Morgunblaðið - 02.04.2020, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 02.04.2020, Blaðsíða 51
um mínútum úr byggð í víðerni þar sem engir vegir liggja nema kinda- götur fortíðarinnar. „Þarna sér fólk stórkostleg fugla- björg, með góðu aðgengi, með slíka mergð fugla, að þarf að fara í björgin á Hornströndum til að sjá eitthvað viðlíka. Vélvæðing í landbúnaði náði ekki í sumar jarðir sveitirnar, eins og Látra, og þar sést hvernig lands- lag í byggð lítur út þar sem ekki er búið að slétta allt, og því eru forn- minjar óvenjumargar,“ segir Gísli Már sem mótaðist mjög af því að alast upp á þessu svæði. „Náttúran og sambýli við hana réð miklu í að ég ákvað að læra líf- fræði og gera rannsóknir og kennslu í greininni að ævistarfi. Einnig var samvinnan á Hvallátrum einstæð. Þar stóðu allir saman. Ábúendur áttu sameiginlega þennan eina trak- tor sem var keyptur strax eftir stríð og notuðu hann saman án nokkurra árekstra. Samhugurinn hjá bænd- unum í hreppnum var einstakur, sem kom berlega í ljós þegar allir stóðu að björgun áhafnar togarans Dhoon, sem strandaði undir Látra- bjargi í desember 1947. Þetta mann- líf og náttúran hér hefur sennilega mótað mig mest.“ Góðar myndir segja meira en mörg orð Myndir eru mikilvægur partur af Árbókum Ferðafélagsins. Flestar myndir í þessari bók tók Daníel Bergmann, ljósmyndari og leið- sögumaður. Daníel hefur sérhæft sig í að mynda dýralíf í íslenskri náttúru og ekki síst fugla. Náttúran – lifibrauð og lífsstíll. „Við eigum einstök svæði út frá líffræðilegu sjónarmiði, nægir þar að nefna Látrabjarg, Mývatn og Þjórsárver. Þessi svæði má ekki eyðileggja, þó tekist hafi að raska Mývatni mikið og austurhluta Þjórs- árvera, þá eru þessi svæði engu að síður mjög verðmæt.“ Þótt Gísli Már hafi stundað að veigamiklu leyti rannsóknir sína hér heima þá hefur hann farið víða um þessa litlu jarðkúlu til að svipta hul- unni af leyndardómum náttúrunnar með rannsóknum. Það má segja að náttúran hafi verið hans lifibrauð og lífsstíll nær alla tíð. Hann hefur þungar áhyggjur af hegðun manna og segir að þótt við höfum mikinn aðgang að endurnýjanlegri orku hér þá séum við Íslendingar ekki barnanna bestir. „Þótt mannkynið hafi gengið mjög langt gagnvart náttúrunni þá er enn tími til að bjarga því sem bjargað verður. Við verðum að minnka brennslu olíu og kola og þótt við Ís- lendingar séum fáir, þá erum við einna stórtækastir í heiminum í þeim efnum. Sérstaklega vegna þess að kol eru notuð við framleiðslu áls, kísiljárns og kísils,“ segir Gísli Már og verður þungt hugsi. Hann vísar í eigin rannsóknir þeg- ar hann segir að loftslagsbreytingar eigi eftir að gjörbreyta heimsmynd- inni. „Við eigum eftir að sjá miklu meiri fólksflutninga frá svæðum þar sem þurrkar eiga eftir gera lönd óbyggileg, eða frá svæðum sem eyði- leggjast vegna flóða. Afleiðingar þessara breytinga verða hugsanlega styrjaldir, þar sem menn berjast um auðlindirnar, eins og ég held að sé m.a. undirrótin að ófriðinum sem geisað hefur í Litlu-Asíu. Það er því okkur sem mannkyni lífsnauðsyn- legt að snúa þessari þróun við.“ Ljósmynd/Úr safni FÍ Fjör á ferðalagi Gísli Már fararstjóri að aðstoða fólk. Ljósmynd/Úr safni FÍ Hvergi fallegra Í Hvannaskor í Látrabjargi. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 2020 Stykkjaverð 2.490 kr. 1 stærð passar á alla Við erum öll almannavarnir Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | Sími 561 9200 | vefverslun@run.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.