Morgunblaðið - 02.04.2020, Síða 14

Morgunblaðið - 02.04.2020, Síða 14
14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 2020 LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646 Vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Sími 555 3100 www.donna.is Honeywell gæða lofthreinsitæki Hreint loft - betri heilsa Loftmengun er hættuleg heilsu og lífsgæðum. Honeywell lofthreinsitæki eru góð við myglu-gróum, bakteríum, frjókornum, svifryki, lykt og fjarlægir allt að 99,97% af ofnæmisvaldandi efnum. Verð kr. 18.890 Verð kr. 49.920 Verð kr. 35.850Verð kr.15.960 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is V ið erum miklar vinkon- ur við Svana, enda höf- um við fylgst að í tutt- ugu ár,“ segir Bergþóra Þorkels- dóttir sem steig nýlega á bak 24 vetra hryssunni sinni, Svanhildi frá Stuðlum, eftir fimm ára hlé, en hryssan hefur verið í folaldseign. „Nú er hún ekki fylfull svo ég ætla að ríða henni eitthvað í sum- ar. Þetta var stór stund að koma aftur á bak og hryssunni fannst þetta voða gaman. Þessi aldni höfðingi er einn af hestum fortíðar, stórskörungur sem lýtur mann- inum ekki nema hæfilega. Slík hross eru lítið fyrir fimm kílómetra reiðtúra í kringum hesthús, þau fara ekki að slakna fyrr en eftir tíu til fimmtán kílómetra. Þetta er allt í rykkjum og kippum í of stuttum túrum,“ segir Begga og hlær. Svana var tekin inn í hesthús í byrjun nóvember og verður í dekri fram á vor. „Hún er í sæmilegu standi, er fín og flott með sitt sjötta folald sem fer undan í vor. Hún fékk forðum hitasóttina og hefur verið viðkvæm eftir það og fóðrast illa á útigangi, ég hef því alltaf tekið hana snemma inn á haustin. Hún hefur rúmt um sig, fær gott kjarn- fóður að eigin vali og reglubundið bað. Hún er orðin prinsessa sem fær sér meðferð og þá sjáum við nýja hlið á þessari skapstóru meri, hún kann því vel að vera inni og láta dúlla við sig. Hún er alltaf í miklum samskiptum við manninn, hún tjáir sig mikið og fyrir vikið er maður hrifnari af henni. Í gamla daga þegar hún var orðin virkilega reið af því hún fékk ekki að þjóta áfram, þá sneri hún hausnum og beit í ístaðið hjá knapanum. Maður er alveg klár á hvað henni finnst um hlutina, en hún fer samt aldrei gegn manninum.“ Fékk hryssuna óvænt að gjöf Svana var fimm vetra þegar Begga eignaðist hana fyrir 20 ár- um. „Ég er alin upp í gamaldags reiðmennsku þar sem var riðið mikið og farið víða. Þegar ég fór til náms í Danmörku þá losaði ég mig við hestana og þegar við fluttum heim vorum við með lítil börn og enginn tími fyrir hestamennsku. Þegar yngri stelpan var orðin stálpuð þá tók ég einn hest á hús sem ég hafði átt, öldung sem átti að fá einn höfðingjavetur. Mað- urinn minn, Auðunn Hermannsson, varð svo hrifinn af þessum öldungi að við fórum að velta fyrir okkur að kaupa reiðhross og fara út í hestamennsku. Þessi meri var þá til sölu og ég var ægilega hrifin af henni. Auðunn keypti hana af Páli Stefánssyni dýralækni og gaf mér hana óvænt. Hún er því fyrsta hross okkar hjóna í okkar sameig- inlegu hestamennsku,“ segir Begga og bætir við að hryssan hafi fengið nafnið Svanhildur hjá Páli, eftir tengdamóður hans, því hryssan fæddist á afmælisdegi hennar. „Við höfum alltaf kallað hana Svönu.“ Spýttist áfram á tölti og skeiði Begga segir að Svana komi úr nokkuð háskalegri ræktun, hún er undan Gáska og móðurfaðir er Ófeigur frá Hvanneyri. „Að henni standa því þó nokkrar sprengjuættir, enda var merin óstjórnlega viljug og mikið afkastahross. Hún var ekki alltaf mjög sveigjanleg og með óþægi- lega stífan vilja, en ég var aldrei hrædd á henni, hún var alltaf örugg með manninn og aldrei nein ótugt í henni. Þegar ég fékk hana í hendurnar hafði ég ekki vit á að halda áfram með tamninguna á henni, heldur spýttist ég áfram um Flóann á tölti og skeiði, og fannst það frábært. Það var ekki mikil yfirvegun í þessari reið, hún var ung og fjörug og ég var til í vitleysu. Hún hefur alltaf verið þessi mikli afkastahest- ur, ganggóð og vígaleg en ekkert endilega góð á hægu. Ég get feng- ið að ráða hvort ég sé stopp eða á ferð og í hvaða átt við förum, en ekki endilega hraðanum,“ segir Begga og hlær og bætir við að Svana sé hæfileikarík svo það end- aði með að þau fóru í að láta hana eiga folöld. „Hún hefur skilað okkur sex fol- öldum og við eigum fjórar merar á lífi undan henni.“ Ruddist yfir viðbjóðs ótæti Begga segir Svönu hafa verið hennar ferðahest og í því hlutverki hafi hún verið algerlega óbilandi. „Eitt sinn reið ég henni og ann- arri meri 70 kílómetra dagleið, þetta var á leið heim í lok hesta- ferðar og allt orðið uppgefið, nema Svana, á henni var engan bilbug að finna, hún átti nóg eftir. Annað eft- irminnilegt atvik er þar sem Auð- unn var á baki henni í rekstri og við vorum að ríða upp Kringlumýri og misstum stóðið þar sem var svo grýtt að það náði enginn að eiga við það. Auðunn hleypti þá Svönu og ég horfði á eftir þeim þar sem hún ruddist yfir þetta viðbjóðs ótæti og náði að fara fram fyrir stóðið. Það var alltaf ofboðslegur hugur í henni og hún var svo fót- viss og mikil týpa. Önnur af mörg- um góðum minningum sem ég á frá stundum okkur Svönu saman er þegar við eitt sinn riðum á Hof- mannaflöt rétt við Þingvelli, þá vorum við nokkur í forreiðinni vel ríðandi og þeir ruku til skiptis hjá okkur reiðskjótarnir. Þá var ég á Svönu á syngjandi ferð á undan stóðinu. Alveg dýrlegar stundir.“ Í líkamsrækt til að ráða við Ein af merunum undan Svönu er tamin og er faðirinn hinn eftirsótti Stáli. „Hún er hæfileikaríkari en mamma hennar og ofboðslega fim, en það er sama sístemið, maður fær fyrst virkilega góða upplifun á henni í reið eftir tíu kílómetra,“ segir Bergþóra og hlær og bætir við að báðar þessar merar hafi haft mikil áhrif á sig. „Þegar ég eignaðist Svönu og fann hversu mikill fjörhestur hún var áttaði ég mig á að maður getur ekki riðið slíkum hesti nema maður sé með gott líkamlegt jafnvægi og góðan styrk í skrokknum. Ég ákvað að fara í líkamsrækt til að vera í nógu góðu formi til að geta riðið henni. Þegar ég svo fór að ríða dóttur hennar, þá var ég orðin eldri og kjarkminni og lét því temja hana mjög vel og fór varlega af stað. Þá fór ég aftur í líkams- rækt með það að markmiði að hafa líkamlega færni til að ráða við hana. Mín líkamsrækt er því af- skaplega praktísk nálgun og þess- ar mæðgur hafa haldið mér hraustri.“ Hestar halda uppi geðheilsu Þegar Begga er spurð að því hvort hún ætli að leyfa Svönu að lifa í nokkur ár í viðbót, svarar hún því játandi. „Ég ætla að eiga hana eitthvað áfram, mér finnst gaman að hafa hana í húsinu, hún er svo skemmti- leg, heilsar manni og ætlast til ákveðinnar þjónustu af manni og nýtur þess að láta dekra við sig. Við erum komin með lítið barna- barn sem er mjög hrifið af hestum og ég treysti Svönu best fyrir barninu, set það stundum inn í stíuna til hennar. Hryssan virðist skynja að það þurfi að fara varlega í kringum lítið barn, hún býr yfir þessari næmni,“ segir Begga og bætir við að þó Svana hafi stund- um tekið á í gegnum tíðina, þá hafi hún átt sína bestu og erfiðustu spretti á henni. „Nú á þessum kórónutímum þegar ekkert má fara eða gera, þá er frábært að hafa hesta á húsi til að geta gleymt sér með. Það held- ur geðheilsunni alveg uppi hjá manni. Hestarnir grípa mann.“ Stórskörungur með óstjórnlegan vilja Ekki er algengt að hross nái 24 ára aldri og séu í það góðu formi að hægt sé að ríða út á þeim. Svana er úr háskalegri ræktun og fagnar háum aldri með því að leyfa eiganda sínum að setjast á bak og taka sprettinn. „Á henni hef ég átt mína bestu og erfiðustu spretti.“ Aldinn höfðingi Svana til í slaginn, á leið í reiðtúr með eiganda sínum Bergþóru fyrir nokkrum dögum. Gróandinn Bergþóra heimsækir Svönu og folald hennar, Rausn, í haganum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.