Morgunblaðið - 02.04.2020, Page 48

Morgunblaðið - 02.04.2020, Page 48
48 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 2020 Hinn 31. mars 2020 var heilt ár síðan kjarasamningur Fé- lags íslenskra hjúkr- unarfræðinga við fjár- málaráðherra rann út. Sá samningur var gerðardómur sem úr- skurðað var um árið 2015 eftir um tíu daga verkfall hjúkrunar- fræðinga. Á þessu ári sem liðið er hefur félagið átt hátt í 30 fundi með samninganefnd ríkisins, þar af fimm undir stjórn ríkissáttasemjara. Í við- ræðunum hafa náðst einhverjir áfangar, en hins vegar er staðan sú að það tilboð sem samninganefnd ríkisins hefur lagt fyrir hjúkrunar- fræðinga er varðar laun þeirra til ársins 2023 er með öllu óviðunandi. Ljóst er að hækka þarf laun hjúkr- unarfræðinga á samningstímanum til þess að halda þeim í starfi og að launasetning þeirra sé til samræmis við ábyrgð og mikilvægi innan ís- lensks heilbrigðiskerfis. Ýmsar skýrslur hafa verið gerðar varðandi skort á hjúkrunarfræðingum til starfa undanfarin ár. Heilbrigðis- ráðherra hefur auk þess sent bréf til stofnana þar sem óskað var eftir til- lögum um hvernig bregðast mætti við skorti á hjúkrunarfræðingum og stofnað tvo starfshópa vegna vand- ans. Heilbrigðisstofnanir hafa sömu- leiðis gripið til ýmissa ráða undan- farin ár til að bregðast við vandan- um með því að greiða hjúkrunar- fræðingum viðbótarlaun, bæði til þess að fá hjúkrunarfræðinga til starfa en eins til þess að halda þeim í starfi. Dæmi um stofnanir sem gert hafa þetta eru Landspítali og Heil- brigðisstofnun Suðurnesja. Boðað hefur verið að þessar greiðslur falli niður við gildistöku nýs kjarasamn- ings þar sem þær eru óbættar til Við semjum ekki við þá sem við teljum ómissandi Eftir Gunnar Helgason og Guð- björgu Pálsdóttur Gunnar Helgason »Hvernig ætla íslensk stjórnvöld að bregðast við skorti á hjúkrunarfræðingum? Gunnar er sviðsstjóri kjara- og rétt- indasviðs. Guðbjörg er formaður Fé- lags íslenskra hjúkrunarfræðinga. gudbjorg@hjukrun.is Guðbjörg Pálsdóttir stofnana á fjárlögum. Óbreytt samn- ingstilboð til hjúkrunarfræðinga mun því leiða til launalækkunar fyrir hóp þeirra vegna þessa og áfram verður töluverður launamunur hjá hjúkrunarfræðingum sem starfa hjá ólíkum stofnunum hjá ríkinu. Hugsa þarf til framtíðar þegar kemur að kjaramálum hjúkrunarfræðinga. Fíh hefur lagt fjölmargar lausnir á borðið sem ekki hafá hlotið hljóm- grunn hjá viðsemjendum. Fáar raunhæfar tillögur hafa komið frá samninganefnd ríkisins um var- anlega lausn á þessum vanda. Að mati Fíh er nóg komið af skýrslum og greiningum og verkin þurfa að tala. Rök á bak við tilboð um bætt launakjör eru lítil sem engin og auk þess hefur ekki verið orðið við ósk- um um upplýsingar, stefnu eða hvernig á að bregðast við skorti á hjúkrunarfræðingum og því hefur ekki verið svarað. Hvernig ætla ís- lensk stjórnvöld að bregðast við skorti á hjúkrunarfræðingum? Hvernig verður staðan í íslensku heilbrigðiskerfi án þeirra? Eru skilaboð stjórnvalda til hjúkrunar- fræðinga: „Það er ekki hægt að semja við ykkur en á sama tíma eruð þið ómissandi?“ Mánudaginn 30. mars birti Jónas Haraldsson lögfræðingur grein á þessum vettvangi um COVID19-veiruna sem herjað hefur á heims- byggðina að undan- förnu. Vandar hann kín- verskum stjórnvöldum ekki kveðjurnar og ýjar jafnvel að því að þarlend stjórnvöld ættu að greiða ríkjum heims skaðabætur vegna þess tjóns sem veiran hefur valdið! Allt frá því að sögur hófust hafa ýmsar plágur herjað á mannkynið. Þekktar eru þjóðsögur úr gamla testa- mentinu um slíkar plágur og þar er í raun fullyrt að guð Ísraelsmanna hafi notað þær sem svipu á Egypta. Löngu síðar urðu Evrópumenn fórnarlömb plágu sem kallast svarti dauði og herj- aði á þjóðir álfunnar um miðja 14. öld. Varð hún fjölmörgum að fjörtjóni. Íslendingar fengu síðar að kenna á skæðri inflúensu í upphafi 15. aldar og síðar varð stóra bóla fjölda fólks að fjörtjóni. Árið 1918 barst spánska veik- in hingað frá Evrópu og hjó stór skörð í raðir landsmanna. Í grein sinni telur Jónas Haraldsson að kanna ætti hvort kínversk sjórnvöld ættu ekki að greiða það tjón sem af þessari veiru stafaði. Talið er að spánska veikin hafi borist til Evrópu með bandarískum og kan- adískum hermönnum sem tóku þátt í að berja á Þjóðverjum. Engum flaug í hug að gera Bandaríkin ábyrg fyrir því manntjóni sem af þeirri veiru hlaust. Kínversk stjórnvöld hafa hins vegar lagt kapp á að aðstoða þær þjóðir sem hafa þurft að berjast gegn veirunni. Hafa þau sent lið sérfræðinga þeim til hjálpar. Má þar m.a. nefna Spán og Ítalíu auk fleiri þjóða. Kínverjar hafa sannað svo að ekki verður dregið í efa að þeir beittu þeim aðferðum sem dugðu til að stemma stigu við þessum vá- gesti. Hafa Íslendingar m.a. hagað aðgerðum sínum í samræmi við þær. Það er viðurkennt að ýmislegt megi bæta í umgengni við matvæli víða um heim. Það vita kínversk stjórnvöld og hefur ýmislegt breyst til batnaðar í þessum efn- um eins og hérlendis. Breska alþjóðaútvarpið, BBC, hefur fjallað talsvert um ýmsar hliðar á því ástandi sem ríkir nú um veröld alla. Sérfræðingar halda því fram að búast megi við fleiri faröldrum á næstu ár- um. Stafar það m.a. að aukinni ágengni mannsins gagnvart ýmsum dýrategundum. Menn velta fyrst og fremst fyrir sér hvernig alþjóðasamfélagið geti tekist á við þær áskoranir sem fylgja þessum vágestum. Þar velta menn ekki fyrir sér skaðabótum heldur vilja þeir sam- vinnu til þess að hamla útbreiðslu vá- gestanna. Þessi barátta er í nánum tengslum við hlýnun jarðar og miskunnarlaust arðrán okkar á auðlindum jarðarinnar. Mannkynið hlýtur að átta sig á nauð- syn þess að deila því sem er til skipt- anna svo að fleiri tegundir geti notið ávaxtanna en mannkynið eitt. Hverjir eru sökudólgar? Eftir Arnþór Helgason » Þessi barátta er í nánum tengslum við hlýnun jarðar og miskunnarlaust arðrán okkar á auðlindum jarðarinnar. Arnþór Helgason Höfundur er vináttusendiherra og fyrrverandi formaður KÍM. arnthor.helgason@gmail.com Þegar þetta ástand kom upp með kórónu- veiruna var ég efins fyrst út af fjaðrafokinu sem varð í þjóðfélag- inu. Fljótlega ákvað ég samt að fara varlega og passa mig að snerta ekki fólk og eyða meiri- hlutanum af deginum heima. Mig langaði að heimsækja marga en vissi ekki hvernig fólk tæki því svo ég ákvað að heimsækja engan. Svo byrjaði ég að hanga heima og horfa á sjónvarpið og vera í tölvunni. Svo laust þeirri hugmynd í kollinn á mér (þar held ég að englarnir hafi verið að senda mér hugboð, sem ég fer alltaf eftir þegar ég fæ þau) að gera eitthvað fyrir sjálfan mig og undirbúa mig og standa klár með mig meðan þetta ástand gengi yfir. Eg ákvað að byrja á íbúðinni og fara í gegnum allar skúffur og hirslur og í gegnum kassana sem ég geymdi og búinn að geyma í mörg ár. Ég fór í gegnum þetta stykki fyrir stykki og henti mörgu sem ég var búinn að geyma í mörg ár og hafði ekkert að gera við það. Ég er búinn að vera yfir þessu yfir hádaginn í hálfan mánuð og hef farið í gegnum allt og fundið ýmislegt eins og andlegar bækur sem ég hélt mikið upp á og ætla að lesa aftur og hvíla bókasafnið í bili. Í dag er ég að taka ísskápinn í gegn og þrífa og af- frysta frystihólfin og ég er líka að affrysta frysti- kistuna. Svo þegar þetta er búið þá er eitthvert smotterí eftir að ganga frá. Svo þegar allt er búið get ég snúið mér ein- göngu að sjálfum mér og verið duglegur að hugleiða meira og tengj- ast englunum mínum meira og síðast en ekki síst Guði. Ástæðan fyrir því að ég er að segja ykkur þetta er að maður þarf ekki að hanga heima, maður getur haft nóg að gera svo manni leiðist ekki. Auðvitað er mikið verk að fara í gegnum dótið sitt en maður veit hvar hlutirnir eru eftir að maður er búinn að því! Er þetta ekki flott hjá mér kæru vinir? Þetta er líka yndislegur tími því minningarnar flæða á meðan maður er að fara í gegnum dótið sitt. Uppbyggilegt tímabil? Eftir Ragnar Rúnar Þorgeirsson Ragnar Rúnar Þorgeirsson »Maður þarf ekki að hanga heima, maður getur haft nóg að gera svo manni leiðist ekki. Höfundur er eftirlaunaþegi. ragnar.r@simnet.is Tungumálið okkar er mikilvægt en jafn- framt margslungið þar sem það myndar und- irstöðu og forsendur í lífi okkar sem Íslend- inga. Án íslenskunnar værum við bara eins og útlendingar. Öll sam- skipti okkar, frétta- flutningur, lagabók- stafur og hvers konar tjáning á íslensku byggjast á tungu- málinu okkar. Ástæða þessa pistils er að á síð- ustu tíu til tuttugu árum hefur mér fundist erfiðara og erfiðara að skilja fyrirlestra hjá fólki, sérstaklega yngra kvenfólki og eldri körlum. Gæðum talaðs máls á ráðstefnum og öðrum samkomum hefur farið mikið aftur. Ýmislegt getur komið til en svo virðist sem margt yngra fólk hafi tamið sér sérkennilegar áherslur við framburð á málinu. Margir eldri karlar finnst mér vera þvoglumælt- ir. Þar sem ég nota heyrnartæki kann það að hafa áhrif á að greina það sem sagt er auk þess sem hljóð- kerfi eru mjög misgóð. Á mínu máltökuskeiði var ég svo heppinn að læra tungumálið af ís- lensku sveitafólki en móðir mín var ættuð úr Laugardal í Biskupstung- um og faðir minn úr Svarfaðardal. Auk þess bjó móðuramma mín á heimili okkar í um tuttugu ár en hún talaði einstaklega gott og skýrt mál og var mikill sagnaþulur. Við krakkarnir lærðum því að tala íslenskuna eins og hún gerist best úr íslenskri sveit og máltilfinning okkar mótaðist af þessu umhverfi. Fólk talar til frambúðar það mál sem það lærir á máltökuskeiði uppvaxtarár- anna eins og kemur fram í pistlum Eiríks Rögnvaldssonar prófessors emeritus https://uni.hi.is/eirikur, en hann hefur birt sjö pistla á Kjarnan- um um heilræði eða boðorð um ís- lenska málrækt og eru pistlarnir hafsjór af fróðleik um íslenskt mál. Sem dæmi um þessa afturför við framburð á tungumálinu þá sótti ég fyrirlestur hjá Íslenskri erfðagrein- ingu í fyrra þegar þeir kynntu nýja vefsíðu fyrir Íslend- ingabók. Nokkrir þekktir fræðimenn héldu smá tölu og fjöll- uðu um mikilvægi þessa verkefnis, þar á meðal Kári Stefánsson. Hljóðkerfið í sal þeirra var gott en það var ekki auðvelt að greina vel það sem þessir virtu fræðimenn sögðu þar sem þeir töluðu nær allir óskýrt að mínu mati. Í einum fyrirlestrinum var verið að segja hvernig hefði verið staðið að því að rekja ættir hér áður fyrr. Var þá spiluð á skjánum upptaka af konu frá um aldamótin 1900 sem var að þylja ættartengsl fjölskyldu. Þetta var um 120 ára gömul upptaka. Þarna á skjánum gall allt í einu við sama íslenskan og amma mín talaði, sem var tær og skýr íslenskur fram- burður sem mjög auðvelt var að skilja. Ég hafði varla heyrt þennan framburð síðan amma mín lést fyrir nær fimmtíu árum, að minnsta kosti ekki í þessum gæðum. Það voru því ekki heyrnartækin sem voru vanda- málið. Ég hef sótt ýmsar ráðstefnur hér heima þar sem gæðin á talmálinu hafa verið gríðarlega misjöfn. Nokkrar ungar konur héldu eldræð- ur fyrir hönd stærstu fyrirtækja ís- lenska ríkisins er fjallað var um væntanlegar fjárfestingar næsta árs. Fyrirlesararnir virtust varla vera komnir á miðjan aldur en of margar töluðu með brengluðu tungutaki unglinga. Karlarnir, sem voru flestir komnir vel á aldur, voru sumir þvoglumæltir. Kona í yngri kantinum hélt frá- bæran fyrirlestur á morgunfundi og kynningu Reykjavíkurborgar um þróun byggðar eða skipulags auk þess sem fréttamenn náðu tali af henni í framhaldinu og var það viðtal spilað í fréttatíma kvöldsins. Enn og aftur gall við unglingaframburður sérfræðings og var nú þar að auki sjónvarpað um allt land. Það er óskiljanlegt hvernig hægt er að flytja fyrirlestra um yfirgrips- mikil tæknimál með skekktum áherslum í framburði orðanna, sem virðist vera einhvers konar arfleifð viðkomandi frá tungutaki unglings- áranna. Eftir því sem skekkjan er meiri því meiri hætta er á að það sem fólk segir sé misskilið. Það er ekki bara vandamál að heyra og ná því sem viðkomandi segir heldur er vaxandi hætta á að efnið komist ekki rétt til skila. Ef fólk talar hratt í lágum rómi er vonlaust að ná því sem það segir og hinn bjagaði og ósamræmdi framburður eykur mikið á hættuna um að efnið komist ekki rétt til skila. Í greinum Eiríks Rögnvaldssonar prófessors er einmitt fjallað um óskýrmæli og ósamræmdan fram- burð þótt hann taki það fram að sér- hljóðakerfi málsins hafi allt riðlast í tímanna rás og framburður margra samhljóða hafi breyst. Eiríkur bendir á að til að koma frá sér efni með faglegum hætti þurfi viðkomandi að gæta að málsniði og stíl eftir því við hvaða tækifæri verið er að koma efninu á framfæri, hvar þetta á sér stað, hver sé hópurinn sem verið sé að tala við o.s.frv. Ef efnið er ekki sett þannig fram að það sé skiljanlegt þeim sem verið er að tala við er enginn tilgangur með framsetningu þess. Í viðbót við þessi vandamál bætast vandamál svo sem slangur, slettur og tökuorð og rústa fyrirlestrum viðkomandi ef málsnið, málvenja og málstaðall við- komandi er ekki í neinum takti við það sem fólk á að venjast. Eiríkur bendir þó á þann mögu- leika fyrir óskýrmæli að verið geti að fólk læri annan framburð í skóla en heima hjá sér, sem geti valdið ruglingi, og útkoman verði hrogna- mál sem ekki samræmist framburði nokkurs Íslendings. Afturför íslenskunnar? Eftir Sigurð Sigurðsson » Það er óskiljanlegt hvernig hægt er að flytja fyrirlestra um yfirgripsmikil tæknimál með skekkt- um áherslum í fram- burði orðanna. Sigurður Sigurðsson Höfundur er B.Sc. M.Phil. byggingarverkfræðingur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.