Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.03.2020, Síða 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.03.2020, Síða 29
þegar ég vann í fyrsta skipti með Led Zeppelin árið 1979. Ég var ung- ur að árum og þótti mikið til þeirra kappa koma. Robert Plant kom upp að mér og spurði: „Kanntu að taka Robert Plant-mynd?“ Síðan ýtti hann í bringuna á mér og sagði mjög kvikindislega: „Snöggt.“ Ég var að taka myndir fyrir tímaritið Sounds og tók myndina. Ég var á hinn bóg- inn svo taugaóstyrkur að ég tók myndina hans Plants en ekki mína. Ég fór að hans vilja og útkoman var ákaflega óspennandi. Strax á eftir hugsaði ég með mér: Þetta verður í fyrsta og síðasta skipti sem ég læt segja mér fyrir verkum og við það hef ég staðið. Ég var svo bláeygur að ég gaf eftir. Látið menn aldrei kom- ast upp með þetta, því þá verður portrettið ykkar drepleiðinlegt.“ Fall er fararheill og Halfin átti eftir að mynda Plant og félaga margoft. Í viðtalinu kemur meira að segja fram að hápunktur ferilsins hafi verið þegar fræg mynd hans af Jimmy Page, gítarleikara Zeppelin, var sýnd í þjóðarportrettagalleríinu í Lundúnum. Hundfúlt með Spice Girls Lágpunkturinn var aftur á móti að fylgja Spice Girls eftir á fyrsta tón- leikaferðalagi stúlknabandsins um Bandaríkin. „Bandið var allt í lagi, það voru allir hinir sem voru í kring- um það.“ Halfin á að baki fjölmargar ljós- myndir af málmgoðunum í Metal- lica. „Ég myndaði Metallica fyrst árið 1984. Trymbillinn þeirra, Lars Ul- rich, hringdi án afláts í mig en ég vék mér alltaf undan. Ég hafði séð myndir af honum og sá bara ein- hvern danskan gaur sem leit út eins og fábjáni. Þá hringdi umboðs- maðurinn þeirra, Peter Mensch, og sagði mér að hætta að haga mér eins og drulluháleistur. „Farðu til San Francisco og myndaðu nýja bandið mitt.“ Halfin gegndi því og það varð upp- hafið að samstarfi sem staðið hefur fram á þennan dag. „Eina ástæðan fyrir því að Metallica vildi fá mig var sú að ég var ljósmyndari Iron Maiden. Í þeirra huga skipti Led Zeppelin engu máli en annað gilti um Iron Maiden. Metallica vildi ljós- myndarann þeirra og við höfum unn- ið saman allar götur síðan. Þeir mega eiga að þeir eru mjög meðvit- aðir um það hverjir þeir eru, hvað þeir gera og hvernig þeir vilja láta mynda sig. En á sama tíma eru þeir mjög opnir fyrir því að prófa eitt- hvað nýtt.“ Af öðrum böndum sem Halfin hef- ur unnið með má nefna AC/DC, UFO, Rush, Journey, Black Sabbath, Def Leppard, Mötley Crüe, Van Halen og Kiss. Slappið af og bíðið! Auk þess að taka kynningarmyndir og myndir fyrir plötuumslög hefur Halfin myndað mikið á tónleikum gegnum tíðina. Í viðtalinu kveðst hann iðulega stefna að því að sýna fólki eitthvað sem það annars myndi ekki sjá. Og að búa til mynd sem er í senn óvenjuleg og spennandi; þannig að þeir sem voru á staðnum sjái eitthvað alveg sérstakt. „Margir sem mynda tónleika eiga það til að fara á taugum, sem þýðir að ekkert kemur út úr því. Slappið af og bíðið. Hugsið um það sem þið er- uð að gera – það lærði ég af Fin Costello. Mér finnst ekkert erfitt að ná alvöru myndum á tónleikum, vegna þess að ég veit hvað ég er að gera – hef gert þetta svo lengi. Nú til dags vilja mörg bönd sjálf stjórna öllu og banna fyrir vikið ljósmynd- ara á tónleikum sínum. Eigi að síður finnst þeim allt í lagi, eftir að hafa hent fagmönnunum út, að leyfa hverjum sem er að taka ömurlegar myndir eða taka tónleikana upp á símann sinn.“ Halfin tilgreinir uppáhalds- myndina sína í viðtalinu, en hún er af James Hetfield, söngvara og gítar- leikara Metallica, á tónleikum í Belgíu sumarið 1993, þegar túrnum vegna Svörtu plötunnar var að ljúka. Henni náði Halfin á hárréttu augna- bliki í ljósaskiptunum. Fimm mín- útum síðar hefði verið orðið dimmt og myndin orðið allt önnur. Myndin, sem er svart-hvít í anda plötunnar frægu, þykir lýsa sambandinu sem Metallica á við sína hörðustu aðdá- endur mjög vel en það er engu líkara en að múgurinn vilji toga söngvar- ann niður af sviðinu til sín. Réttnefnd negla! Kristinn Benediktsson tók þessa mynd af Robert Plant í Laugardals- höll löngu áður en samstarf söngvarans og Ross Halfins hófst. Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson 22.3. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 ANDLÁT Jason Rainey, stofnandi og fyrrverandi gítarleikari banda- ríska þrassbandsins Sacred Reich, lést í byrjun vikunnar, 53 ára að aldri. Talið er að banamein hans hafi verið hjartaáfall. Rainey var látinn fara úr bandinu á síðasta ári og var sú skýring gefin að hann réði ekki lengur við verkefnið vegna vanheilsu. Sjálfur virkaði hann ósáttur og sendi sínum gömlu félögum tóninn á samfélagsmiðlum. Frægasta plata Sacred Reich, The American Way, kom út 1990. Gítaristinn Jason Rainey látinn Rainey var 53 ára þegar hann lést. BÓKSALA 11.-17. MARS Listinn er tekinn saman af Eymundsson 1 Bláleiftur Ann Cleeves 2 Hvítt haf Roy Jacobsen 3 Glæpur við fæðingu Trevor Noah 4 Andlitslausa konan Jónína Leósdóttir 5 Ennþá ég Jojo Moyes 6 Litlar konur Louisa May Alcott 7 Brúin yfir Tangagötuna Eiríkur Örn Norðdahl 8 Blekkingaleikur Kristina Ohlsson 9 Fórnarlamb 2117 Jussi Adler-Olsen 10 Konan sem datt upp stigann Inga Dagný Eydal 1 Kötturinn sem átti milljón líf Yoko Sano 2 Dularfulla símahvarfið Brynhildur Þórarinsdóttir 3 Tinni – ferðin til tunglsins Hergé 4 Georg og magnaða mixtúran Roald Dahl 5 Hulduheimar 8 – sykursæta Rosie Banks 6 Orri óstöðvandi – hefnd glæponanna Bjarni Fritzson 7 Náðu forskoti – verkefnabók fyrir 5-6 ára Jo Cambers 8 Geitungurinn 1 Árni Árnason / Halldór Baldursson 9 Leikskólalögin okkar Jón Ólafsson og fleiri 10 Kepler 62 – leyndarmálið Bjørn Sortland Allar bækur Barnabækur Mín fyrsta minning tengd bókum og lestri er pabbi minn að lesa fyrir systur mína og mig Róbinson Krúsó í sumarhúsi sem við áttum á Borgarfirði eystra. Nú um 25 árum seinna man ég enn þá nokkurn veginn um hvað hún er en er eflaust búinn að blanda söguþræð- inum eitthvað sam- an við kvikmyndina Cast Away með Tom Hanks. Sú bók sem hafði mest áhrif á mig fram eftir aldri er Bróðir minn Ljónshjarta. Bókin fæst við líf og dauða og dílar við allskonar siðferðislegar spurningar. Þetta er besta bók Astrid Lindgren og það er ekkert smá. Á meðan ég var mjög óharðn- aður unglingur, og ég var það lengi fram eftir aldri, þá voru Bert bækurnar í uppá- haldi. Stirð sam- skipti Bert við pabba sinn, hálf- vitalegir vinir hans og öll þau vanda- mál sem fylgja því að vera á erf- iðum aldri voru snilldarlega fram- sett í dagbókum hans. Nú þegar ég er orðinn þrítugur og rétt rúmlega og orðinn nær pabba Berts í aldri en honum sjálfum þá strengdi ég áramóta- heit fyrir um ári. Það var ekki frumlegt og líklega hefur þriðji hver Íslendingur á mínum aldri strengt sama heit: Lesa fleiri bæk- ur og horfa minna á sjónvarp. Ég horfði samt rosalega mikið á sjónvarp allt síðasta ár, það er varla sería á Netflix sem ég hef ekki séð og ætli ég hafi ekki náð að horfa á svona tvo beina íþróttaviðburði á dag að með- altali. Einhvern veginn fann ég þó tíma til að lesa nokkrar bækur (spoiler: leslistinn var ekkert mjög frumlegur). Þær sem eru mér efstar í minni eru: Kokkáll – fersk. Skjáskot – sniðug. Sapiens – mjáhh jú jú góð en hæglesin. Um tímann og vatnið – skyldulest- ur. Svartar fjaðrir eftir Davíð Stef- ánsson er lesin nokkrum sinnum á hverju ári. Áttu eftir að lesa hana? Gerðu sjálfum þér þá greiða og farðu inn á einhverja vefverslun (vil ekki bera ábyrgð á því að senda þig út á meðal al- mennings í þessu ástandi) og fjár- festu í henni. Að lokum. Sá höfundur sem ég hef lesið mest síðustu tvö ár og á allar bækurnar eftir er Jónas Reynir Gunnarsson. Skáldsögur hans, Krossfiskar og Millilending, eru báðar góðar en mér finnst ljóðabókin Stór olíuskip hans besta verk. Næst á dagskrá er svo að lesa fleiri Murakami bækur því, jú, öll breytumst við í foreldra okkar. Bless og takk – ekkert snakk. DAGUR SKÍRNIR ER AÐ LESA Fersk, sniðug, hæglesin Dagur Skírnir Óðinsson er hægri bak- vörður og liðs- stjóri UMFB. SÉRÞRIF og almenn ræsting – heildarlausnir Hafðu samband og við gerum fyrir þig þarfagreiningu og tilboð í þjónustu án allra skuldbindinga. Kleppsmýrarvegur 8 | 104 Reykjavík | 581 4000 | solarehf.is | solarehf@solarehf.is ICQC 2020-2022

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.