Morgunblaðið - 02.04.2020, Síða 50
V E R S L U N S N O R R A B R A U T 5 6 · 1 0 5 R E Y K J A V Í K · F E L D U R . I S
VERSLUM Á VEFNUM
Á FELDUR.IS bjóðum við viðskiptavinum 15% afslátt af hlýjum
vörum fyrir útiveruna og sendum frítt innanlands.
AFSLÁTTARKÓÐI: FELDUR2020
Árbók Ferðafélags Íslands í prentun
hefur verið prófessor í Háskóla Ís-
lands í áraraðir. Gísli Már var líka
lánsamur að fá til liðs við sig Ólaf B.
Thoroddsen fyrrverandi skólastjóra
á Akureyri, en hann er fæddur og
uppalinn Patreksfirðingur, sem var
að auki í sveit í mörg sumur á Látr-
um.
Bráðum hundrað ár
af eintómri hamingju
Það er komin hartnær hundrað ára
hefð á útgáfu Árbóka Ferðafélags Ís-
lands. Árbækurnar eru ein besta hér-
aða- og óbyggðalýsing sem hugsast
getur á Íslandi. Þar er að mestu
áhersla á landslag, sögu og náttúru
svæðanna. Í þetta skipið er náttúran
á svæðinu í háskerpu, enda er hún al-
veg einstök, gjöful og harðskiptin á
víxl.
„Við Ólafur lögðum mikla áherslu á
náttúru hreppsins,“ segir Gísli Már.
„Landslag þar er stórkostlegt, brött
fjöll, lítið undirlendi og því takmarkað
land til búskapar. Þótt Útvíkur séu
fyrir opnu hafi, þá hefur útvegur
staðið fyrir stærsta hlutann af af-
komu fólks.“
Þeir Gísli Már og Ólafur fengu til
liðs við sig grasafræðinga við smíði
bókarinnar og þurfi prófessorinn ekki
að leita langt. Hann var svo stálhepp-
inn að virkja krafta Þóru Ellenar
Þórhallsdóttur, prófessors í grasa-
fræði við Háskóla Íslands, en hópur
undir hennar stjórn rannsakaði gróð-
urfar á svæðinu. Auðvitað fær Látra-
bjarg ótvíræða athygli í bókinni enda
er það stærsta fuglabjarg í Evrópu og
sennilega í heiminum öllum. Bjargið
var lengi matarkista Látramanna og
reyndar hreppsins alls.
„Miklar rannsóknir hafa verið
gerðar á sjófuglastofnum á svæðinu
undir forystu Arnþórs Garðarssonar,
prófessors við Háskóla Íslands, og
skila þær sér sér í Árbókina og einnig
voru til stakar rannsóknir á jarð-
fræði,“ segir Gísli Már og bendir á
kafla þar sem um þetta er fjallað.
bók um Rauðasandshrepp reyndist
það auðsótt mál. Varla er hægt að fá
betri mann í verkið en Gísla Má.
Hann er afar ritfær og menntaður
vel í líffræði og náttúruvísindum og
lofthræðslu en það reyndi dálítið á
suma að þræða bjargið með honum,
hátt var upp og ekki styttra niður.
Þegar fulltrúar Ferðafélagsins
leituðu eftir því við Gísla Má að rita
Jón Örn Guðbjartsson
jonorn@hi.is
Magnaðar gylltar strandir, stórkost-
leg fuglabjörg og fortíðin í flæð-
armálinu.
– Árbók Ferðafélags Íslands um
Rauðasandshrepp hinn forna er í
prentun.
Þegar vorar spyrja sig margir
með óþreyju hvert verði efni næstu
Árbókar Ferðafélagsins og aðrir
hvort einhvern tímann verði tæmdur
sá brunnur sem hún sækir efni sitt í.
Það er einfalt að svara báðum spurn-
ingum. Ísland er botnlaus brunnur
af efni sem getur kveikt í okkur öll-
um ákafa löngum til að ferðast og
fræðast um staði og stundir í horfn-
um tíma. Rauðasandshreppur hinn
forni er viðfangsefni Árbókarinnar í
þetta skiptið. Bókin er í prentsmiðju
og væntanlega eftir miðjan apríl.
„Ég hef þekkt Rauðasandshrepp
hinn forna býsna vel frá því ég var
barn,“ segir Gísli Már Gíslason, sem
er annar höfunda bókarinnar. „Mér
var komið í fóstur hjá afa og ömmu í
föðurætt á Hvallátrum þegar ég var
þriggja ára ásamt systur minni
vegna veikinda móður okkar. Við
vorum fyrst í tvö ár og síðan hvert
sumar næstu átta árin. Eftir það
kom ég til skemmri dvalar tvö sum-
ur að hjálpa til við heyskapinn.“
Gísli Már þekkir allar perlur
hreppsins af raun og Látrabjarg
eins og handarbakið. Snemma á öld-
inni hóf hann að leiða gönguferðir á
vegum Ferðafélagsins um Rauða-
sand og Látrabjarg og voru farnar
ferðir í tíu sumur í röð. Svo var
stoppað snarlega. Gárungar segja að
Gísli Már hafi tæmt lista allra Ís-
lendinga sem ekki glíma við mikla
Horfinn heimur lifnar
á ný á hvítum blöðum
Í Árbókinni lifnar horfinn heimur
á ný. Útvíkur og Keflavík voru stórir
útgerðarstaðir áður en þessar jarðir
ásamt öðrum í hreppnum voru fyrr á
öldum í eigu höfuðbólsins Saur-
bæjar, eða í eigu nákominna ætt-
ingja á Skarði á Skarðsströnd.
„Almenningur stritaði fyrir þessa
landeigendur, en engu að síður voru
þessar jarðir eftirsóttar til ábúðar.
Sagan er því alls staðar nálæg hvar
sem komið er, og sérstaklega í
kringum höfuðbólið Saurbæ. Á
Saurbæ var reist stærsta kirkja
Vestfjarða, stafkirkja úr viði frá
Noregi og stóð hún frá lokum 12.
aldar fram á 17. öld. Sauðlauksdalur
skipar einnig stóran sess í sögu Ís-
lands, en þar bjó séra Björn Hall-
dórsson, frumkvöðull upplýsing-
arinnar á Íslandi ásamt mági sínum
Eggerti Ólafssyni, náttúrufræðingi
og skáldi, og nokkrum öðrum. Björn
er einna best þekktur fyrir skrif sín
um úrbætur í landbúnaði og upphaf
kartöfluræktar.“
Gísli segir fáa vita að í Stálfjalli
austast í hreppnum hafi verið náma-
gröftur eftir surtarbrandi í fyrri
heimsstyrjöldinni, líklega stærstu
kolanámur í landinu. „Hún er stað-
sett undir snarbröttu fjallinu og að-
gengi er erfitt að sumri og nær
ómögulegt að vetri. Þróun útgerðar
á Patreksfirði og myndun þorpsins
er einnig forvitnileg, en bærinn varð
einn af stærri útgerðarbæjum á
landinu.“
Mannlíf og náttúran
mótað mig mest
Það er margt sem gerir fólk nán-
ast stjarft yfir fegurðinni á því svæði
sem er til umfjöllunar í nýju Árbók-
inni. Þarna eru magnaðar strandir
sem gyllast í ljósi sólar. Þarna er
fortíðin í flæðarmálinu og saga lands
og þjóðar. Þarna má komast á örfá-
Ljósmynd/Dröfn Árnadóttir
Vinsælu vestfirðir Hér er Gísli Már á Rauða-
sandi sem er vinsæll áfangastaður ferðalanga.
Þegar vorar spyrja sig margir með óþreyju hvert verði efni næstu Árbókar Ferðafélagsins og aðrir hvort einhvern tímann verði
tæmdur sá brunnur sem hún sækir efni sitt í. Það er einfalt að svara báðum spurningum. Ísland er botnlaus brunnur af efni
sem getur kveikt í okkur öllum ákafa löngum til að ferðast og fræðast um staði og stundir í horfnum tíma. Rauðasandshreppur
hinn forni er viðfangsefni Árbókarinnar í þetta skiptið.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 2020
Ferðalög á