn en í þetta sinn
var það hans síðasta, því frá þeim
tíma og allt til dánardags náði
hann að feta veg þann sem er
ekki aðeins varðaður góðum
áformum, heldur einnig þeim
praktísku og andlegu vörðum
sem vísa veginn til lífs án áfengis.
Þann veg náði Habbi að feta nán-
ast sleitulaust í tíu ár samfleytt.
Habbi var stór í sniðum á alla
kanta, andlega sem líkamlega,
með stórt hjarta sem bjó yfir
meira örlæti og meiri hjálpsemi á
þessum sjö árum en flestum er
gefið á allri lífsleiðinni. Hann var
líka með stóran og kærleiksríkan
huga og var óþreytandi að sinna
því viðfangsefni sem öðrum lán-
sömum mönnum auðnast sem
fara þessa vegferð, að hjálpa og
aðstoða aðra menn sem áttu í
sama basli við raunveruleikann
og hann hafði átt. Það hefði víst
einhvern tíma þótt saga til næsta
bæjar að hann Habbi væri orðinn
fyrirmynd fyrir tugi ef ekki
hundruð manna sem urðu á vegi
hans eftir þann viðsnúning sem
hafði orðið á lífi hans, en það var
hann svo sannarlega.
Þrátt fyrir erfitt lífshlaup hans
áður fyrr, lífshlaup sem var lengi
vel í þeim skúmaskotum sam-
félagsins þar sem myrkur eitt
ríkir, þá er það svo að fáum hef ég
kynnst sem svo einarðlega unnu
að því sem hann, að hreinsa til í
rústum fortíðarinnar eins og
hann gerði eftir að hann snéri af
fyrri braut. Af honum eru til ótal
sögur og sumar hverjar alveg
óborganlegar, þegar hann á sinni
nýju vegferð gerði allt sem í hans
valdi stóð til að hafa uppi á þeim
sem höfðu orðið fyrir honum á
einhvern hátt, eða áttu hjá hon-
um einhverja hluti sem hann
hafði rekist á og kippt með sér
heim á vegferðinni gegnum hina
dimmu dali.
Habbi var sífellt að leggja lið
samtökum og málstað sem unnu
að velferð manna og seldi líklega
fleiri happdrættismiða og merki
fyrir Samhjálp en nokkur annar
hefur gert. Sem bæði sjálfboða-
liði og starfandi húsvörður í Al-
anó-klúbbnum var hann óþreyt-
andi að finna upp á alls lags
fjáröflunarleiðum fyrir klúbbinn
sem alla tíð hefur þurft að dansa
línudans milli tekna og gjalda og
hann lagði mikið af mörkum til
þeirrar starfsemi sem þar fer
fram. Hann skipulagði líka edrú-
útihátíðir um verslunarmanna-
helgar á vegum Gaman-Saman
hópsins og var óþreytandi að
færa mönnum leiðbeiningar um
líf án áfengis á öllum þeim stofn-
unum landsins sem hýsa fólk sem
villst hefur af leið.
Habbi var einn af þessum
sjaldgæfu mönnum sem maður
hittir fyrir á lífsleiðinni og sem
skilja eftir stórt skarð við brott-
hvarfið úr þessari tilveru. Hans
verður sárt saknað af mörgum og
hans verður vel og lengi minnst.
Ég sendi fjölskyldu hans og
öllum hans mörgu vinum mínar
innilegustu samúðarkveðjur.
Þór Saari.
Það er erfitt að trúa því að í
dag kveðjum við kærleiksboltann
og gleðipinnann hann Habba
okkar. Ég og Habbi vorum tvisv-
ar sambýlingar, fyrst á Sporinu
og svo á Krossgötum þegar við
hófum okkar edrúmennsku sam-
an. Ég man eftir því í bæði skipt-
in þegar ég kom inn. Ég var brot-
in, vonlaus og ósátt með hvað ég
var búin að gera við lífið mitt. Í
bæði skiptin var Habbi kominn á
undan mér og tók á móti mér með
viðmóti sem ég byggði mína
edrúmennsku á; þakklæti og
bjartsýni. „Velkomin Sara, nú
mössum við þetta!“ Hann dró
mig með sér í göngutúra, í enda-
lausar strætóferðir á fundi, kom
mér í þjónustu og kenndi mér
umburðarlyndi þegar hann söng
rammfalskur og nefmæltur á
samkomum. Óeigingirni, gleði,
hlátur og vinátta eru þau orð sem
lýsa Habba okkar best. Hann
hjálpaði mér að sjá að allir geta
orðið edrú. Habbi var drifkraft-
urinn í byrjun edrúmennsku
minnar sem gaf mér það líf sem
ég á í dag og reyni ég á hverjum
degi að lifa eftir því sem hann
kenndi mér. Ég votta fjölskyldu
hans samúð mína og ég verð ætíð
þakklát fyrir að hafa átt Habba í
mínu lífi.
Þýtur í laufi, bálið brennur.
Blærinn hvíslar: Sofðu rótt.
Hljóður í sæinn röðull rennur,
roðnar og býður góða nótt.
Vaka þó ennþá vinir saman
varðeldi hjá í fögrum dal.
Lífið er söngur, glaumur, gaman.
Gleðin hún býr í fjallasal.
(Tryggvi Þorsteinsson.)
Sara Karlsdóttir.
Hafsteinn
Kjartansson
Ástkær sonur, stjúpsonur, bróðir
og barnabarn,
SÆVAR INGI KATRÍNARSON,
lést á sjúkrahótelinu við Hringbraut 3. mars.
Minningarathöfn verður síðar.
Katrín Lilja Gunnarsdóttir Gísli R. Sumarliðason
Adam Ingi Høybye Franksson
Vigdís S. Óskarsdóttir
Jóhannes Ingi Hjartarson
og aðrir aðstandendur
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðn-
ir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra
horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr
felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að
hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu-
degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist
áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri
en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru ein-
göngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna.
Minningargreinar