Morgunblaðið - 02.04.2020, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 02.04.2020, Blaðsíða 32
32 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 2020 Draghálsi 14 -16 · Sími 4 12 12 00 · www.isleifur.is Þú finnur gæðin! Skoðaðu úrvalið í netverslun isleifur.is skólum Edinborgar og Glasgow, Gray‘s School of Art, í Aberdeen, og úr Háskóla hálandanna og eyjanna. Koma víðsvegar að úr Skotlandi. Með sýningarskránni fylgja einn- ig stuttar umsagnir fulltrúa val- nefndarinnar. Setja þeir verkin í samhengi við hugmyndir um vald- eflingu kvenna, umhverfismál, al- þjóðavæðingu og önnur mál sem hafa verið ofarlega á baugi í um- ræðunni. Ekki er ósennilegt að á næstu sýningu verði tekin fyrir verk sem endurspegla einangrun, ótta, dauðann og aðrar hliðar kórónu- veirufaraldursins. Tíðarandinn hefur tekið byltur að undanförnu. Eins og úr verki Bacon Þegar verk nýliðanna eru skoðuð má velta fyrir sér fyrirmyndunum. Breski listmálarinn Francis Ba- con stillti viðfangsefnum sínum gjarnan upp í einföldu og einlitu rými. Notaði beinar línur til að sýna hæð, lengd og breidd rýmisins. Síðar tók sporgöngumaður hans Damien Hirst við keflinu og reri á sömu mið en með dýrum, lifandi og dauðum, í glerkössum. Þessi saga rifjast upp þegar gengið er að verkum Hugos Harris á sýningunni í Edinborg. Bacon notaði kjötskrokka sem fyrirmyndir í fyrstu verkum sínum, skapaði þannig óhugnað í sínum sér- staka myndheimi. Harris mótar ofurraunsæjar vaxmyndir af tætt- um manneskjum sem eru rifnar á hol; stundum eru aðeins líkams- hlutar sýndir. Vonlítil barátta mannsins Þetta eru athyglisverð verk. Með- al þeirra er Lean II (sjá myndina hér á síðunni) en þar reynir mað- urinn að halda sér í kalt stálið. Virð- ist eiga sér litla von. Enn hryllilegra er verkið Crouch en það sýnir neðri hluta mannslíkamans rifinn á hol. Saman mynda verkin sterka heild. Með þeim fylgja tvö málverk eftir Harris af manneskjum sem reyna að styðja sig við stól og þrífót. Við sjáum ekki andlitin á þeim. Vitum þó að þau virðast vera að falla. Eitt- hvað er úr lagi gengið. Eitthvað er ósagt. Vaxið kemur hér vel út sem efni- viður. Fleiri listamenn hafa unnið vel úr vaxinu síðustu ár. Má þar nefna Urs Fischer og vaxverk hans Dasha sem sýnt var í Gagosian- galleríinu í London 2018. Maður og náttúra Við einn sýningarvegginn voru fjórtán stór ljósmyndaverk í tvö- faldri röð, sjö og sjö saman, sem mynda heild (sjá efstu myndina á síðu 34 í Morgunblaðinu í dag). Verkið er eftir Ruby Pluhar en ljósmyndirnar eru teknar í náttúru Skotlands og unnar í samvinnu við Ellu, vin og samstarfskonu Pluhar. Unnið er með tengsl manns og nátt- úru sem renna saman í eitt. Einna athyglisverðust er ljósmyndin fyrir miðju í efri röðinni. Myndinni er snúið á hvolf svo úr verður óvenju- legt portrett sem er í senn lands- Skoska akademían sýnir úrvalið  Konunglega skoska listaakademían sýndi nýverið úrval verka eftir nýútskrifaða myndlistarmenn  Listamennirnir vinna með ólíkar frásagnarleiðir en margir hafa náð góðu valdi á listsköpun sinni Morgunblaðið/Baldur Frá 2019 Lean II, verk Hugos Harris, er hluti af vaxmyndaröð listamannsins. Verurnar eru naktar og við það að falla eða klofna. Það skapar spennu. Frá 2019 Verk Harris, Crouch, á þrífætinum, ásamt myndum eftir listamanninn. Spenna einkennir verkin. BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Konunglega listaakademían í Skot- landi sýndi á dögunum úrval af verkum nýliða í myndlist. Sýningin fór að þessu sinni fram 15. febrúar til 11. mars. Valdir voru 57 nýútskrifaðir nemendur úr fimm listaháskólum en útskriftarsýningar í fyrra voru lagðar til grundvallar. Jafnframt voru verk fimm ungra arkitekta sýnd en um þau verður ekki fjallað að þessu sinni. Sýningin var haldin í safni aka- demíunnar en það er í hjarta Edin- borgar við Prinsessustræti. Þegar sýningin var skoðuð í lok febrúar hafði kórónuveiran ekki greinst í Skotlandi. Lífið gekk því sinn vanagang. Athygli vakti að margir nýliðanna hafa náð góðu valdi á list sinni. Skotar hafa átt marga vel mennt- aða listmálara. Akademía þeirra var stofnuð árið 1826, eða um 60 árum eftir að Konunglega listaakademían var stofnuð í London. Fulltrúar allra forma Mikill metnaður er lagður í sýn- inguna. Með henni fylgdi um hundrað síðna sýningarskrá með upplýsingum um nemendurna og hugmyndir þeirra. Boðið er upp á að komast í samband við nýliðana en slíkt er arfur frá gamalli tíð. Margir hafa eigin vefsíður og eru jafnvel komnir á skrið með sölu verka. Sýningarstjóri var að þessu sinni prófessor Lennox Dunbar en hann hafði tvisvar áður komið að valinu. Dunbar skrifar inngang að sýn- ingarskránni og lýsir þar aðferða- fræðinni. Hann hafi kosið að hafa með sér yngra fólk í valnefndinni og svo eldra og reyndara. Hafa jafn- framt bæði fulltrúa akademíunnar og þá sem hafi ekki komið að valinu áður og jafnvægi milli kynjanna. Við valið á listamönnum sé reynt að velja fulltrúa allra myndlistarforma víðsvegar frá Skotlandi. Val sem þetta er auðvitað alltaf huglægt. Á hinn bóginn er löng hefð er fyrir slíkum sýningum í myndlist. Veitt voru verðlaun í hinum ýmsu flokkum en líta má á þau sem hvatn- ingarverðlaun. Endurspeglar tíðarandann Nemendurnir útskrifuðust frá Duncan of Jordanstone College of Art & Design, í Dundee, Listahá-  SJÁ SÍÐU 34
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.