Morgunblaðið - 02.04.2020, Síða 22
KÓRÓNUVEIRUFARALDUR22
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 2020
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Þetta ár kemst í sögubækurnar,“ skrifaði
Sverrir Arnar Friðþjófsson, læknakandidat
hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands í Borg-
arnesi með myndum sem hann setti á Insta-
gram. Þær sýna samstarfsfólk hans í varn-
arbúningum og við sýnatökur vegna
kórónuveirunnar. Sverrir segir að hann hafi
hlakkað til kandidatsársins og reiknað með að
það yrði töluverð áskorun. Það sem af er hefur
árið farið langt fram úr því sem Sverrir bjóst
við og þar vegur kórónuveirufaraldurinn
þyngst.
Sýni tekin úti á bílastæði
Sverrir sagði að fólk hefði samband við
heilsugæsluna fyndi það til einhverra ein-
kenna. Læknar og hjúkrunarfræðingar tala
við fólkið og ákveða framhaldið. Þeir sem
ástæða þykir til að skoða nánar eru boðaðir til
sýnatöku.
„Þá myndast hér röð af bílum. Við vitum
hverjum við eigum von á og erum búin að und-
irbúa okkur og prenta út límmiða með upplýs-
ingum um hvern og einn,“ sagði Sverrir. Tekið
er stroksýni hjá þeim sem hafa væg einkenni
þar sem þeir sitja í bíl sínum utan við heilsu-
gæsluna. Ef fólk er farið að sýna meiri ein-
kenni og á t.d. í öndunarerfiðleikum er bæði
tekið stroksýni og gerð skoðun. Hún fer fram í
sérstöku einangruðu rými sem var útbúið í
heilsugæslustöðinni. Þar er allt er vandlega
sprittað og hreinsað á milli skoðana.
Landsmenn eru orðnir vanir því að sjá
myndir af heilbrigðisstarfsfólki í sóttvarn-
arbúningum eða hlífðarfatnaði. Sverrir sagði
að það væri ekki sama hvernig menn umgengj-
ust þennan fatnað.
Mikilvægt að fara rétt að
„Það er mjög mikilvægt að fara rétt að. Ekki
síst þegar farið er úr búningnum. Það þarf að
gera það skref fyrir skref svo maður smiti ekki
sjálfan sig hafi maður komið nálægt ein-
staklingi sem er sýktur af COVID-19. Þá er
orðin smithætta af ytra byrði búningsins,“
sagði Sverrir. Hann sagði að það gæti orðið
töluvert heitt inni í gallanum og þá væri kostur
að það hefði verið fremur svalt úti undanfarið
þegar sýnin hafa verið tekin. Búningnum til-
heyra hlífðargrímur sem Sverri þykja ekki
sérlega þægilegar. Innan við þær eru gleraugu
og á getur komið móða. Svo eru grímur fyrir
öndunarfærunum sem geta sigið aðeins. Þá má
ekki láta undan freistingunni að lagfæra grím-
una með hanskaklæddum höndunum. Það er
alveg bannað.
Venjulega eru þrír starfsmenn við sýnatök-
una hverju sinni. Læknir, hjúkrunarfræðingur
og aðstoðarmaður sem oft er hjúkrunarfræð-
ingur, sjúkraliði eða sjúkraflutningamaður.
Sýnin eru svo send til greiningar hjá Landspít-
alanum í Reykjavík. Haft er samband við alla
sem gefa sýni og þeir látnir vita um niður-
stöður greiningarinnar. Ef greinist smit fer í
gang ferli og haft er samband við rakningar-
teymi sem rekur smitið.
Mjög lærdómsríkur tími
„Ég hef lært mjög mikið af þessu,“ sagði
Sverrir. Það hefur verið mjög lærdómsríkt að
vinna með samstarfsfólki sem er allt fagmenn í
fremstu röð, bæði læknar, hjúkrunarfræð-
ingar, sjúkraflutningamenn og aðrar heil-
brigðisstéttir.
„Það er margt að koma í ljós núna,“ sagði
Sverrir. Eitt af því er hvernig kórónuveiru-
faraldurinn hefur haft áhrif á marga aðra en
þá sem hafa smitast. Til dæmis hafa sumir ver-
ið skyndilega gripnir miklum kvíða, fólk sem
hefur ekki glímt við kvíða áður. Þá gott að geta
rætt við það og róað.
Sverrir sagði að það hefði verið mjög lær-
dómsríkt fyrir sig, borgarbúann, að fá vinna í
Borgarnesi og kynnast muninum á borginni og
landsbyggðinni.
„Ég hef mikið verið að velta fyrir mér sér-
námi í heimilislækningum og reynslan af því
að starfa hér hefur frekar styrkt mig í þeim
hugleiðingum en hitt,“ sagði Sverrir.
„Þetta ár kemst í sögubækurnar“
Ungur læknakandidat gefur innsýn í starfið á heilsugæslustöð úti á landi
í kórónuveirufaraldri Faraldurinn hefur áhrif á fleiri en smitaða
Biðin Þeir sem koma í sýnatöku aka inn á
bílastæði á bak við heilsugæslustöðina.
Tilbúin Hjúkrunarfræðingur á leiðinni út með
tilbúið sýnatökuglas og pinna í hendi.
Sýnataka Flestir sitja í bílnum á meðan sýni
eru tekin. Sumir eru kallaðir inn til skoðunar.
Sóttvörn Sérstakt einangrað rými er fyrir
skoðun á þeim sem sýna meiri einkenni.
Ljósmyndir/Sverrir Arnar
Skýrslugerð Hverju sýni fylgir skýrsla um
ástand sýnisgjafans og önnur atriði.
Búningur Hetta, gleraugu, gríma, galli,
svunta og vettlingar til varnar smiti.
Ljósmynd/Tanja Sól Valdimarsdóttir
Læknakandidat Sverrir Arnar Friðjófsson kveðst hafa lært mikið á því að starfa í Borgarnesi.
VIÐ TENGJUMÞIG
KORTA býður uppá örugga greiðsluþjónustu og
hagkvæm uppgjör. Posar, greiðslusíður, áskriftagreiðslur
eða boðgreiðslur. Greiðslumiðlun er okkar fag.
Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík, 558 8000 / korta@korta.is / korta.is