Morgunblaðið - 02.04.2020, Qupperneq 36
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Ferðskrifstofur og talsmenn
þeirra, eiga nú í viðræðum við ráð-
herra ferðamála um lausnir hvað
varðar endurgreiðslur á ferðum til
sinna viðskiptavina, en samkvæmt
Evrópureglugerð um pakkaferðir
ber ferðaskrifstofum að endur-
greiða viðskiptavinum sínum innan
14 daga 100% kostnaðar ef ferð er
aflýst. Þar sem nú liggur fyrir að
engar ferðir verði farnar í apríl er
ljóst að fjöldi manns getur krafið
ferðaskrifstofur um endurgreiðslu
á grunni þessara reglna. Vandi
ferðaskrifstofanna liggur meðal
annars í því að þær eru nú þegar
búnar að greiða sínum birgjum fyr-
irfram, flugfélögum, hótelum
o.s.frv., og því geta endurgreiðslur
með skömmum tímafresti þurrkað
allt lausafé upp í fyrirtækjunum.
Endurgreiðslur frá birgjum geta
tekið mislangan tíma, eða verið
engar, og fer það eftir viðskipta-
samningum við hvern og einn.
Þórunn Reynisdóttir,
framkvæmdastjóri ferðaskrifstof-
unnar Úrvals-Útsýnar, og Ásberg
Jónsson, framkvæmdastjóri Nordic
Visitor, og formaður ferðaskrif-
stofunefndar Samtaka ferðaþjón-
ustunnar, segja Morgunblaðinu að
tíminn sé að renna út. Staðan sé al-
varleg. Nágrannalöndin, eins og
Noregur og Bretland, hafi nú þegar
tekið af skarið í þessum efnum, og
stefna á að lengja endurgreiðslu-
tímabilið upp í allt að fjóra mánuði.
Er það krafa íslensku ferðaskrif-
stofanna að sama leið verði farin
hér á landi, og horft er til 60 daga.
Ásberg segir að reglugerðin sem
kveður á um endugreiðsluna, hafi á
engan hátt gert ráð fyrir þeim að-
stæðum sem nú eru uppi í heim-
inum. Það sé m.a. ástæðan fyrir því
að nokkur lönd, eins og Danmörk,
Noregur, Frakkland, Belgía og
Ítalía, hafi þegar tekið af skarið, og
lengt endurgreiðslutímabilið, þvert
á reglurnar. „Nú eru komin upp
ólög, sem eru bæði neikvæð fyrir
ferðaskrifstofur og neytendur.
Báðir tapa ef ferðaskrifstofan fer í
þrot vegna þessa,“ útskýrir Ás-
berg.
Hann segir að þó að gjaldþrota-
trygging, sem ferðaskrifstofum ber
að hafa lögum samkvæmt, greiði á
endanum tjón viðskiptavina, þá get-
ur slíkt ferli tekið langan tíma. „Við
erum til dæmis með 800 milljóna
króna tryggingu fyrir gjaldþroti,
sem dugar vel í okkar tilfelli. Við
erum hinsvegar komin í var, og
munum komast í gegnum þetta, en
það eru ekki allir í jafn góðri
stöðu.“
Ferðaskrifstofur mikilvægar
Ásberg segir að mikilvægt sé að
halda ferðaskrifstofum alþjóðlega í
rekstri, því alheimsferðaþjónusta
fari að svo stórum hluta fram í
gegnum þær. „Ef þær hætta
rekstri vegna þessa, þá gæti upp-
risa ferðaþjónustunnar eftir farald-
urinn, tekið mun lengri tíma.“
Ásberg segir stöðuna graf-
alvarlega, og nefnir dæmi af tveim-
ur minni ferðaskrifstofum hér á
landi sem standi frammi fyrir
rekstrarerfiðleikum vegna regln-
anna. „Þessir aðilar eru með veð í
eigin fasteign fyrir gjaldþrota-
tryggingunni, þannig að þeir horfa
fram á að missa heimili sín ofan á
allt annað.“
Spurður um stöðuna í hans eigin
rekstri hjá Nordic Visitor segir Ás-
berg að vandamálið sem við blasi sé
að svo til engar bókanir séu að ber-
ast. Fyrirtækið verði því nánast
tekjulaust á meðan. „Það er enginn
ferðamaður að koma hingað til
lands á okkar vegum næstu tvo
mánuðina, og nýjar bókanir fyrir
sumarið hafa hrunið um 80% miðað
við sama tíma í fyrra. Staðan hefur
því miður bara versnað og versnað,
og hún getur eiginlega ekki versnað
meira. Spurningin er bara hve lengi
við verðum á botninum.“
Ásberg segir að lokum að það
muni birta til og ferðþjónustan rísa
upp aftur. Ákveðin hætta sé þó á að
hlutirnir verði ekki komnir í fyrra
horf aftur fyrr en eftir 12-18 mán-
uði. „Yngri markhópar verða fljót-
ari af stað. Markaðssetning á Ís-
landi, lágt gengi krónu og ímynd
Íslands sem öruggur áfangastaður
mun hjálpa.“
Engar bókanir í sumar
Þórunn segir að allar ferðir séu
áfram í sölu hjá Úrvali-Útsýn, en
ferðir í apríl falli niður. „Sumarið er
í sölu, en við erum ekki að sjá nein-
ar bókanir eins og staðan er í dag.
Fólk veit ekki hvernig málin þróast
á áfangastöðum eins og Spáni. Við
erum þakklát þeim viðskiptavinum
sem hafa bókað og greitt inn á ferð-
ir, og hafa gefið okkur leyfi til að
breyta ferðum án breytingagjalds,
og flytja ferðir fram á sumarið.“
Hún segir að viðskiptavinir hafi
sýnt þolinmæði og skilning á að-
stæðum. „Við erum öll í þessu sam-
an,“ ítrekar Þórunn.
Um vanda ferðaskrifstofunnar
vegna stutts endurgreiðslutíma
vegna pakkaferða, þá gagnrýnir
hún að Icelandair, hafi engu svarað,
varðandi hvenær flugfélagið geti
endurgreitt ferðaskrifstofunni það
fé sem Úrval-Útsýn var búið að
reiða af hendi til þeirra. „Okkar
staða er gríðarlega erfið ef Iceland-
air endurgreiðir okkur seint og illa.
Við erum ekki Seðlabanki Íslands,
og þurfum að fá greitt til að geta
endurgreitt okkar viðskiptavinum.
Við þurfum að fá svör frá þeim. Er-
lend flugfélög og birgjar svara þó
okkar fyrirspurnum, og eyða með
því óvissu,“ segir Þórunn, en hún
segir að svörin sem þau fái erlendis
frá séu um 4-10 vikna endur-
greiðslufrest. „Það að íslenska flug-
félagið skuli leyfa sér að svara engu
er alveg forkastanlegt.“
Aðspurð segist Þórunn telja að
um leið og yfirvöld gefi grænt ljós,
hér og í útlöndum, fari ferða-
mennskan hratt af stað á ný.
Vilja 60 daga frest á endurgreiðslum
Tíminn að renna út hjá ferðaskrifstofum Engar ferðir framundan 80% hrun í bókunum í sumar
Gagnrýna Icelalandair fyrir að svara engu Ferðaskrifstofur mikilvægar í upprisu eftir veiru
Morgunblaðið/Ómar
Túristar Hrun hefur orðið í bókunum til Íslands frá sama tíma í fyrra.
Þórunn
Reynisdóttir
Ásberg
Jónsson
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Íslenskur áliðnaður hefur sjaldan
eða aldrei staðið frammi fyrir jafn
krefjandi markaðsaðstæðum. Vegna
kórónuveirufaraldursins hefur eftir-
spurnin hrunið og við það safnast
upp miklar birgðir.
Áður en faraldurinn breiddist út
til Evrópu var mikil umræða um
rekstrarvanda álversins í Straums-
vík. Til skoðunar var að loka álverinu
vegna taprekstrar árum saman.
Pétur Blöndal, framkvæmdastjóri
Samtaka álframleiðenda (Samál),
segir ekki hægt að útiloka að dregið
verði enn frekar úr álframleiðslu á
Íslandi vegna erfiðra aðstæðna.
Erfið glíma við faraldurinn
Álverð hefur hrunið og hefur ekki
verið lægra í fjögur ár.
„Skilyrði á mörkuðum eru gríðar-
lega erfið. Eftirspurn hefur dregist
verulega saman. Þar munar mest um
lokanir og samdrátt í bílafram-
leiðslu, en þar virðist Evrópa ætla að
verða verst úti. Um 36% alls áls sem
notað er í Evrópu fer í samgöngu-
iðnaðinn. Þá fer um 30% í byggingar
og mannvirki. Það gefur augaleið að
rík þörf er áfram fyrir ál í umbúðum,
en í þær fara um 17% áls í Evrópu og
eru þær m.a. notaðar til þess að ein-
angra og lengja endingartíma mat-
væla, drykkja, lyfja og lækninga-
vara. Fyrirtæki sem áframvinna ál
hafa verið að loka í Evrópu og það
hefur lamandi áhrif á eftirspurnina.
Nánast allt það ál sem framleitt er á
Íslandi er flutt á markað á megin-
landi Evrópu og hefur þróunin þar
því veruleg áhrif á framleiðsluna hér
heima. Fyrirséð er að vandamál geti
skapast í aðfangakeðju álvera, t.d.
vegna lokunar fyrirtækja og tak-
markana í flutningum. Mér er þó
ekki kunnugt um að slík vandamál
séu þegar komin upp,“ segir Pétur.
Meiri birgðir en eftir hrunið
Greiningarfyrirtækið CRU áætli
að birgðir af áli muni nema um sex
milljónum tonna, nema gripið verði
til aðgerða til að draga úr fram-
leiðslu. Til samanburðar hafi birgð-
irnar numið um fjórum milljónum
tonna eftir fjármálakreppuna 2008.
„Þá var heimsframleiðslan að vísu
minni, þannig að þetta er svipað
hlutfall. Í grein Financial Times [um
álmarkaðinn í vikunni] var rætt um
lokun álvera í Evrópu og Eyjaálfu og
var Ísland og Nýja-Sjáland nefnt í
því samhengi,“ segir Pétur. Eftir
miklar verðlækkanir að undanförnu
megi ætla að stór hluti álvera í heim-
inum sé rekinn með tapi.
„Greinendur á markaði hafa spáð
frekari lækkunum á álverði. Það
hjálpar þó eitthvað til að aðföng á
borð við súrál hafa einnig lækkað í
verði. Þá hefur gengislækkun krón-
unnar haft jákvæð áhrif á innlendan
kostnað álvera,“ segir Pétur.
Dregið úr framleiðslunni
Vert sé að hafa í huga að sam-
keppnisstaða íslensks áliðnaðar hafi
verið slæm áður en kreppan hófst.
„Á þessum fordæmalausu tímum
er mikilvægt sem aldrei fyrr að
standa vörð um samkeppnishæfni ís-
lensks orkusækins iðnaðar. Það ligg-
ur fyrir að ekki er framleitt á fullum
afköstum í Straumsvík, en Ísal hefur
bent á að orkuverðið sé ekki sam-
keppnishæft. Ekki er heldur fram-
leitt á fullum afköstum hjá Norður-
áli, en samkvæmt upplýsingum frá
fyrirtækinu er það vegna þess að
ekki er í boði orka á samkeppnis-
hæfu verði. Þetta hefur ekki einung-
is í för með sér tap fyrir álverin og
orkufyrirtækin, heldur verður þjóð-
arbúið af miklum gjaldeyristekjum.
Það hlýtur að vera verkefnið að
tryggja orkusæknum iðnaði á Ís-
landi sjálfbærar rekstrarforsendur
til þess að hann haldi áfram að
blómgast hér á landi. Sú staða sem
komin er upp í viðskiptalífinu er for-
dæmalaus og getur haft ófyrirsjáan-
legar afleiðingar. Íslenskur áliðnað-
ur er þar auðvitað ekki undanskilinn
og skapast hefur mikil óvissa á
mörkuðum. Ég hef hins vegar þá trú
að áliðnaður á Íslandi eigi framtíðina
fyrir sér ef rekstrarforsendur eru
sjálfbærar til framtíðar og sam-
keppnishæfnin treyst,“ segir Pétur.
Álverin í miklum vanda
Íslenskur áliðnaður hefur sjaldan verið í jafn þröngri stöðu Álverð hrynur
Samhliða hefur skapast mikið offramboð vegna mikillar röskunar á iðnaði
Markaðsverð á áli í Kauphöllinni í London*
Frá 1. mars 2019 til 31. mars 2020, bandaríkjadalir á tonn
2.000
1.900
1.800
1.700
1.600
1.500
1.400
2019 2020
mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. jan. feb. mars
*Heimild: The London Metal Exchange (LME)
1.890
1.489
36 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 2020
2. apríl 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 141.38 142.06 141.72
Sterlingspund 174.77 175.61 175.19
Kanadadalur 99.37 99.95 99.66
Dönsk króna 20.736 20.858 20.797
Norsk króna 13.517 13.597 13.557
Sænsk króna 13.972 14.054 14.013
Svissn. franki 146.4 147.22 146.81
Japanskt jen 1.3019 1.3095 1.3057
SDR 192.94 194.08 193.51
Evra 154.87 155.73 155.3
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 183.5855
Hrávöruverð
Gull 1604.65 ($/únsa)
Ál 1495.0 ($/tonn) LME
Hráolía 23.0 ($/fatið) Brent
● Fjármála- og efnahagsráðherra hefur
óskað eftir því við Bankasýslu ríkisins að
hún horfi fram hjá kröfum um ávöxtun
og arðgreiðslur á þessu ári. Þá vill ráð-
herra að stofnunin komi þessum skila-
boðum áfram til stjórna fjármálafyr-
irtækja í eigu ríkisins en það er t.a.m.
100% eigandi að Íslandsbanka og á
nærri allt hlutafé Landsbankans.
Eru tilmælin lögð fram að sögn ráðu-
neytisins vegna aðstæðna sem komnar
eru upp vegna útbreiðslu kórónuveir-
unnar.
Samkvæmt eigendastefnu ríkisins fyr-
ir fjármálafyrirtæki segir að Bankasýsl-
unni sé ætlað að hámarka langtíma-
virði fyrir ríkissjóð að teknu tilliti til
áhættu. Á grunni stefnunnar setur
Bankasýslan fram, eftir atvikum, form-
lega eða óformlega arðsemiskröfu á eig-
ið fé viðkomandi fyrirtækja. Í samræmi
við þau tilmæli gera stjórnir fyrirtækj-
anna áætlanir um arðgreiðslur til lengri
tíma og árlegar tillögur um arðgreiðslur
sem lagðar eru fyrir hluthafafundi.
Leggi ekki áherslu á
ávöxtun og arð á árinu
STUTT