Morgunblaðið - 02.04.2020, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 02.04.2020, Qupperneq 12
Skítamórall Hljómsveitin vinsæla sem starfað hefur með hléum í 30 ár. Hljómsveitin Skítamórall fagnar um þessar mundir 30 ára starfsafmæli með nýju lagi og tónleikum í Eldborg- arsal Hörpu sem verða annað kvöld í Hörpu og útvarpað á Rás 2 – og sjón- varpað á RÚV 2. Þetta er forsmekkur tónleika sem áttu að vera 9. maí en hefur nú verið seinkað til 16. júní. Nú ætlar hljómsveitin hins vegar að máta sig við Eldborg í Hörpu – rétt eins og landsmenn fá að kynnast en talið verður í og tónleikarnir hefjst klukkan 21.10. Skítamórall með tónleika Ómar í Eldborg Plokktímabilið 2020 er formlega haf- ið. Minnt er á þetta í fréttatilkynn- ingu að samkomubann sé upplagður tími til að taka til hendi. Plokkinu fylgi frábær útivera og hreyfing um leið og við finnum tilgang með störf- um okkar, sjáum árangur, eflum nú- vitund og gerum umhverfinu og sam- félaginu okkar gott. Plokkið kostar ekkert og krefjist einskis nema rusla- poka. „Alls staðar um landið eru öfl- ugustu plokkararnir okkar þó löngu byrjaðir og hægt er að fylgjast með afrekum þeirra í þágu umhverfisins og samfélagsins, segir í tilkynningu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Plokkdagur Hreint og fagurt land er sameiginlegt verkefni Íslendinga. Umhverfismál Plokk er gott 12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 2020 SMÁRALIND OG LAUGAVEGUR 91 Drifter GV Nú kr. 14.995.- Kr. 29.990.- Silver Nú kr. 9.995.- Kr. 19.990.- 50% 50% Janet og Justin Nú kr. 8.495.- Kr. 16.990.- 50% 50% 50% Mía og Már Nú kr. 7.495.- Kr. 14.990.- Mía og Már Nú kr. 9.495.- 18.990.-Kr. 50% 50% arri Barnastærðir ú kr. 2.495.- 4.990.- Garri Barnastærðir Nú kr. 1.375.- Kr. 2.795.- G N Kr. VORDAGAR Vefverslun icewear.is frí heimsendi ng50% AFSLÁTTUR Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Aðstæður í þjóðfélaginu erudæmalausar, en úr þeimhefur samt spilast ótrú-lega vel og þá ekki síst í skólastarfi,“ segir Andrea Anna Guðjónsdóttir, sérfræðingur hjá Menntamálastofnun. „Við fundum hins vegar þörfina á auknu aðgengi að námsefni á rafrænu formi og er- um nú að svara því kalli. Kenn- arastéttin og skólasamfélagið eiga hrós skilið fyrir hve fljótt þau brugðust við ástandinu. Þá er gam- an að finna og upplifa áhuga og vilja foreldra á því að skólastarfið gengi upp og börnin fái sína fræðslu þó að með breyttum brag sé. Við trúum því að Fræðslugáttin geti verið verkfærakista fyrir kennara, foreldra og börnin en svo er þar líka að finna allskonar fróð- leik sem allir geta nýtt sér.“ Ferðalög og Silfur Egils Viðbragð Menntamálastofn- unar við kórónuveirunni og marg- víslegum afleiðingum hennar var að opna á netinu svonefnda Fræðslugátt, brunn námsefnis sem sækja má í núna þegar skólastarf í landinu er miklum takmörkunum háð. Öðru fremur er vefurinn fyrir kennara en foreldrar og nemendur eiga líka að geta fundið þar efni sem hentað getur fyrir heimanám og verkefni daglegs lífs á meðan samkomubann varir. Á vefnum er að finna rafrænt námsefni Menntamálastofnunar. Opnað hefur verið fyrir fræðslu- myndir og má þar meðal annars nefna Ferðalok sem er heimilda- þáttaröð um Íslendingasögurnar og sannleiksgildi þeirra frá sjón- arhóli fornleifafræði og bók- mennta. Farið er yfir valda atburði úr Íslendingasögunum og þeir tengdir við fornminjar og sam- félag. Í einum þættinum segir með- al annars frá silfri Egils Skalla- grímssonar, sem svo margir hafa leitað að eins og sögur er um frá fyrri öldum. Að auki er Egilssögu að finna á rafbókarformi á fræðslu- gáttinni. Þá hefur mikið kapp verið lagt í að setja inn rafbækur og fræðsluefni sem áður var á læstu svæði. Einnig er aðgengilegt ým- islegt hljóðefni sem áður var ein- göngu á læstu svæði fyrir kennara. Þá hafa erlend forlög heimilað birt- ingu á ýmsu efni sem áður var ekki aðgengilegt. Skila þekkingu og reynslu „Já, ég trúi því að skólastarf í landinu muni breytast talsvert því ýmsar ráðstafanir sem gripið hefur verið til undanfarið vegna kórónu- faraldursins skilar okkur bæði þekkingu og reynslu,“ segir Andr- ea Anna. „Ég get séð fyrir mér að kennarar nýti sér námsefni á fjöl- breyttari máta – og að samþætting námsgreina aukist svo sem í sam- félagsfögum og tungumálum og svo kannski í náttúrufræði, stærðfræði og íslensku. Hér hjá Menntamála- stofnun er námsefni unnið í sam- ræmi við aðalnámskrá og leitað hugmynda víða frá svo sem hjá kennurum um hvernig efnið skuli vera. Í náinni framtíð finnst mér hins vegar sennilegt að kennarar muni fara mun frjálsari leiðir en tíðkast hefur hingað til við að miðla efni til nemenda og tileinki sér fjöl- breyttari aðferðir við kennsluna.“ Skóli er samfélag Samskipti í skólastarfi yfir netið hafa alltaf verið að aukast og þau munu aukast að fenginni reynslu nú, segir Andrea Anna, þó svo að aldrei komi neitt í staðinn fyrir að nemendur mæti á morgn- ana, hitti kennarann sinn og önnur börn og eigi jákvæð og lifandi sam- skipti, því eins og segir í Háva- málum er maður manns gaman. „Skóli er öðru fremur sam- félag – ekki hús. Starfið í skólunum hefur líka breyst í samræmi við að fjölskyldugerðir eru aðrar og fjöl- breyttari nú en var fyrr á árum. Bakgrunnur fólks er fjölbreyttari, skólar eru án aðgreiningar og nem- endur eru mjög mismunandi á vegi staddir. Mestu skiptir samt að við missum aldrei trúna á getu þeirra til að læra, heldur sköpum hverjum og einum skilyrði við hæfi og að- stæður til að afla sér þekkingar. Slíkt er enda leiðarljós okkar með Fræðslugáttinni.“ Fræðslugátt opnuð á tíma veirunnar Námsefni fyrir alla í boði Menntamálastofnunar. Netlausnir nútímans. Verkfærakista fyrir kennara, foreldra og börnin. Skólastarf mun breytast. Morgunblaðið/Árni Sæberg Mennt Trúum að Fræðslugáttin geti verið verkfærakista fyrir kennara, for- eldra og börnin, segir Andrea Anna Guðjónsdóttir hjá Menntamálastofnun Morgunblaðið/Eggert Börn Skólastarf er með breyttum brag. Framhaldið ætti að skýrast fljót- lega, en flestir hlakka væntanlega til að mæta aftur í skólann og hitta vini. Nú á tímum kórónuveiru og samkomubanns stunda margir úti- veru og í Reykjavík eru margar gönguleiðir, sem eru fjölfarnar þessa dagana. Í Elliðaárdal hefur verið ið- andi líf að undanförnu og þar hefur mátt sjá fjarvinnufólk, skokkara, hundafólk með voffa sína, foreldra með börn sem hafa tekið sér hlé frá heimaskóla og svo mætti áfram telja. Þá eru margir í Fossvogsdal, Heið- mörk og sumir ganga á Úlfarsfell og Esjuna. Önnur áhugaverð svæði eru til dæmis Nauthólsvík, Klambratún, Geldinganes, Rauðavatnssvæðið og nágrenni Reynisvatns í Grafarholti. Þá skokka margir á stígunum sem við ströndina. Landlæknir hefur skilgreint leiðir að vellíðan sem byggjast á niður- stöðum rannsókna á því hvað skiptir mestu máli fyrir vellíðan okkar. Hreyfing er ein af þessum fimm leið- um en útivistarsvæði eru kjörin að nýta til líkamsræktar. Gott göngu- stígakerfi eykur lífsgæði, hvetur til útivistar og stuðlar að bættri lýð- heilsu, segir í frétt frá borginni. Útivist er margra meina bót í innveru kórónutímans Fjarvinnufólk, skokkarar og for- eldrar með börnin sín á ferðinni Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hlaup Hreyfing er mikilvæg, bæði fyrir líkamann en ekki síður sálina.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.