Morgunblaðið - 02.04.2020, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 2020
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
„Þetta er einhver mikilvægasta heim-
ildasöfnun safnsins frá upphafi. Efnið
snertir alla landsmenn á óvenjulegan
og áþreifanlegan hátt,“ segir Ágúst
Ólafur Georgsson, sérfræðingur
þjóðháttasafns Þjóðminjasafnsins,
um spurningakönnun safnins um lífið
á dögum kórónuveirunnar, en hún er
að fara af stað á netinu. Vonast Ágúst
til að könnunin verði orðin aðgengileg
í lok vikunnar.
Ágúst hvetur til þess að sem flestir
taki þátt í könnuninni og greini frá
reynslu sinni. „Við teljum að það sé
afar mikilvægt að safna upplýsingum
beint frá fólki, um reynslu þess og
upplifanir, á þessum afar sérstæðu
tímum. Ef vel tekst til væntum við
þess að fá einstakt efni í hendurnar
þar sem faraldurinn er í fullum
gangi,“ segir hann.
Ágúst segir að þær frásagnir sem
berast safninu verði varðveittar fyrir
framtíðina í menningarsögulega
gagnagrunninum Sarpi og verði öll-
um opnar, jafnt fræðimönnum sem
öðrum. Nafnleyndar verði gætt eins
og alltaf nema heimildarmaður kjósi
annað.
„Spurningaskránni verður svarað
á netinu,“ segir Ágúst, „og gerum við
okkur vonir um að sem flestir vilji
vera með.“
Samtals eru sextán spurningar í
könnuninni. Meðal annars er spurt
um helstu áhrif faraldursins á fjöl-
skyldu- eða einkalíf þátttakenda,
hvaða áhrif faraldurinn hefur á um-
gengni við annað fólk, tómstundir,
ferðalög, þátttöku í félagsstarfi o.fl.
Spurt er hvort þátttakendur eigi eða
hafi átt ættingja eða vini á sjúkra-
stofnum sem þeir hafi ekki fengið að
heimsækja eftir að faraldurinn
braust út. Ennfremur um áhrif far-
aldursins á andlega líðan. Þá eru
þátttakendur beðnir að lýsa and-
rúmsloftinu í þjóðfélaginu eftir að
faraldurinn fór af stað og forvitnast
er um sögusagnir eða flökkusögur
sem þeir þekkja og tengjast faraldr-
inum.
Nánar í lok vikunnar á vef Þjóð-
minjasafnsins, thjodminjasafn.is.
Morgunblaðið/Gísli Sigurðsson
Könnun Safnið hefur staðið fyrir þjóðháttakönnun í 60 ár, en könnunin nú er hin mikilvægasta frá upphafi.
Könnunin snertir alla þjóðina
„Mikilvægasta heimildasöfnun okkar frá upphafi,“ segir Þjóðminjasafnið
Guðni Einarsson
Ómar Friðriksson
Jóhann Ólafsson
Þórunn Kristjánsdóttir
Mikill ágreiningur er nú innan innan
forystu Alþýðusambands Íslands
(ASÍ) um hvort koma eigi til móts við
atvinnurekendur vegna hækkandi
launakostnaðar í þeim erfiðleikum
sem nú ganga yfir, samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins.
Vilhjálmur Birgisson, formaður
Verkalýðsfélags Akraness, sagði af
sér í gær sem 1. varaforseti ASÍ og
vék úr miðstjórn til að mótmæla því
að miðstjórnin hafnaði tillögu um að
skerða mótframlag atvinnurekenda í
lífeyrissjóði tímabundið. Ragnar Þór
Ingólfsson, formaður VR, sagði sig
úr miðstjórn ASÍ á mánudaginn var
af sömu ástæðu. Harpa Sævarsdótt-
ir, varaformaður VR, sagði svo af sér
sem miðstjórnarmaður í gær. Hún
kvaðst vera sammála þeim Vilhjálmi
og Ragnari um að grípa yrði til að-
gerða. VR er stærsta aðildarfélag
ASÍ.
„Ég harma úrsagnir úr miðstjórn
ASÍ enda er samstaða hreyfinga
launafólks ein af grunnforsendum
þess að staðinn sé vörður um kjör al-
mennings,“ sagði Drífa Snædal, for-
seti ASÍ, á Facebook í gær.
Samkvæmt heimildum eru margir
innan verkalýðshreyfingarinnar
sömu skoðunar og þeir Vilhjálmur
og Ragnar Þór og vilja að komið
verði til móts við atvinnulífið. Launa-
hækkun samkvæmt lífskjarasamn-
ingi sem tók gildi í gær er sögð vera
mjög íþyngjandi nú þegar kreppir
mikið að. Sú hugmynd var m.a. rædd
að framlag atvinnurekenda í lífeyris-
sjóði yrði lækkað tímabundið úr
11,5% í 8% en launahækkunin 1. apr-
íl látin halda sér. Miðstjórn ASÍ
hafnaði þeirri leið í gær.
Höfnun þýðir fleiri uppsagnir
Samtök atvinnulífsins (SA) óskuðu
eftir því við ASÍ að leitað yrði leiða
til að draga tímabundið úr launa-
kostnaði fyrirtækja. Óformlegar við-
ræður fóru fram og sendi SA form-
legt erindi til samninganefndar ASÍ
30. mars. SA fengu það svar í gær að
verkalýðshreyfingin léði ekki máls á
tímabundinni lækkun launakostnað-
ar, að sögn SA.
„Niðurstaða ASÍ veldur SA mikl-
um vonbrigðum. Launahækkunin 1.
apríl stuðlar að fleiri uppsögnum
starfsfólks en annars hefði orðið.
Tímabundin lækkun mótframlags í
lífeyrissjóði hefði mildað verulega
höggið sem fyrirtækin verða fyrir
vegna launahækkunarinnar ofan á
gjörbreytta efnahagsstöðu,“ sagði í
yfirlýsingu SA.
Afarkostir
Gagnrýni SA var svarað í ályktun
miðstjórnar ASÍ í gær sem sagði
hana bæði ranga og villandi. Aldrei
hefði staðið á samninganefnd ASÍ að
eiga samtal við atvinnurekendur og
stjórnvöld um sameiginlegar lausnir.
„Þeim afarkostum sem Samtök at-
vinnulífsins stilltu upp gagnvart
samninganefnd ASÍ var hins vegar
hafnað af miklum meirihluta nefnd-
arinnar eftir breitt samráð við bak-
land innan verkalýðshreyfingarinn-
ar,“ sagði í ályktuninni.
Forystumenn í verkalýðshreyf-
ingunni á almennum markaði eru
sagðir vera tregir til að fresta launa-
hækkunum. Sagt er að margir innan
hreyfingarinnar óttist að opinberir
starfsmenn fáist ekki til að taka þátt
í þeim aðgerðum sem nú hafa verið
ræddar. Það gæti endað með því að
launþegar á almennum markaði
bæru einir byrðarnar.
Mikill ágreiningur innan ASÍ
Fyrsti varaforseti ASÍ sagði af sér Formaður og varaformaður VR hættu í miðstjórn Forseti
ASÍ harmar úrsagnir úr miðstjórn SA óskuðu eftir því að dregið yrði úr launakostnaði fyrirtækja
Aðgerðastjórn almannavarna á
Vestfjörðum hefur í samráði við
sóttvarnalækni og almannavarna-
deild ríkislögreglustjóra ákveðið að
herða aðgerðir gegn kórónuveiru-
smiti í Bolungarvík, Hnífsdal og á
Ísafirði en smit greindist í Bolung-
arvík í vikunni og grunur er um
fleiri.
Sett hefur verið samkomubann
sem miðast við fimm manns og leik-
og grunnskólum í Bolungarvík og á
Ísafirði var lokað í gærmorgun.
Þessi ákvörðun tekur að svo
stöddu ekki til Suðureyrar, Flat-
eyrar, Þingeyrar eða Súðavíkur.
Sex staðfest kórónuveirusmit
hafa komið upp á Vestfjörðum og
151 er í sóttkví.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Bolungarvík Sóttvarnaaðgerðir
hafa verið hertar á Vestfjörðum.
Hertar
aðgerðir á
Vestfjörðum
Stangveiðitímabilið hófst í norðangarra og
frosti í gær en veiði í nokkrum helstu sjó-
birtingsánum, og fáeinum silungsám og
-vötnum til, hefst ætíð 1. apríl. Þrátt fyrir
erfiðar aðstæður reyndu veiðimenn að
setja í fiska og nokkrir vænir tóku.
Urriði sem tók Black Ghost-flugu Jó-
hannesar Hinrikssonar í Ytri-Rangá vakti
athygli; hnausþykkur og þungur. 81 cm á
lengd og vó rúm 15 pund. „Hann negldi
fluguna og viðureignin var mögnuð,“ sagði
Jóhannes í samtali við Sporðaköst á mbl.is.
Á sjóbirtingsslóð í Vestur-Skaftafells-
sýslu var kropp og til að mynda veiddust
stórir og vel haldnir birtingar í Eldvatni í
Meðallandi. Og þá var fjör hjá hjónunum
Stefáni Sigurðssyni og Hörpu Hlín Þórð-
ardóttur sem veiddu í Leirá í Leirársveit
og voru komin með 20 birtinga upp úr
miðjum degi, sá stærsti 82 cm.
Urriðaboltar í kuldanum
Stangveiðitímabilið hófst í gær Kuldi gerði veiðimönn-
um erfitt fyrir Margir birtingar tóku flugu í Leirá
Ágætisbyrjun Jóhannes Hinriksson með urriðann væna sem hann fékk
í Ytri-Rangá, 81 cm og 7,6 kg. Fiskinum var sleppt eftir myndatöku.
Heilsaðu upp á Maríu á blarapril.is
Hún er einhverf og hefur frá ýmsu að segja