Morgunblaðið - 02.04.2020, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 02.04.2020, Qupperneq 46
46 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 2020 Greinarhöfundur hóf störf á vettvangi end- urskoðunar árið 1969 og fékk löggildingu ár- ið 1975. Strax í upphafi var manni gert ljóst að einn mikilvægasti þátt- ur fagsins væri þær áritanir sem við gæfum verkum okkar að lok- inni þeirri vinnu, sem að baki væri. Áritunin væri sá vitnisburður, sem við gæfum viðkomandi reikningsskilum, og frá því mætti engan afslátt gefa. Síðan eru liðnir margir áratugir og að mínu viti hefur mikilvægi árit- ana síst minnkað. Áritanir hafa tekið á sig breytta mynd, verið í sífelldri þróun og endurskoðun. En eitt hefur þó ekki breyst. Það er mikilvægi þessa þáttar, þ.e. áritunarinnar, og það hefur endurtekið komið fram, að þetta sé í reynd mikilvægasti hluti ársreikningsins, a.m.k. séð frá sjónarhóli end- urskoðandans. Þetta hefur framvarðasveit stéttarinnar ævinlega viljað að öllum les- endum ársreikninga sé alveg ljóst og lagt mikla vinnu í að kynna, bæði út á við og inn á við. En hvers vegna er ég að nefna þetta hér? Jú, ástæðan er sú, að sl. haust urðu lands- menn vitni að því að stórt fjárfest- ingafélag, a.m.k. á íslenskan mæli- kvarða, þurfti að færa eignir sínar niður um gríðarlegar fjárhæðir, milljarða, örfáum mánuðum eftir síðasta ársuppgjör. Ekki var hægt að kenna „hruni“ um núna. Nánast allir fréttamiðlar landsins loguðu stafna á milli yfir þessum fréttum. Tekin voru viðtöl við fjölda ein- staklinga sem að málinu komu, þá sem töpuðu fé og alls kyns sérfræð- inga. Stór orð voru látin falla um, að eitthvað „kriminelt“ kynni að vera á ferðinni og jafnvel að þörf væri á lögreglurannsóknum og alls kyns rannsóknum til að komast að því, hvað hefði gerst. En tókuð þið eftir því, að ekki einn einasti aðili að málinu, hvort sem átt er við fréttamenn, fjárfesta, sér- fræðinga eða aðra, spurði þeirrar spurningar, sem ég tel að hafi verið einna sjálfsögðust allra: Hvernig var áritun endurskoðenda á síðasta árs- reikning viðkomandi aðila? Hvaða vitnisburð var þar að finna? Sl. þriðjudag fjallaði Kveikur/ RÚV um þetta mál og enn var það sama upp á teningnum – þátta- stjórnendum þótti ekki ástæða til að minnast einu orði á þennan þátt málsins þrátt fyrir stærð þess og al- varleika. Staðreyndin er sú að nánast eng- inn sem um þetta mál hefur fjallað virðist hafa látið sér detta í hug að áritanir endurskoðenda kynnu að skipta einhverju máli í tengslum við atburðarásina! Nú vil ég taka skýrt fram að með framansögðu er ég alls ekki að full- yrða að eitthvað hafi verið athuga- vert við áritun endurskoðandans – veit reyndar ekki hver á í hlut – en gef mér að sjálfsögðu þá forsendu að „skotheldir“ erlendir staðlar hafi séð til þess að þar væri allt unnið eftir kúnstarinnar reglum. Hvaða ályktun drögum við svo af framangreindu í samhengi við það, sem ég rakti hér fyrr um stöðuga og áratugalanga viðleitni endurskoð- endastéttarinnar til að vekja athygli almennings á mikilvægi áritana end- urskoðenda? Að mínu viti er þar aðeins um tvennt að ræða – annaðhvort hefur stéttinni alfarið mistekist þetta ætl- unarverk sitt og/eða að fréttamenn hafi þarna gjörsamlega fallið á próf- inu og yfirsést að spyrja um eitt það sjálfsagðasta í málinu. Á aðalfundi Félags löggiltra end- urskoðenda hinn 1. nóvember sl. sá ég ástæðu til að kveðja mér hljóðs og vekja athygli á þessu máli. Undir- tektir voru ákaflega litlar og tilfinn- ing mín var eitthvað á þá leið: Af hverju er maðurinn með þessi leið- indi – við sem erum svo flottir og virtir – best að „taka bara strútinn“ á þetta. Þá gleymist þetta fljótt! Sá valkostur að gleyma þessu er, að mínu viti, alls ekki í boði, hvorki fyrir endurskoðendur né frétta- menn. Fréttamenn og áritanir endurskoðenda Eftir Guðmund Jóelsson » Staðreyndin er sú að nánast enginn sem um þetta mál hefur fjallað virðist hafa látið sér detta í hug að árit- anir endurskoðenda kynnu að skipta máli. Guðmundur Jóelsson Höfundur var löggiltur endurskoðandi 1975 til 2019. gjoels@bokunsf.is Nú keppast stjórn- endur veraldarinnar við að kynna aðgerðir til að bjarga hagkerf- unum hver um annan þveran. Þetta eru mjög eðlileg viðbrögð við mjög óeðlilegu ástandi sem hefur umturnað flestum þeim siðum sem hagkerfi okkar byggjast á. Það sem var gott og gilt í fyrra getur verið banvænn ósiður í dag. Margar atvinnugreinar riða nú til falls vegna takmark- ana á samskiptum og aðrar fara ekki var- hluta af samdrætt- inum. Við Íslendingar erum engin undan- tekning þó að ýmislegt sé hér hagfellt til að takast á við þessa erf- iðu stöðu. Ríkisstjórnin hefur þegar stigið fyrstu skrefin og lýst yfir vilja til enn frekari aðgerða. Við slíkar aðstæður þjóna deilur um aðferðir minna máli en oft áður enda enginn fær um að sjá nokkra mánuði fram í tímann, hvað þá heldur nokkur ár. Þó er ljóst að huga verður að atvinnustigi þjóð- arinnar með öllum tiltækum ráðum ef vel á að fara. Um 30 ára skeið hafa Íslendingar kosið að ávaxta fiskinn í hafinu sam- kvæmt vísindalegri ráðgjöf sem gekk út á það í upphafi að ávöxtun hafsins væri meiri en möguleg væri annars staðar. Öllum ætti nú að vera orðið ljóst að eitthvað fór úrskeiðis og hafa margir orðið til að benda á hugsanlegar skýringar á því þar með talinn undirritaður. Þar sem engin viðbrögð hafa enn komið frá vísindamönnum eða ráðamönnum við ábendingum mínum og hugs- anlegum skýringum hlýt ég að álykta að fremur djúpt sé á sann- færingu þeirra fyrir þeim aðferðum sem þeir þó beita og leggja heiður sinn við. Nýlega taldi ég mig sjá frétt um að ICES, erlendur samstarfsaðili og bakhjarl Hafrannsóknastofnunar, mundi ekki leggja mat á tillögur stofnunarinnar í ár og er það vel. Þetta þýðir í mínum huga að fiski- fræðingar stofnunarinnar fá tæki- færi til að láta sjávarútveginn taka meiri þátt í þeim björgunar- aðgerðum sem grípa verður til á næstu árum. Ef þeir nota ekki þetta tækifæri er þeim ekki lengur viðbjargandi. Tillaga mín til stjórnvalda og Haf- rannsóknastofnunar er sú að aflaregla í þorski verði aukin úr 20% í 30% að minnsta kosti í þrjú til fimm ár. Tilgangurinn er bæði efnahagslegur og vísindalegur. Þetta mun bæta atvinnustig þjóðarinnar og auka heildaraflaverðmæti verulega auk þess sem svör geta fengist við ýmsum spurningum um orkusamspil lífrík- isins í hafinu. Að mínu mati mun þetta leiða til aukinnar nýliðunar þorskstofns- ins og hliðartegunda og jafnvel geta leitt til þess að þorskur gangi af öðrum svæðum inn á miðin (Grænlands- göngur). Þetta mun væntanlega leiða til aukins möguleika á loðnuveiðum og rækju- veiðum fljótlega vegna minna álags frá þorskstofninum. Vissulega getur kostnaður við veiðarnar aukist eitthvað um tíma en það er óverulegt miðað við þann ávinning sem í boði er. Hugsanlega kann einhverjum útgerðarmann- inum að vaxa í augum sú óvissa sem ríkir um verð á mörkuðum til lengri tíma en að mínu mati hefur slík hugsun engan tilgang. Það er meira virði að geta boðið sem flestum holl og góð matvæli, fersk, fryst, söltuð og þurrkuð á slíkum tímum. Vonandi verður greiðslugetan til staðar sem fyrst og verðið viðunandi. Þó að ég hafi sjálfur skoðun á því hvernig deila skuli þessari aukningu milli útgerða og byggðarlaga og jafnframt hverjir séu kostir og gall- ar núverandi fiskveiðistjórnunar vil ég ekki flækja tillöguna með þeirri umræðu. Ég vonast hins vegar til að sjá viðbrögð ráðamanna og vísinda- manna við tillögunni í sinni einföld- ustu mynd og rökstuddum tilgangi hennar og meintum hliðarávinningi. Að lokum vil ég biðja fólki og fyr- irtækjum velfarnaðar á þessum dauðans óvissu tímum og vonast til að þjóðin komi sterkari og sam- heldnari út úr þolrauninni. Lifið heil. Tillaga um hækkun aflareglu Eftir Sveinbjörn Jónsson » Tillaga mín til stjórn- valda og Haf- rannsóknastofn- unar er sú að aflaregla í þorski verði aukin úr 20% í 30% að minnsta kosti í þrjú til fimm ár. Sveinbjörn Jónsson Höfundur er sjómaður og ellilífeyrisþegi svennij123@gmail.com Fyrr … Réttur ára- tugur liðinn og aftur að koma kreppa? „Þetta er allt öðru- vísi heldur en þá var,“ segja stjórnmálamenn- irnir. Jú, jú, þá voru bankar og fyrirtæki rænd innan frá, verð- tryggðar skuldir fyr- irtækja og heimila tvö- földuðust og bylgja gjaldþrota reið yfir þjóðina – eins og versta farsótt. Yfirvöld – trúnaðar- menn þjóðarinnar – höfðu tækifæri til að vanda sig, ganga heilir til starfa – en því miður: Samfylkingin sem setið hafði með Sjálfstæðisflokknum í ríkisstjórn bolaði honum í burtu og myndaði nýja með VG. Þeir sögðu að það boðaði gæfu fyrir Íslendinga að nú væri komin hrein vinstristjórn í landinu. Þeim yfirlýsingum fylgdu loforð þeirra um að „slegin yrði skjaldborg um heimilin og að hjól at- vinnulífsins myndu halda áfram að snúast“. Raunin varð önnur eins og stór hluti Íslendinga man vel. Mikill fjöldi fyrirtækja varð gjald- þrota. Það olli mjög miklu atvinnu- leysi og þúsundir fjölskyldna misstu heimili sín – mikill fjöldi fólks flúði land í leit að vinnu Forsætisráðherra, Jóhanna Sig- urðardóttir, form. Samfylkingar- innar, sagði um það „að það væri ekkert nýtt að Íslendingar færu til starfa erlendis“. Jóhanna er nú hætt störfum. Formaður VG á þessum tíma var Steingrímur J. Sigfússon og var hann fjármálaráðherra. Hann stjórn- aði fjárhagslegum „björgunarað- gerðum“ ríkisvaldsins og notaði fé þjóðarinnar til að styrkja sérvalin fyrirtæki rausnarlega. Steingrímur er nú forseti Alþingis. Meðal annarra þingmanna á þess- um tíma má nefna Össur Skarphéðinsson, Samf., utanríkisráð- herra sem var einn að- almaðurinn í tilraunum þessarar ríkisstjórnar að koma Íslendingum í ESB og undir skulda- ok Icesave-kröfunnar. – Kröfunnar sem Evr- ópudómstóll úskurðaði síðan að íslenska þjóð- in bæri enga ábyrgð á. Össur naut dyggrar aðstoðar Steingríms J. Sigfússonar en starfar ekki lengur í stjórn- málum sjálfur. Katrín Jakobsdóttir, VG, var þingmaður í þessari vinstri- stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. Katrín er nú forsætisráðherra Ís- lands. Og nú … Núverandi vandi er vissuleg öðru- vísi til kominn en hann hefur svipuð vandamál í för með sér og svipuð tök á þjóðfélaginu. Nokkurs ágreinings gætir með það hvernig tekið hefur verið á mál- um, í sóttvörnum. Sjálfsagt verður það krufið til mergjar þegar um hægist og af því lært. Hvað viðbrögð áhrærir verðum við nú að taka á vandanum út frá því hvar við erum stödd í dag. Þar getum við best treyst þeim sem verið hafa í fram- varðarlínunni, fólkinu sem daglega birtist á skjánum okkar og skýrir fumlaust og opinskátt frá stöðu mála og hvað þarf að gera næst. Það mættu fleiri temja sér. Ég þakka þessu fólki sem og öllum sem nú standa langar og strangar vaktir fyr- ir þjóð sína. En er þessi kreppa „allt öðru vísi“ en þessi fyrir áratug? Nei, aldeilis ekki. Það hægir á atvinnulífinu, bull- andi atvinnuleysi, fjárskortur hjá einstaklingum og fyrirtækjum – áhyggjur og kvíði sem lætur fáa ósnortna. Þó að við eigum digra sjóði og þurfum vissulega að hjálpa þeim sem þurfa þá verður að fara sparlega með og úthlutun á almannafé, s.s. úr ríkis- sjóði, verður að vera hafin yfir allan grun um frændhygli – af nokkru tagi. Allt þarf að vera uppi á borðum, opið og gagnsætt. Eitt langar mig að nefna. Ríkis- stjórnin hefur hælt sér af því að halda gengi krónunnar stöðugu. Ég geri enga athugasemd við það – besta mál. Núna síðustu mánuðina hefur krónan hinsvegar verið að síga. Ég geri þá tillögu að genginu verði breytt handvirkt og fest þar sem það var t.d. 1. október 2019 eða 1. janúar 2020. Fast gengi heldur vöruverði jöfnu sem er búbót fyrir alla. Það kann að kosta eitthvað en er miklu skárra en að leyfa genginu að síga. Það ýtir undir óvissu, breytingar á vísitölu og veldur endalausum titr- ingi. Nefna má bankalán, launasamn- inga og húsaleigusamninga, verðlag á öllu, t.d. matvælum, ferðalögum, húsmunum og byggingarefni og auð- vitað lyfjum. Um leið þyrfti væntan- lega festa álagningu á nauðsynjavöru og taka upp takmarkanir á sölu gjaldeyris. Ef við tryggjum stöðug- leika með sanngjörnu gengi, með til- heyrandi kostnaði fyrir ríkissjóð, verðum við að fyrirbyggja að spá- kaupmenn geti keypt gjaldeyri til að „spila með“. Enginn veit hve lengi núverandi „hrun“ stendur – eða hvað tekur svo við! Best að vera við öllu búin. Heimilin – framtíð þjóðarinnar Það var grátlegt að sjá heimilin seld á uppboði fyrir um áratug, eða yfirtekin af íbúðalánasjóði og fjöl- skyldum úthýst. Skiljanlegt var að húseigendur sem höfðu misst vinnu sína og tekjur gátu ekki haldið áfram að greiða af lánum sínum sem mörg tvöfölduðust að stærð og greiðslu- byrði á einni nóttu. Margt af þessu fólki stofnaði Hagsmunasamtök Heimilanna til að leita réttar síns, en nú um áratug síð- ar hefur það ekki haft erindi sem erf- iði. Sjaldan er talað við þá sem liggja en oft í þá sparkað – svei. Hagsmunasamtökin hafa verið óþreytandi, beðið um þak á vístölu- tryggingu lána. Einnig gengið eftir að gerð yrði skýrsla um hrunið og eftirmála þess – árangurslaust. Ég tek ofan fyrir samtökunum og hvet alla til að skoða netsíðu þeirra: www.neytendatorg.is Hvað getum við lært af sögunni? Eftir Baldur Ágústsson » Fast gengi er allra hagur. Baldur Ágústsson Höfundur er fv. forstjóri, flugumferð- arstjóri og forsetaframbjóðandi 2004. bagustsson@mac.com baldur@landsmenn.is Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.