Morgunblaðið - 02.04.2020, Page 29
FRÉTTIR 29Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 2020
OPNUNARTÍMAR UM
PÁSKANA
Páskaopnun allra Vínbúða á vinbudin.is
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU,
AKUREYRI, SELFOSSI OG REYKJANESBÆ
VÍNBÚÐIRNAR
SKÍRDAGUR 9. APRÍL LOKAÐ
FÖSTUDAGURINN LANGI 10. APRÍL LOKAÐ
LAUGARDAGUR 11. APRÍL 11-18
PÁSKADAGUR 12. APRÍL LOKAÐ
ANNAR Í PÁSKUM 13. APRÍL LOKAÐ
MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 11-19
DALVEGUR, SKEIFAN OG SKÚTUVOGUR 10-20
ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 11-18
DALVEGUR, SKEIFAN OG SKÚTUVOGUR 10-20
MÁNUDAGUR 6. APRÍL 11-18
DALVEGUR, SKEIFAN OG SKÚTUVOGUR 10-20
Við hvetjum viðskiptavini til að sýna aðgát
og draga úr smithættu eins og kostur er.
· Verslum utan annatíma
· Munum 2ja metra regluna
· Nýtum snertilausar greiðslur
SÝNUM SKYNSEMI
OG FYRIRHYGGJU
Í dag, fimmtudaginn 2. apríl, hefst
innritun í leikskóla í Reykjavík
vegna plássa sem losna í haust þegar
elstu leikskólabörnin byrja í grunn-
skóla. Foreldrar fá boð um vistun í
gegnum innritunarkerfið Völu.
Við innritun í leikskólana verður
byrjað á börnum sem fædd eru í
febrúar 2019 eða fyrr, þ.e. börn sem
verða orðin 18 mánaða 1. september
nk. ásamt yngri börnum sem njóta
forgangs.
Í frétt á vef borgarinnar kemur
fram að börn verða innrituð í kenni-
töluröð og tekið verði tillit til óska
foreldra um leikskóla. Barnafjöldi sé
mismikill í hverfum borgarinnar og
því þurfi stundum að bjóða for-
eldrum dvöl fyrir barn í öðrum leik-
skóla en þeir hefðu helst kosið.
Áætlað er að börn, sem boðin verður
leikskóladvöl í þessari innritun, geti
hafið leikskólagöngu sína eftir að
grunnskólar hefja störf að hausti og
ráðið hefur verið í lausar stöður leik-
skólanna. sisi@mbl.is
Innritun hefst í
dag í leikskólana
Morgunblaðið/Eggert
Tilboð á tilboðsmarkaði fyrir
greiðslumark mjólkur tóku nær
undantekningarlaust mið af því há-
marksverði sem ráðherra hafði
sett. Mikil ójafnvægi var á mark-
aðnum, bændur vildu kaupa tæpar
10 milljónir lítra en til sölu komu
aðeins 586 þúsund lítrar sem seld-
ust allir á 185 krónur lítrinn sem er
hámarksverðið.
Tilboðsmarkaður atvinnuvega-
ráðuneytisins var sá fyrsti eftir að
ákveðið var að halda kvótakerfinu
áfram. Á undanförnum árum hefur
innlausnarvirði kvóta sem skipt
hefur um hendur verið ákveðið fyr-
irfram og var trappað smám saman
niður. Það var komið niður í um 100
krónur á síðasta ári og hækkar því
verulega nú.
„Þetta hefst nákvæmlega eins og
ég bjóst við,“ segir Arnar Árnason,
formaður Landssambands kúa-
bænda. Ráðherra hefur heimild til
að ákveða að hámarksverð á inn-
lausnarmarkaði verði þrefalt það
verð sem bændur fá fyrir mjólk-
urlítrann hjá mjólkursamlagi. Að
ósk samtakanna var hámarksverð
sett við tvöfalt afurðastöðvaverð,
en ráðherra ákvað að láta það gilda
fyrir þennan eina tilboðsmarkað.
Arnar segir vitað að fleiri vilji
selja kvóta en bíði með það að bjóða
hann til sölu í von um að verðið
hækki á næsta markaði. Þess vegna
sé mikilvægt að hámarksverðið sé
sett til lengri tíma því þá muni
markaðurinn ná jafnvægi með tím-
anum. helgi@mbl.is
Allir buðu
hámarks-
verð í kvóta
Morgunblaðið/Hari
Kýr Margir vilja auka framleiðsluna
en fá ekki að kaupa nema lítið.
Að tillögu Ásmundar Einars Daða-
sonar, félags- og barnamálaráð-
herra, hafa Vinnumálastofnun og
stjórn Tryggingasjóðs sjálfstætt
starfandi einstaklinga gert sam-
komulag við Bændasamtök Íslands
um fjárstuðning vegna afleysinga-
þjónustu fyrir bændur sem veikjast
af kórónuveirunni sem veldur CO-
VID-19-sjúkdómnum og geta af
þeim sökum ekki sinnt bústörfum.
Samkomulagið er afturvirkt til 15.
mars og gildir til og með 31. maí.
Samkvæmt því geta bændur sem
veikjast af COVID-19 ráðið til sín
starfsfólk tímabundið sem verktaka
til að sinna afleysingum, að hámarki
í 14 daga.
Bændur fá
afleysingar